Morgunblaðið - 21.05.1992, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.05.1992, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1992 Hæstiréttur þyngir refsingu yfir reykvískum karlmanni: 1 Vi árs fangelsi fyrir kyn- ferðismök við 4 ára dóttur Reykjavíkurkvartettinn. Reykjavíkurkvartettin- um vel tekið í Færeyjum Reykjavíkurkvartettinn fór dagana 22.-25. apríl sl. í tónleika- ferð til Færeyja. Reykjavíkurkvartettinn skipa Rut Ingólfsdóttir, Zbiegniew Dubik, Guðmundur Kristmundson og Inga Rós Ingólfs- dóttir og héldu þau þrenna tónleika í Færeyjum, þá fyrstu í Miðvági síðan í Þórshöfn og loks í Klakkvík. REYKVÍSKUR karlmaður var dæmdur í 18 mánaða fangelsi í Hæstarétti á mánudag fyrir að hafa gerst sekur um skírlífsbrot, með því að hafa tvívegis haft kynferðismök önnur en samræði gagnvart fjögurra ára dóttur sinni í desember 1990 og janúar 1991. .Maðurinn var dæmdur í 10 mánaða skilorðsbundið fangelsi ÁSMUNDUR Brekkan prófessor var kosinn formaður læknaráðs Landspítalans í stað Þorvaldar Veigars Guðmundssonar, sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs á aðalfundi læknaráðsins 15. mai. Á fundinum komu fram tvö framboð til formanns og sljórnar læknar- áðsins í fyrsta skipti í sögu sjúkra- hússins. Tómas Zoega, yfirlæknir á geðdeild Landspitalans, var einnig í framboði til formanns og skildu sjö atkvæði á milli hans og Tilboði tekið í gangstíga fyr- ir 43,6 millj. BORGARRÁÐ hefur samþykkt, að tillögu Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar, að taka 43.639.601 krónu tilboði lægst- bjóðanda, Hlaðverks sf., í gerð gangstíga. Tilboðið er 89,2% af kostnaðaráætlun, sem er 48.911.186. Sjö tilboð bárust í verkið. Næstlægsta boð átti Jarðefni hf., sem bauð rúmar 44,8 millj. eða 91,62% af kostnaðaráætlun, Hag- virki-Klettur hf. og Hlaðbær-Colas hf. buðu saman rúmar 48,8 millj. eða 99,91% af kostnaðaráætlun, Dalverk sf. bauð rúmar 50,4 millj\ eða 103,23% af kostnaðaráætlun, Ásgeir Þór Hjaltason bauð rúmar 58,3 millj. eða 119,31% af kostnaðaráætlun, Rögnvaldur Rafnsson bauð rúmar 58,4 millj. eða 119,58% af kostnaðar- áætlun og Loftorka hf. bauð 114,2 millj. eða 233,65% af kostnaðaráætl- í sakadómi Reykjavíkur í febrúar en Hæstiréttur þyngdi refsing- una verulega og dæmdi manninn til 18 mánaða óskilorðsbundinn- ar fangelsisvistar. Einn hæsta- réttardómari skilaði sératkvæði og taldi refsingu ákærða hæfi- lega ákveðna 12 mánuði, þar af niu mánuði skilorðsbundið fang- elsi. Ásmundar. Sá hópur lækna sem stóð að baki framboði Ásmundar fékk einnig kjörna alla stjórnar- menn læknaráðsins með um % hlutum atkvæða. Auk Ásmundar hlutu eftirtaldir kosningu í stjóm læknaráðsins: Atli Dagbjartsson varaformaður, Ólafur Steingrímsson ritari og meðstjóm- endur voru kjömir Jón Hilmar Al- freðsson, Jónas Magnússon, Þórar- inn Sveinsson og Þórður Harðarson. Jón Hilmar er eini stjórnarmaður fráfarandi stjómar sem hlaut endur- kosningu. Fundurinn var fjölmenn- asti læknaráðsfundur, sem haldinn hefur verið í sögu sjúkrahússins, að sögn Ásmundar Brekkan en 120-130 læknar sátu fundinn. Ekki var viðhöfð listakosning við kjörið til stjómar og að sögn Tómas- ar Zoega var ekki mikill stefnumun- ur á milli þeirra hópa sem stóðu að framboðunum. „Ég tel að það hafi verið nokkur tilviljun að tvö framboð komu fram. Þeir sem buðu sig fram úr báðum hópum voru sammála um að mikilvægt væri meðal annars að reyna að auka áhrif lækna á stjóm sjúkrahússins og í heilbrigðismálum almennt og styrkja tengsl við lækna- deildina," sagði hann. „Ég held að