Morgunblaðið - 21.05.1992, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.05.1992, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAI 1992 Alþingi frestað en þing- menn hafa ærinn starfa ALÞINGI íslendinga, 115. lög- gjafarþingi, var frestað á fimmta tímanum í fyrrinótt. En reglulegt Alþingi skal koma saman 17. ágúst, sama dag lýkur 115. lög- gjafarþingi. Salome Þorkelsdótt- ir forseti Alþingis bendir á að vegna samningsins um Evrópskt efnahagssvæði muni þingmenn ekki sitja auðum höndum í sum- ar. Á fjórða tímanum í fyrrinótt var loks farið að sjá fyrir endann á nauðsynlegri málaafgreiðslu Al- þingis en að því hafði verið stefnt að gera hlé á störfum þingsins síð- degis í fyrradag. Salome Þorkelsdóttir forseti Alþingis vildi nú eftir miklar annir og álag undanfarna daga og vikur samkvæmt venju fara nokkrum orð- um um þinghaldið í vetur. Úrslit mála Alþingi, 115. löggjafarþing, var sett 1. október í haust, fundardagar hafa verið 126 en 155 þingfundir voru haldnir á þingtímanum. Alls 164 lagafrumvörp voru lögð fram, þar af voru 114 þeirra stjórnar- frumvörp en 50 þingmannafrum- vörp. 65 stjórnarfrumvörp voru af- greidd sem lög en einu var vísað til ríkisstjórnarinnar. 48 stjórnar- frumvörp urðu óútrædd. 8 þing- mannafrumvörp urðu að lögum en 5 var vísað til ríkisstjórnarinnar, eitt var kallað aftur en 36 þing- mannafrumvörp urðu óútrædd. Alls 87 þingsályktunartillögur voru lagðar fram, þar af voru 7 frá ríkisstjóminni en 80 frá þingmönn- um. 21 tillaga hiaut samþykki. 4 var vísað' til ríkisstjómar en 62 óútræddar. Skýrslur urðu samtals 25. Beðið var um sex skýrslur frá ráðherrum, þijár þeirra voru lagðar fram skriflega en ein var flutt munnlega. 271 fyrirspurn var lögð fram og Salome Þorkelsdóttir var öllum nema níu svarað. 549 mál voru til meðferðar í þinginu og þar af 371 mál af- greitt. Tala prentaðra þing- skjala varð 1.065. En það væri talsvert minna en vænta hefði mátt og mætti þakka það afnámi deildaskiptingarinnar. Forseti Alþingis benti á að þetta þing hefði verið hið fyrsta sem háð væri samkvæmt nýjum þingskapar- reglum en í þeim fælist meiri breyt- ing en áður hefði gerst síðan Ál- þingi fékk löggjafarvald árið 1874. Mörg ákvæði þingskapanna hefðu reynst vel, sérstaklega andsvörin sem hefðu lífgað umræður talsvert. Ýmislegt annað hefði hins vegar mátt betur fara. Þingforseti vék að því að skýrslur ráðherranna hefðu borist seint og ekki hefði gefist tóm til að efna til eðlilegra umræðna um þær eins og ætlast væri til. Salome Þorkelsdóttir sagði einnig að það væri rík ástæða fyrir þing- menn að íhuga þá gagnrýni sem Alþingi hefur sætt fyrir að umræð- ur hafa dregist mikið á þinginu. Það væri ljóst að lengd umræðu- tíma hefði lengst nokkuð frá því sem verið hefði á undanförnum þingum enda þótt menn hefðu gert sér vonir um hið gagnstæða í ljósi þeirra breytinga sem gerðar hefðu verið á skipulagi þingsins og starfs- háttum sem hefðu miðað af því að einfalda alla málsmeðferð og gera hana hnitmiðaðri. Þingforseti vildi ekki leggja dóm á það hvað þessu ylli, enda væri of snemmt að draga víðtækar ályktanir af gangi mála á þessu fyrsta reglulega þingi sem háð væri í einni málstofu. Það tæki að sjálfsögðu sinn tíma fyrir þingið að laga sig að gjörbreyttum starfs- háttum og teldi hún að vart yrði komin marktæk reynsla á þetta fyrr en í fyrsta lagi eftir 2-3 ár. En forseti Alþingis hvatti þó menn til að nota tímann fram að næsta þingi til að sníða af þingsköp- um helstu hnökrana sem komið hefðu í ljós. Salome Þorkelsdóttir sagði að nefnd skipuð fulltrúum allra þingflokka hefði unnið að því ásamt nokkrum starfsmönnum þingsins að móta tillögur um endur- bætur og lagfæringar á atkvæða- greiðslukerfi Alþingis og hefðu þingflokkar nú fengið þessar tillög- ur til umfjöllunar. Miklar annir framundan „Utlit er fyrir að þetta ár verði eitt hið annasamasta í sögu Alþing- is,“ sagði þingforseti. Þingmenn væru ekki lausir allra mála. Nú færi í hönd mikil vinna við