Morgunblaðið - 21.05.1992, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ BÞROTTIR FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1992
55
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI MEISTARALIÐA
Mikilvægasta mark mitt
- sagði Ronald Koeman sem tryggði
Barcelona Evrópubikarinn ífyrsta sinn
hÞETTA er mikilvægasta mark
sem ég hef gert á ævinni. Að
taka aukaspyrnur af þessum
slóðum er eitt af því besta sem
ég geri, ég æfi þær daglega
með markverðinum okkar og
það var stórkostlegt að skotið
fór rétta leið að þessu sinni.
Það var auðvitað tilgangurinn,"
sagði hollenski varnarmaður-
inn snjalli Ronald Koeman, eft-
ir að hann tryggði spænska
stórveldinu Barcelona sigur í
Evrópukeppni meistaraliða á
Wembley-ieikvanginum íLund-
únum ígærkvöldi.
Ekkert var skorað í venjulegum
leiktíma viðureignar Barcel-
ona og ítölsku meistaranna Samp-
doria þrátt fyrir
Steinþór prýðileg færi á báða
Guöbjartsson bóga, en stórglæsi-
skrifarfrá legt mark Koemans
W/embley eftir aukaspyrnu um
miðbik síðari hálfleiks framlenging-
ar réði úrslitum.
Johan Cruyff, þjálfari Barcelona
var að vonum ánægður með sigur-
inn á blaðamannafundi eftir leikinn.
„Þetta hefur verið stórkostlegt
kvöld og stórkostlegur leikur. Þetta
er hápunkturinn hjá mér sem þjálf-
ara, ég hef oft lifað skemmtilegar
stundir sem leikmaður, en þetta er
sú stærsta sem þjálfari. Það er
mjög erfitt að útskýra í smáatriðum
hvemig leikurinn gekk fyrir sig og
hvers vegna, en ég var alltaf sann-
| Fyrsta
. stkj
Islands
Islenska kvennalandsliði í knatt-
" spyrnu gerði markalaust jafn-
tefli við Skotland í undankeppni
Evrópumótsins í Perth í Skotlandi
í gærkvöldi.
Ekki náðist í forsvarsmenn ís-
lenska liðsins í gærkvöldi.
ÚRSLIT
Knattspyrna
Evrópukeppni meistaraliða, úrslit:
| Wembley, Enghndi:
Barcelona - Sampdoria..........1:0
Ronald Koeman (112.).
j Ahorfendur: 80.000.
I Heimsmistarakeppnin - 4. riðill
Búkarest, Rúmeníu:
Rúmenía - Wales................5:1
Gheorghe Hagi (5. og 35.), Ionut Lupescu
(7. og 24.), Gavrila Balint (31.) - Ian Rush
(50.)
Áhorfendur: 23.000.
Staðan:
Rúmenía............2 2 0 0 12:1 4
Belgía.............1 10 0 1:0 2
Kýpur...............1 0 0 1 0:1 0
Wales...............1 0 0 1 1:5 0
Fœrejgar............1 0 0 1 0:7 0
Tékkóslóvakía.......0 0 0 0 0:0 0
Næsti leikur: Færeyjar - Belgía 3. júní.
Heilbronn - Stuttgart..........3:5
BFritz Walter skoraði þrjú mörk fyrir
Stuttgart á mánudaginn ( ágóðaleik fyrir
Eberhard Trautner, varamarkvörð Stuttg-
art, sem hefur verið meiddur.
| Opin golfmót
■Duniop-mótið verður haldið hjá Golf-
klúbbi Suðurnesja á laugardag og sunnu-
( dag. Ræst verður út frá kl. 8 báða dagana.
« Leiknar verða 36 holur með og án forgjafar
og er þetta annað stigamótið i sumar.
j Skráning hefst i golfskála GS í dag.
I ■Opna Endurvinnslumótið verður á
Strandarvelli við Hellu laugardaginn 23.
maí. Leiknar verða 18 holur með og án
forgjafar og ræst verður ut frá kl. 8 ardeg-
's. Skráning í goifskálanum milli kl. 13.15
og 19 á föstudag.
færður um að við myndum sigra.
Leikurinn þróaðist eins og ég átti
von á,“ sagði Cruyff.
Aðspurður um frammistöðu
Khristo Stoichkov, sem fékk nokkur
marktækifæri en tókst ekki að
skora sagði Cruyff: „Hann gerði
allt sem ætlast var til af honum og
lék mjög vel. Hann hafði mikilvægt
hlutverk og skilaði því vel.“
Leikurinn var skemmtilegur,
ólíkt því sem oft vill verða í úrslita-
leikjum sem þessum, þar sem lið
þora ekki að taka mikla áhættu.