það komi ekki upp ágreiningur á milli þessara hópa eftir kosningam- ar. Ásmundur Brekkan var kosinn formaður læknaráðs og er vel að því kominn,“ sagði Tómas. Ásmundur kvaðst lítið vilja tjá sig um kosninguna og sagðist ekki hafa tekið þátt í baráttu um kjörið. Sagð- ist hann teija að raunveruleg ástæða þess að tvö framboð komu fram á fundinum felist í aðdragandanum að þeirri stöðu sem komin sé upp á spít- alanum vegna niðurskurðaraðgerða stjómvalda. Fram kom í sakadómi að maður- inn hefði viðurkennt að hafa framið þá háttsemi sem hann var ákærður fyrir. Kvaðst hann hvorki hafa ver- ið undir áhrifum áfengis né annarra vímuefna og kvaðst ekki hafa áttað sig á hvað hefði komið yfir hann er atburðir þessir áttu sér stað. Kvaðst hann fljótlega hafa leitað reglulega aðstoðar geðlæknis. í skýrslu geðlæknis sem lögð var fram í sakadómi segir að eins og fieiri karlmenn sem leiðist út í sifja- spell hafi maðurinn sjálfur orðið fyrir ofbeldi og áreitni í æsku. Fram kom í málinu að eiginkona mannsins og móðir stúlkunnar hefði leitað með dóttur sína til sálfræð- ings og að áhrif af háttsemi ákærða myndu fyrst og fremst vera á hug- myndalíf barnsins. Einnig kom fram að hinn ákærði hefði haft frumkvæði að því að flytja að heim- an eftir að mál þetta kom upp. Meirihluta Hæstaréttar skipuðu Hrafn Bragason, Gunnar M. Guð- mundsson, Pétur Kr. Hafstein og Sigurður Líndal prófessor en Hjört: ur Torfason skilaði sératkvæði. í sératkvæði hans er fallist á að maðurinn hafi gerst sekur um hin ákærðu brot en vísað er m.a. til álits læknis um að maðurinn hafi leiðst til verknaðarins vegna skammvinnrar brenglunar og að að svo komnu hafí þess ekki orðið vart að neikvæðar afleiðingar af háttsemi mannsins hafi komið fram í fari telpunnar. Innkaiipastofnun ríkisins hef- ur sent Sprota hf. bréf, þar sem fram kemur að stofnunin telur að nægilegar upplýsingar um sölu á framleiðsludeild ÁTVR sé að finna í útboðsgögnum. Sproti hf., sem hefur framleitt ICY-vodka og hafði hug á að taka þátt í útboðinu, hafði óskað eftir viðbótarupplýsingum um Tónleikana í Þórshöfn bar upp á sumardaginn fyrsta, 23. apríl. Um kvöldið var haldinn fyrirlestur um Halldór Laxness í Landsbóka- safninu í tilefni níræðisafmælis hans. Þar sem Reykjavíkurkvart- ettinn var í höfuðstað Færeyja þennan dag voru hljóðfæraleikar- amir beðnir að leggja sitt af mörkum til afmælishátíðarinnar. Að loknum tónleikum í Norður- afkomumat ÁTVR. Forstjóri fyrirtækisins, Orri Vigfússon, hefur óskað eftir þessum upp- lýsingum frá Ríkisendurskoðun. Sproti hf. sendi Innkaupastofn- un b'réf fyrir skömmu, þar sem farið var fram á að löggiltur endur- skoðandi Sprota fengi að skoða gögn ÁTVR, til að fá gleggri upp- lýsingar um kostnaðarverðsút- landahúsinu lék kvartettinn nokk- ur íslensk lög við ljóð Halldórs Laxness í Landsbókasafninu. Gerðu áheyrendur, sem voru fjöl- margir, góðan róm að þessári óvæntu viðbót við fyrirlestur Tur- ið Sigurðardóttur Johannsson. Tónleikum kvartettsins var alls staðar mjög vel tekið. Á efnis- skránni voru verk eftir Jón Leifs, Grieg, Beethoven og Barok. reikninga og afkomumat fyrirtæk- isins. Þá var þess oskað, að frestur til að skila tilboðum yrði fram- lengdur, en hann rennur út næst- komandi mánudag. I svari Innkaupastofnunar í gær kemur fram, að send hafi verið út viðbótargögn vegna útboðsins. Stofnunin telji að nægilegar upp- lýsingar um sölu á framleiðsludeild ATVR sé að finna í útboðsgögnum og muni því ekki aðhafast frekar í málinu. í bréfinu er tekið fram, sem svar við fyrirspurn í