Morgunblaðið - 21.05.1992, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.05.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAI 1992 25 Málþing um stöðu karla í breyttu samfélagi: Jafnréttísumræðan er komin í öngstrætí - seg-ir Sigurður Snævarr SIGURÐUR Snævarr, hagfræð- ingur og fulltrúi í nefnd um stöðu karla í breyttu samfélagi, segir að fyrirhugað málþing um við- fangsefni nefndarinnar verði henni eins konar hugmynda- skjóða að vinna úr. Nefndinni er ætlað að vinna að úttekt á stöðu karla í breyttu samfélagi með jafna verkaskiptingu og fjöl- skylduábyrgð í liuga. Málþingið er opið og haldið í Borgartúni 6 laugardaginn 23. maí. Félagsmálaráðherra skipaði nefnd um stöðu karla í breyttu sam- félagi samkvæmt framkvæmda- áætlun ríkisstjórnarinnar um að- gerðir til að ná fram jafnrétti kynj- anna. Nefndina skipa Margrét S. Björnsdóttir, endurmenntunarstjóri Háskóla íslands, Ragnheiður Harð- ardóttir, upplýsingafulltrúi jafnrétt- isráðs, Sigurður Svavarsson, rit- stjóri hjá Máli og menningu, Ingi- mar Ingimarsson, fréttamaður, Ari Skúlason, Guðmundur Ólafsson og Sigurður Snævarr, hagfræðingar. Ingibjörg Broddadóttir, félagsráð- gjafi hjá félagsmálaráðuneytinu, er starfsmaður nefndarinnar. Sigurður Snævarr sagði að nefndarmenn hefðu fljótlega skynj- að að verið væri að horfa á jafn- rétti frá nýjum sjónarhóli. Aður hefði fyrst og fremst verið horft til þess að konur nytu jafnréttis til móts við karla. Nú væri spurt hversu jafnrétti væri karlað. „Við Sigurður Snævarr gerðum okkur grein fyrir að sjónar- hornið væri breitt og eðlilegt væri að líta til ýmissa átta. Þannig fund- um við út að skynsamlegt væri að efna til málþings sem væri eins konar hugarflæði. Úr því gætum við safnað í hugmyndaskjóðu að vinna úr,“ sagði Sigurður. Hann sagði að á málþingi yrði byijað á því að tala um hvernig hlutverk karla hefði breyst í þjóðfé- laginu. „Gísli Ágúst Gunnlaugsson, sagnfræðingur, verður gestur okk- ar og fjallar um málefnið í sögulegu samhengi, hvernig hlutirnir voru á öldum áður og hvernig þeir hafa breyst. Síðan munu Stefán Ólafsson og liðsmenn hans segja frá viðhorf- um og forvitnilegt verður að vita hvaða viðhorf karlar hafa til at- vinnu og fjölskyldulífs. Því næst verður fjallað um löggjöfina," segir Sigurður. „Á eftir verður farið í uppeldi og tilfinningar og á þar eflaust ýmis- legt forvitnilegt eftir að koma í ljós. Fyrst er að huga að fyrirmyndinni en þar munum við til dæmis hafa í huga að karlar eru aldir upp af konum, nánast frá vöggu til fullorð- insára. Ennfremur er athyglisvert að horfa tii.þess að hér á landi er mikið af einstæðum mæðrum og synir þeirra komast kannski lítið í tengsl við karla. Fyrirmyndir þeirra verða fjarlægar, poppstjörnur eða íþróttamenn. Um fjölskyldu og til- finningar fjalla sálfræðingur, lækn- ir og prestur. Verður þá meðal ann- ars talað um alkóhólisma en mun fleiri karlar verða honum að bráð en konur. Þær finna líka til meiri samkenndar en karlar. Má í því sambandi nefna að í símaskránni er fjölmargt skráð undir byrjuninni kvenna- eða kven- en aðeins eitt undir karl- og það er Karlakór Reykjavíkur." Sigurður segir að jafnréttisum- ræðan hér á landi eigi í vanda. „Hún er stöðnuð. Komin í öng- stræti í mínum huga. Fólki