Morgunblaðið - 21.05.1992, Síða 23

Morgunblaðið - 21.05.1992, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ' 1992 23 mennum vinnumarkaði ætti til við- bótar að gera mínussamninga hjá ÍSAL, þar sem samþykkt miðlunar- tillögunnar hefði þýtt að engar greiðslur vegna hagræðingar kæmu á samningstímanum. „Við metum málið þannig að þessi tvö aðal ágreiningsmál, verktakayfirlýsing- in og vinnufyrirkomulagsmálin, séu svo þýðingarmikil að það sé ástæða til að setja ígildi eingreiðslunnar til hliðar í bili,“ sagði Gylfi. Lagt okkur fram við að leysa málin Hann sagði að starfsmenn hefðu verið með lausnir á öðrum ágrein- ingsmálum, þ.e. varðandi kaffitíma, hagræðingu og útreikning jafnað- arlauna vegna minni vinnuskyldu. „Við höfum lagt okkur fram við að leysa mál, en höfum ekki mætt öðru en því að þeir yrðu að fá fram sínar lausnir á öllum ágreiningsefn- um. Það að standa frammi fyrir því að semja um þetta eða hafa engan samning er ekki að semja. Ég held að eigendur þessa fyrirtækis þurfi að gera þær kröfur til sinna stjórn- enda að þeir fari að koma fram við starfsmenn sem jafnréttháan við- semjanda. Það er ekki hægt að una því að standa í sífellu frammi fyrir eilífum hótunum. Ef við eigum í kjaraviðræðum kemur alltaf upp sú sjiurning hvort eigi að loka ISAL. Ég hef aldrei heyrt talað um það þegar sjómenn eiga í kjaradeilum að þeir ætli að leggja niður íslensk- an sjávarútveg. Við erum ekki að tala um að það eigi að loka þessu fyrirtæki. Við viljum fá umræðu um kjaramál okkar. Við viljum fyr- irtækinu allt það besta en það verð- ur að semja um hlutina og svona hótanir eru stjórnendum fyrirtækis- ins til vansa,“ sagði Gylfí. Hann sagði að stjórnendur ÍSAL og VSÍ hljóti að eiga næsta leik eftir að hafa fellt miðlunartillöguna. Þegar verkalýðsfélög afgreiði kjara- samninga sé það alltaf gert með því fororði að það hafi ekki verið hægt að komast lengi-a. Þannig viti félags- menn það mæta vel að með því að fella samninginn séu þeir að kalla eftir aðgerðum til að þiýsta á um að frekari árangur náist í samningaviðræðum. Starfsmenn hafi samþykkt miðlunartillöguna en viðsemjandinn, ÍSAL og VSÍ, fellt hana og þeir hljóti því að hafa hugs- að málið eitthvað lengra. Hann sagði að starfsmenn fögn- uðu því að sjálfsögðu að reist yrði nýtt mötuneyti, en forstjóri ÍSAL skýrði frá ákvörðun þar að lútandi í viðtali við Morgunblaðið fyrir skömmu. Þeir hefðu hins vegar heyrt þetta lengi. Þetta mál hefði verið komið mjög langt 1990 en ekki orðið af framkvæmdum. Árið 1991 hefði verið taprekstur á fyrir- tækinu og þá hefði verið sagt að ekki væri ijármagn fyrir hendi til þess að byggja mötuneyti. Eftir því sem starfsmönnum væri sagt hefði fyrirtækið tapað 200 milljónum það sem af væri þessu ári. Það væri sagt að vegna rekstrarstöðu fyrir- tækisins væri ekki hægt að greiða starfsmönnum ígildi eingreiðsln- anna að sögn, sem væru á bilinu 20-30 milljónir. Það skyti því skökku við að þeir ætluðu að reisa nýtt mötuneyti af tómum velvilja fyrir 120 milljónir, en núverandi mötuneyti hefði verið byggt þegar álverið var byggt og hefði verið á undanþágu síðan. HITASTYRITÆKI HITASTÝRITÆKI fyrir sturtu eða baðkar með fullkomnu brunaöryggi P arma mk Verð frá aðeins kr. 9.980,- Skeifunni 