Nú var áhersla lögð á sóknarleik,
enda fengu bæði lið prýðileg færi
til að skora. Barcelona var meira
með boltann en ítalirnir fengu öllu
hættulegri færi og komst stjarna
Sampdoria, Gianluca Vialli, t.d. þrí-
vegis í mjög gott færi — og er það
hreint ótrúlegt að honum skuli ekki
hafa tekist að nýta a.m.k. eitt
þeirra. Hann fór siðan af velli, og
sat sorgmæddur á varamanna-
bekknum þegar Koeman gerði eina
markið. Þess má geta að þetta var
fyrsta mark Koemans í keppninni
í vetur, og er óhætt að segja að
hann hafi valið ákjósanlega stund
til að brjóta ísinn.
Mm
FOLK
Steinþór
Guöbjartsson
skrifarfrá
Wembley
BARCELONA hefur verið
mjög sigursælt í gegnum tíðina, en
þetta var þó í fyrsta sinn sem liðið
sigrar í Evrópukeppni meistaraliða.
■ ÞETTA var í
fimmta sinn sem
úrslitaleikur keppn-
innar fer fram á
Wembley. Síðast
vann Liverpool lið FC Brugge 1:0
1978 og það var Kenny Dalglish
sem gerði markið að viðstöddum
92.000 áhorfendum.
■ LEIKURINN í gær var 37.
úrslitaleikurinn í keppni meistara-
liða. í leikjunum hafa verið gerð
102 mörk, þar af 71 mark í fyrstu
18 leikjunum.
■ ÞETTA var í fyrsta sinn sem
úrslit ráðast í framlengingu í Evr-
ópukeppni meistaraliða. Árin 1984,
1986, 1988 og 1991 þurfti að vísu
að framlengja en þá þurfti einnig
að grípa til vítaspyrnukeppni til að
knýja fram úrslit.
■ RONALD KOEMAN lék með
PSV árið 1988 og skoraði þá úr
einni af vítaspyrnum liðsins þegar
það varð meistari.
■ MARK Koeinans var útnefnt
eftirminnilegasta atvik leiksins í
gær og fékk hann um 150.000 ÍSK
fyrir vikið frá Eurocard. Koeman
ákvað þegar honum var afhent ávís-
unin á blaðamannafundi eftir leik-
inn að gefa peningana til barnaspít-
ala í Barcelona.
■ HANN fékk hins vegar skjöld
til minningar um markið, og það
var Bobby Moore, fyrrum landsl-
iðsfyririrliði Englands, sem afhenti
skjöldinn.
D BARCELONA státar af flest-
um stuðningsmönnum sem hafa
ársmiða á leiki félagsins. í stuðn-
ingsmannaklúbbi þess eru um
110.000 manns.
D STUÐNINGSMENN liðsins
hafa víða vakið athygli fyrir prúð-
mannlega framkomu og háttvísi. í
gær bættu þeir enn einni rósinni í
hnappagatið.
D VUJADIN Boskov, hinn serb-
neski þjálfari Sampdoria var
óhress með tapið og mætti ekki á
blaðamannafundinn eftir leikinn.
Reuter
Ronald Koeman grípur fyrir andlitið eftir að hann skoraði markið sem reyndist sigunnark leiksins. Daninn Michael
Laudrup reýnir að ná til hans og fagna þessu glæsilega marki.
ÚRSLIT
Undrandi á þessum dómi
- sagði Guðmundur Haraldsson
Guðmundur Haraldsson, for-
maður dómaranefndar KSÍ,
sagði um aukaspyrnuna sem
dæmd var á Sampdoria og Ronald
Koemann skoraði úr og tryggði
Barcelona Evrópumeistaratitilinn,
hafi verið undarlegur dómur.
„Eins og ég sá þetta í sjónvarpinu
var þetta ekki óbein aukaspyrna.
Ef hann hefði klemmt boltann á
milli fóta sér eða laggt fæturnar
yfir boltann liggjandi og hindrað
andstæðinginn að hann næði til
boltans hefði átt að dæma óbeina
aukaspyrnu. En ég gat ekki séð
að hann gerði það. Ég var því
mjög undrandi er hann dæmdi
óbeina aukaspyrnu.