bréfi Sprota, að gengið sé út frá því að sömu verðlagningarreglur gildi fyrir þá framleiðslu, sem boðin sé út, og annað vín sem ÁTVR selji. „Þetta svar Innkaupastofnunar er alls ófullnægjandi," sagði Orri Vigfússon, forstjóri Sprota, í sam- tali við Morgunblaðið. „Viðbótar- upplýsingarnar, sem þeir vísa til, eru ekki undirritaðar af neinum endurskoðanda, heldur starfs- manni ÁTVR. Ég er búinn að skrifa Ríkisendurskoðun bréf, þar sem ég fer fram á að hún stað- festi að kostnaðarverðsútreikning- ar og afkomumat ÁTVR sé rétt. Jafnframt hef ég óskað eftir að fá ítarlega sundurliðaða ársreikninga ÁTVR, þar sem greina má kostnað og tekjur framleiðsluþáttar, inn- flutningsdeildar og smásölu ÁTVR, fyrir áfengi annars vegar og tóbak hins vegar. Þar er ég á sama báti og til dæmis Félag ís- lenskra iðnrekenda, Verslunarráð Islands, Kaupmannasamtökin og fleiri hagsmunaaðilar, sem hafa ítrekað óskað eftir slíkum upplýs- ingum.“ Orri sagði að hann tæki ákvörð- un um það í dag, hvort Sproti tæki þátt S útboðinu. un. „Flugustaðir“ búnir til í Úlfarsá LEIGUTAKAR Úlfarsár í Mos- fellssveit, ef til vill betur þekkt undir nafninu Korpa, hafa að undanförnu unnið að viðamikl- um lagfæringum á farvegi ár- innar til að freista þess að gera langar „veiðileysur" virkar á komandi sumri og sumrum. Fyrsta tilraunin var raunar gerð á síðasta sumri, er Brúar- hylnum hjá Korpúlfsstöðum var breytt með þeim árangri að hylurinn gaf milli 30 og 40 laxa, en hafði ekki gefið einn einasta fisk í áraraðir þar á undan. Sú veiði var að mestu tekin á flugu og fluguveiðihlut- fallið yfir sumarið fór úr fáein- um prósentum upp í 30 prósent eða svo af heildarveiði. rrjjEgsJ Að sögn Gríms Jónssonar eins leigutaka og Ingvars Georgssonar starfsmanns Hljóðrita, hafa 10 til 12 staðir verið „teknir í gegn“ í vor, ýtt hefur verið upp fyrirstöð- um við enda langra og grunnra kafla til þess að dýpka ána fyrir ofan garðana. Stórgrýti hefur og verið borið í ána til að mynda breytilegt straumlag þar sem áður voru lygnur. „Úlfarsá hefur lengi verið hálfgerð Öskubuska ís- lenskra laxveiðiáa. Það hefur ekki þótt fínt að veiða í henni og það er kannski ekki skrítið þegar að er gáð að mikill hluti sumarveið- innar hveiju sinni er tekinn á maðk í tveimur smáfossum neðst í ánni. Það hefur verið hverfandi fluguveiði í ánni og því stór hópur veiðimanna ekki litið við henni. Þó eru góðir flugustaðir upp um Grímur Jónsson t.v. og Ingvar Georgsson standa við Brúarhylinn. alla á og nú fjölgar þeim veru- lega. Þessi svæði hafa einfaldlega ekki verið nýtt og þó Brúarhylur- inn hafi verið jafn góður í fyrra og raun bar vitni, tók það samt furðu langan tíma að síast inn hjá Korpukörlunum að það gæti hugsast að veiðivon væri í ánni fyrir ofan fossana," sagði Grímur Jónsson. Tilraunir leigutaka eru athygl- isverðar og óhætt að segja að úrvalið aukist nú verulega. Grím- ur sagði að sala veiðileyfa, sem fer fram í Hljóðrita, gengi alveg ágætlega, en eitthvað væri þó enn óselt eins og víðar. Þarna geta menn tekið hálfan dag í senn og kostar dagurinn 5.500 til 8.800 eftir því hvenær sumars færi er bleytt. í fyrra veiddust þarna 240 laxar á tvær stangir, en það skip- ar Úlfarsá í hóp bestu laxveiðiáa landsins sé mið tekið af meðal- veiði á hveija dagstöng. Aðalfundur læknaráðs Landspítalans: Tvö framboð við kjör til sljórnar Innkaupastofnun telur nægar upplýsingar í útboði ÁTVR: Vil að Ríkisendurskoðun staðfesti upplýsingarnar - segir Orri Vigfússon hjá Sprota hf,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.