Morgunblaðið - 21.05.1992, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 21.05.1992, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1992 Minning: Kristínn Ólason Fæddur 28. janúar 1910 Dáinn 14. maí 1992 Alltaf var ég sannfærður um að hann tengdapabbi yrði a.m.k. ní- ræður og trúlega nokkrum árum betur. Svo fór þó ekki, því hann lést í Landspítalanum aðfaranótt 14. maí, eftir stutta legu. Kristinn Ólason eða Kiddi Óla, eins og hann var jafnan kallaður, fæddist í Reykjavík 28. janúar 1910. Foreldrar hans voru Sigríður Vilhjálmsdóttir og Óli Ásmundsson Hall, múrarameistari. Sjötugur að aldri átti hann báða foreldra á lífi, en þau dóu á tíræðisaldri í byrjun áratugarins. Hann ólst upp hjá móður sinni og stjúpa, Guðmundi Guðmunds- syni, sem hann taldi öðrum mönn- um fremri að manngæsku og kær- leika. Hann átti átta yngri hálf- systkini, sem öll eru á lífi. Þau eru Hulda Guðmundsdóttir, Jón Guð- mundsson, Ragna Guðmundsdóttir, Kristjana Vilhelmína Guðmunds- dóttir, Guðmundur R. Guðmunds- son, Ásmundur Ólason, Hörður Óla- son og Kristján Ólason. Hann sagði oft þá sögu og hafði gaman af, að eitt sinn er hann kom í stutta heimsókn til Mínu systur sinnar á Eyrarbakka, fór honum að lengja biðin eftir kaffinu. Að því kom að hann gat ekki orða bundist lengur og spurði hvemig það væri, hvort hún ætlaði ekki að fara að koma með kaffið. Mína svaraði þá að bragði að það ætlaði hún að draga í lengstu lög, því af fyrri reynslu vissi hún að um leið og hann hefði lokið kaffinu væri hann rokinn. Þetta þótti honum bráð- snjallt og hló mikið að. Kiddi var þrígiftur. Fyrsta eigin- kona hans var Sveinbjörg Helga- dóttir og er dóttir þeirra Hrafnhild- ur Kristinsdóttir, gift Hjörvari Sæ- valdssyni. Önnur eiginkona hans var Anna Einarsdóttir og eru synir þeirra Kristinn Óli Kristinsson, en sambýliskona hans er Hrafnhildur Þórarinsdóttir, og Einar Ágúst Kristinsson, giftur Rebekku Ing- varsdóttur. Stígid gæfuríkt spor tíl fulls, í bruðarskóm frá okkur! 5% STAÐGREIÐSLU AFSLÁTTUR. SAMDÆGURS f PÓSTKRÖFU! 1 SKÆÐI KRINGLUNNI8-12 S. 689345 LAUGAVEGI 61-63 S. 10655 Árið 1962 kvæntist hann Svövu Ingvarsdóttur, fyrrum kaupkonu og eiganda verslunarinnar Gimli, en hún lést árið 1988. Saman áttu þau góða daga. Þau bjuggu lengst af í Bólstaðarhlíð 11 og áttu þar glæsi- legt heimili. Þangað var ævinlega gott að koma og móttökur höfðing- legar. Síðustu árin bjó hann á Dal- braut 20. Ungur að árum hóf hann störf við akstur leigubifreiða, fyrst hjá Magnúsi Skaftfjeld á Bæjarbílstöð- inni og síðar hjá Steindóri, þar sem hann var einnig við rútuakstur. Fyrsta bílinn sinh, R-941, eignaðist hann um 1935 og í stríðsbyijun átti hann De Soto-bifreið, sem þá var einn fallegasti bíllinn í Reykja- vík. Þegar hann seldi þann bíl dugði andvirði hans fyrir tveggja her- bergja íbúð. Margar bifreiðar átti hann eftir þetta og var alltaf til þess tekið hversu vel hann hugsaði um þær og hélt þeim glansandi og fínum, enda snyrtimennska honum í blóð borin. Kiddi Óla hóf störf hjá Slökkvilið- inu í Reykjavík árið 1943. Þegar hann lét af störfum sökum aldurs átti hann að baki áratuga farsælt starf. Hann hélt ávallt mikilli tryggð við sinn gamla vinnustað og sína gömlu félaga á stöðinni. Starfið var aldrei fjarri huga hans. Mér er minnisstætt þegar hann heimsótti okkur Einar stuttu