Morgunblaðið - 21.05.1992, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAI 1992
15
nýja félaginu.
Við þetta er litlu að bæta öðru
en því að nokkur bréfaskrif hafa
orðið vegna þess að nafn Þorsteins
Jónssonar, framkvæmdastjóra
Kvikmyndasjóðs, var á tveim um-
sóknum til Kvikmyndasjóðs við síð-
ustu úthlutun og er hugsanlegt að
þau skrif hafi ýtt undir .fram-
kvæmdastjórann að kljúfa Samtök
kvikmyndaleikstjóra. Skulu þessi
bréfaskrif því skýrð lítillega. Sam-
tök kvikmyndaleikstjóra skrifuðu
stjórn Kvikmyndasjóðs bréf 4. jan.
’92 sem var svohljóðandi:
„Stjórnarfundur Samtaka kvik-
myndaleikstjóra, haldinn 21. jan.
’92, vill benda á að það samræmist
ekki starfi framkvæmdastjóra
Kvikmyndasjóðs að hann sæki um
eða sé á umsóknum til sjóðsins.
f.h. stjórnar Samtaka kvik-
myndaleikstjóra,
Friðrik Þór Friðriksson
formaður."
Til að skýra máið ögn nánar fyr-
ir þeim sem kynnu að hafa áhuga
skal bent á að önnur þeirra tveggja
umsókna, sem nafn Þorsteins var
á, kom frá Jóni ólafssyni plötuút-
gefanda. Sú umsókn fékk ekki
styrk. Jón Ólafsson fékk hins vegar
undirbúningsstyrk til annars verk-
efnis.
Þessi háttur við umsóknir, að
framleiðendur fái nafn fram-
kvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs á
umsóknir sínar til Kvikmyndasjóðs,
er ný aðferð við umsóknir til sjóðs-
ins.
Loks má benda á að framkvæmd-
astjóri Kvikmyndasjóðs, Þorsteinn
Jónsson, er jafnframt aðalfulltrúi
íslands í úthlutunarnefnd Evrópska
kvikmyndasjóðsins, Eurimage.
Flestar íslenskar myndir sækja um
úthlutun úr Evrópusjóðnum. Ef
plötuútgefandinn sem um var getið
hér á undan sækir til Evrópska
kvikmyndasjóðsins um styrk, þá er
framkvæmdastjórinn að afgreiða
umsókn til framleiðenda sem hefur
haft hánn á umsókn frá sér til ann-
ars sjóðs (Kvikmyndasjóðs) og gæti
í því tilfelli orðið atvinnuveitandi
hans.
í ljósi þeirra staðreynda er raktar
hafa verið hér að framan liggur ljóst
fyrir að sá „klofningur" sem skrif-
aður var um er í rauninni þessi:
Þráinn Bertelsson gat ekki sætt sig
við lýðræðislega niðurstöðu í for-
mannskjöri á aðalfundi Samtaka
kvikmyndaleikstjóra. Þráinn sagði
sig því úr samtökunum og stofnaði
nýtt félag með framkvæmdastjóra
Kvikmyndasjóðs, Þorsteini Jóns-
syni, ásamt tveim öðrum félögum
úr samtökunum. í félagið gengu
við stofnun nokkrir „kvikmynda-
leikstjórar". Þetta félag heitir Félag
kvikmyndastjóra og er Þráinn for-
maður þess.
Höfundur erritari Samtaka
kvikmyndaleikstjóra.
Morgunblaðið/Sverrir
Höfundar Skokkarans, Gunnar Páll Jóakimsson (t.v.) og Sigurður
Pétur Sigmundsson, með eintök af hinni nýútkomnu bók sinni.
Gefa út handbók
fyrir skokkara
ÚT er komin bókin Skokkarinn 1992 sem að sögn höfundanna,
Gunnars Páls Jóakimssonar og Sigurðar Péturs Sigmundssonar, er
handbók fyrir fólk á öllum aldri sem vill auka þrek sitt og þol.
VERTÍÐARLOKABALL
Á HÓTEL ÍSLANDI
FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 22. MAÍ
ÚTVARPSÞÁTTURINN
LANDIÐ OG MIÐIN
Dagskrá:
Fordrykkur við komu gesta.
Keppni í flökun á þorski.
Módelsamtökin sýna nýjustu línuna í hlífðarfatnaði
Sex áhafnir keppa í reiptogi.
Magnús Ver, einn af sterkustu mönnum landsins, skorar
á vaska sveina úr salnum í sjómann.
Hátíðarræða kvöldsins
Þorvaldur Halldórsson syngur vel valin sjómannalög.
Útnefning þeirra fískvinnslukvenna sem skilað hafa
bestri nýtni og afköstum í vetur.
