Morgunblaðið - 23.05.1992, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAl 1992
Þörungavinnslan:
Tap í fyrra 16,7 milljónir
Miðhúsum.
AÐALFUNDUR Þörungaverk-
smiðjunnar var haldinn fímmtu-
daginn 21. maí á Reykhólum.
Rekstur Þörungaverksmiðjunn-
ar var nokkuð þungur á síðasta
ári og var tap á síðasta ári
16.767.949 krónur eða 22% af
rekstri. Afskriftir voru 9 milljónir
svo að tap er því um 8 milljónir.
Seldar afurðir voru á árinu 1991
nærri 76 milljónir að verðmæti.
Aðaleigendur verksmiðjunnar
eu Byggðastofnun með um 40%,
Pronova 40% en Norsk Hydro á
tæp 80% í því fyrirtæki. Heima-
menn eiga um 20% í Þörungaverk-
smiðjunni.
Búið er að selja 2.200 til 2.500
tonn af ársframleiðslu þangmjöls,
en flutningskostnaður er mikill og
lætur nærri að 25% af heildarvöru-
verði fari í flutningskostnað til
erlendra móttökuhafna.
Finnar eru orðnir einna stærstu
kaupendumir og kaupa þeir um
600 til 1.000 tonn í ár. Finnar
nota þangmjölið í fóðurblöndur.
Nú er ætlunin að auka við hluta-
fé og hafa Norðmenn boðist til að
leggja fram 4,5 milljónir gegn því
að Islendingar leggi sinn hlut á
móti. Verð á þangmjöli er ekki
nógu hátt en það er 26 þúsund
krónur tonnið. Þetta mjöl hefur
sérstöðu á markaðnum vegna þess
hve gott það er í fóðurblöndur og
sem áburður.
Stjórnin var öll endurkjörin en
hana skipa: Frá Byggðastofnun:
Jón Birgir Jónsson verkfræðingur,
formaður, og Einar B. Ingvarsson
fyixverandi bankastjóri. Frá Norð-
mönnum: ívar Thon Lossius og
Bjami Axelsson, Reykjavík, og frá
heimamönnum er Bergsveinn
Reynisson, bóndi Gróustöðum í
Geiradal. Fundarstjóri var Stefán
Skarphéðinsson, sýslumaður.
Framkvæmdastjóri er Páll Ágúst
Ásgeirsson, Reykhólum.
I Þörungaverksmiðjunni eru
bundnir miklir fjármunir og er allt
gert til þess að rekstur hennar
haldi áfram, en við hana eru bund-
in 15 til 20 ársstörf. Ýmislegt
hefur verið gert til þess að ná nið-
ur reksturskostnaði. Nú em ekki
nema þrír sláttuprammar við slátt
í stað 6 eða 7 áður og afla þessir
þrír nóg af þangi fyrir verksmiðj-
una. Einn prammi er hafður tilbú-
inn til vara.
Menn hér óttast ef svo heldur
áfram sem horfir að verksmiðjunni
þurfi að loka að mestu yfir hávet-
urinn og þurfi starfsmenn verk-
smiðjunnar að fara á atvinnu-
leysisbætur.
- Sveinn.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 23. MAI
YFIRLIT: Við suðurströnd landsins er smá lægð sem hreyfist norður
yfir landið í nótt, en vaxandi lægð skammt norðaustur af Nýfundnalandi
á hreyfingu austur og síðan norðaustur.
SPÁ: Hæg austlæg eða breytileg átt og þokusúld við suður- og austur-
ströndina en víða þurrt og skýjað með köflum í öðrum landshlutum.
Nokkuð hlýtt í veðri víðast hvar.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Suðaustan- og austanátt.
Þokusúld við suður- og austurströndina en annars þurrt og víða nokkuð
bjart. Hlýtt í veðri.
Svarsími Veðurstofu Islands - Veðurfregnir: 990600.
o » & ö Q Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk,
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig.
