Morgunblaðið - 06.05.1992, Síða 39
1
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 1992
HANDKNATTLEIKUR
39
Jón Asgeirsson gefur kost
á sér til formanns HSÍ
JÓN Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri, hefur ákveðið
að gefa kost á sér til for-
manns Handknattleikssam-
bands íslands á ársþingi
sambandsins 23. maí. Upp-
stillinganefnd HSÍ fór fram á
það við Jón Ásgeirsson að
hann gæfi kost á sér og mun
léggja tillögu þess efnis fram
á ársþinginu.
orgeir Ingi Njálsson, formaður
handknatlleiksdeildar Selfoss
og formaður uppstillinganefndar
HSÍ, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi að nefndin hafi
skorað á Jón Ásgeirsson að gefa
kost á sér til formanns og hann
hafi tekið þeirri áskorun.
Þorgeir sagði að það hafi komið
fram í viðræðum uppstillinga-
nefndar við þá sem eiga sæti í
sambandsstjórn HSÍ að þörf væri
á því skipta um forystu. „Við tók-
um mið að því sem við höfðum
hlerað hjá sambandsstjórnarmönn-
um. Þar kom greinilega fram þörf
á að skipta um forystu. Nú er ver-
ið að leita að nýjum mönnum í
kringum formannsefnið," sagði
Þorgeir Ingi.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er vilji fyrir því að breyta
Jón Ásgeirsson
stjórnarfyrirkomulaginu hjá HSÍ.
Nú situr 21 fulltrúi í sambands-
stjórn, þar af fimm í framkvæmda-
stjórn. Þetta fyrirkomulag hefur
reynst illa af ýmsum ástæðum.
Hugmyndir eru nú uppi um að ný
stjórn verði skipuð 9 fulltrúum.
Fjárhagsstaða sambandsins hef-
ur verið slæm og er talið að skuld-
ir þess nemi um 30 miiljónum
króna. Það er því mikil vinna fram-
undan hjá nýrri stórn að koma fjár-
málunum í lag .
„Ég lít á þetta framboð mitt sem
framboð lýðræðisaflanna ’innan
HSÍ. Mér skilst að það sé útbreidd
skoðun manna að það verði að
skipta um forystu," sagði Jón Ás-
geirsson í samtali við Morgunblað-
ið. „Ég mun leggja áherslu á það,
að kveðja fleiri til starfa en verið
hefur. Það er til fulit af góðu fólki
innan raða handknattleiksmanna
og kvenna sem þarf að virkja og
er tilbúið til þess. Það á reyndar
eftir að koma í ljós hvernig fjár-
hagsstaðan er nákvæmlega. En
það er ljóst að það er ekki einn
maður sem gerir svona hluti og
lyftir grettistaki nema þá með
sameiginlegu átaki,“ sagði Jón.
Ekki náðist í Jón Hjaltalín
Magnússon, formann HSÍ, í gær-
kvöldi.
KARFA
KR-inqar
ívið-
ræðum við
Friðrik
KR-ingar hafa verið í viðræð-
um við Friðrik Rúnarsson,
þjálfara Njarðvíkinga í körfu-
knattleik, um að hann þjálfí lið
KR næsta vetur.
Friðrik er aðstoðarlandsliðs-
þjálfari og er nú með landsliðinu
á Norðurlandamótinu, sem hefst
í Noregi á morgun. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins ætl-
ar hann að gefa KR-ingum svar
eftir Norðurlandamótið.
ÚRSLIT
Körfuknattleikur
NBA-deildin
Austurdeild:
Boston - Cleveland...........104:98
■ Liðin standa jöfn, 1:1, í 2. umferð úrslita-
keppninnar.
Vesturdeild:
Utah Jazz - LA Clippers........98:89
■Utah sigraði samanlagt 3:2, og fer í átta
liða úrslit.
Knattspyrna
SVÍÞJÓÐ
Gais-AIK........................0:1
Vadim Jevtusjenko (41.). 3.065.
V-ÞÝSKALAND
Duisburg - Niirenberg...........3:0
Wattenscheid - Dortmund.........0:1
Leverkusen - Bayern Miinchen....2:1
Mönchengladbach - Stuttgart.....0:1
Stuttgart K. - Dynamo Dresden...0:0
Karlsruhe - Frankfurt...........0:2
Hansa Rostock - Kaiserslautem...0:1
Schalke - Bochum................2:1
Dússeldorf - Köin...............1:3
Staða efstu liða:
Frankfurt.....36 18 13 5 73:37 49
Stuttgart.....36 20 9 7 59:30 49
Dortmund......36 18 12 6 62:46 48
Leverkusen....36 15 13 8 51:34 43
Kaiserslautern. 36 16 10 10 56:40 42
Köln..........36 12 17 7 55:41 41
Niirenberg.....36 17 7 12 50:48 41
WerderBremen36 11 15 10 41:40 37
KNATTSPYRNA
Kvennalandsliðið
leikur ekki á Wembley
Leikur Englands og íslands, í Evr-
ópukeppni kvenna í knatt-
spyrnu, verður ekki á Wembley leik-
vanginum í London 17. þessa mánað-
ar, eins og greint var frá hér í blað-
inu í síðustu viku. Leikurinn fer fram
í Yeovil. Upplýsingar blaðsins voru
rangar, og er beðist velvirðingár á
mistökunum.
