Morgunblaðið - 23.05.1992, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.05.1992, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1992 Vordögrim að ljúka í Ólafsfjarðarkirkju VORDÖGUM Ólafsfjarðarkirkju lýkur ura helgina, fjölskyldudagur verður haldin í dag, laugardag með fjölbreyttri dagskrá og á sunnu- dag verður guðsþjónusta í kirkjunni og píanótónleikar um kvöldið. Dr. Bjöm Björnsson yfirmaður fræðsludeildar Þjóðkirkjunnar flyt- ur erindi um velferðarsamfélagið og þjóðfélagslega ábyrgð kirkjunn- ar kl. 10.30, en eftir hádegi fylgj- ast heimamenn með knattspyrn- uliði sínu Leiftri etja kappi við ÍR, en síðan verða útileikir fyrir fjöl- skylduna og um kl. 18 verður grill- veisla. Um kvöldið syngja eldri félagar í Geysi og Fóstbræðrum á tónleikum í Tjarnarborg. Myndlist á Á FYRSTU íslensku píanóhátíð- inni sem verður haldin um helg- ina í Safnaðarheimili Akur- eyrarkirkju munu tveir mynd- listarmenn frá Akureyri sýna verk sín, þau Dröfn Friðfinns- dóttir og Örn Ingi Gíslason. Dr. Pétur Pétursson lektor við guðfræðideild Háskóla íslands predikar og Kirkjukór Ólafs- fjarðarkirkju frumflytur sálm eftir Svavar A. Jónsson við lag Áskels Jónssonar undir stjórn Jakobs Kov- osavskys. Kaffisala og sýning á hannyrðavörum eldri borgara verð- ur í Tjarnarborg á eftir. Örn Magnússon píanóleikari leikur síðan á tónleikum sem hefj- ast kl. 21 á sunnudagkvöld. píanóhátíð verða opnaðar formlega kl. 15. á laugardag, en strax á eftir mun Guðríður St. Sigurðardóttir leika stutt verk á píanó. Sýningarnar verða aðeins opnar þessa þrjá daga, frá laugardegi til mánudags. Morgunblaðið/Rúnar Þór Einn á sjúkrahús eftir þriggja bíla árekstur Eldri maður var fluttur á sjúkrahús eftir harðan árekstur á gatnamótum Þingvallastrætis og Mýrar- vegar nokkru fyrir hádegi í gær. Slysið varð með þeim hætti, að fólksbíl var ekið gegn rauðu ljósi vestur Þingvallastræti og lenti á bifreið gamla mannsins sem var að fara yfir gatnamótin og suður Mýrarveg. Við áreksturinn valt bíll hans og lenti á þriðja bilnum sem var kyrrstæður. Gamli maðurinn var fluttur á sjúkrahús rifbeinsbrotinn og með höf- uðáverka, en aðra sakaði ekki. Allir bílarnir eru mikið skemmdir og voru þeir fluttir af vettvangi með kranabíl. Að sögn varðstjóra var ökumaðurinn sem árekstrinum olli ungur og er talið að hann hafi ekið heldur greitt. Umsókn Hagvirkis-Kletts um lóð fyrir íbúðir aldraðra: Gott ef fyrirtæki utan bæjarins vill standa að framkvæmdum hér - segir Sigurður Hannesson formaður bygginganefndar Báðir þessir myndlistarmenn héldu sýningar á höfuðborgar- svæðinu í mars sl. og gefst þeim sem sækja safnaðarheimilið um helgina kostur á að sjá hluta þeirra verka sem voru á þeim sýningum. í hléum á dagskrá píanóhátíðar verða sýndar stuttmyndir, sem þeir Christopher Thornton tónlist- arkennari og Örn Ingi myndlistar- maður hafa gert. Sýningarnar verða kl. 16. á laugardag, kl. 18. á sunnudag og kl. 17. á mánudag. Auk málverkasýninganna