Morgunblaðið - 21.05.1992, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1992
19
Sjávarútvegsskóli í Reykjavík
eftir Finn Ingólfsson
í fyrirspurnatíma á Alþingi
skömmu fyrir páska spurði sá er
þetta ritar menntamálaráðherra
hvort hann hygðist beita sér fyrir
því, að Vélskóli íslands, Stýri-
mannaskólinn í Reykjavík og Fisk-
vinnsluskólinn í Hafnarfirði yrðu
sameinaðir í einn sjávarútvegsskóla
á framhaldsskólastigi. Ástæða fyr-
irspurnarinnar var að nefnd á veg-
um menntamálaráðherra sem skip-
uð var til að leita leiða til hagræð-
ingar í framhaldsskólunum hafði
þá skilað áliti. í því áliti segir, að
nefndin telji mjög brýnt að tekið
verði upp samstarf skóla, þar sem
því verði við komið, einkum hvað
varðar innritun og námsframboð.
Nefndin telur að samstarf af þess-
um toga geti verið góður kostur
þegar um er að ræða mótun nýrra
námsbrauta. Ennfremur kemur til
greina að mati nefndarinnar að
sameina skóla. Nefndin leggur því
til að Stýrimannaskólinn í Reykja-
vík, Vélskóli íslands og Fiskvinnslu-
skólinn í Hafnarfirði verði samein-
aðir í einn skóla, sjávarútvegsskóla.
Breytinga er þörf
Allir þessir skólar hafa gegnt
mikilvægu hlutverki við að mennta
og fræða starfsfólk sem síðan hefur
komið til starfa í sjávarútveginum.
Þar sem sjávarútvegurinn er undir-
stöðuatvinnugrein þjóðarinnar,
hlýtur það að vera eðlileg krafa,
að vej sé búið að fræðslumálum
hans. í lögum framangreindra skóla
eru ýmis ítarleg ákvæði um nám
og námsskipan. Lögin eru um
margt nákvæm hvað þessa hluti
varðar og ætla má • að þau séu
Þrándur í götu breytinga á námi
og þess sveigjanleika sem krefjast
verður af skólum ef þeir eiga að
þjóna síbreytilegum þörfum atvinn-
ugreinarinnar. Hugmyndin um
sameiningu þessara þriggja skóla
er ekki ný af nálinni. Fyrir fjórum
árum var starfandi á vegum mennt-
amálaráðuneytisins og sjávarút-
vegsráðuneytisins nefnd sem gerði
tillögur um stofnun sjávarútvegss-
skóla á framhaldsskólastigi. Full-
yrða má að þær tillögur eigi við enn
þann dag í dag en þær eru:
a) Að stofnaður yrði sjávarútvegs-
skóli í Reykjavík er taki við hlut-
verki Stýrimannaskólans, Vél-
skólans og Fiskvinnsluskólans.
b) Sjávarútvegsskólinn yrði sér-
skóli á framhaldsskólastigi og
heyrði undir menntamálaráðu-
neytið. Aðfaranám að skólanum
og nám á einstökum brautum
skólans gæti einnig farið fram
við aðra framhaldsskóla lands-
ins.
c) Sjávarútvegsskólinn fengi til
umráða húsnæði Stýrimanna-
skólans og Vélskóla Islands og
hið nýja verknámshús Fisk-
vinnsluskólans í Hafnarfírði.
d) Sjávarútvegsskólinn myndi
starfa í upphafí í fimm deildum;
siglingafræðideild, vélfræði-
deild, fiskvinnsludeild, fiskeldis-
deild og endurmenntunardeild.
Að snúa vörn í sókn
Verulegur samdráttur hefur orð-
ið á nemendafjölda þesara skóla á
SíUSAR
t
M
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44
Vwterkurog
k J hagkvæmur
auglýsingamiöill!