Að fenginni reynslu er ekki eins
að sjá þetta í sjónvarpinu heima
i stofu og vera á vellinum. Það
hefði þurft að sýna þetta frá fleiri
sjónarhomum til að sjá þetta bet-
ur. Þetta er voðalegt því dómarinn
var búinn að dæma mjög vel og
leiðinlegt að þetta atvik hefði
þurft að ráða úrslitum," sagði
Guðmundur.
Rúmenar í miklu
studi gegn Wales
GHEORGHE Hagi, leikmaður
Real Madrid, gerði tvö mörk
og lagði upp eitt er Rúmenía
burstaði Wales 5:1 í 4. riðli
undankeppni HM í Búdapest í
gærkvöldi. Heimamenn gerðu
öll mörkin á fyrstu 35 mínútun-
um.
Hagi gerði fyrsta mark Rúmena
eftir aðeins fimm mínútur
eftir laglega sókn. Tveimur mín.
síðar tók Hagi aukaspyrnu og vipp-
aði boltanum yfir varnarvegginn og
þar var Ion Lupescu og sendi knött-
inn í netið. Lupescu gerði einnig
þriðja markið með skoti af 25 metra
færi. Sjö mínútum síðari fékk Bal-
int stungusendingu frá Popescu og
skoraði framhjá Southall í makinu.
Hagi gerði fimmta markið á 35.
mínútu og var það ekki af verri
endanum - þrumuskot af 35 metra
færi.
Yfirburðir heimamanna voru al-
gjörir í fyrri hálfleik og þá stóð
ekki steinn yfir steini hjá Wales,
sem varð að sætta sig við stærsta
ósigur sinn í 13 ár. Ian Rush gerði
eina mark Wales í síðari hálfleik -
20. landsliðsmark hans.
Rúmenía, sem vann Færeyjar 7:0
í fyrsta leik sínum, hefur því 4 stig
og samanlagða markatölu, 12:1.
Bikarkeppni KSÍ, Mjólkurbikar-
keppnin, 1. umferð:
Armann - Árvakur.....................2:0
Óli Már Ólafsson og Magnús Jónsson.
Fjölnir - Fylkir...................0:6
- Þórhallur Dan 3, Indriði Einarsson 1, Finn-
ur Kolbeinsson 1, Kristinn Tómasson 1.
Víkingur Ól. - BÍ..................0:8
Ámundi Sigmundsson 2, Jóhann Ævarsson
1, Svavar Ævarsson 1, Sigurður Sighvats-
son 1, Stefán Tryggvason 1, Guðmundur
Gíslason 1, Gunnar Björgvinsson 1.
I'róttur R. - Snæfell..............3:0
Þórður Jónsson 2, Steinar Helgason 1.
Afturelding - Njarðvík.............1:6
Benedikt Sverrisson 1 - Ivar Guðmundsson
4, Hallgrímur Sigurðsson 1, Siguijón
Sveinsson 1.
HK - Skallagrímur..................3:2
Jón B. Gunnarsson 1, Einar Tómasson 1,
Skúli Þórisson 1 - Finnur Thorlasíus 1,
Valdimar K. Sigurðsson 1.
■Skúli tryggði sigur i framlengingu. "
Tindastólí - Hvöt..................5:0
Sverrir Sverrisson 2, Guðbrandur Guð-
brandsson 1, Bjarki Pétursson 1, Þórður
Gíslason.
Haukar - ÍBK.......................0:5
- Óli Þór Magnússon 3, Kjartan Einarsson
og Gunnar Már Jónsson.
Grindavík - Ægir...................7:1
Þórður B. Bogason 3, Þórarinn Ólafsson
2, Gestur Gylfason og Ólafur Ingólfsson -
Guðmundur Gunnarsson
Víkverji - Selfoss.................2:3
Siguijón Bjarnason og Svavar Hilmarsson
- Bjöm Axelsson, Páll Guðmundsson og
Guðjón Þorvarðarson
ÍR-Vfðir...........................1:1
Guðjón Jóhannesson - Björn Vilhelmsson .
■Staðan var jöfn 1:1 eftir venjulegan leik-
tíma og framtengingu. Viðir vann síðan
eftir vftaspymukeppni 2:4.
Grótta - Leiknir R..................A:0
Erling Aðalsteinsson
Dalvík - Magni......................1:2
Jónas Baldursson - Hreinn Hringsson og
Ólafur Þorbergsson
Stjarnan - Hvatberar...............11:0
Kristinn Lárusson 3, Guðni Grétarsson 3,
Loftur Steinar Loftsson 2 og Haukur
Pálmason, Sigurður Már Harðarson og
Rúnar Páll Sigmundsson eitt mark hver.