Morgunblaðið - 21.05.1992, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 21.05.1992, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1992 33 Deilt um orlofsíbúðir á fundi bæjarstjórnar TILLAGA Þórarins E. Sveinsson- ar (B) um að fela starfsmanni Atvinnumálanefndar að gera könnun á því hvort og þá hve stór markaður væri fyrir orlofs- Vaktavinna hjá Arveri STARFSFÓLK rækjuverksmiðju Árvers á Arskógsströnd sam- þykkti í atkvæðagreiðslu í gær að taka upp vaktavinnufyrirkomulag á svipuðum nótum og samið var um í miðlunartillögu ríkissátta- semjara. Sigríður Aradóttir, verkstjóri hjá Arveri, sagði að nú væri unnið á einni vakt hjá verksmiðjunni, að jafnaði frá kl. 6 að morgni til kl. 18.1 fram- haldi af samþykkt starfsfólksins verður farið að vinna á tveimur vökt- um, frá kl. 3.55 til hádegis og frá 12.55 til 21. Um 20 manns vinna nú í rækjuverksmiðjunni, en í kjölfar þess að teknar verða upp vaktir verð- ur starfsfólki fjölgað og bjóst Sigríð- ur við að starfsfólk yrði allt að 40. íbúðir á eða við Akureyri varð tilefni mikillar umræðu á fundi bæjarsljórnar Akureyrar á þriðjudag. Skipulagsnefnd hafði tekið jákvætt í erindi frá félags- skapnum Úrbót um þá hugmynd að reisa orlofsíbúðir við Kjarna- skóg, norðan og austan við hús N áttúrulækningafélagsins. Björn Jósef Arnviðarson (D) og Heimir Ingimarsson (G) töldu fár- ánlegt að bærinn færi að hlutast til um þetta mál, það væri alls ekki hlutverk hans. Heimir benti á að slík könnun væri til, en hún væri að vísu þriggja ára gömul og hefðu Úrbótarmenn eflaust aðgang að henni kærðu þeir sig um. Hann sagði tillögu Þórarins ósmekklega, en Björn Jósef bað menn að íhuga hvert stefndi ef bænum yrði sífellt falið að gera markaðskannanir fyr- ir fólk úti í bæ, sem fengi hugmynd- ir að því að framleiða ákveðna vöru. Jón Kr. Sólnes formaður Skipu- lagsnefndar sagði að mál þetta væri á frumstigi, en lauslega hefði verið áætlað að reisa á bilinu 15 til 30 hús, kæmi hugmyndin til framkvæmda. Sýning á sumarvörum Á MILLI 60 og 70 aðilar munu taka þátt í vöru- og sölusýning- unni Sumar ’92, sem Handknatt- leiksdeild KA efnir til í KA-höll- inni dagana 29. til 31. maí næst- komandi. Eftir er að úthluta Skemmtikvöld í Tjarnarborg „Ólafsfirskt" kvöld verður haldið í félagsheimilinu Tjarnarborg fimmtudagskvöldið 21. maí kl. 20.30, en það er liður í Vordögum kirkjunnar sem nú standa yfir. Leikfélag Ólafsfjarðar hefur um- sjón með þessu kvöldi og verður boðið upp á skemmtiatriði, söng og unglingahljómsveitin Þjóhnappar treður upp. Þá koma Svarfdælir við sögu, því gestur þessa kvölds er Tjamarkvartettinn úr Svarfaðardal. örfáum plássum og eru síðustu forvöð að skrá þátttöku þessa dagana. Ómar Pétursson framkvæmda- stjóri sýningarinnar Sumar ’92 sagði að viðbrögð sýnenda hefðu verið mjög góð og hefðu þegar tæplega 70 aðilar skráð sig fyrir sýningarbásum. Á sýningunni verða kynntar og seldar vörur sem tengjast sumrinu og verður um fjölbreytta sýningu að ræða, en m.a verða þar tjöld, viðlegubúnað- ur, garðverkfæri, plöntur, blóm, sumarhús, tjaldvagnar, hjólhýsi, fatnaður, matvæli, hellur og hleðsluveggir, málningarvörur, íþróttavörur, hjól, bátar og grill- vömr. Sýningaraðstaðan í KA-höllinni er um 1.400 fermetrar innanhúss og utandyra verður um 2.000 fer- metra sýningarsvæði. Morgunblaðið/Rúnar Þór Inga Sólnes við hús sitt, Aðalstræti 65, sem hlaut viðurkenningu Iiúsfriðunarsjóðs Akureyrar. Menningarmálanefnd Akureyrar: Hús Ingu Sólnes fékk viður- kenningu Húsfriðunarsjóðs Margrét Jónsdóttir hlaut starfslaun listamanns INGA Sólnes, eigandi hússins Aðastræti 65, fékk viðurkenningu Húsfriðunarsjóðs Akureyrar sem afhent var í gær. Þá voru einn- ig veittar viðurkenningar úr Menningarsjóði Akureyrar jafnframt því sem tilkynnt var að Margrét Jónsdóttir myndlistarmaður hefði hlotið úthlutun starfslauna listamanns Akureyrarbæjar 1992-1993. Þá voru afhent verðlaun og viðurkenningar vegna Ijóða- og smásagnasamkeppni 16 til 25 ára ungmenna sem haldin var í tengslum við vinabæjaviku sem haldin verður á Akureyri í júnímánuði. Menningarmálanefnd Akureyrar boðaði til kaffisam- sætis þar sem gerð var grein fyrir þessu í gær. Um hús Ingu Sólnes, Aðal- stræti 65, segir í