„Sjávarútvegsskóli sem
ein stofnun verður
sterkari eining en þrír
minni skólar og þar af
leiðandi betur í stakk
búinn til að takast á við
verkefni sín.“
undanförnum árum. Skýringar á
því eru væntanlega margar. Nem-
endum hefur fækkað í hveijum ár-
gangi. Áhugi á bóknámi er almennt
meiri en verknámi og fjölbreytileiki
náms á framhaldsskólastigi hefur
aukist verulega og jafnframt sam-
keppni um nemendur. Kennsla við
Stýrimannaskólann og Vélskóla ís-
lands fer fram í húsnæði Sjómanna-
skólans. Nemendum hefur fækkað
þar á undanförnum árum og hús-
næðið því vannýtt, auk þess er
kennsla skólanna tveggja algjörlega
aðskilin, þótt almennar námsgrein-
ar séu 30-45% námsefnis þeirra.
Samræming þessa hluta námsins
gæti verulega bætt nýtingu húss-
ins, kennslukrafta og tækjabúnað-
ar. Ekki verður annað séð en að
hæglega megi flytja bóknám Fisk-
vinnsluskólans í Hafnarfirði og
sameina þannig á einum stað, allt
almennt bóknám þessara þriggja
skóla. Af því hlytist verulegt hag-
ræði.
Reykjavík vagga
sjávarútvegsfræðslunnar
Á tímum hagræðingar og sparn-
Finnur Ingólfsson
aðar á öllum sviðum er afskaplega
mikilvægt að nýta það vel sem til
er. Því er eðlilegt að slíkur sjávarút-
vegsskóli á framhaldsskólastigi yrði
settur á stofn í Reykjavík, enda
Reykjavík til skamms tíma ein
stærsta verstöð landsins. Vagga
sjávarútvegsfræðslunnar í landinu
væri því velkomin þar. Sjávarút-
vegsskóli sem ein stofnun verður
sterkari eining en þrír minni skólar
og þar af leiðandi betur í stakk
búin til að takast á við verkefni
sín. Sérstaklega má nefna þróunar-
störf við endurnýjun nárhsefnis og
skipulag nýrra námsbrauta. Ætla
má að betur verði séð fyrir fjárveit-
ingum til skóla sem þannig starf-
aði. Líklegt er að sterkur og at-
kvæðamikill sjávarútvegsskóli muni
almennt njóta meira álits en minni
sérskólar og því verða fýsilegri
kostur efnilegum nemendum en
verið hefur.
Höfundur er alþingismaður
Framsóknarflokksins í Reykjavík.
SAS Lukkupotturinn
er fullur af ævintýrum!
SAS býður upp á ótrúlega lág far-
gjöld til borga um alla Evrópu á
verði sem er um 40% lægra
en á venjulegum fargjöldum.
Börn og unglingar frá
2ja til 18 ára aldurs fá þar
að auki 50% afslátt.
Til að spila í SAS Lukku-
pottinum þarf að kaupa farmiðann
7-14 dögum fyrir brottför og dvelja
a.m.k. aðfararnótt sunnudags í því
landi sem ferðast ér til.
Hámarksdvöl ferðarinnar er einn mán-
uður. Lukkufargjöldin eru miðuð við
að ferðast sé með SAS frá íslandi
til Kaupmannahafnar og þaðan
áfram til ákvörðunarstaðarins.
SAS LUKKUFARGJOLD
Verö miöað viö einstakling: 29.000 38.400 43.100 47.800 52.500 57.200
Kaupmannah. Berlln Amsterdam Aberdeen Barcelona Alicante
Stokkhólmur Hamborg Dusseldorf Brussel Genf Aþena
Osló Hannover Frankfurt Budapest Mílanó Istanbul
Bergen Stavanger Kristiansand Váxjö Vásterás Gautaborg Malmö Kalmar Jönköping Norrköping London Manchester Stuttgart Dublin Glasgow Helsinki Munchen París Ríga Tallinn Vín Vilnius Zúrich Nice Lissabon Madrid Malaga Róm
1250 kr. flugvallarskattur er ekki innifalinn í uppgefnu veröi.
SAS flýgur frá íslandi til Kaupmannahafnar mánudaga, miövikudaga og laugardaga.
Flug til íslands er á sunnudags-, þriðjudags- og föstudagskvöldum.
Kynntu þér SAS Lukkupottinn á söluskrifstofu SAS eða á
ferðaskrifstofunni þinni og fljúgðu á vit ævintýranna í Evrópu!
H///SAS
SAS á íslandi - valfrelsi i flugi!
Laugavegi 172 Sími 62 22 11