Morgunblaðið - 21.05.1992, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAI 1992
51
Töfrar Ítalíu á verði 3 daga laxveiði
Frá Steindórí I. Ólafssyni:
SÍÐASTLIÐIÐ sumar fórum við
hjónin í ferð með Heimsklúbbi Ing-
ólfs til Ítalíu. Flogið var til Mílanó
og þaðan ekið um Ítalíu, allt suður
til Rómar. Skoðaðar voru margar
fallegustu borgir og listasöfn lands-
ins.
Afskræming
tungunnar
Frá Jóhannesi Straumland:
JAFNAÐARMENN. Jafnaðar-
mannaflokkur íslands. Það er gott
að heyra þessi orð. Að halda þeim
uppi er það eina sem íslenskir kratar
hafa gert til gagns á undanförnum
árum. Þetta er eina tilfellið í opin-
berri umræðu þar sem orðið jöfnuð-
ur er rétt beygt. Jöfnuður - jöfnuð
- jafnaði - jafnaðar. í allri annarri
orðræðu hefur ö-ið og u-ið í nefni-
falli útrýmt skiljanlegri beygingu á
orðinu í þágufalli og eignarfalli.
Þetta hefur gerst á örfáum árum.
Eins konar forystu í þessari af-
skræmingu tungunnar hafa stjórn-
málamenn haft og háskólamenntað
fólk, fólk sem er símalandi í út-
varpi og sjónvarpi. Og þetta er ekki
eina dæmið um að þessi blómi þjóð-
arinnar hafi forystu um að klæmast
á móðurmálinu. Rassbögurnar
streyma frá þessu forystuliði eins
og óstöðvandi skolprennsli. Síðan
apar svonefndur almenningur eftir,
þungt haldinn af menntamanna-
snobbi.
. JÓHANNES STRAUMLAND,
Kaplaskjólsvegi 63, Reykjavík.
LEIÐRÉTTING
Artúnsskóli
í myndatexta á bls. 5 í Morgunblað-
inu í gær, segir að myndin sé af
Árbæjarskóla, en átti að vera Ár-
túnsskóli. Þetta leiðréttist hér með.
Pennavinir
Franskur 23 ára frímerkja- og
myndbandasafnari með mikinn
áhuga á erlendum tungumálum:
Patryck Pastor,
53 rue de la Gantiere,
63000 Clermont-Ferrard,
France.
Þrítugur Ghanamaður, byggin-
gatæknir, með margvísleg áhuga-
mál:
George Victor Harlem,
P. 0. Box 760,
Cape Coast,
Ghana.
Sænskur 28 ára gamall frí-
merkjasafnari vill skrifast á við ís-
lenska safnara:
Mikael Johansson,
Sángvagen 15/475,
451 71 Uddevalla,
Sverige.
Sautján ára finnsk stúlka með
margvísleg áhugamál:
Elina Mákelá,
Niittytie 6,
44500 Viitasaari,
Finland.
Frá Ghana skrifar 24 ára stúlka
með áhuga á íþróttum og ljósmynd-
un:
Grace Paintsil,
P.O. Box 1309,
Cape Coast,
Ghana.
Sautján ára þýskur piltur með
áhuga á landafræði, tónlist, tungu-
málum og íþróttum:
Michael Altendeitering,
Piittmannsweg 11,
4630 Bochum 1,
Germany.
Bresk 52 ára ógift kona mec'
áhuga á tónlist, krossgátum, bóka-
lestri, ökuferðum og kórsöng:
Ann Charlotte Boland,
18 Bath Road,
Silverdale,
Newcastle Under Lyme,
Frá Mílanó var ekið til Feneyja,
þar sem eins og í öðrum borgum
var gist á fyrsta flokks hóteli. Síðan
voru heimsóttar borgirnar Veróna,
Písa, Flórens, Assisi, Róm og fleiri.
Hótelin voru alltaf í hæsta gæða-
flokki og staðsett á besta stað.
Það er oft rætt um að slíkar ferð-
ir séu mjög dýrar, sem ef til vill
er rétt. En verð er aðeins hátL í
samanburði við eitthvað annað. Eg
hafði haft í huga að fara í góða
laxveiðiá, en fór í þessa ferð í stað-
inn. Góð veiðiá kostaði um kr.
180.000 — í þijá daga. Þá er ekki
innifalinn matur (og flug!!). Ferðin
með Heimsklúbbnum, tvær vikur,
með flugi, bíl og átta kvöldverðum
ásamt veigum, svo og gisting á
topp hótelum, var á svipuðu verði.
Hvað er þá dýrt?
Undirritaður hefur starfað að
flug- og ferðamálum í rúm 30 ár
bæði hér heima og erlendis. Slíkum
störfum fylgja mikil ferðalög. Ég
hef oft haft að orði að aldrei mundi
ég fara í „túrhestaferð" með farar-
stjóra. Þóttist kunna þetta allt
nægilega vel sjálfur. Höfum við
hjónin meðal annars ekið um Ítalíu
og „skoðað“ það markverðasta.
Það verður að segjast um ferð
þessa með Heimsklúbbnum, að
skipulag allt var frábært. Tíminn
nýttur til að geta skoðað sem mest
og allur undirbúningur, sem ekki
er lítill, stóðst fullkomlega. Félags-
skapur meðal þátttakenda varð
strax mjög góður, sem gerði ferðina
enn skemmtilegri. Kunnátta og
þekking fararstjórans, Ingólfs Guð-
brandssonar, gerði ferðina ógleym-
anlega.
Þó ég mæli ekki á móti laxveiði-
ferð, verður þessi ferð okkar sann-
kölluð lista- og töfraferð og okkur
hjónunum ógleymanleg.
