Morgunblaðið - 21.05.1992, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 21.05.1992, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAI 1992 39 &$tsssæssk ílmm foreldrum sínum, Asgerði Guð- mundsdóttur og Jóni Sigurðssyni klæðskera, sem nú eru látin, og systkinum, en þau eru: Jóna Sigríð- ur Jónsdóttir, Þórir ísfeld og Ólafía ísfeld. Gummi var mikill tónlistar- unnandi og hafði lagt stund á söng- og tónlistarnám, m.a. stundaði hann einsöngsnám í Svíþjóð, þar hlaut hann styrk frá sænska ríkinu. Um tíma söng hann í Pólyfonkórnum og Dómkirkjukórnum, einnig var hann ná sínum yngri árum í Lúðra- sveit verkalýðsins. Þegar ég hugsa til baka rifjast margar skemmtilegar minningar upp með honum Gumma, eins og t.d. bíltúrarnir í Volksvagninum sem hann átti, en oftast var þá keypt candyfloss, einnig kenndi hann mér að höndla spilin og sagði mér margar sögur o.m.fl. Gummi hafði gaman af að gefa og gleðja. Hann var tryggur vinur vina sinna, hafði fastheldnar skoðanir en mátti aldrei aumt vita. Helstu áhugamál hans var lestur góðra bóka en Lax- ness var í miklu uppáhaldi hjá hon- um. Einnig hafði hann gaman af að ferðast, en þá var Skotta (kisan) þeirra hjóna ávallt með. Ég á eftir að sakna heimsókna hans því hann var alltaf duglegur að líta við hjá mér og fjölskyldu minni þrátt fyrir veikindi sín en minningin lifir um góðan frænda. Og hvað er að hætta að draga andann ann- að en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum og ófjötraður leitað á fund guðs síns. Aðeins sá, sem drekkur af vatni þagnarinn- ar, mun þekkja hinn volduga söng. Og þeg- ar jörðin krefst líkama þíns, muntu dansa i fyrsta sinn. (Kahlil Gibran). Elsku Birna, megi góður guð styrkja þig og leiða. Villa frænka. JPOj'LIFf ORDPiú!UR 8 A I _ I TIMBURSALA BYKO BREIDDINN! S. 4 30 40 —r ■tfttaOK#' SftBBM# XMaMðlhMHIr 'ww Valgerður Benedikts- dóttir - Minning Fædd 17. júlí 1943 Dáin 13. maí 1992 Nú þegar sæmdarkonan Val- gerður Benediktsdóttir hefur hnig- ið að velli fyrir vágestinum krabbameini, langar mig að heiðra minningu hennar með örfáum orð- um. Valgerði kynntist ég úti í Eyjum, þar bjó hún á Stórhöfða. Hún var mér og dætrum mínum einstaklega góð — þegar við þurft- um á því að halda. Dóttir hennar, hún Matthildur, bjó hjá mér meðan hún var í skóla og hún gætti svo barnanna fyrir mig í staðinn. Eitt sinn gaf Val- gerður mér flík sem mig hafði lengi langað til að eignast en ekki haft efni á að kaupa. Hún hafði saumað hana sjálf eins og svo margt annað — alveg listavel. Hún var völundur í höndum og smekk- vís eftir því. Þegar komið var á Stórhöfða í heimsókn blöstu við þegar inn var komið risastór og falleg pottablóm — slík var natni hennar og um- hyggja fyrir öllu lifandi. Valgerður var forkur dugleg við alla vinnu og- mjög gaman að koma í heim- sókn. Hún hafði yndi af börnum og þau hændust mjög að henni. Síðustu ár hennar eftir að hún fluttist til Reykjavíkur barðist hún hetjulegri baráttu við erfiðan og sársaukafullan sjúkdóm, krabba- mein, sem tók sig upp aftur og aftur. Þegar af henni bráði vann hún sem dagmamma og hætti því starfi ekki fyrr en nú eftir áramót. Matthildur dóttir hennar hefur búið hjá henni og Tóta síðan á síðasta ári öllum til ánægju og trausts. Svona hversdagshetju er auðvit- að ekki hægt að lýsa í örfáum lín- um en það er mikill styrkur í því að fá þau forréttindi að kynnast fólki eins og Valgerði Benedikts- dóttur. Ég og dætur mínar senda inni- legar