/ / / * / * * * * • A. * 10° Hitastig
/ / / / / * ' r * r' * * * * * V v V V Súld
Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél El = Þoka ^
FÆRÐÁ VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Allir helstu þjóðvegir landsins eru nú færir, undantekning er þó á Norð-
austurvegi (Sandvfkurheiði). Þar er mikil aurbleyta og er því aðeins fært
fyrir jeppa og fjórhjóladrifna bíla. Einstaka vegakaflar eru þó ófærir svo
sem Þorskafjarðarheiði á Vestfjörðupn, Hólssandur og Oxarfjarðarheiði
á Norðausturlandi, Mjóafjarðarheiði á Austfjörðum og Lágheiði á Norður-
landi er lokuð vegna aurbleytu. Vegna aurbleytu eru sumstaðar sórstak-
ar öxulþungatakmarkanir á vegum og eru þær tilgreindar með merkjum
við viökomandi vegi. Allir hálendisvegir landsins eru lokaðir vegna aur-
bleytu og snjóa. Ölfusárbrú við Selfoss er opin fyrir umferð léttra öku-
tækja og verður opnuð fyrir umferð allra ökutækja klukkan 8 að morgni
laugardagsins 23. maí.
Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hiti 8 4 veður alskýjað rigning
Bergen 17 Iskúr
Helsinki 13 skýjað
Kaupmannahöfn 24 léttskýjað
Narssarssuaq vantar
Nuuk +3 snjókoma
Ósló 23 skýjað
Stokkhólmur 21 léttskýjað
Algarve 21 skýjað
Amsterdam 27 léttskýjað
Barcelona 20 skýjað
Berlín 2S hálfskýjað
Chicago 20 þokumóða
Feneyjar vantar
Frankfurt 23 léttskýjað
Glasgow 18 reykur
Hamborg 26 iéttskýjað
London 24 léttskýjað
Los Angeles 17 iéttskýjað
Lúxemborg 19 létiskýjað
Madrid 23 skýjað
Malaga 26 léttskýjað
Mallorca 23 skýjað
Montreal 17 skýjað
New York vantar
Orlando 22 mistur
París 19 rigning
Madeira 20 skýjað
Róm 21 þokumóða
Vín 23 iéttskýjað
Washington 16 alskýjað
Winnipeg 2 skúr
Heimild. Veöurstofa (siands
(Byggt ó veðurspá kl. 16.15 f gær)
/ DAG kl. 12.00
Morgunblaðið/Sverrir
Um eitt hundrað nemendur Hofstaðaskóla í Garðabæ tóku í gær
fyrstu skóflustungu að nýrri byggingu skólans í Hofstaðamýri.
Garðabær:
Fyrsta skóflustungan
að nýjum grunnskóla
EITT HUNDRAÐ nemendur Hofstaðaskóla í Garðabæ tóku í gær fyrstu
skóflustungu að nýjum grunnskóla í Hofstaðamýri. Skólinn er ætlaður
börnum úr þeim hverfum bæjarins, sem nú stunda nám í Hofstaða-
skóla, svo og börnum úr þeim hverfum sem eru að rísa í Bæjargili og
Hæðahverfi og fyrirhugaðri byggð á Arnarnesháisi. Talið er að skól-
inn muni fullbúinn kosta um 330 milljónir króna.
Skólinn er ætlaður nemendum í muni fullbúinn taka við um 300 nem-
1. til 6. bekk grunnskóla. Skólinn
yerður byggður í tveimur áföngum,
fyrri áfanginn verður 2.510 fermetr-
aren sá síðari 720 fermetrar. Áform-
að er að taka fyrri áfangann í notk-
un haustið 1993 og miðað er við að
skólinn verði einsetinn, þegar hann
er fullbúinn.
