Morgunblaðið - 21.05.1992, Síða 54
■sr
KORFUKNATTLEIKUR
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1992
Michael Jordan var um helgina kjörinn besti leikmaður NBA-deildarinnar
í þriðja sinn á ferlinum.
Eyjólfur
Eyjólfur
varla með
landsliðinu
Verðurásjúkrahúsi
fram yfir helgi
Eyjólfur Sverrisson knattspyrnu-
maður hjá Stuttgart verður
líklega ekki með íslenska landslið-
inu sem mætir Ungveijum 3. júní.
Eins og skýrt var frá í Morgunblað-
inu í gær kjálkabrotnaði Eyjólfur
um síðustu helgi og fór á sjúkra-
hús. Á þriðjudaginn var hann skor-
inn upp og þess freistað að laga
brotið og var honum tjáð að hann
yrði áð vera á sjúkrahúsi fram yfir
næstu helgi. Því er mjög ólíklegt
að hann geti verið með í landsleikn-
um gegn Ungveijum.
Maxfli.
OPNA DUNLOP
IHÓTID í GOLFI
fer fram á Hólmsvelli í Leiru
23. og 24. maí.
Leiknar verða 36 holur meö og
án forgjafar.
Mótió gefur stig til landsliðs.
Ræst út frá kl. 08.00.
Skráning í síma 92-14100
til kl. 20.00 föstudag.
GLÆSILEG VERDLAUN
ŒEŒDILIF
Portland og
Chicago í úrslit?
MIKLAR líkur eru á að það
verði tvö bestu lið NBA-deild-
arinnar, Chicago og Portland,
sem leika tii úrslita að þessu
sinni. Portland er 2:0 yfir gegn
Utah og Chicago 1:0 yfir gegn
Cleveland.
Miicago
‘ 103:89
úrslitum
Gunnar
Valgeirsson
skrifarfrá
Bandaríkjunum
Chicago sigraði Cleveland
103:89 í fyrsta leik liðanna í
austurdeildarinnar.
Heimamenn náðu
fljótlega «tíu stiga
forskoti og héldu
því. „Við lærðum af
mistökunum gegn
New York Knicks. Við vanmátum
þá og töpuðum fyrsta leiknum en
nú vorum við ákveðnir í að sigra í
fyrsta leik,“ sagði Michael Jordan
hjá Chicago eftir sigurinn.
Jordan lék vel og gerði 33 stig
en enginn lék þó betur en Scottie
Pippen sem gerði 29 stig, tók 12
fráköst og átti 9 stoðsendingar.
Sigur Chicago var öruggur og í
raun mun auðveldari leikur fyrir
liðið en leikirnir gegn New York á
dögunum.
í vesturdeildinni komust Portland
2:0 yfir í baráttunni við Utah. Þeir
sigruðu 119:102 í öðrum heimaleik
sínum. Eins og í Chicago náðu leik-
menn Portland snemma forustu
sem þeir létu ekki af hendi. Engu
að síður léku leikmenn Utah mjög
vel, en Portland lék hreint frábær-
lega og sigurinn var sanngjarn.
Bakverðirnir Terry Porter og
Clyde Drexler fóru á kostum í leikn-
um, gerðu 77 stig fyrir Portland.
Porter gerði 41 og Drexler 36.
Michael Jordan var um helgina
kjörinn besti leikmaður NBA-deild-
arinnar í þriðja sinn á ferlinum.
Hann jafnaði þar með við Larry
Bird en Kareem Abdul-Jabbar á
metið, hann var sex sinnum kjörinn
besti leikmaður deildarinnar. Jord-
an fékk 80 atkvæði af 92 í fyrsta
sætið en í öðru sæti var Clyde
Drexler hjá Portland.
Randy Pfund hefur verið ráðinn
þjálfari LA Lakers fyrir næsta
keppnistímabil. Hann er fertugur
og hefur undanfarin sex ár verið
hjá Lakers og þar af þijú ár sem
aðstoðarþjálfari liðsins.
Suðumesjaliðin
samaníríðli
Suðurnesjaliðin þijú verða saman í riðli í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik næsta vetur, en skipað var í riðla á ársþingi KKÍ fyrir
skömmu. í öðrum riðlinum eru Keflavík, Njarðvík, Grindavík, Haukar
og Breiðablik. í hinum riðlinum eru Valur, KR, Tindastóll, Skallagrím-
ur og Snæfell.
Valið fyrir EM í Svíþjóð
Landsliðsþjálfararnir átta sem
verða í úrslitakeppni Evrópumóts-
ins í Svíþjóð í næsta mánuði eru í
þann mund að tilkynna 20 manna
hópana sem mæta til leiks. Fjórir
hafa verið tilkynntir í vikunni og
eru eftirfarandi:
Þýskaland
Markverðir - Bodo Illgner (Köln),
Andreas Köpke (Numberg, sem leikur með
Stuttgart næsta vetur).
Vamarmenn - Stefan Reuter (Juvent-
us), Andreas Brehme (Inter Milan), Jurgen
Kohler (Juventus), Manfred Binz (Frank-
furt), Guido Buchwald (Stuttgart), Thomas
Helmer (Dortmund), Michael Frontzeck
(Stuttgart), Michael Schiilz (Dusseldorf),
Christian Wöms (Leverkusen).
Miðjumenn - Andreas Möller (Frankfurt),
Thomas Hassler (AS Roma), Thomas Doll
(Lazio), Matthias Sammer (Stuttgart), Stef-
an Effenberg (Bayem Míinchen).