samning- inn um Evrópskt efnahagssvæði, EES, og fylgifrumvörp hans. Nefndir Alþingis myndu því ekki sitja auðum höndum í sumar. Þessi AIMAfil samningur væri tvímælalaust um- fangsmesta lagasmíð sem Alþingi hefði nokkurn tímann fengið til umfjöllunar. Varðaði miklu að nefndunum, þingflokkunum og þingmönnum öllum væru skapaðar sem bestar aðstæður til að sinna þessu mikilvæga hlutverki. í lok ræðu sinnar ítrekaði Salome Þorkelsdóttir þau orð sín frá upp- hafi þessa þings að hún liti á sig sem forseta alls þingsins, bæði stjórnar og stjórnarandstöðu. Hún vitnaði til orða fyrrverandi forseta breska þingsins: „Við megum aldrei gleyma því að ríkisstjórn á rétt á því að koma málum sínum í gegnum þingið en jafnframt hefur stjórnar- andstaðan rétt til þess að gagnrýna þau mál. Það er sú jafnvægislist sem ævinlega þarf að stunda og það er verk forsetans að gæta jafn- vægisins og tryggja að tíma þings- ins sé ekki eytt í ónauðsynlegar umræður um þingsköp." Forseti Alþingis þakkaði þing- mönnum, formönnum þingflokka, skrifstofustjóra og starfsliði Alþing- is fyrir samvinnuna á liðnu þingi og óskaði öllum gæfu og gengis. Fyrir hönd Alþingis óskaði hún öll- um Islendingum árs og friðar. Anna Olafsdóttir Björnsson (SK-Rn) talaði fyrir þingmenn. Hún þakkaði þingforseta góðar óskir og jafnframt fyrir störf hennar í vetur þar sem hún hefði oft þurft að tak- ast á við erfið matsatriði undir nýj- um þingsköpum. Anna óskaði þing- forseta og ljölskyldu hennar góðs sumars og ennfremur færði hún skrifstofustjóra Alþingis og starfs- fólki þakkir allra þingmanna fyrir ómetanleg og vel unnin störf í þágu þingsins. Tóku þingmenn undir þessi orð með því að rísa úr sætum. Að svo búnu las Davíð Oddsson forsætisráðherra bréf undirritað af handhöfum forsetavalds um frestun á störfum Alþingis til 17. ágúst næstkomandi. Þingfundi lauk laust eftir kl. 4. um nóttina. Stuttar þmgfrettir: Menntamálaráð Á 154. fundi í fyrrinótt fór fram kosning aðalmanns í stað Helgu K. Möller kennara í menntamálaráð til fyrsta þings eftir næstu almennar alþingiskosningar. Samkvæmt tilnefningu þingflokks Alþýðuflokksins var valin Hlín Daní- elsdóttir fulltrúi. Stjórnarandstæð- ingar gagnrýndu fyrr á fundinum að þétta mál væri á dagskrá og vildu frestun. Starfandi fulltrúi, Ragnheið- ur Davíðsdóttir nemi, hefði ekki unn- ið sér annað til saka en að reyna að hindra það að brotið yrði gegn anda gildandi laga með því að leggja niður bókaútgáfu Menningarsjóðs. Jón Baldvin Hannibalsson formaður Al- þýðuflokksins sagði að sú regla gilti um kosningar í nefndir og ráð á veg- um Alþingis, að kjósa nýja aðalmenn í stað þeirra sem féllu frá. Það hefði verið í höndum viðkomandi þing- fiokks að hafa frumkvæði að kosn- ingunni. Ekki undir neinum kring- umstæðum hefðu aðrir þingflokkar haft afskipti af kjöri nýs aðalmanns. Hlutu ekki afgreiðslu Á síðustu dögum hvers þings ger- ist það jafnan að ekki er tími til-að afgreiða ýmis mál. Að þessu sinni má nefna frumvörp um að breyta Síldarverksmiðjum ríkisins og Se- mentsverksmiðju ríkisins í hlutafé- lög. Ýmsum stjórnarsinnum var nokkur eftirsjá að þessum frumvörp- um en hins vegar þótti stjórnarand- stæðingum þau ótæk í óbreyttu formi. Ekki hlaut heldur afgreiðslu frumvarp um að aflétta banni gegn viðskiptum við Suður-Afríku, en það frumvarp var mörgum stjórn- arandstæðingum óskapfellt. Ekki tókst að afgreiða eitt frum- varp sem fulltrúar allra flokka í fjárlaganefnd standa að; frumvarp um greiðslur úr ríkissjóði. Þrettán mál voru af- Greiðsla skuldar ríkissjóðs við Reykjavíkurborg: Omaklega vegið að fyrr- verandi fjármálaráðherra g’reidd á næturfundum - segir Davíð Oddsson forsætisráðherra FIMM lagafrumvörp og sex þingsályktanir voru samþykkt á síðustu tveimur fundum Álþingis fyrir þingfrestun í fyrrinótt. Einu máli var vísað til ríkis- stjórnar og kosið var í Mennta- málaráð. Á 154. fundi voru samþykkt sem lög frá Alþingi frumvörp um Nátt- úrufræðistofnun Islands, um Ábyrgðarsjóð launa vegna