Morgunblaðið - 21.05.1992, Blaðsíða 56
UOBGVNBLADU), AÐALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVlK
SÍUI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKIJIŒVRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 21. MAI 1992
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Frumvarp um skatt á eignir og eignatekjur;
Vaxtabætur verða
aðeins greiddar
vegna raunvaxta
VAXTABÆTUR vegna húsnæðiskaupa verða eingöngu greiddar vegna
raunvaxta, samkvæmt frumvarpi um samræmda skattiagningu eigna
og eignatekna sem fjármálaráðherra hefur lagt fram til kynningar.
Nú eru vaxtabætur miðaðar við alla vexti á lánum sem tekin eru vegna
húsnæðiskaupa.
Núverandi vaxtabótakerfí er
byggt þannig upp að til grundvallar
við útreikning bótanna eru lagðir
nafnvextir, það er vaxtagjöld að
meðtöldum verðbótum. I nýja frum-
varpinu felst að vaxtabætur miðist
eingöngu við raunvexti, eða með
öðrum orðum að verðbætur lána
verði ekki teknar með þegar vaxta-
bætur eru reiknaðar út.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að há-
marksfjárhæð bætanlegra vaxta-
gjalda verði lækkuð úr 720 þúsund-
um króna fyrir hjón í 500 þúsund
með tilliti til þessa. Hámark bætan-
legra vaxtagjalda verða 400 þúsund
krónur hjá einstæðum foreldrum og
300 þúsund hjá einhleypingi.
Áfram er gert ráð fyrir að hámark
vaxtabóta fyrir hjón verði 200 þús-
und krónur. Sömuleiðis tenging
þeirra við eignir og tekjur, en nú
dragast 6% af tekjuskattstofni frá
vaxtagjöldum. Á móti kemur að
vaxtatekjur munu ekki skerða vaxta-
gjöld þar sem vaxtatekur verða
skattlagðar sérstaklega.
Sjá einnig fréttir á miðopnu.
Fundað með rafiðn-
aðarmönnum hjá
ríkissáttasemjara
FUNDUR var með rafiðnaðar-
mönnum og fulltrúum Reykjavík-
urborgar hjá ríkissáttasemjara í
gær og verður annar fundur með
aðilum í næstu viku. Rafiðnaðar-
mennirnir, sem einkum starfa hjá
Rafmagnsveitu Iteykjavíkurborg-
ar og á Borgarspítala, felldu
miðlunartillögu ríkissáttasemjara.
66 voru á kjörskrá og greiddu 25
atkvæði. 9 sögðu já, 13 nei og 3
seðlar voru auðir.
Rafiðnaðarmenn sem starfa hjá
ríkinu felldu einnig miðlunartillögu
ríkissáttasemjara og er fundur ráð-
gerður með þeim í næstu viku. 211
voru á kjörskrá og greiddu 65 at-
kvæði. 22 sögðu já en 36 nei og 7
seðlar voru auðir. Rafíðnaðarmenn-
imir starfa á ýmsum ríkisstofnunum,
en sérsamningar eru í gildi við rafiðn-
aðarmenn hjá Landsvirkjun og Raf-
magnsveitum ríkisins.
Þá hefur ríkissáttasemjari boðað
fund með starfsmönnum og stjóm-
endum álversins í Straumsvík í dag
fyrir hádegi. Starfsmenn álversins
samþykktu miðlunartillögu ríkis-
sáttasemjara, en Vinnuveitendasam-
band íslands felldi hana fyrir hönd
íslenska álversins.
Fundur hefur ekki verið boðaður
með stýrimönnum og viðsemjendum
þeirra, en búist er við fundarhöldum
um helgina. Stýrimenn hafa boðað
tímabundið verkfall á kaupskipum
frá og með miðnætti á sunnudag.