Frarnherjar - Rudi Völler (AS Roma,
Karlheinz Riedle (Lazio), Andreas Thom
(Leverkusen), Jurgen Kiinsmann (Inter
Milan).
Svíþjóð
Markverðir - Thomas Ravelli (IFK
KORFUBOLTI
Bolvík-
ingarí
l.deild
Bolvíkingar munu leika í 1. deild-
inni í körfuknattleik á næsta
keppnistímabili. Ungmennafélag
Bolungarvíkur sigraði Ungmenna-
félag Gnúpverja í aukaleik um sæt-
ið með 68 stigum gegn 54.
Gautaborg), Lars Eriksson (IFK Norrköp-
ing).
Varnarmenn - Joachim Björklund (SK
Brann), Jan Eriksson (IFK Norrköping),
Mikael Nilsson (IFK Gautaborg), Roland
Nilsson (Sheffield Wednesday), Stefan
Schwarz (Benfica), Patrik Andersson
(Malmö FF), Magnus Erlingmark (Örebro
SK)
Miðjumenn - Klas Ingesson (Mechelen),
Anders Limpar (Arsenal), Jonas Thern
(Benfica), Roger Ljung (Admira Wacker),
Stefan Rehn (IFK Gautaborg), Joakim Nils-
son (Sporting Gijon), Jan Jansson (Öster)
Framherjar - Tomas Brolin (Parma),
Kennet Andersson (Mechelen), Martin Da-
hlin (Bomssia Mönchengladbach), Johnny
Ekström (IFK Gautaborg)
England
Markverðir - Chris Woods (Sheff.
Wedn.), Nigel Martyn (Crystal Palace).
Varnarmenn - Lee Dixon (Arsenal), Stu-
art Pearce (Nott. Forest), Martin Keown
(Evertpn), Des Walker (Nott. Forest), Mark
Wright (Liverpool), Trevor Steven (Mar-
seille), Carlton Palmer (Sheff. Wed.) og
Tony Dorigo (Leeds).
Miðvallarleikmenn - David Platt (Bari),
Nigel Clough (Nott. Forest), Neil Webb
(Man. Utd.) og David Batty (Leeds).
VormótÍR
íkvöld
Vormót ÍR verður haldið í fímmtug-
asta skipti í kvöld, að þessu sinni á
Varmárvelli I Mosfellsbæ.
Mótssetning verður kl. 18., fyrstu
keppnisgreinar heflast tfu mín. síðar
og hin síðasta kl. 20.20. Kaldalshlaup-
ið,. 3.000 m minningarhlaup um Jón
J. Kaldal, hefst kl. 19.30.
Mótið er eitt þriggja móta hér
heima sem Óiympíunefnd fslands hef-
ur samþykkt að hægt sé að reyna við
lágmörk til þátttöku í Barcelona-leik-
unum á. Af þeim sökum verða flestir
bestu fijálsíþróttamenn landsins á
meðal keppenda, nema Sigurður Ein-
arsson; spjótkastari, sem ekki er á
landinu.
Framlieijar - Gary Lineker (Tottenham),
John Bames (Liverpool) eða Andy Sinton
(QPR), Paul Merson (Arsenal) Alan Smith
(Arsenal), Tony Daley (Aston Villa) og Alan
Shearer (Southampton).
BMarkvörður til vara: David Seaman
(Arsenal).
Holland
Markverðir - Hans van Breukelen (Eind-
hoven), Stanley Menzo (Ajax).
Vamarmenn - Danny Biind (Ajax), Frank
de Boer (Ajax), Berry van Aerle (Eindho-
ven), Adri van Tiggelen (Anderlecht), Frank
Rijkaard (AC Milan), Ronald Koeman
(Barcelona).
Miðvallarleikmenn - Ruud Gullit (AC
Milan), Wim Jonk (Ajax), Aron Winter
(Ajax), Peter Bosz (Feyenoord), Jan Wout-
ers (Bayem Munchén).
Framheijar - Dennis Bergkamp (Ajax),
Bryan Roy (Ajax), John van’t Schip (Ajax),
Wim Kieft (Eindhoven), Marco van Basten,
(AC Milan), Richard Witschge (Feyenoord),
Peter van Vossen (Beveren).
Samveldln
Landslið Samveldanna verður ekki endan-
lega valið fyrr en 31. maí, en í gær voru
nofn 25 leikmanna tilkynnt - þar af eru
fimmtán leikmenn sem leika með liðum
utan Samveldanna.
TENNIS
Fyrsta opna
stórmótársins
Fyrsta stórmót ársins I tennis, opna stór-
mót Þróttar, fer fram á tennisvöllum félags-
ins 3.-7. júní. Keppt er í öllum aldursflokk-
um, í einliða- og tvíliðaleik f flokkum barna
og unglinga og tvenndarleik að auki í full-
orðins- og öðlingaflokki. Hver keppandi
getur skráð sig í þijár keppnisgreinar hið
mesta, og er þátttökugjald 100 kr. fyrir
hveija í barna- og unglingaflokkum. f öðr-
um flokkum greiðir hver keppandi 1.000
kr. fyrir einliðaleik og 600 kr. fyrir tvíliða-
og tvenndarleik. Skráning fer fram í Þrótt-
heimum og lýkur á sunnudaginn, 24. maí,
kl. 18.
Fjögur svokölluð stórmót verða haldin í
sumar og gefa þau, ásamt fslandsmóti, stig
í stigakeppni Tennissambandsins.
KNATTSPYRNA