Morgunblaðið - 21.05.1992, Page 35

Morgunblaðið - 21.05.1992, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1992 35 Það á að vera gaman að fara í búð Nokkur orð um menntunarleysið innan smásöluverslunarimiar eftir Bjarna Finnsson Þegar talað er um góða menntun íslendinga í flestum atvinnugrein- um, muna menn það sjaldnast að í einum atvinnuvega okkar, smásölu- versluninni, hefur oftar en ekki verið látið undir höfuð leggjast að mennta fólk til starfa í greininni, — það er pottur brotinn í menntun verslunarfólks, búðarþjóna, sem ég kýs að kalla svo, — og oft og tíðum kaupmanna sjálfra. Þetta er furðu- legt, og ekki síst þar sem allar okkar viðskiptaþjóðir hafa talið menntun þessarar stéttar bráð- nauðsynlega um langan aldur. Allir hljóta að sjá að það er sérstakt fag að þjóna viðskiptavinum og að vinna að innri verkefnum verslunar- innar. Líklega eru Islendingar sér ekki fyllilega meðvitaðir um menntunar- leysið í smásöluversluninni, þegar þeir fara í búðir og gera innkaup sín. í búðunum fara fram mikil við- skipti, peningar skipta um hendur, um þær fer stærstur partur einka- neyslu fólks. Það er því margs að gæta. Það er rétt hjá Jóhannesi Jónssyni, kaupmanni í Bónusi, í ágætri blaðagrein hans fyrir nokkru, þar sem hann bendir á fjöl- marga kosti þess að mennta starfs- fólk og eigendur verslana. Hagræð- ið er augljóst — fyrir kaupmennina, starfsfólkið — og viðskiptavinina. Veitingaþjónn — búðarþjónn Það er sama hvar borið er niður í samfélaginu í dag, nánast alls staðar er krafist menntunar og er það vissulega vel. Veitingaþjónn þarf t.d. fjögurra ára menntun, — búðarþjónninn þarf enga menntun. Staðgóð menntun tryggir gæði þjónustunnar. Hún gerir starfsfólk að öllu jöfnu mun hæfara til starfa og gerir starfið ánægjulegra en ella. Hæft starsfólk nýtur ennfremur betri Iauna. Vinnuveitandinn nýtur menntunarinnar með skilvirkari og betri vinnubrögðum. Og viðskipta- vinurinn fær betri þjónustu í verslun sem er mönnuð vel skóluðu liði með öll grandvallaratriðin á hreinu. Kaupmannastéttin á Islandi á sér sameiginlegan félagsskap, Kaup- mannasamtök íslands. Samtökin eru rúmlega 40 ára gömul. Saga þeirra speglar í raun þá raunasögu sem verslunarsagan var lengst af. Samtök kaupmanna þurftu áratug- um saman að beijast við vindmyllur í líki opinberra afskipta hverskonar, skömmtun, verðlagsákvæði, verð- bólgu og önnur efnahagsmál. Þessi tími er að baki, og senn heyra verð- lagsákvæði vonandi sögunni til á öllum sviðum. Kaupmannasamtökin geta því tekið til við að sinna öðrum málum, sem ekki síður brenna á stéttinni, — meðal þeirra era hag- ræðingar- og menntunarmál og hin nýja tölvutækni sem haldið hefur innreið sína í verslanirnar. Ekki svo að skilja að menntunar- mál hafi ekki verið rædd í hópi kaupmanna. Alla tíð hefur verið ríkjandi skilningur á mikilvægi góðrar menntunar fyrir búðarþjóna og kaupmenn. Kaupmenn hafa kynnt sér þessi mál erlendis og fengið til liðs við sig hæfustu fyrir- lesara og kennara í þessum efnum. Þó hefur ekki verið gengið nógu langt á þessári braut. Efnt hefur verið til stuttra námskeiða á ýmsum sérsviðum og þar við látið sitja. Þetta nægir engan veginn. Reynsluleysið og ringulreiðin í stétt búðarþjóna og raunar kaupmanna einnig, hefur verið tals- vert umrót um langt árabil. Fólk hefur ekki staðið lengi við í störfum í búðunum, komið reynslulaust og horfið á braut með svolitla þekkingu til annarra starfa. Þó era þar nokkr- ar undantekningar frá reglunni. Til er fólk sem valið hefur sér verslun- arstarfið að ævistarfi og oft og tíð- um helgað sig starfinu og reynt að læra það innan frá ef svo mætti segja, oft með undragóðum árangri. Oft hefur hins vegar mátt líta ný- liða í búðunum komna á búðar- kassa. Fólk með enga undirstöðu aðra en þá að kunna að bjóða við- skiptavininum góðan daginn, er farið að halda utan um innkomu