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Jafntefli í Grikk-
landl ágæt úrslrt
- segirÁsgeir Elíasson, landsliðsþjálfari, um landsleikinn í Aþenu
ÁSGEIR Elíasson, landsliðs-
þjálfari í knattspyrnu, hefur
valið 16 leikmenn fyrir leikinn
gegn Grikkjum í undankeppni
HM, sem fram fer í Aþenu í
næstu viku. Ásgeir sagðist
bjartsýnn fyrir leikinn en sagði
að jaf ntef li á útivelii væru góð
úrslit.
Asgeir sagði að ef einhvemtíma
hafi verið möguleiki að standa
sig vel í keppninni væri það núna.
„Það er mikilvægt að ná hagstæð-
um úrslitum úr fyrsta leiknum.
Jafntefli á útvelli eru ágætis úrslit
fyrir okkur. Við verðum að ná upp
sterkari heimavelli en við höfum
haft hingað til svo við eigum meiri
möguleika í keppninni," sagði Ás-
geir.
Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, tók í sama streng og sagði
það afar mikilvægt að skapa sterk-
ari heimavöll og fá 10 þúsund
manns á völlinn til að hvetja ís-
lenska landsliðið. Það hefði einnig
áhrif á dómgæsluna. „Við erum í
þessu til að ná árangri og meinum
það. Við ætlum okkur annað af
tveimur efstu sætunum í riðlinum."
Fjórar breytingar eru á liðinu frá
því í leiknum gegn ísrael í byijun
apríl. Arnór Guðjohnsen, Sævar
Jónsson, Hörðut' Magnússon og
Andri Marteinsson koma inn fyrir
U-21 árs liðið
Markverðir:
Ólafur Pétursson ...ÍBK
Þórður Þórðarson ÍA
Aðrir leikmenn:
Arnar Gunnlaugsson ÍA
Bjarki Gunnlaugsson ÍA
Þórður Guðjónsson ÍA
Sturlaúgur Haraldsson.. IA
Pétur Marteinsson Leiftri
Steinar Guðgeirsson .Fram
Ásgeir Ásgeirsson .Fram
Finnur Kolbeinsson ..Fylki
Þórhallur Dan ..Fylki
Gunnar Pétursson ..Fylki
Sigurður Ö. Jónsson KR
Hákon Sverrisson ..UBK
Lárus Orri Sigurðsson...
Guðm. Benediktss Ekeren
Asgeir Elíasson.
Atla Helgason, Ormarr Örlygsson,
Baldur Bragason og Þorvald Örl-
ygsson.
Valið á liðinu kemur kannski
ekki á óvart. Ásgeir sagðist hafa
kosið að hafa Ólaf Þórðarson, Þor-
váld Örlygsson og Sigurð Jónsson
með til Grikklands, en þar sem
Þorvaldur og Ólafur eru meiddir og
Sigurður ekki í leikæfingu væri það
ekki hægt. Aðspurður um Hlyn
Stefánsson, seni leikur með Öster
í Svíþjóð, sagði hann: „Hann er
Kvennalandsliðið
Markverðir:
Steindóra Steinsdóttir....IA
Sigfíður Sophusdóttir..UBK
Aðrir leikmenn:
Arney Magnúsdóttir.......Val
Auður Skúladóttir...Stjörnunni
Ásta B. Gunnlaugsdóttir..UBK
Bryndís Valsdóttir......V al
Guðrún J. Kristjánsdóttir....KR
Guðrún Sæmundsdóttir.....Val
Halldóra Gylfadóttir....í A
Helena Ólafsdóttir.......KR
íris Steinsdóttir.........ÍA
Jónína Víglundsdöttir.....IA
Ragna L. Stefánsd. .Stjörnunni
Sigurlín Jónsdóttir.......ÍA
Sigrún Óttarsdóttir....UBK
Vanda Sigurgeirsdóttir....UBK
ekki inní í myndinni í bili.“
Ásgeir sagðist ekki þekkja vel
til gríska landsliðsins. Hann væri
þó með myndbandsspólur af leikjum
liðsins við Möltu í Evrópukeppninni
á síðasta ári. „Ef við náum að halda
hreinu fyrstu 15 til 20 mínúturnar
fá þeir áhorfendur á móti sér eins
og gerðist í Evrópuleik Fram og
Panathinaikos í Aþenu í fyrra og
þá getur allt gerst,“ sagði landsliðs-
þjálfarinn. Hann sagðist reikna með
að leggja upp leikaðferðina 4-5-1 á
útvelli.