finnst há|f púkó að tala um jafnrétti,“ segir hann og nefnir að umræðan sé lifandi í mörgum löndum, þ. á m. í Bandaríkjunum, Þýskalandi, Nor- egi og Svíþjóð. Róttækar tillögur hafi orðið til í Noregi en Svíar séu á mýkri nótunum og hafi fjölskyldu- ábyrgð í fyrirrúmi. Þessar stefnur eigi sennilega eftir að takast á. Morgunblaðið/Sverrir Sýslumannshúsið við Suðurgötu 8, sem meirihluti bæjarráðs Hafnar- fjarðar hefur samþykkt að flutt verði yfir á lóðina við Suðurgötu 11. Hafnarfjörður; Sýslumannshúsið flutt að Suðurgötu 11 MEIRIHLUTI bæjarráðs Hafnarfjarðar hefur samþykkt, að fela bæjarverkfræðingi, að undirbúa flutning á gamla Sýslumannshúsinu við Suðurgötu 8, yfir á lóðina við Suðurgötu 11. Bæjarráðsmenn Sjálfstæðis- flokksins greiddu atkvæði á móti tillögunni og bókuðu jafnframt að, ráðlegast væri að selja húsið hæst- bjóðanda samkvæmt fýrirliggjandi tilboðum. „Flutningur og endur- bygging hússins á kostnað bæjar- sjóðs mun hafa ómældan kostnað í för með sér, sem ekki fæst til baka við sölu hússins." Bæjarstjóri óskaði að bóka, að rétt væri að vekja athygli á að sam- kvæmt hugmyndum bæjarráðs- manna Sjálfstæðisflokksins væri gert ráð fyrir að Sýslumannshúsið yrði gefið „hæstbjóðanda" því til- boðsupphæðin 2,6 milljónir króna væri því sem næst jafnhá lóðar- gjöldum án húss á lóðinni við Suður- götu 11. „Með því leggja Sjálf- stæðismenn til að afskrifa með einu pennastriki þær 10 milljónir króna sem bæjarráð samþykkti samhljóða að kaupa húsið á af ríkinu fyrir nokkrum vikum. Þessu vill meiri- hluti bæjarráðs ekki una, heldur að bæjarbúar eigi áfram um sinn hið glæsilega og sögufræga hús, sem hér um ræðir.“ Þá lögðu bæjarráðsmenn Sjálf- stæðisflokks fram aðra bókun, þar sem fram kemur, að staðhæfing meirihluta bæjarráðs um að bæjar- ráðsmenn Sjálfstæðisflokksins vilji gefa húsið, sé einungis rétt ef al- mennri reglu hafi verið breytt um að ekki skuli greitt gatnagerðar- gjald ef endurbygginu eða flutningi á húsum. „I stað þess að „gefa“ húsið er meirihlutinn tilbúinn að veija milljónum króna af almannafé í endurbyggingu hússins, milljónum sem ekki munu skila sér aftur í bæjarsjóð.“ Reiðubúnir til viðræðna við SYFÍ - segir formaður Landsbjargar ÓLAFUR Proppé, formaður Landsbjargar, segir að samtök- in séu reiðubúin til áframhald- andi viðræðna við Slysavarnafé- lag Islands um samstarf. Sam- tökin vinni nú þegar saman að ýmsum málum en koma verði í ljós hvort forsendur séu fyrir sameiningu þeirra. Einar Siguijónsson, nýkjörinn forseti SVFI, sagði í Morgunblað- inu á þriðjudag, að innan félagsins væri vilji fyrir frekari samvinnu samtakanna og jafnvel samein- ingu þeirra. „Við höfum að undanförnu átt viðræður við Slysavarnafélag ís- lands og erum tilbúnir til að halda þeim áfram,“ segir Ólafur Proppé, formaður Landsbjargar. „Við vinnum nú þegar saman að mörg- um málum og viljum gera það áfram, en það á hins vegar eftir að koma í ljós hvort forsendur eru fyrir sameiningu þessara samtaka. Það verður að hafa í huga að hér er um nokkuð ólík félög að ræða; aðild að Landsbjörg eiga aðeins björgunarsveitir, en í SVFÍ eru bæði björgunarsveitir og aðrar deildir." INNLENT HLBOÐ VIKUNNAR HAGKAUP - altí í einni feró
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.