„Bókin hentar jafnt byijendum
sem lengra komnum skokkurum
og þeim sem vilja æfa hlaup skipu-
lega. Það hefur verið lítið og tak-
markað framboð af upplýsingum
og leiðbeiningum um heilsubótars-
kokk og hlaupaæfingar og fólk sem
viljað hefur afla sér þekkingar hef-
ur meira og minna þurft að sjálf-
mennta sig í fræðunum," sögðu
Gunnar Páll og Sigurður Pétur í
samtali við Morgunblaðið um tilurð
þess að þeir réðust í útgáfuna.
Þeir sögðust að öllu leyti hafa skrif-
að hana út frá reynslu sinni sem
keppnismenn og skokkarar, en báð-
ir eru fyrrverandi og núverandi
meistarar og methafar í langhlaup-
um.
„Við höfum oft verið spurðir
ráða um eitt og annað varðandi
hlaup og það var fyrst og fremst
það sem hvatti okkur til þess að
skrifa þessa bók. Með aukinni þátt-
töku almennings í heilsubótars-
kokki höfum við orðið varir við
vaxandi þörf fyrir upplýsingar um
áhrif skokks og leiðbeiningar um
æfingar. Það má segja að skokk-
sprenging hafi átt sér stað hér á
landi sem lýsir sér best í mjög auk-
inni þátttöku í almenningshlaup-
um.“
„Það er hins vegar ekki sjálfgef-
ið að allir skokkárar hafi grundvall-
arþekkingu á þjálffræðinni, en við
teljum mikilvægt að sem flestir
geri sér grein fyrir og átti sig á
hvaða áhrif skokkið hefur á líkam-
ann. Er það raunar forsenda þess
að ávinningur manna af þessari
tegund heilsuræktar verði sem
rnestur."
„Af þessum sökum er farið ítar-
lega í undirstöðuatriði og hvaða
áhrif skokk hefur á líkamann, en
í stuttu máli sagt eykst starfsgeta
hjartans. svo og æða- og öndunar-
kerfisins, öndunin verður virkari,
hæfni vöðvafrumanna til að nýta
súrefni eykst við þolþjálfun, skokk-
ið dregur úr streytu og vellíðan
eykst,“ sögðu þeir félagar.
„í þessu sambandi gerum við
grein fyrir ýmsum æfmgaaðferðum
í bókinni, drögum upp mismunandi
æfingaáætlanir eftir því hvar á
•vegi menn eru staddir í skokkinu,
bæði fyrir byrjendur og lengra
komna. Þá er fjallað um nauðsyn-
legan útbúnað til hlaupa, sérstakur
kafli er um teygjuæfingar, tilgang
þeirra og áhrif á vöðva, einnig
kafli með ráðleggingum um undir-
búning fyrir þátttöku í kapphlaup-
um auk þess sem fjallað er um
heppilegt mataræði hlaupara,“
sögðu Gunnar Páll og Sigurður
Pétur að lokum.
í bókarlok er að finna mikla
skrá yfír 10 bestu afrek í hálfu og
heilu maraþonhlaupi í hverjum ald-
ursflokki karla og kvenna. Auk
þess sem bókin fæst í verslunum
munu þeir Gunnar Páll og Sigurður
Pétur ráðgera að mæta á sem flest-
um almenningshlaupum sumarsins
og kynna bókina þar.
„Svona er hinn fullkomni karlmaöur vaxinn.“ Tveir
myndarlegustu karlmenn landsins sýna konunum vöxt
sinn og fleira???
Fjöldasöngur.
Skondnar sögur af sjónum.
HLJÓMSVEIT GEIRMHNDAR VALTÝSSONAR
LEIKUR FYRIR DANSI
Kynnir kvöldsins: Sigurður Pétur Harðarson,
útvarpsmaðurinn góðkunni, sem landinn þekkir úr
þættinum Landið og miðin.
Matsiðitt:
‘Kjóttiaíöcjui) súpa netagerðarmtmsins
Uppáhalésteikjkjpstjórans
9íafis tiorhrsins
—
HQTEL tgJÁND
Forsala aðgöngumiða er þegar hafin á Hótel íslandi
alla virka daga frá kl. 13-19, sími 687111.
Hótel KEA Akureyri, laugardaginn 23. maí kl. 10-16
SÝNING Á BI Sýnum á Akureyri viðskiptahugbúnaöinn Bústjóra. v Kynnumm.a.: Bókhald sveitarfélaga Útvegsbankinn (útgerð og fiskvinnsla) ^ Framleiðslukerfi Sölukerfi verslana -komdu og kynntu þér nútíma hugbúnað ^ JSTJC xfÍÉ Bústi' B ‘áksÆm -sveigjan /JfJl STRENG ÉBe nmSk verk- og keríisíi fW Stórhöfða 15-11 J/y N Simi 91-685130 )RA óri legur í samstarfi j UR œðistofa _LÍ I ö ;. 2 Reykjavik Fax 91-680628