Morgunblaðið - 21.05.1992, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.05.1992, Blaðsíða 13
MQRqUNBLAÐIÐ FlMftlTUQAQUR; 21. MAÍ1992 Síl3 eftir Runólf * Agústsson Upplýsingar um kvótatilfærslur og aukningu kvóta 11 stærstu fyrir- tækja í útgerð sem fram komu í fyrir- lestri undirritaðs á málþingi Birting- ar sl. laugardag hafa vakið töluverða athygli. Hörð viðbrögð útgerðar- manna og viðkvæmni vegna þessara upplýsinga eru illskýranleg í ljósi þess að .umrædd uppsöfnun kvóta sannar það eitt að kvótinn er að komast á færri hendur en slíkt var annað höfuðmarkmið laganna um stjórn fiskveiða. Sjávarútvegsráðun- eytið hefur nú gefið út lista sem sýnir samskonar upplýsingar. Sá listi staðfestir niðurstöður mínar í öllum höfuðatriðum, m.a. um þær miklu tilfærslur sem orðið hafa á kvóta. Upplýsingar mínar voru byggðar á eftirfarandi: 1. Allar upplýsingar eru miðaðar við skráningu Sjávarútvegsráðuneyt- isins á aflaheimildum og byggir á opinberum gögnum þess. Skrár ráðu- neytisins eru einu opinberu heimild- irnar sem til eru um viðskipti með kvóta. Kvóti telst því framseldur á þeim tíma sem framsal er skráð, enda er það eina tímamarkið sem unnt er að miða við. Ailar tölur mið- ast við botnfiskkvóta eingöngu. 2. Listi um aflamark og hlutdeild fyrirtækjanna 11 þann 23. mars sl. var alfarið unninn af starfsmönnum Sj ávarútvegsráðuneytisins. Mismun- ur þess lista og lista sem ráðuneytið gaf út í dag skýrist af þeim tíma sem líður á milli þess að listarnir eru gerðir. Mikil viðskipti eiga sér stað með kvóta og breytast því hlutdeild- artölur fyrirtækjanna dag frá degi. Þannig er Skagfirðingur hf. ekki lengur á meðal 11 stærstu fyrirtækj- anna, Árnes hefur komið í hans stað. Breytir það nokkru um heildarút- komu þessara 11 stærstu fyrirtækja. 3. Listi um aflamark og hlutdeild sömu fyrirtækja þann 1. janúar 1991 var unninn með aðstoð starfsmanna ráðuneytisins útfrá tölvutækum upp- lýsingum um skráningu kvóta þeirra fyrirtækja þann dag. Sá listi miðast við aflamark fyrirtækjanna 8 mán- aða fískveiðiárið 1991 og hlutdeild þeirra í heildaraflamarki. Umræddur listi var fullunninn lesinn yfir af ráðu- neytinu án athugasemda. 4. Listi um aflamark sem fyrir- tækin hefðu í mars sl. miðað við óbreytta hlutdeild frá 1. janúar 1991 byggir á þeim lista. Sambærilegur listi ráðuneytisins er nær samhljóða að teknu tilliti til mismunandi túlkun- ar á meðferð kvóta við sameiningu fyrirtækja. 5. Sá kvóti sem talinn er til kom- inn vegna sameiningar og samruna fyrirtækja er kvóti þeirra fyrirtækja sem tilkynnt hafa og skráð samein- ingu við „móðurfyrirtækin" hjá Sjáv- Samtals í þorskígildum: arútvegsráðuneytinu. Hér er um að ræða sameiningar Granda og Hrað- frystistöðvarinnar, Vinnslustöðvar- innar við Fiskimjölsverksmiðjuna, Knörr, Fiskiðjuna og Samtog, Hrað- frystistöð Vestm., Berg-Huginn, Smáey og Höfn við ísfélag Vest- mannaeyja, Heimaskaga, Síldar- og fiskim.verksmj. og Sigurðar við Har- ald Böðvarsson. 6. Önnur kvótaaukning er talin sem áætluð kaup viðkomandi fyrir- tækja á kvóta. Því eru flutningar aflaheimilda Krossvíkur AK 300 frá Krossvík hf. til Heimaskaga hf. og þaðan inn í Harald Böðvarsson hf. flokkuð sem kaup. Sama gildir um kvóta þann sem fylgdi skipunum Björgu Jónsdóttur ÞH 321, Ásborgu EÁ 259 og Þuríði Halldórsdóttur GK 94 inn í Harald Böðvarsson hf. 7. Við útreikninga á andvirði afla- heimilda var gengið út frá markaðs- verði í mars sl. Það verð hefur nú hækkað verulega og eru því þeir útreikningar því vanreiknaðir ef eitt- hvað er. 8. Sem dæmi um viðkomandi út- reikninga má taka aflaheimildir Samherja hf. Samkvæmt skráningu Sjávarútvegsráðuneytisins var Sam- heiji hf. með sex skip skráð þann 1. janúar 1991. Skipin voru: Jón EA 950, Akureyrin EÁ 10, Þorsteinn EA 610, Margrét EA 710, Hjalteyrin EA 310 og Oddeyrin EA 210. Kvóti þeirra væri óbreyttur nú sem hér segir: Þann 1. apríl var Samherji hf. með 11 