gjald- þrota og einnig frumvarp um Við- lagatryggingu íslands. Á þessum sama fundi voru einn- ig samþykktar þingsályktanir: Um fullgildingu Fríverslunarsamn- ings EFTA við Tyrkland, um breytingu á vegaáætlun 1991— 1994, um útboð, um Eflingu Ak- ureyrar og Eyjafjarðarsvæðis sem miðstöðvar fræðslu á sviði sjávarútvegs og ennfremur um endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra ferðamanna. Einni þingsályktunartillögu um jarðgöng milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðar- fjarðar var vísað til ríkisstjóhnar- innar. Þá var einnig kosinn nýr aðalmaður í Menntamálaráð. Á fjórða tímanum um nóttina var 154. fundi slitið en 155. fundir.sett- ur og var leitað leyfis þingmanna til að afgreiða 3 mál. Tvenn frum- vörp voru samþykkt sem lög frá Alþingi, frumvarp um vernd barna og unglinga og frumvarp um full- orðinsfræðslu. Að endingu var þingsályktun um frestun á fund- um Alþingis til 17. ágúst sam- þykkt. DAVÍÐ Oddsson forsætisráð- herra segir að ómaklega hafi ver- ið vegið að Ólafi Ragnari Gríms- syni (Ab-Rn) vegna samnings sem þeir gerðu í sínum fyrri embætt- um, hann sem borgarstjóri og Ólafur Ragnar sem fjármálaráð- herra. Samningurinn var um greiðslu u.þ.b. eins milljarðs króna skuldar ríkissjóðs við Reykjavíkurborg vegna lagning- ar þjóðvega í borginni. í umræðum um breytingu áyega- áætlun í fyrrinótt kvaddi Ólafur Ragnar Grímsson sér hljóðs. Ræðu- maður vék að fylgiskjali með nefnd- aráliti meirihiuta samgöngunefndar; bréfi frá Ríkisendurskoðun til for- manns fjárlaganefndar, þar sem m.a. kemur fram að fjármálaráð- herra hefði borið að leita heimilda fjárlaganefndar fyrir samkomulagi um greiðslu skulda ríkisins við Reykjavíkurborg. Ólafur Ragnar kvaðst hafa ýmislegt við þetta álit Ríkisendurskoðunar að athuga. Þetta samkomulag hefði verið gert 3. apríl og í þeim mánuði hefðu ver- ið kosningar og síðar ríkisstjórna- skipti. Það hefði því átt að koma í hlut eftirmanns síns í embætti að leita eftir staðfestinu fjáriaganefnd- ar, ef það hefði á annað borð farist fyrir í tíð fyrri ráðherra. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði fyrrverandi fjármálaráðherra hafa setið ómaklega undir árásum í þessu máli. Fyrrum fjármálaráð- herra hefði unnið þetta mál fullkom- lega í samræmi við _þær heimildir sem til þess lágu. Ólafur Ragnar Grímsson hefði í hvívetna gætt hagsmuna ríkisins og sparað ríkinu verulegar fjárhæðir. Hann hefði gert þetta samkomulag fyrir kosningar og tekið nokkra pólitíska áhættu ef málið reyndist viðkvæmt fyrir Al- þýðubandalagið úti á landi. Framíköll og orðaval Páll Pétursson (F-Nv) sagði að Davíð Oddsson þáverandi borgar- stjóri hefði verið í vandræðum með fjárhag Reykjavíkurborgar og Ólaf- ur Ragnar Grímsson hefði „skorið hann úr snörunni". Páll Pétursson taldi að þessi samningur hefði verið til vitnis um áhuga Ólafs Ragnars á stjórnarsetu með Sjálfstæðisflokkn- um eftir kosningarnar og skulda- bréfið átt að vera aðgöngumiðinn. Til nokkurra orðaskipta kom milli ræðumanns og þingmanna, ræðu- maður sagði í þrígang Vilhjálmi Egiissyni (S-Rv) að þegja. Sturla Böðvarsson varaforseti var íiauð- beygður til þess að áminna viðstadda þingmenn að gæta hljóðs og einnig ræðumann að gæta orðavals síns. Nýir leiðbeinend- ur í skyndihjálp 12 DAGA námskeiði fyrir verðandi leiðbeinendur I skyndihjálp lauk fyrir nokkru. Námskeiðið sem var á vegum Björgunarskóla Landsbjargar, var haldið að Úlfljótsvatni. Þessi námskeið eru lengstu björgunarnámskeið sem haldin eru hér á landi og sérstaklega sniðin fyrir þarfir björgunarsveita. Þeir sem standast próf að námskeiðinu loknu frá réttindi sem leiðbeinend- ur og jafnframt flokksstjórarétt- indi innan skipulags Almanna- varna ríkisins. Tólf manns tóku þátt í námskeiðinu og komu þeir víða af landinu. Aðalleiðbeinendur voru Thor B. Eggertsson, María Haraldsson og Guðmundur Ragn- arsson. Verðandi skyndihjálparkennarar ásamt leiðbeinendum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.