Landsliðið
Markverðir:
Birkir Kristinsson Fram
Friðrik Friðriksson.. ÍBV
Aðrir leikmenn:
Arnór Guðjohnsen... Bordeaux
Eyjólfur Sverrisson.. .Stuttgart
Sigurður Grétarsson ....Grassh.
Guðni Bergsson Tottenham
Sævar Jónsson Val
Rúnar Kristinsson.... KR
Arnar Grétarsson.... UBK
Valur Valsson UBK
Kristján Jónsson Fram
Kristinn R. Jónsson. Fram
BaldurBjarnason....
Andri Marteinsson.. FH
Hörður Magnússon. FH
Ólafur Kristjánsson FH
U-18ára liðið
Markverðir:
Árni Arason..............ÍA
Atli Knútsson............KR
Aðrir leikmenn:
Alfreð Karlsson..........IA
Gunnlaugur Jónsson.......ÍA
Pálmi Haraldsson.........ÍA
Ottó Ottósson.......... KR
Hrafnkell Kristjánsson..FH
Orri Þórðarson...........FH
Lúðvík Jónasson...Stjörnunni
Helgi Sigurðsson....Víkingi
Sigurbjörn Hreiðarsson..Val
Eysteinn Hauksson.....Hetti
Þorvaldur Ásgeirsson..Fram
Jóhann Steinarsson.....ÍBK
ívar Bjarklind...........KA
Sigþór Júlíusson.........KA
ÍÞRÓmR
FOLK
ÍSLENSKA landsliðið leikur
gegn Grikkjum á Ólympíuleikvang-
inum í Aþenu 13. maí og hefst leik-
urinn kl. 18 að íslenskum tíma.
geir Elíasson ætti að þekkja vatlar-
aðstæður vel því hann stjórnaði
Fram í Evrópuleiknum gegn Panat-
hinaikos á sama velli sl. haust sem
lauk með markalausu jafntefli.
■ U-21 árs liðið leikur á þriðjudag
í gríska bænum Nafplion sem er
um 100 km frá Aþenu. Liðið mun
búa í bænum Argos sem er skammt
þar frá. Leikurinn er liður í Evrópu-
keppninni og hefst hann kl. 15.30
að íslenskum tíma.
■ RÍKHARÐUR Daðason, leik-
maður Fram, gaf ekki kost á sér í
21 árs liðið gegn Grikkjum vegna
prófa. Ágúst Gylfason úr Val sá
sér heldur ekki fært að taka þátt í
leiknum þar sem hann er í námi í
Bandaríkjunum.
■ GUÐMUNDUR Benediktsson,
sem leikur með Ekeren í Belgíu, er
í 21 árs liðinu en hann er einnig
gjaldgengur í U-18 ára liðið. „Við
getum kannski notað hann ef hann
stendur sig vel með 21 árs liðinu,“
sagði Guðni Kjartansson, þjálfari
U-18 ára liðsins og brosti.
■ PILTALANDSLIÐIÐ, sem er
skipað leikmönnum undir 18 ára
tekur þátt í 8-þjóða móti í Piestany
í Tékkóslóvakíu 12. - 16. maí. ís-
land er í riðli með Tékkum, Pól-
verjum og Ungverjum. Þessi ferð
liðsins er liður í undirbúningi fyrir
Evrópukeppnina i þessum aldurs-
flokki. En í þ'eirri keppni leikur ís-
lenska liðið tvo leiki við Belga í sept-
ember. Það lið sem vinnur kemst
áfram og leikur við Rúmena, Norð-
ur-íra eða Ira. Sigurliðið úr þessum
leikjum kemst í úrslitakeppni Evróp-
umótsins sem fram fer í Englandi
1993.
■ EYSTEINN Hauksson úr Hetti
á Egilsstöðum er í landsliðshópnum
sem er skipaður leikmönnum undir
18 ára. Hann er fyrsti leikmaðurinn
frá Hetti til að komast í pilta-
landsliðið.
■ KVENNALANDSLIÐIÐ hefur
æft vel undir stjórn Sigurðar Haun-
essonar og Steins Helgasonar í
vetur, allt upp í þrjár æfingar í viku.
Þjálfararnir segja að stúlkurnar hafi
aldrei verið eins líkamlega sterkar
og nú.
É ÍSLAND er í riðli með Skotum
og Englendingum í Evrópukeppni
kvennalandsliða. Englendingar og
Skotar hafa þegar leikið fyrri leiW
sinn og sigraði England í þeim leik,
1:0. Sigurður og Steinn, þjálfarar
íslenska kvennaliðsins, fylgdust með
leiknum.