verð- ur einnig sýning í safnaðarheimil- inu á vegum íslensku tónverkamið- stöðvarinnar. Allar sýningarnar í Nettó-versluninni er markmiðið að bjóða lágt vöruverð, takmarkað vöruval og þjónustu, en slíkt fyrir- komulag hefur reynst vel. í nýju versluninni verður meira vöruval en var í þeirri við Höfðahlíð, svo sem fatnaður og búsáhöld, fjöl- breyttara úrval matvöru, auk betri aðkomu og fleiri bílastæði. Tekið verður við greiðslukortum SIGURÐUR Hannesson formað- ur bygginganefndar Akureyrar segir það jákvætt ef fyrirtæki utan bæjarins vilji standa að framkvæmdum hér í bænum og í versluninni og einnig verður þeim sem leyfi hafa til að iáta skuldfæra á viðskiptareikning veitt heimild til slíks. Verslunin verður opin frá kl. 12 til 18.30 virka daga og á laugardög- um frá 10 til 14. Verslunarstjóri er Júlíus Guðmundsson, en reiknað er með að sjö starfsmenn vinni í versluninni. að vel verði tekið í erindi frá Hagvirki-KIetti, sem sótt hefur -um lóð á Akureyri til að byggja á 40 til 50 íbúðir fyrir aldraða. Formaður framkvæmdanefndar um byggingar íbúða fyrir aldr- aða við Lindarsíðu býst ekki við að umsókn hafnfirska verktaka- fyrirtækisins hafi áhrif á sölu þeirra íbúða sem eftir er að selja í fjölbýlishúsunum sem þar munu rísa. Hjá skipulagsdeild Akureyrar- bæjar fengust þær upplýsingar í gær, að til væri fullskipulagt fjöl- býlishúsahverfi í Giljahverfi III og yrðu lóðir þar byggingarhæfar í sumar, en í erindi frá Hagvirki- Kletti er óskað eftir lóð sem stað- sett sé í samræmi við þarfir aldr- aðra. Sigurður Hannesson sagði að fundur yrði í bygginganefnd næsta miðvikudag, hann hefði ekki séð erindi Hagvirkis-Kletts, en það yrði eflaust til umræðu á fundinum hefði það borist byggingafulltrúa fyrir þann tíma. Ekki átti Sigurður von á öðru en vel yrði tekið í erindi Hagvirkis-Kletts um lóð fyrir íbúð- irnar og sjálfur kvaðst hann fagna því að fyrirtæki utan Akureyrar hefði hug á að fara út í framkvæmd- ir í bænum. „Það er af hinu góða ef af þess- um framkvæmdum verður, sérstak- lega ef í Ijós kemur að íbúðirnar verði ódýrari en þær sem nú er verið að byija á,“ sagði Sigurður. Hann sagði að til væri nægur mann- skapur á Akureyri til að vinna að verkinu ef af yrði, en sennilega yrði ekki um hreina viðbót verkefna að ræða. Menn myndu sjálfsagt frekar hægja á öðrum verkefnum. Hann sagði að útlitið í byggingar- iðnaði á Akureyri í sumar væri yfir meðallagi gott, þegar væri byrjað á byggingu 70 íbúða fyrir aldraða við Lindarsíðu og þá væri búið að semja um byggingu 60 til 70 íbúða í félagslega kerfinu. Aðalsteinn Óskarsson formaður framkvæmdanefndar um byggingu íbúða fyrir aldraða sagði að ekki væri að vænta viðbragða frá nefnd- inni við útspili Hagvirkis-Kletts að svo komnu, en fundur yrði haldinn í framkvæmdanefndinni eftir helgi. „Þetta er alveg nýtt mál, við ætlum að bíða og sjá til hvað verður úr þessu, hvort einhver alvara er á bak við þetta,“ sagði Aðalsteinn. STARFSÁRI