Morgunblaðið - 21.05.1992, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1992
17
Nú þurfa sjómenn
að halda vöku sinni
eftir Pétur
Sigurðsson
Ég á grein í Sjómannadagsblað-
inu sem kemur út þann dag. Rit-
nefndarmaður hefur bent mér á
að hluti þessarar greinar eigi
erindi til sjómannadagsráðs, sem
nú heldur aðalfundi sína — og
reyndar fleiri.
Ég man þá tíma á Alþingi, að
oft lögðust þungt á þingmenn
ýmsar ákvarðanir sem gátu haft
mikil framtíðaráhrif á þjóðlífið og
menn urðu hver fyrir sig að spá
í framtíðina, sem enginn gat þó
að fullu séð fyrir. Menn sjá áætlan-
ir í skjölum, velta þar setningum
fyrir sér, hlusta á rök með og á
móti, en enginn sér fyrir með
vissu, hver raunveruleikinn reynist
í framkvæmd. í öllum samningum
eru ævinlega tvíræðar setningar
og enginn samningur er heldur svo
úr garði gerður, að það verði ekki
komið undir þeim aðilum, sem að
honum standa og framkvæma,
hvernig sem hann reynist og
hvernig hann verkar, og þeir aðil-
ar eru oft aðrir en samninginn
gerðu með sér upphaflega og töldu
að sínum skilningi traustlega frá
öllum ákvörðunum gengið. Þess
er því von að deilur hefjist jafnan
á þingi og með þjóðinni þegar til
koma umræður um milliríkja-
samninga, sem skuldbinda þjóðina
með einhveijum hætti um ókomin
ár. Það þarf að meta gildi þeirra
skuldbindinga til framtíðar frá
sjónarmiðum svo sem þjóðréttar-
legum, efnahagslegum og þjóðleg-
um, svo sem áhrif á tungu og
menningu og rótgróna lífsháttu.
Undir meginþættinum eru svo
ýmsir aðrir, svo sem áhrif slíkra
samninga á einstakar stéttir
þjóðfélagsins.
í samningum þeim sem til
stendur að leggja fyrir Alþingi
íslendinga um Evrópska efna-
hagssvæðið hljóta sjómenn eðli-
lega að láta til sín taka öll ákvæði
samningsins, sem snerta íslenskan
Borgarráð;
Fimmtán millj-
ónum úthlut-
að úr Hús-
verndarsjóði
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
tillögu Umhverfismálaráðs um
úthlutun lána úr Húsverndar-
sjóði árið 1992. Úthlutað er 15
milljónum króna til tíu aðila og
er hæsta lán 2 milljónir, sem
veitt er til fjögurra aðila.
Elín Magnúsdóttir og Hanna
María Gunnarsdóttir fá 1,5 millj.
að láni vegna Bergstaðastrætis 64,
Þráinn Bertelsson og Sólveig Egg-
ertsdóttir fá 2 millj. vegna Fischer-
sunds 3, og Söngskólinn, Hverfis-
götu 44, fær 1 millj. að láni. Heim-
ilisiðnaðarfélag íslands fær 750
þús. að láni vegna Laufásvegar
2, Einar Guðjónsson og Kristín
Axelsdóttir fá 2 millj. vegna Lækj-
argötu 10, og Þorsteinn Þorvarð-
arson fær 2 millj. vegna Skóla-
vörðustígs 35.
Jóhannes Guðfínnsson fær 500
þús. vegna Stýrimannstígs 9,
Helga Bachmann og Helgi Skúla-
son fá 2 millj. vegna Suðurgötu
31, Magnús og Gunnar Sverris-
synir fá 1 millj. 750 þús. vegna
Veltusunds 3B og Ásta K. Ragn-
arsdóttir og Valgeir Guðjónsson
fá 1,5 millj. vegna Þingholtsstræt-
is 28.
sjávarútveg. Þar dugar ekki að
kasta til höndunum, heldur sé þar
allt fullskýrt og engum vafa undir-
orpið hvað sé við átt með þessari
eða hinni greininni.
í Sjómannadagsblaðinu geri ég
það að tillögu minni, og tek hana
hér upp, enda hef ég rætt hana
við ýmsa aðila, að sjómannasam-
tökin í landinu setji á stofn nefnd
til að meta þýðingu og gildi ein-
stakra greina, og sé sú nefnd skip-
uð sérfróðum mönnum í lögum og
atvinnuvegum og á ég þá við lög-
lærða menn, ásamt mönnum með
þekkingum á veiðum og útgerð,
vinnslu og mörkuðum.
Eðlilegast er að aðalfundir Sjó-
mannadagsráðs beiti sér fyrir
þessari stofnun, en síðar hafi Éar-
manna- og fiskimannasambandið
ásamt Sjómannasambandi íslands
Pétur Sigurðsson
með forræði hennar að gera, og
sé sú nefnd skipuð sérfróðum
mönnum í lögum og atvinnuveg-
um' Er þá að sjálfsögðu átt við
þá löglærðu ásamt mönnum með
þekkingu á veiðum og útgerð skipa
af öllum stærðum ásamt vinnslu
og aðstöðu hennar. Kannski er
eðlilegast að FFSí og SSí hafi for-
göngu um stofnun slíkrar nefndar,
landsnefndar sjómanna, sem þyrfti
að vera allfjölmenn, varla færri
en 15 menn, og í henni, sem fyrr
segir, yrðu menn úr öllum stéttum
sjávarútvegsins.
Því mun ekki saka að aðalfund-
ur sjómannadagsins í Reykjavík
og Hafnarfírði hnykki á um fram-
kvæmdina.
Höfundur er formadur
Sjómannadagsráðs.
r
VlÐ BJOÐUM
YKKUR VELKOMIN
í NÝJAN OG
GRÓSKUMIKINN
B Ú NAÐARBANKA
í KÓPAVOGI
Föstudaginn 22. maí
og mánudaginn
25. maí tökum við á
móti Kópavogsbúum
með kaffi og kökum,
gosdrykkjum og
I góðgœti.
Tilefnið ’er sannarlega ánægjulegt:
Vorið 1991 efndi Búnaðarbankinn
til samkeppni um nýtt útlit og
skipulag í afgreiðslusölum bankans.
GRÓSKA, tillaga Sigurðar Einars-
sonar og Jóns Ólafs Ólafssonar, bar
sigur úr býtum og nú verður þessi
glæsilega hönnun „frumsýnd" hjá
okkur í nýjum afgreiðslusal að
Hamraborg 9.
Hugmyndin að GRÓSKU er sótt í íslenska flóru,
Mffl hreinleika og náttúrufegurð landsins.
Komið í heimsókn og njótið
með okkur GRÓSKU Búnaðarbankans.
Paddington kemur í
heimsókn kl. 11.00 og 14.00.
BUNAÐARBANKINN
-Trausturbanki