verslunarinnar, oft milljóna veltu. Þetta hefur oft skapað villur og ótrúlegustu ringulreið, enda vanda- málin sem geta komið upp í einni smásöluverslun nánast óteljandi. Verslunargreinarnar í smásölu- verslun eru margar. Á meðan einn kaupmaður býður matvöra, er ann- ar einungis með skófatnað, og sá þriðji með heimilistæki og svo fram- vegis. í þessum verslunum þarf starfsfólk að búa að mismunandi þekkingu á söluvörunni. Oftast nær, ekki þó alltaf, hafa kaupmenn gott vit á því sem þeir eru að selja. Kaupmenn hafa margir reynt að fræða sitt fólk eftir föngum. Þeir eru misgóðir kennarar ens og geng- ur, — og það sem verst er, starfs- fólkið hefur aldrei fengið þá grunn- menntun, sem talin er nauðsynleg í þessari grein meðal annarra þjóða. Kaupmenn tilbúnir til samstarfs Kaupmannasamtökin hafa lengi haft það á stefnuskrá sinni að kom- ið verði á fót staðgóðri kaupmanna- og búðarþjónafræðslu. Nú, þegar rótleysinu virðist að linna í starfs- mannahaldi búðanna, er einmitt lag að raunverulegi'i menntun starfs- fólks smásöluverslana verði ýtt úr vör. Menntamálaráðuneytið og Vinnuveitendasambandið hafa sýnt gott frumkvæði í þessu efni með ráðtefnu sem nýlega var haldin um menntun starfsmanna smásölu- verslunarinnar. Vonandi hefur ísinn verið brotinn. Kaupmannasamtök íslands eru tilbúin til samstarfs og vonandi stéttarfélög verslunarfólks sömuleiðis. Hér er um að ræða stórt og merkilegt framfaramál allra að- ila sem málið varðar. Nú verður að láta til skarar skríða og heíja skipu- lagða menntun þeirra stétta sem skipta svo miklu í öllu daglegu lífi almennings í landinu.. Það er spá mín að þegar fræðslu- starf innan smásöluverslunarinnar Bjarni Finnsson „Nú verður að láta til skarar skríða og hefja skipulagða menntun þeirra stétta sem skipta svo miklu í öllu daglegu lífi almennings í land- inu.“ hefst muni nýir tímar renna upp í verslunum þessa lands. Mun ánægj- ulegri tímar fyrir alla aðila. Það á að vera gaman að koma í smásölu- verslun, og sú ánægja á að vera gagnkvæm hjá þeim sem þjónar og þjónað er. Höfundur er formaður Kaupmannasamtaka íslands. Hveragerði: Staða bæjarsjóðs hefur batnað SAMKVÆMT ársreikningum Hveragerðisbæjar fyrir árið 1992 hefur fjárhagur bæjarsjóðs batnað á síðustu misserum. Vanskil bæjarins voru greidd með skuldbreytingalánum árið 1990 og síðan hefur verið unnið að breytingum á rekstri, sem hafa verið að skila árangri, segir í frétt frá bæjarstjóra. Læknishúsið á Hjaltastað á Héraði. Hjaltastaður - bú- staður Atthagasam- taka Héraðsbúa ÁTTHAGASAMTOK Héraðs- manna voru stofnuð í Reykjavík árið 1972. Að samtökunum stóðu brottfluttir Héraðsmenn úr 10 hreppum á Fljótsdalshéraði. Frá því að Átthagasamtökin voru stofnuð hefur verið haldið uppi með ýmsum hætti lifandi starfi meðal félagsmanna. Stærsta verkefni sem ráðist hefur verið í er að endurreisa íbúðarhús að Hjaltastað á Úthéraði sem félag- ið fékk til umráða 1981. Húsið er fyrrverandi læknisbú- staður, reist árið 1926 og teiknað af Guðjóni Samúelssyni húsameist- ara ríkisins. Félagsmenn hafa lagt ómælda vinnu og fjármuni í endur- bætur á húsinu og umhverfi þess, sem lauk með stórátaki er leitt var rafmagn í húsið á síðastliðnu sumri. Þar með er komið fullkomin aðstaða til dvalar að Hjaltastað, allan ársins hring. Er það stolt samtakanna að hafa endurreist liúsið og forðað því frá eyðileggingu. Dvöl að Hjaltastað býður upp á marga möguleika til styttri ferða um nágrennið. Hægt er að fara dagsferðir.t.d. í Hallormsstaðaskóg, niður á firði, stutt er í alla þjónustu til Egilsstaða og svo mætti Iengi telja. Hjaltastaður er opinn til lengri eða skemmri dvalar og gefur Þór- unn Jónsdóttir á Hjaltastað upplýs- ingar. Formaður Átthagasamtaka Héraðsmanna er Þorvaldur Jónsson frá Torfastöðum í Jökulsárhlíð. (Fréttatilkynning) Fram kemur að Hveragerðisbær hafi átt við umtalsverða fjárhags- örðugleika