Morgunblaðið/Sverrir
500 metra útrás við Eiðisgranda
Við Eiðisgranda eru hafnar framkvæmdir við 500 metra holræsaútrás
og á hún að þjóna til 1994 þegar reist hefur verið hreinsistöð við
Ánanaust. Þá er verið að leggja 300 metra rás út í Skeijafjörð frá
dælistöð við Faxaskjól. „Þetta eru yfirfallslagnir sem taka stærstu rign-
ingar- og leysingatoppa," sagði Sigurður Skarphéðinsson gatnamála-
stjóri. „Dælumar verða í gangi örfáar klukkustundir á ári og veita þá
út nánast hreinu vatni.“ Onnur lögn verður lögð frá Faxaskjóli, eftir
Sörlaskjóli, Kaplaskjólsvegi, Frostaskjóli, Keilugranda og að brunninum
við Eiðisgranda. Gert er ráð fyrir að framkvæmdunum við Faxaskjól
og Eiðisgranda verði lokið á þessu ári og er áætlaður kostnaður vegna
þeirra um 190,5 milljónir króna.
Laxá á Ásum;
Mikil verð-
lækkun á
veiðileyfum
SALA laxveiðileyfa fyrir kom-
andi sumar hefur víðast hvar
verið treg miðað við það sem
verið hefur undanfarin ár. Víða
sitja veiðiréttareigendur og
leigutakar uppi með mikið af
óseldum veiðileyfum og pöntun-
um sem ekki er búið að greiða
inn á. Fyrir fáum árum var erf-
itt að komast í eftirsóttustu árn-
ar, en nú eru möguleikar á veiði-
dögum víðast livar. Má nefna
Laxá á Ásum, Víðidalsá, Vatns-
dalsá, Laxá í Kjós og Norðurá.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins finna flestir seljendur
veiðileyfa fyrir samdrættinum. Þá
hefur verð leyfa í dýrustu ánni,
Laxá á Ásum, fallið mjög. 1990
voru dýrustu dagarnir seldir á allt
að 170.000 krónur. Það sumar var
veiðin heldur rýr miðað við það sem
menn ætlast til í Laxá og féll verð
í 135.000 krónur í fyrra. Nú er
talað um 50.000 til 70.000 króna
daga á besta tíma, en samt gengur
salan erfíðlega, ekki síst þar sem
umboðsaðilar erlendra veiðimanna
hafa skilað inn pöntunum.
Víða hefur sést til laxins. Hann
var óvenjulega snemma nærri
ströndinni, til vitnis um það voru
margir laxar sem veiddust í loðnu-
nætur. Þá hefur laxa orðið vart í
Laxá í Kjós, Ytri-Rangá, Elliðaán-
um og í Hvítá í Borgarfirði. Þá er
talið víst að lax sé genginn í Norð-
urá og Þverá í Borgarfirði, jafnvel
í Laxá á Ásum.
Hlutfall blýlauss bensíns er
orðið 74% heildarsölunnar
Afsláttur af bensíngjaldi á blýlausa bensíninu nemur 256 milljónum kr. á ári
SALA á blýlausu bensíni hefur
aukist mjög síðastliðin ár á kostn-
að blýbensins. Fyrstu fjóra mán-
uði ársins var hlutfall blýlauss 92
og 95 oktana bensíns komið í 74%
af bensinsölu olíufélaganna en var
á sama tíma í fyrra 63%. Bjarni
Snæbjörn Jónsson markaðsstjóri
Oliufélagsins Skeljungs hf. reikn-
ar með að hlutfallið fari á næstu
mánuðum eða árum upp í 80%.
Lægra bensíngjald er innheimt af
blýlausu bensíni en súperbensíni
og nemur afslátturinn nú 256
milljónutn króna á ári.
Blýlaust 92 oktana bensín kom
fyrst á markaðinn hér fyrir sex árum
og varð fljótlega með 40% hlutdeild
í sölunni og náði síðan helmingi á
Hjálmurinn hefur
örugglega bjargað
- segir móðir drengs sem hjólaði fyrir bíl
„HANN hefur verið rosalega
heppinn og það hefur örugglega
bjargað að hann var með hjálm
á höfðinu. Við höfuðhöggið kom
hnykkur á bakið svo aðeins
blæddi inn á vöðva, hann marð-
ist lítillega á hnúa og fékk
nokkra marbletti. Að öðru leyti
er hann ny'ög hress,“ segir Guð-
rún Hafþórsdóttir, móðir Haf-
þórs Arnar Gunnlaugssonar, sex
ára drengs í Kefiavík sem hjól-
aði fyrir bifreið um hádegisbilið
sl. þriðjudag en slapp nær
ómeiddur þrátt fyrir mikið
högg. Er talið að hefði drengur-
inn ekki verið með hjálm á höfði
hefði hann stórslasast.