samúðarkveðjur til allra ást- vina hennar nær og fjær. Minning um góða konu mun lýsa þeim í önn hversdagsins. Ásta Ólafsdóttir. á einu heimilanna í Gautlandi 11, hún Valla er dáin. Valgerður Benediktsdóttir fæddist í Þorpum í Strandasýslu 17. júlí 1943, elst sex barna þeirra hjónanna Matthildar Guðbrands- dóttur og Benedikts Þorvaldsson- ar. Hún ólst upp á Hólmavík, en um tvítugsaldur lá leið hennar í Húsmæðraskólann að Varmalandi í Borgarfirði. Á þessum árum var það góð menntun fyrir ungar stúlkur að fara í slíkan skóla, og gott að hafa það að veganesti. Valla átti heima í Vestmanna- eyjum í nokkur ár, en nú seinni árin hefur hún búið hér í Reykja- vík ásamt sambýlismanni sínum, Þórólfi Þorleifssyni. Undu þau hag sínum vel og báru virðingu hvort fyrir öðru. En skyndilega dregur ský fyrir sólu, hún greindist með illvígan Ó, þá náð að eiga Jesú einkavin í hverri þraut. Ó, þá heill að halla mega höfði sínu’ í Drottins skaut. Ó, það slys því hnossi’ að hafna, * hvílíkt fár á þinni braut, ef þú blindur vilt ei varpa von og sorg í Drottins skaut. (M. Joch.) Þegar sumarkoman er í nánd, sólin hækkar á lofti og gróðurinn vaknar til lífsins, knýr sorgin dyra sjúkdóm sem svo marga leggur að velli. í rúm tvö ár háði hún hetjulega baráttu við sjúkdóminn. Með hjálp sinna nánustu og Heimahlynning- ar Krabbameinsfélagsins gat hún dvalið heima. Það gerði henni lífið léttbærara. Þórólfi eru færðar alúðar þakkir fyrir alla þá um- hyggju sem hann veitti henni síð- ustu árin, hann var stoð hennar og stytta. Ég bið Guð að styrkja Þórólf, börnin hennar þau Pálma og Matt- hildi, dótturdæturnar tvær, for- eldra hennar, systkini og aðra aðstandendur, og votta ég ykkur öllum mína dýpstu samúð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Briem) Guðlaug Þorkelsdóttir Margt kemur upp í hugann þeg- ar komið er að kveðjustundinni. Ég kynntist Völlu veturinn 1983 þegar hún flutti á Faxastíginn en þá var ég nýlega búin að kynnast Möttu dóttur hennar. Við áttum margar góðar stundir saman. Um vorið 1983 missti ég móður mína og þá sá ég hvað hún vildi reyn- akt mér vel sem hún og gerði. Og eftir að hún flutti til Reykjavíkur þá fékk ég alltaf gistingu hjá Völlu og Tóta, og alltaf voru mót- tökurnar góðar hvort sem ég kom ein eða með litla strákinn minn. í apríl sl. þurfti ég að dvelja smá tíma í Reykjavík og var ég þá hjá þeim og þá sá ég hvað hún var sterk og dugleg þrátt fyrir veikind- in, og hvað litlu ömmustelpurnar hennar styrktu hana mikið. Mig skortir orð til að skrifa meira. Ég vil þakka Völlu fyrir þessi ár sem að okkar leiðir lágu sam- an, og geymi ég þær minningar vel. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Briem Elsku Matta, Tóti, Pálmi og fjöl- skylda, ykkur votta ég mína inni- legustu samúð og bið góðan Guð að styrkja ykkur á þessari sorgar- stundu. Guðrún Steingrímsdóttir, Vestmannaeyjum. Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glaður, og þú munt sá, að aðeins það sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur hug þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Spámaðurinn) Ég vil þakka Völlu systur minni fyrir þann tíma sem við áttum saman, sem er mér í minningunni mjög dýrmætur. Hún kenndi mér í gegnum veikindi, að dagurinn í dag er dýrmætur, augnablikið er dýrmætt. Guð blessi hana og varðveiti. Sigrún. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmæl- is- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.