8, Reykjavík ÍT682466 Bænadagur kirkj- unnar á sunnudag HINN almenni bænadagur kirkj- unnar, fimmti sunnudagur eftir páska, er næstkomandi sunnu- dag, 24. maí. Biskup íslands, herra Olafur Skúlason, hefur ákveðið að í ár skuli fjallað um efnið: Sköpun Guðs og ábyrgð manns. Hér á eftir fer hluti úr bréfi biskups af þessu tilefni til presta landsins: „Guð fól manninum ráðmennsku yfir jörðinni og þar með ábyrgð á sköpuninni. í slíku felst verndun náttúru og viðhald, með viðleitni til þess að byggja upp en forðast að eyða og spilla. Því miður sýnir sag- an, að maðurinn hefur ekki risið undir ábyrgð sinni og skaðvaldar ná jafnvel upp í gufuhvolfið. Biðjum því fyrirgefningar á eyði- leggingu og skaðlegu athæfi. Biðjum um það, að trú okkar styrki trúmennsku okkar gagnvart sköpun Guðs og öllu því, sem okkur ber að skila eftirkomendum okkar í hendur. Biðjum um það, að viðleitni okk- ar beri árangur í því að treysta líf- ríkið. Biðjum um kjark til þess að beij- ast gegn mengun og spillingu og djörfung til þess að breyta eftir sannfæringu okkar. Biðjum um það að augu opnist fyrir opinberun Guðs í náttúrunni og við lærum að þekkja hana í sköp- un hans, svo að við megum greina, hvernig unnt er að bæta það, sem spillt hefur verið. Biðjum um það, að allir menn megi vinna ljóssins verk, svo að kærleikur einkenni samfélag fólks og þjóða. Lofum Drottin fyrir náð hans. Þökkum handleiðslu hans alla og fyrirmæli. Metum dýrð sköpunnar og hlutdeild okkar í henni. Biðjum um það að lofgjörð okkar fylgi fögnuður yfir lífinu og nálægð Guðs í Heilögum anda í kirkjunni. Þökkum frelsara manna, Jesú Kristi, fyrir náðargjöf hans og fyrir- heit Um eilíft líf.“ Eiður Guðnason umhverfisráð- herra mun predika á bænadaginn við guðsþjónustu í Árbæjarkirkju. ----—» » 4------- Grindavík: M-hátíð sett Grindavík. M-HÁTIÐ verður formlega sett í Grindavík í kvöld, fimmtudag- inn 21. maí, í félagsheimilinu Festi. Þar með er búið að setja hátíðina í öllum byggðarkjörnum á Suðurnesjum. Dagskráin hefst kl. 20.30 með því að blásarasveit undir stjórn Siguróla Geirssonar leikur og síðan setur Eðvarð Júlíusson hátíðina. Efnisskráin er fjölbreytt og má nefna leiklestur Leikfélags Grinda- víkur sem verður endurvakið og verða flest atriði í höndum heima- manna. Þá syngur Signý Sæmunds- dóttir við undirleik Jónasar Ingi- mundarsonar. Kynnir á hátíðinni verður Guðveig Sigurðardóttir. Grindvíkingar eru hvattir til að mæta og njóta Ijölbreyttrar dag- skrár. Kaffiveitingar verða að lokn- um dagskráratriðum. Fréttatilkynning. Námskeið í reikí I helgina 23. og 24. maf. Bergur Björnsson, reikimeistari, sími 91-679677. GÓÐ HÚSGÖGN Á GÓÐU VERÐI Reyrsett 2+1+1 + borð. Verð frá kr. 35.000,- stgr. Hornsófar alklæddir svörtu leðri, stærð 200 cm x 250 cm. Verð aðeins kr. 129.000,- stgr. Sófasett 3+2+1 m/svörtu leðri á slitflötum. Verð kr. 147.000,- stgr. Sófasett 3+1+1 alklædd leðri. Verð frá 165.000,- stgr. Hvíidarstólar m/skemli, leður á slitflötum. Verð frá kr. 30.00,- stgr. Visa - Euro raðgreiðslur VALHÚSGÖGN ÁRMÚLA8, SÍMI 812275. PÓSTKRÖFUSÍMI 91-3 09 80 HJÓLAÐU STRAX AFSTAÐ - vönduð reiðhjól af öllum stærðum á frábæru verði. HAGKAUP - allt í einniferö

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.