skip skráð hjá Sjávarútvegs- ráðuneytinu. Þau voru: Haftindur HF 123, Erling KE 140, Jón EA 590, Akureyrin EA 10, Víðir EA 910, Þorsteinn EA 610, Margrét EA 710, Hjalteyrin EA 310, Oddeyrin EA 210, Ása HF 154 og Straumur RE 190. Samkvæmt fyrrnefndum lista unnum af Sjávarútvegsráðuneytinu þann 23. mars sl. var sameiginlegur Runólfur Ágústsson kvóti fyrirtækisins í botnfiski 12.483 tonn í þorskígildum talið. Mismunurinn á milli 7.948 og 12.483 eru 4.535 tonn. Markaðsverð þess er í dag um 825.370.000 krón- ur. Heyrst hefur að kvóti Samherja sé að hluta til kominn frá Söltunar- félagi Dalvíkinga. Um viðskipti þess- ara tveggja fýrirtækja veit undirrit- aður ekkert eða hve há greiðsla hef- ur komið fyrir þær aflaheimildir. Hér er hins vegar um að ræða tvö sjálf- stæð fyrirtæki sem hafa flutt kvóta sín á milli en ekki sameinast. Þetta eru staðreyndir málsins og ef Þorsteinn í Samheija hefur fengið ofangreind 4.535 tonn á 150 miiljón- ir króna eins og hann hélt fram í fréttum Sjónvarpsins á mánudags- kvöld, þá er hann betri bisnessmaður en flestir aðrir og sýnist ekki van- þörf á að hafa slíka menn í hópi útgerðarmanna. Höfundur er lögfræðingur. Tegund hlutdeild þá heitdarafla- mark í ár aflamark i þorskígildum Þorskur 1,9380238% 204.205 tonn 3.957 tonn 3.957 tonn Ýsa 1,5859627% 41.205 tonn 653 tonn 765 tonn (1,17) Ufsi 1,3148410% 61.311 tonn 806 tonn 419 tonn (0,52) Karfi 4,1480120% 94.044 tonn 3.901 tonn 1.950 tonn (0,5) Grálúða 5.1274272% * 23.532 tonn 1.207 tonn 844 tonn (0,7) Skarkoli 0,1219576% 11.062 tonn 13 tonn 12 tonn (0,89) 7.948 tonn Sr. Bragi Skúlason Von - bók iim viðbrögð við missi UT ER komin hjá Hörpuútgáfunni bókin Von eftir sr. Braga Skúla- son sjúkrahúsprest. Þessi bók er byggð á reynslu margra, bæði er um að ræða reynslu höfundar og fjölskyldu hans, en jafnframt á reynsíu syrgjenda víða um land. í frétt frá útgefanda segir m.a.: „Bókin tjallar um tilfinningar sorgar- innar, líkamleg einkenni, verkefni sorgarinnar, um sorgarviðbrögð for- eldra, fjölskyldusögu, fósturlát, andavana fæðingu, missi barna við aðrar aðstæður en dauða, um útfar- arþjónustu, missi maka við skilnað og missi maka við dauð'a. Höfundur telur sorgina vera eðlileg viðbrögð við missi. Samt forðast margir vinir og hjálparaðilar að ræða um sorgina. Fyrir vikið einangrast margir syrgj- endur með erfiðar tilfinningar sem fá ekki eðlilegan farveg.“ Bókin er 100 bls. og unnin í prent- smiðjunni Odda hf. Kápumynd er eftir Rafn Hafnfjörð. IVIIÐAÐ VIÐ VERÐIÐ A ÞESSUM IBM TÖLVUM ERU TILBOÐ AIVIMARRA EKKI SVO MÖGIUUÐ IBM PS/1 386SX 16MHz klukkutíðni • 2MB minni 40MB harður diskur VGA litaskjár með hátalara • Mús Microsoft Windows og Microsoft Works fylgir Verð aðeins 106.000 kr. með vsk. IBM PS/2 386 FISTÖLVA Vegur aðeins 2,5 kg • 40MB harður diskur 2MB vinnsluminni • Tengi fyrir prentara og nnis Verð aðeins 136.000 kr. með vsk. IBM PS/2 57 Í386SX 20MHz klukkutíðni • 4MB minni 80MB SCSI harður diskur • DOS 5,0 SCSI stýring • 16 liita VGA skjástýring á móðurhorði Verð aðeins 181.000 kr. incð vsk. STAR 4 geislaprentari Prentar 4 ldöð á mínútu • Minni 1MB Möguleiki á stækkun í allt að 5MB 4 innbyggðar leturgerðir • Parallel og serial tengi Samhæfður við Hewlett Packard Laser Jet IIP Prenthylki endist fyrir 3500 blöð Verð aðeins 81.900 kr. með vsk. Með tengi fyrir Apple Macintosh (AppleTttlk) 3MB minni og PostScript (37 leturgerðir). Verð aðeins 125.900 kr. með vsk. m IBM PS/2 50Z 286 I0 MIlz klukkutíðni • 1 MB innra minni 60MB harður diskur • Mús • DOS 5,0 102 hnappa lyklaborð • 12 tonnnu litaskjár Verð aðeins 69.000 kr. með vsk. IBM PS/2 50Z 386SX 20 MHz klukkutíðni • 1 MB innra minni 60MB harður diskur • Mús • DOS 5,0 102 linappa lyklahorð • 12 tommu litaskjár verð aðeins 97.000 kr. með vsk. NÝHERJI SKAFTAHLÍÐ 24 • SÍMI 69 77 00 VERSLUN • SÍMI 697777 Alltaf shrefi á midan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.