Ingimundur Sigurpálsson, bæjar-
stjóri í Garðabæ, segir að nýi skólinn
endum. Hann á að taka við nemend-
um Hofstaðaskóla, sem nú er rekinn
í bráðabirgðahúsnæði, og þar að
auki nemendum úr þeim hverfum
sem eru í byggingu í Bæjargili og
Hæðahverfi, og fyrirhugaðri byggð
á Arnarneshálsi. Heildarkostnaður
við bygginguna mun nema um 330
milljónum króna.
Samnorrænt Yíkinga-
lottó hefst vorið 1993
Fyrsti vinningnr gæti orðið 30 milljónir
NORRÆNU lottófélögin hafa ákveðið að taka höndum saman og efna
til samnorræns Víkingalottós í Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Danmörku
og á íslandi. Áformað er að hleypa lottóleiknum af stokkunum vorið
1993 að því tilskildu að stjórnvöld í
Að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar,
framkvæmdastjóra íslenskrar get-
spár, verður norræna Víkingalottóið
viðbót við íslenska lottóið og með
svipuðu formi. Dregið verður úr því
í beinni útsendingu á miðvikudögum
og verða útsendingarnar frá Noregi
fyrsta árið. Dregnar verða út 6 tölur
af 48 og bónustölur verða 3. Fyrsti
vinningurinn verður sameiginlegur
en aðrir vinningar fara eftir sölu í
löndunum 5 veiti til þess leyfi.
hvetju landi fyrir sig. Eðli málsins
sanikvæmt verður erfíðara að fá
fyrsta vinning en í íslenska lottóinu
en vinningsupphæðin verður að sama
skapi hærri. Vilhjálmur sagði að
gælt væri við að hún gæti orðið ná-
lægt 30 milljónum.
Vilhjálmur sagði að hugmyndin
um fjölþjóðalottó hefði lengi legið á
borðinu en það yrði fyrsta sinnar
tegundar í heiminum.
íslendingnr á Filippseyjum:
Sakaður um að skipta
fölsuðum dollaraseðli
Keypti gjaldeyrinn í Landsbankanum
MAÐUR af Suðurnesjum sem
keypti gjaldeyri í útibúi Lands-
bankans í Keflavík var sakaður
um að hafa borgað fyrir þjónustu
á hóteli á Filippseyjum með
fölsuðum 100 dollara seðli. Guðjón
Sigurðsson skrifstofustjóri í
Landsbankaútibúinu sagði að ekki
væri hægt að fullyrða að seðillinn
hefði verið keyptur í útibúinu.
Hann hefði þó verið keyptur af
manninum því gott væri fyrir úti-
búið að eiga sýnishorn af fölsuð-
um seðli.
Maðurinn var á ferð í Filippseyjum
í byijun síðasta mánaðar og borgaði
fyrir þjónustu á hótelinu með 100
dollara seðli. Eftir skamma stund
kom hótelfólkið til hans og sakaði
hann um að greiða með fölsuðum
seðli. Guðjón sagði að ekki væri
hægt að sjá á seðlinum með berum
augum hvort hann væri falsaður eða
ekta. Landsbankinn hefði orðið að
fá úr því skorið með rannsókn í
Danmörku. Hann sagði að mikið
væri af fölsuðum dollurum í umferð,
ekki síst í Austurlöndum, og í þessu
tilviki væri ekki hægt að útiloka að
íslendingurinn hefði verið með ekta
seðil en hann verið plataður, falskur
seðill verið settur í stað þess ekta í
afgreiðslu hótelsins.
-----» ♦ ♦----
Gufunes:
Brutu rúður
í tækjum
SKEMMDARVERK voru unnin á
tækjum í eigu Reykjavíkurborgar
á öskuhaugunum í Gufunesi í
fyrrinótt. Rúður vélanna voru
brotnar. í gær vann lögreglan að
rannsókn málsins.
Tækin sem urðu fyrir barðinu á
skemmdarvörgunum eru jarðýta,
beltisvél og dráttarvél. Starfsmenn
komu að þeim svona þegar þeir
mættu til vinnu við sorphaugana í
gærmorgun og.tilkynntu lögreglu.