STEINDÓR I. ÓLAFSSON
Þrastanesi 18A, Garðabæ
VELVAKANDI
LYKLAR
NÍU lyklar á hring fundust við
Háaleitisbraut, þriðjdaginn 12.
maí. Upplýsingar í síma 33284.
JAKKI
JAKKI af 11 ára dreng tapað-
ist í grennd við Breiðholtsskóla
8. maí. Jakkinn er rauður, úr
ullarefni með svörtum ermum
og mynd á bakinu. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hringja í síma 74061 eða síma
73000.
SNYRTIBUDDA
RAUÐ snyrtibudda tapaðist
aðfaranótt sunnudagsins 17.
maí á L.A. café eða á á leið
þaðan frá Laugarnesvegi.
Finnandi er vinsamlegast beð-
inn að hringja í síma 675973.
KJÁNALEGT
FRÍMERKI
Ólafur Guðmundsson:
ÞAÐ verður að segjast eins og
er að slysalega hefur tekist til
við að teikna frímerkið með
skíðamanninum höfuðlausa.
Það versta er að skíðastafurinn
hefur lent undir hægra skíðinu
hjá teiknaranum en erfitt mun
að renna sér þannig á skíðum.
Það er leiðinlegt að segja það
en þetta frímerki er alveg
framúrskarandi kjánalega
teiknað.
KETTIR
LÆÐA tapaðist frá Háaleitis-
braut fyrir nokkru. Hún er
frekar lítil, hvít á kvið með
hvíta fætur, svartgrábröndótt
á baki. Hún er ómerkt en hefur
hvítan blett á baki. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hringja í síma 19164 eða síma
624008 ef hún hefur einhvers
staðar komið fram.
Stór, svartur köttur með
hvítan blett vinstra megin á
trýni, hvítan blett á bringu og
hvítar tær hefur verið í reiði-
leysi vestast í Vesturbænum
um nokkurt skeið. Hann sár-
vantar að finna heimili sitt eða
þá nýtt og notalegt heimili.
Upplýsingar í síma 15393.
Tveir tveggja mánaða kassa-
vandir kettlingar, læða og
fress, fást gefins. Upplýsingar
í síma 812146
SUNDSKÝLA
LITRÍK sundskýla fannst við
Álfliólsveg. Upplýsingar í síma
42891.
SÍGARETTU-
VESKI
SÍGARETTUVESKI úr leðri,
merkt með skeifu, tapaðist í
Lækjargötu um síðustu helgi.
I því var svartur og gulllitaður
kveikjari. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í Ás-
dísi í síma 666898.
KVENNAREIÐ
FÁKS
Árleg kvennareið Fákskvenna verður föstudaginn
22. maí nk. Riðið verður út í náttúruna.
Grillað á staðnum, verð kr. 1.100,-
Lagt af stað frá félagsheimilinu kl. 19.30 stundvíslega.
Fjölmennum.
Kvennadeildin.
GSFÍ VOTTUN HF. STRÍ
VOITUÐ GÆBAKERFI - fSLENSK REYNSLA
Kynningarfundur í dag
Fyrirtækin Lýsi hf. og Sölumiðstöó hraðfrystihúsanna hafa fyrst ís-
lenskra fyrirtækja nýlega fengið gæðakerfi sín vottuð
samkvæmt alþjóðlegu gæðastöðlunum ISO-9000.
Af því tilefni hafa Gæðastjórnunarfélag íslands, Staðlaráð
fslands og Vottun hf. i samstarfi við þessi fyrirtæki, ákveðið að efna til
kynningarfundar um vottuð gæðakerfi skv.
1SO-9000, uppbyggingu og reynslu af notkun þeirra.
Dagskrá: *
1. Setning: Davíð Lúðvíksson, fundarstjóri ogformaðurGSFÍ.
2. Staðlar fyrir gæðakerfi:
Guðrún Rögnvaldardóttir, Staðlaráði íslands.
3. Vottunarhæft gæðakerfi og rcynsla frá Danfoss:
Kjartan Kárason, Vottun hf.
4. Vottað gæðakerfi hjá Lýsi hf., uppbygging og notkun:
Baldur Hjaltason, Lýsi hf.
5. Vottað gæðakerfi hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna:
Sigurður Bogason, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna.
6. Fyrirspurnirogumræður.
Fundurinn verðurídag, fimmtudaginn 21. maí,
kl. 14.30- 17.00 íBorgartúni 6.
Verð með kaffi 1.750 kr.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku ísímum 27577 eða 687000.
Reiðskólinn Hrauni
Grfmsnesi
Reiðskóli fyrir
10-15 ára unglinga
Úfreiðar og bókleg kennsla um
hesta og hestamennsku.
Sundlaug með heitum potti -
Gufubað - Golfvöllur -
Mini golf - Borðtennis —
Leikvöllur - Fótboltavöllur -
Skemmtikvöld -
Grillveisla o.fl. o.fl.
9 daga námskeið
með fullu fæði:
Verð kr. 24.900,-
Júní JÚIÍ Agúst
8.-16. 30. júní - 8. 5.-13.
18.-26. 11.-19.
Framhald 2 Framhald 3
22.-30. 17.-25.
Reidslcólinn Hrauni
Þar sem hestamennskan hefst!
HAFNARSTRÆTI 2 - BOX 423 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 623020 - TELEFAX: 25285
RENOLD
KEÐJUR, TANNHJÓL OG ÁSTENCI
HOGG- OG TITRINGSPUÐAR
Drifbúnaður hvers konar og
rafmótorar eru sérgrein okkar.
Allt evrópsk gæðavara. Veitum
tæknilega ráðgjöf við val á
, drifbúnaði.
Það borgar sig að
nota það besta.
Þekking Reynsla Þjónusta
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SlMI 814670