mati dómnefnd- ar að við hönnun og byggingu þess hafi tekist að ná þeim mark- miðum sem sett voru í deiliskipu- lagi innbæjarins. Húsið sé lát- laust, nýtískulegt og hlutföll góð, auk þess sem grunnmynd hússins og útlit séu vel af hendi leyst. Húsið er steinsteypt, ein hæð og ris, við það er bílageymsla og gert er ráð fyrir garðhúsi á suður- hluta lóðarinnar. Hönnuður húss- ins er Haukur A. Viktorsson. Viðurkenningar Menningar- sjóðs hlutu að þessu sinni tveir aldnir heiðursmenn, Einar Krist- jánsson, rithöfundur frá Her- mundarfelli, en hann varð áttræð- ur á síðasta ári, og Jakob Tryggv- ason tónlistarmaður, sem verður 85 ára á árinu. Margrét Jónsdóttir myndlistar- maður e'r þriðji listamaðurinn til að hljóta úthlutun starfslauna list- amanns Akureyrarbæjar, en á síð- asta ári hlaut þau Jón Hlöðver Áskelsson tónlistarmaður og þar áður Kristjana F. Arndal mynd- listarmaður. Margrét, sem er rúmlega þrítugur Akureyringur, lærði í Danmörku og rekur nú keramikvinnustofu og verslun í bænum. Hlynur Hallsson vann til verð- launa í ljóða- og smásagnasam- keppni sem efnt var til í tengslum við vinabæjaviku sem haldin verð- ur á Akureyri í júní, en tvær stúlk- ur, Ragnhildur Magnúsdóttir og Nína Björk Stefánsdóttir, hlutu viðurkenningar fyrir smásögur sínar. Hliðstæðar samkeppnir hafa farið fram í vinabæjum Ak- ureyrar, Alasundi, Lathi, Randes og Vesteras, í vetur, en sigurveg- arar þeirra hljóta að launum ferð á vinabæjavikuna á Akureyri og býðst þeim sem unnu til verðlauna hér að taka þátt í dagskránni, en bókmenntir eru aðalviðfangsefni þessarar vinabæjaviku. í því til- efni verður sett upp á Minjasafni Akureyrar prentiðnaðarsýning sem opin verður í allt sumar. Siðfræðinám- skeiðið vel sótt Endurmenntunarnámskeiði um siðfræði heilbrigðisstétta sem Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri gekkst fyrir í samvinnu við heilbrigðisdeild og endurmennt- unarnefnd Háskólans á Akureyri lauk nýlega. Mikil aðsókn var á námskeiðið og Iuku nokkrir þátt- takendur því með prófi. Kennt var eitt kvöld í viku frá janúar og fram í apríl og voi-u leið- beinendur dr. Guðmundur Heiðar Frímannsson og dr. Kristján Krist- jánsson. Einkum var ljallað um úrlausnarefni sem sérstaklega snertu heilbrigðisstéttir, svo sem fóstureyðingar, líknardráp, forsjár- hyggju gagnvart sjúklingum og dauðann. Námskeiðið var einkum ætlað hjúkrunarfræðingum en á það mætti auk þess annað starfsfólk í heilbrigðisþjónustu ogjafnvel sjúkl- ingar. Aðsókn á einstaka fyrirlestra var frá 30 til 80 manns. Nokkrir þátttakendur luku námskeiðinu með prófi, er jafngildir að þeir hafi lokið þriggja eininga áfanga í sið- fræði við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri. Morgunblaðið/Haukur Ingólfsson Bleik kastaði tveimur folöldum Um síðastliðna helgi átti sá óvenjulegi atburður sér stað hjá Svein- birni Guðmundssýni í Hvammi í Grýtubakkahreppi, að 20 vetra gömul hryssa, Bleik að nafni, kastaði tveimur folöldum, hvort tveggja hryss- ur. Báðar eru hin sprækustu þó að litlar séu, en sjaldnast lifa slík folöld. Ekki verður farið út í ættfræði hér, en Bleik í Hvammi mun vera komin út af miklum gæðingum í báðar ættir. Haukur Tónlistarskóli Eyjafjarðar: Fyrsti söngnemandinn útskrifaður með 8. stig Ytri-Tjörnum. NÚ NÝVERIÐ var Tónlistar- skóla Eyjafjarðar slitið i Grund- arkirkju. I ræðu Atla Guðlaugs- sonar, skólastjóra kom fram að skólastarf gekk vel í vetur. Nem- endafjöldi í skólanum var um 270 manns og eru það um 10% af íbúum á skólasvæðinu, sem telj- ast verður góð aðsókn. Svala Stefánsdóttir var útskrifuð frá skólanum með 8. stig í söng, en það er í fyrsta skipti sem það gerist norðan heiða. Aðalkennari hennar var Þuríður Baldursdóttir. Við athöfnina í Grundarkirkju flutti Svala nokkur verk eftir ýmsa höfunda við undirleik Guðjóns Páls- sonar. Þá léku nemendur skólans á fjöl- mörg hljóðfæri við góðar undirtekt- ir áheyrenda. Nemendur skólans héldu 7 tónleika vítt og breytt um héraðið í maímánuði, en skólastarfi lauk með ferð söng- og harmoniku- deilda skólans á Hvammstanga þar sem haldnir voru tónleikar í sam- vinnu við Tónlistarskóla Vestur- Húnvetninga. „ . Benjamm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.