Morgunblaðið - 03.04.1992, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 03.04.1992, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 3..APRÍL 1992 SKIÐAMOT ISLANDS 1 5 kílómetra ganga karla: Daníel sýndi ól- ympíufaranum í tvo heimana DANÍEL Jakobsson frá ísafirði sýndi það og sannaði á Skíða- móti íslands sem hófst á Ólafs- f'rði í gær að hann er besti göngumaður landsins. Hann var rúmum tveimur mínútum á und- an ólympíufaranum Rögnvaldi Ingþórssyni frá Akureyri, í 15 km göngu karla. Daníel sem er 18 ára keppti upp fyrir sig — í kartaflokki — til að fá saman- burð við þá eldri. Hann var ekki valinn í landsliðið fyrir Ólympíu- leikana en ástæðan var sú að hann hafði engan samanburð við þá eldri. „Eg var mjög svekktur að komast ekki í landsliðið og því var kominn tími til að sýna hvar ég stend gagnvart landsliðsmönnunum," sagði Daníel. Vatur B. Jónatansson skrifar frá Ólafsfirði T^^aníel, sem var ræstur út númer fimm, var í algjörum sér- flokki. Hann var búinn að ná fyrsta sæti er gangan var rétt hálfnuð. „Ég ákvað að keyra upp hraðann í byijun því Rögnvaldur startaði næstur á eftir mér. Ég vissi að hann myndi reyna að ná mér. Það var góð yfirsýn yfir brautina og ég gat því fylgst vel með honum. Það kom fljót- lega í ljós að það dró í sundur með okkur og því gekk ég þetta nokkuð létt síðasta spölinn," sagði Daníel. Daníel sagði að hann hefði verið svolítið taugaóstyrkur fyrir gönguna því margir biðu eftir því að sjá hvar hann stæði gagnvart þeim eldri. „Ég vona að það verði ekki gengið fram- hjá mér í göngulandsliðið eftir þetta. Ég ákvað að láta verkin tala sínu máli og sýna yfirburðina svart á hvítu.“ ísfirðingurinn ungi á enn eftir eitt ár í flokki 17-19 ára. Hann fær þó ekki að keppa í 30 km göngunni Morgunblaöið/Rúnar Þór Rögnvaldur Ingþórsson qlymp- íufari varð að játa sig sigraðan í gær. á morgun, laugardag, vegna furðu- legra reglna Skíðasambandins um að piltar 17-19 ára megi ekki ganga lengra en 15 kílómetra. Þess má geta að í Svíþjóð er keppt í 30 km göngu í þessum aldursflokki og eins á heimsmeistaramóti unglinga. Rögnvaldur sagði að hann hefði ætlað að reyna að hanga í Daníel: „Ég sprengdi mig svolítið á því að reyna að hanga í Daníel fyrsta hringinn og því var annar hringurinn mjög erfiður. Daníel er í mjög góðri æfingu, en ég hef slakað á eftir Ólymíuleika vegna náms. Annars er ég ekkert að afsaka þetta, hann er einfaldlega þetta betri,“ sagði Rögn- valdur. Ólafur Björnsson, Ólafsfirði, kom nokkuð á óvart með því að ná þriðja sæti. Fyrirfram var búist við að 01- afsfirðingurinn Sigurgeir Svavars- son væri sterkari, en hann varð að sætta sig við fjórða sætið. Haukur Eiríksson, ólympíufari frá Akureyri, tók ekki þátt í göngunni vegna veikinda. Hann fékk vírus á Ólympíuleikunum í Albertville og hefur ekki náð sér eftir það. GETRAUNIR 14. Heimaleikir frá 1979 1 X 2 Mörk Úrslit Mín spá 1 x 2 leikv. V> AIK : Frölunda IF 2 2 1 11-8 IFK Göteborg : Malmö FF 1 4 4 10-10 Trelleborgs FF : GAIS 1 3 0 3-2 Örebro SK : Djurgardens IF 3 3 1 13-7 Öster IF : IFK Norrköping 2 2 3 7-10 Liverpool : Portsmouth 1 0 0 4-0 Coventry : Arsenal 4 1 7 9-16 Crystal Palace Everton 1 2 1 5-5 Luton : Wimbledon 1 3 1 5-4 Manchester City Leeds 2 3 3 11-9 Notth' Forest Sheffield Wed. 2 2 2 7-5 Sheffield Utd. Oldham 4 0 1 8-6 Tottenham Aston Villa 7 0 4 19-13 " UT ANDEILD ARKEPP Nl KSÍ1992 Rétt til þátttöku í keppni KSÍ utan deildar hafa þau fé- lög/fyrirtæki, sem ekki eiga lið í 1., 2. eða 3. deild karla og kjósa að taka ekki þátt í 4. deild karla. Tilkynna skal þátttöku á skrifstofu KSÍ fyrir 10. apríl nk. til Magnúsar Guðmundssonar, starfsmanns mótanefndar, sem veitir allar nánari upplýsingar, sími 814444. Þátttökugjald er kr. 25.000,- sem greiðist við skráningu. MÓTANEFND KSÍ * Morgunblaðið/Rúnar Þór Daníel Jakobsson mætti einbeittur til keppni í gær, eins og sjá má. Hann vann öruggan sigur. Kristján fékk Ufán/R fyrsta gullið FOLK KEPPNI hÓfst á SkíðamÓti ís- lands á Ólafsfirði i gær. Krist- ján Ó. Ólafsson frá Akureyri varð fyrsti íslandsmeistarinn er hann sigraði í 10 km göngu pilta 17-19 ára með hefðbund- inni aðferð eftir harða keppni við