Kammerhljóm- sveitar Akureyrar lýkur með tón- leikum í Safnaðarheimili Akur- eyrarkirkju mánudaginn 25. maí kl. 20.30, en þessir tónleikar verða jafnframt lokaatriði fyrstu íslensku píanóhátíðarinnar sem Tónlistarskólinn á Akureyri efn- ir til um helgina. Píanóleikarar með hljómsveitinni verða Akureyringarnir Kristinn Örn Kristinsson og Þórarinn Stefánsson, en hljómsveitarstjóri er Guðmundur Óli Gunnarsson, sem nýverið var Hann sagðist ekki hafa ástæðu til að óttast að þær íbúðir sem óseld- ar eru í fjölbýlishúsunum tveimur sem verið er að hefja byggingu á, myndu ekki ganga út. Þrátt fyrir fréttir af umsókn Hagvirkis-Kletts um lóð hefðu fjórir aðilar hringt í gær til að afla sér upplýsinga um íbúðirnar við Lindarsíðu. „Eg hef enga trú á að þetta breyti neinu hjá okkur,“ sagði Aðalsteinn. ráðinn skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri. Á tónleikunum verða flutt íslensk verk. Alls taka 35 hljóðfæraleikarar og söngvarar þátt í flutningnum og eru verkin í senn bæði nýstárleg og skemmtileg. Með þessum tón- leikum ætlar Kammerhljómsveit Akureyrar að ná nýjum áfanga í sínu starfi og gefa áheyrendum sín- um tækifæri til að kynnast fjöl- breytni í íslenskri nútímatónsköpum um leið og hún leikur eina vanda- sömustu efnisskrá sem hún hefur flutt til þessa. (Fréttatilkynning) Mývatnssveit; Jón Þorláksson áttræður Björk, Mývatnssveit. JÓN Þorláksson á Skútustöðum varð áttræður 17. maí síðastlið- inn. Jón bauð sveitungum sín- um, frændum og vinum til veg- legs afmælisfagnaðar á heimili sínu síðastliðinn sunnudag. Foreldrar Jóns voru Þorlákur Jónsson, Hinrikssonar frá Hellu- vaði og Arnfríður Sigurgeirsdótt- ir, skáldkona. Þau bjuggu á einum fjórða hluta Skútustaða. Jón tók þar við búskap ásamt bróður sín- um Geirfinni með móður sinni þegar faðir hans lést 1930. Jón hefur gegnt ýmsum trúnaðar- störfum hér í sveitinni, m.a. í sveitarstjórn og fleiri stjórnum og verið stefnuvottur í Skútustaða- hreppi um áratugaskeið. Eigin- kona Jóns er Gerður Benedikts- dóttir frá Höskuldsstöðum í Reykjadal. Þau eignuðust tvö börn sem bæði eru búsett í Mý- vatnssveit. Mývetningar senda Jóni Þorlákssyni og fjölskyldu bestu árnaðaróskir. Kristján. Sigurður Jóhannesson, aðalfulltrúi, Hannes Karlsson, deildarstjóri matvörudeildar, Magnús Gauti Gautason, kaupfélagssljóri, og Júlíus Guðmundsson, verslunrstjóri í hinni nýju Nettó-verslun við Oseyri. Ný Nettó-verslun opnuð; Markmiðið er lægsta verðið NÝ Nettó-verslun í eigu Kaupfélags Eyfirðinga var opnuð í gær á Óseyri 1 á AJkureyri. Stefnt er að því að bjóða í versluninni lægsta vöruverð á matvöru í bænum. Verslunin er í um 900 fermetra hús- næði og rými er fyrir um 130 bíla á lóðinni. Kaupfélagið rekur nú fjórar matvöruverslanir á Akureyri, en nýlega var tveimur verslun- um lokað, í Brekkugötu 1 og Nettóversluninni við Höfðahlíð. Kammerhljómsveit Akureyrar; Islensk nútímaverk á lokatónleikum vetrarins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.