eftir að við gift- um okkur og byijaði orðalaust að tína allar kristalsgjafirnar úr stofu- glugganum. Mér leist ekki á blikuna fyrr en hann gaf þá skýringu að sólargeislar gætu framkallað ljós- brot í kristal og þannig skapað eld- hættu. Kiddi var gleðimaður, sem kunni að meta lífsins gæði. Hann var húmoristi hinn mesti og sagði ákaf- lega skemmtilega frá. Hann hafði skömm og gaman af stríðni, og oft brá fyrir glettni í bláu augunum hans, þegar slíkt bar á góma. Hest- amennska átti hug hans allan og ekki leið dagur án þess að hann heimsótti hann Skírni sinn. Hann þurfti ekki annað en kalla, þá kom hesturinn stormandi og fékk rúg- brauðið sitt. Hann ferðaðist mikið um ævina. Þau Svava fóru margar eftirminni- legar ferðir, bæði innanlands og erlendis. Eftir að hún dó fór hann tvisvar í rútuferðir um Evrópu með öldruðum og ferðaðist til Spánar að vetrarlagi. Þegar hann dó kom í ljós að hann hafði ætlað í ferðalag síðar í þessum mánuði. Langri og viðburðaríkri ævi er lokið. Tengdaföður mínum þakka ég samverustundirnar í gegnum tíð- ina. Með söknuði kveðjum við hann í hinsta sinn, en minningin um góð- an mann lifir áfram í hugum okk- ar, sem vorum svo lánsöm að kynn- ast honum. Blessuð sé minning hans. Rebekka. Guðmundur Jóns- son - Minning Fæddur 12. október 1941 Dáinn 13. maí 1992 Okkur langar að minnast örfáum orðum elsku bróður míns, Guð- mundar. Okkur setti hljóð þegar mágkona mín hringdi í mig 13. maí sl. og sagði mér að Gummi bróðir minn, eins og hann var alltaf kallað- ur af vinum og vandamönnum, væri dáinn. Hann var lengi búinn að stríða við mikil veikindi, svo það mátti alltaf búast við þessari sorg- arfrétt. Þó verður andlátsfrétt náins ættingja alltaf erfið. Það var alltaf gaman að fá Gumma og Bimu í heimsókn. Gummi gat sagt manni svo margt, þvi hann var svo víðles- inn og skemmtilegur. Það var alltaf gaman að heimsækja Birnu og Gumma á þeirra fallega og hlýja heimili. Þau voru búin að koma sér upp fallegu einbýlishúsi. Gummi hafði svo gaman af að vinna við garðinn þeirra og gróðursetja alls konar plöntur. Þau ætluðu að gera garðinn sinn fallegan í sumar. Elsku Birna mín! Við sendum þér okkar dýpstu samúð í þinni miklu sorg, og bestu þakkir hvað þú stóðst vel með manninum þínum í hans veikindum, þú varst vakandi yfir heilsu hans bæði nótt sem dag, þú fórst alltaf með honum þegar hann þurfti utan til lækninga til að vera honum stoð og styrkur. Nú er Gummi okkar laus við verkina. Ég trúi því að guð hafi tekið á móti honum og hann hafi fengið að hitta foreldra sína sem voru farnir á undan. Blessuð sé minning Gumma. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum, þér síðar fylgja í friðárskaut. (V. Briem.) Olla systir, Guðjón; Sigga, Guðjón Bjarni og Iris. Mig langar að minnast í nokkrum orðum kærs frænda míns og vinar, Guðmundar Jónssonar, sem jarð- settur var í gær, 21. maí. Hann háði langa baráttu við veik- indi sín en við dyggan stuðning elskulegrar og eftirlifandi eigin- konu sinnar, Birnu Ágústsdóttur, sem var honum allt. Gummi fæddist á Neskaupstað en flutti ungur til Reykjavíkur með Ný símaimmer hjá Glitni hf. Aðalnúmer Glitnis hf. 60 88 00 Beinar línur: Innheimta 60 88 30 Markaðsdeild, ráðgjafar 60 88 20 Yeltufj ármögnun 60 88 50 Myndsendir 60 88 10 Glitnirhf DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.