Ólafsfirðinginn Kristján Hauksson. „Ég átti alveg eins von á sigri því við sem vorum í þremur efstu sætunum höfum verið nokkuð jafnir í mótum vetrarins. Það var rosalega gaman að vinna Kristján Hauksson á hans eigin heima- velli,“ sagði íslandsmeistarinn. Kristján Ólafsson var með 20 sekúndna forskot á nafna sinn, Hauksson, eftir fyrri 5 kílÓ- metrana. Síðan náði Ólafsfirðingur- inn að saxa á forskotið síðustu kílÓ- metrana og var munurinn aðeins 9 sekúndur er þeir komu í mark. Árni Elíasson frá ísafirði varð þriðji, tæpri mínútu á eftir sigurvegaran- um. Kristján Ólafsson, sem er 19 ára, sagðist vissulega ánægður með fyrsta íslandsmeistaratitil sinn. Hann varð í öðru sæti í 10 km göngunni í fyrra og þriðji í 15 kílÓ- metrunum. „Ég vissi allan tímann hver munurinn á okkur var í braut- inni þÓ svo að ég hafi verið ræstur út á undan. Ég fékk reglulega milli- tíma okkar og var því nokkuð ör- uggur um sigur er ég kom í mark- ið.“ „Æfingarnar hjá mér hafa geng- ið upp og ofan í vetur vegna snjð- leysis. En það sem ég bý að hér er æfingaferðin sem ég fÓr með féiögum mínum til SvíþjÓðar um jÓlin,“ sagði Kristján sem er í Verk- menntaskÓlanum á Akureyri. Hann er einnig í flugnámi og segir það drauminn að verða flugmaður. „Ég er kominn með einkaflugmanns- prÓf og stefni á áframhaldandi nám. Það er spurning hvort skíðin verði ekki að víkja fyrir flugnáminu í framtíðinni. Það er mjög dýrt að _ Morgunblaöiö/Rúnar Pór Kristján Ó. Ólafsson frá Akureyri varð hlutskarpastur í göngu 17-19 ára pilta. stunda skíði, sérstklega ef maður þarf að sækja æfingar til útlanda eins og í vetur.“ ÚRSLIT Skíðamót íslands Ólafsfíörður: 15 km ganga karla (hefðb.) 1. Daníel Jakobsson, ísafirði.......37.22 2. Rögnvaldurlngþórsson, Akureyri ...39.25 3. ÓlafurH. Björnsson, Ólafsfirði..40.00 4. Sigurgeir Svavarsson, Ólafsfirði.42.11 5. Dan Hellström, Akureyri..........44.01 6. Arni F. Antonsson, Akureyri.....45.37 7. Egill Rögnvaldsson, Siglufirði..46.03 10 km ganga 17-19 ára pilta: 1. Kristján O. Ólafsson, Akureyri..25.19 2. Kristján Hauksson, Ólafsfirði...25.28 3. Árni Elíasson, ísafirði.........26.09 4. Gísli E. Árnason, ísafirði......26.10 5. Kári Jóhannesson, Akureyri......27.15 6. Tryggvi Sigurðsson, Ólafsfirði..27.18 7. Bjarni Jóhannesson, Siglufirði..27.50 í 54. sinn. Mótið var fyrst haldið 1937, en tvisvar hefur þurft að af- lýsa mótinu; 1941 og 1959. ■ FYRIRHUGAÐ var að keppa í stökki og norrænni tvíkeppni, en stökkkeppninni hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Það eru aðeins Ólafsfirðingar sem voru skráðir til leiks og fer keppnin væntanlega fram þar eftir viku til tíu daga. Ekki hef- ur verið keppt í stökki á Skíðamóti íslands síðan 1989. ■ KRISTINN Björnssonfrá Ól- afsfirði keppti á norska meistara- mótinu í alpagreinum fyrir skömmu. Hann hafnaði í 44. sæti í risasvigi og var 7 sekúndum á eftir ólympíu- meistaranum, Kjetil Andre Aamodt. Arnór Gunnarsson, Isafirði, var þremur sekúndum á eftir Kristni. Þeir kepptu einnig í svigi og stórsvigi. Kristinn fór útúr í báðum greinunum, en Arnór varð í 28. sæti í sviginu og fór útúr í stórs- viginu. ■ KEPPENDUR á Skíðamóti ís- lands eru 73 að þessu sinni. Flestir koma frá Akureyri, 28, og keppa þeir flestir í alpagreinum. Siglfirð- ingar áttu engan keppanda á síðasta landsmóti, en er nú með fjóra og keppa þeir allir í göngu, ■ ÓLAFSFIRÐINGAR hafa beðið eftir því í 20 ár að fá Skíðamót ís- lands þangað. Ólafsfjörður hefur fengið á sig orð sem mikil snjókista og ef flett er í gömlum sögum er þess ætíð getið. En svo bregðast krosstré sem önnur tré. „Við erum búnir að bíða allan þennan tíma eft- ir að fá landsmótið og loksins þegar okkur var úthlutað mótinu er lítill sem enginn snjór," sagði Ólafsfirð- ingur sem á sæti í mótsstjórn. ■ KEPPT verður í stórsvigi í Hlíð- arfjalli á Akureyri í dag._ Kristinn Björnsson, Ólafsfirði, og Ásta Hall- dórsdóttir, ísafirði, eiga þar titil að veija. I DAN Hellström frá Svíþjóð keppti í 15 km göngu karla í gær. Hann er þjálfari Akureyringa og var m.a. í þriðja sæti á sænska unglingameistaramótinu fyrir nokkr- um árum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.