að stríða. Þegar verst lét námu heildarskuldir bæjarsjóðs rúmlega 240% af heildartekjum. Veltuhlutfall bæjarins hefur verið slæmt eða um 0,75 allt frá árinu 1987. Vanskil bæjarins hafa því verið mikil og upp úr miðju ári 1990 námu vanskil lána og viðskipt- askuldir um 120 milljónum króna á verðlagi þess árs með tilheyrandi fjármagnskostnaði. Veltufjárstaða bæjarins batnaði verulega á árinu 1991 og í árslok var hún komin i 2,04. Vanskil bæjarins voru greidd með skuldbreytingalánum árið 1990 og hefur síðan verið unnið að breytingum á rekstri bæjarins. í árslok 1991 var afkoma bæjarins 35 milljónir króna og nettóskuldir komnar í 35% af heildartekjum. „Hveragerðisbær hefur ekki haft aðstöðu til að leysa fjárhagsvanda sinn með sölu eigna og hefur því þurft að treysta á rekstrarbreyting- ar og skuldbreytingu lána. Bæjaryf- Fimm listamemi sýna hjá Listmunahúsinu LISTMUNAHUSIÐ opnaði á ný sýningarsal í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu 9. maí sl. Húsið opnaði með sýningu listamann- anna Jóns Gunnars heitins Arna- sonar, Brynhildar Þorgeirsdótt- ur og Daníels Þ. Magnússonar. Á sýningunni eru skúlptúrar eftir Jón Gunnar og Brynhildi en Daníel sýnir lágmyndir á veggj- um salarins. Verk Jóns Gunnars era unnin í stál, ál, járn, svamp og fleiru. Þau eru frá árunum 1969-1970 og vora síðast til sýnis í Gallery Fodor í Amsterdam og Galleríi Súm í irvöld vinna að langtímastefnumót- un í rekstri og framkvæmdum en samkvæmt henni er ætlunin að miða framkvæmdir við fjánnögnun úr eigin sjóðum fremur en lánsfjár- mögnun. Þótt fjárhagur Hveragerð- isbæjar sé nú í góðu meðallagi þarf að lækka greiðslubyrði lána enn frekar, svo að unnt sé að fram- kvæma fyrir eigið fé. Því er stefnt að enn frekari hagræðingu í rekstri en jafnramt stiglækkandi álagningu opinberra gjalda. Að öðra óbreyttu er ætlað að framkvæmdafé bæjar- sjóðs nemi ekki lægri upphæð en 240 milljónum til aldamóta. Óska- listinn er hins vegar að minnsta kosti þrefaldur og því er mikilvægt að sníða sér stakk eftir vexti.“ Reykjavík. Verk Brynhildar eru frá þessu ári og eru unnin úr steinsteypu, marin text og gleri. Daníel sýnir lágmyndir sem unn- ar eru úr kartoni, við, eldhúsfíla- beini, línólíum og fleira. 1 öðrum sal Listmunahússins eru til sýnis keramikvasar eftir Kol- brúnu Björgólfsdóttur og brons- styttur eftir Gerði Helgadóttur og Magnús Kjartansson. Listmunahúsið er opið þriðjudaga til föstudaga frá kl. 12-18 og um helgar frá kl. 14-18. Húsið er lok- að á mánudögum. I kvöld kl. 20.30 er almenn sam- koma i Þríbúðum, Hverfisgötu 42. Mikill söngur og vitnisburðir. Orð hefur séra Hjalti Guð- mundsson. Kaffi að lokinni samkomu. Allir velkomnir. Samhjálp. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Bænavika Bænastund í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Hjálpræðis- herinn Kirkjustræfi 2 kvöld fimmtudag kl. 20.30: Kvöldvaka í umsjá starfsfólksins á Bjargi. Happdrætti ogveitingar. Allir hjartanlega velkomnir. Ath. gengiö inn frá Suðurgötu/ Túngötu. >ingar Orð lífsins, Grensásvegi8 Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. FERÐAFÉLAG _ ÍSLANDS MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533 Verið velkomin á nýju skrifstofuna, Mörkinni 6. Opið alla virka daga frá kl. 09-17 Helgarferðir 22.-24. maí. 1. Eyjafjallajökull - Seljavalla- laug. Gist í Þórsmörkinni. Geng- ið yfir jökulinn á laugardeginum. 2. Þórsmörk - Langidalur. Góð gisting í Skagfjörðsskála. Nú hefjast Þórsmerkurferðirnar af fullum krafti. Munið sumardvöl í Þórsmörk. Miðvikudagsferðir hefjast um miðjan júní. Upphafsgöngur raðgöngunnar verða endurteknar laugardag- inn 23. maí kl. 10.30. Esja - Kerhólakambur og strand- ganga. Nánar auglýst síðar. Upplýs. og farmiðar á skrifst. Mörkinni 6, ný númer: Sími 682533, fax 682535.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.