Drengurinn lenti á hliðarrúðu
farþegamegin og sá bæði á rúðu
og hurð eftir höggið, en við það
brotnaði hjálmurinn á höfði Haf-
þórs. „Ég var stödd úti í garði
þegar þetta gerðist, en kona sem
ók bílnum kom til mín með Hafþór
og við fórum báðar með hann niður
á sjúkrahús," segir Guðrún. „Hann
hefur átt hjálminn í tvö ár. Sjö ára
systir hans notar líka alltaf hjálm
við hjólreiðar. Þau verða oft fyrir
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Hafþór Örn Gunnlaugsson
því að aðrir krakkar gera grín að
þeim fyrir að vera með hjálma, en
þetta atvik sýnir nauðsyn þess.“
móti súperbensíninu. Þegar 95 okt-
ana blýlausa bensínið kom á markað-
inn tók það sölu nokkurn veginn jafnt
af báðum tegundunum sem fyrir
voru en síðan hefur 92 oktana bens-
ínið verið að sækja í sig veðrið, að
sögn Bjarna Snæbjarnar. Núna er
hlutfall 92 oktana bensíns 52% söl-
unnar, 95 oktana 22% og 98 oktana
súperbensíns 26%. Eftir að blýlausa
bensínið kom ákvað fját'málaráðu-
neytið að lækka bensíngjaldið á því
og er það núna rúmum tveimur krón-
um lægra en á súperbensíni. Útsölu-
verð á súperbensíni er tæpum 7 kr.
hærra en á 92 oktana bensíni og
rúmum 3 kr. hærra en á 95 oktana
bensíni. Sem aðrar skýringar á breyt-
ingum í sölu nefndi Bjarni Snæbjörn
að fáir bílar krefðust súperbensíns.
Af hverjum lítra af blýlausu bens-
íni eru innheimtar 21,78 kr. á lítrann
og 23,82 kr. af súperbensíni. Við
gerð fjárlaga var reiknað með að
hlutfall blýlauss bensíns yrði rúmlega
70% af heildarsölu sem áætluð er
179 milljónir lítra. Nú stefnir í að
hlutfallið verði að minnsta kosti 75%.
Samkvæmt upplýsingum Maríönnu
Jónasdóttur, hagfræðings á efna-
hagsskrifstofu fjármálaráðuneytis-
ins, hefur þetta lítil áhrif á tekjur
ríkisins. Telur hún að bein áhrif þess
yrðu um 16 milljónir en heildarinn-
heimta bensíngjalds er áætluð 4
milljarðar kr. Þá segir hún að bensín-
sala hafí aukist fyrstu mánuði ársins
og innkomnar tekjur af bensíngjaldi
séu meiri en áætlað var og því nokk-
uð borð fyrir báru.
Við afgreiðslu vegaáætlunar í
fyrrinótt vakti Jóhann Ársælsson al-
þingisntaður athygli á því að sá af-
sláttur sem veittur er af bensíngjaldi
blýlauss bensíns næmi 256 milljónum
kr. á ári og auk þess væri ónýtt
heimild til hækkunar þungaskatts
rúm 10%. Markaðir tekjustofnar til
vegamála eru 5.830 milljónir kr., þar
af ganga 5.565 milljónir til Vega-
gerðarinnar en 265 milljónir kr. sitja
eftir í ríkissjóði, ef tekjuáætlun
stenst. Jóhann sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að ekki væri
verjandi að draga vegaframkvæmdir
saman þó illa áraði. Þetta væri það
mikið hagsmunamál fyrir alla lands-
menn, og atvinnumál byggðarlaga á
landsbyggðinni sérstaklega. Þá hefði
það sýnt sig í útboðum að undan-
fömu að aðstæður á verktakamark-
aðnum væru þannig að ódýrt væri
að leggja vegi. Hann sagði að ef
nauðsynlegt þætti að skilja þessar
265 milljónir eftir í ríkissjóði væri
sjálfsagt að bæta það upp með því
að hækka bensíngjald á blýlausu
bensíni. Það myndi þýða 4,3 til 4,6%
hækkun á blýlausu bensíni sem
myndi hækka vísitölu framfærslu-
kostnaðar um 0,1%, samkvæmt upp-
lýsingum fjármálaráðuneytisins.