Morgunblaðið - 23.05.1992, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 23.05.1992, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1992 29 Finnskuskóli í Norræna húsinu íslenski fínnskuskólinn hóf starfsemi í janúar sl. en hann er starfræktur á vegum Suomi- félagsins. Þetta er fyrsti finnsku- skólinn á íslandi ætlaður börnum á grunnskólaldri. Nemendur skól- ans í vetur eru 15 talsins á aldrin- um 6-15 ára. Nemendunum er skipt í tvo hópa, yngri og eldri hóp, og hittist hver hópur aðra hveija viku í Norræna húsinu. Flestir nemendur skólans eiga finnska móður eða föður og hefur þeim því gefist kjörið tækifæri til að halda við finnskukunnáttu sinni eða bæta við hana eftir aðstæðum. Skólinn hefur hlotið styrk frá bæði finnskum og íslenskum yfirvöldum. Kennari í vetur hefur verið Juha Niemela, grunnskólakennari frá Finnlandi, en hann sést á myndinni ásamt hluta eldri hópsins. Kennari og nemendur á einu námskeiðanna, f.v. Egill Kalevi Karlsson, Steinar Orri Hannesson, Gréta Liisa Karls- dóttir, Andrea Helgadóttir og Juha Niemela kennari. ’ — 1' *■ ««1 Morgunblaðið/RAX ítölsk sýning opnuð á morgun SENDIHERRA Ítalíu á íslandi, hr. Massimo Curcio, opnar mánudaginn 25. maí ítölsku farandsýninguna Padova; vagga menningar. Sýningin er í Odda við Sturlugötu, húsinu beint upp af Norræna húsinu. Há- skóli íslands og ítalska sendiráðið á íslandi standa að þessari sýningu sem áður hefur verið í Boston í Bandaríkjunum og höfuðborgum Norð- urlanda. Það er borgarstjórn Padova ásamt Menningar- og ferðamála- ráði borgarinnar sem hafa veg og vanda af skipulagningu hennar. Eitt verka Tryggva. Hafnarborg: Tryggvi Hansen sýnir málverk TRYGGVI Hansen heldur skyggn- ulýsingafund á málverkum sínum í Hafnarborg, menningarmiðstöð Hafnarfjarðar, mánudaginn 25. maí kl. 20.00. Einnig verður á dagskrá Ijóðalest- ur og dans við hljóðfæraslátt létt- sveitarinnar Nýr vani (New habbit). I fréttatilkynningu frá ítölsku að- alræðisskrifstofunni í Reykjavík seg- ir: „ Mikilvægi borgarinnar Padova í sögu lista og vísinda kemur best fram í hinum miklu menningarfjár- sjóðum hennar er varðveist hafa full- komlega fram til vorra daga. Rætur nútíma vísinda má rekja til borgar- innar og nýjar hugmyndir í myndlist litu þar dagsins ljós. Padova er auð- ug af markverðum sögulegum bygg- ingum, svo sem Höll Skynseminnar, sem reist var á dögum Snorra Sturlu- sonar. Borgaryfn-völd vilja með þess- ari sýningu kynna Padova um víða veröld sem borg lista og vísinda. Sýningin er ekki einungis ætluð þeim er áhuga hafa á listum og vísindum heldur öllum almenningi á Ítalíu, Norðurlöndum, Bandaríkjunum og víðar. Aðal nýbreytni þessarar sýningar er sú að borginni er ekki lýst einvörð- ungu með myndum af minnismerkj- um heldur eru það mennirnir sem lögðu lóð sín á vogarskál sögunnar sem segja frá. Á þennan hátt gerir áhorfandinn sér betri grein fyrir því að Padova er ekki einvörðungu borg HINN árlegi kirkjudagur Kálfa- tjarnarsóknar verður haldinn nk. sunnudag og hefst með guðsþjón- ustu í kirkjunni kl. 14.00. Gestur safnaðarins að þessu sinni er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir og mun hún predika. Einnig verða lista og vísinda heldur einnig miðstöð manna eins og Giottos, Galileos og Göthes er hafa haft mikii áhrif á framgöngu sögu okkar og menning- ar. Öllu áhugafólki er bent á, að hér er um einstæða og óvenjulega sýn- ingu að ræða, sem veitir okkur inn- sýn í merkan menningarheim einnar af elstu háskólaborgum Evrópu." Sýningin Padova; vagga menning- ar, er í Odda og verður hún opin daglega á opnunartíma hússins fram til 10. júni. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. 50 ára fermingaböm boðin velkom- in. Söng annast kirkjukór Kálfa- tjarnakirkju. Einsöng annast Sigrún Ingadóttir. Stjómandi er Frank Herlufsen, organisti. Að lokinni kirkjuathöfninni verða seldar kaffi- veitingar í Glaðheimum á vegum kvenfélagsins Fjólu. Kirkjudagur að Kálfatjörn Kammer- tónleikar í Hafnarborg TÓNLEIKAR verða í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafn- arfjarðar, næstkomandi sunnu- dagskvöld, 24. maí, kl. 20. Þetta eru fjórðu tónleikar í tónleikaröð Tríós Reykjavíkur og Hafnar- borgar á þessu starfsári. Á þessum tónleikuin verða strengjaverk í brennidepli. Flyljendur verða Sig- rún Eðvaldsdóttir og Rolan Hartwell á fiðlur, Guðný Guð- mundsdóttir og Graham Tag á lágfiðlur, Michael Rudiakov, Gunnar Kvaran og Bryndís Halla Gylfadóttir á selló og Steinunn Birna Ragnarsdóttir á píanó. Michael Rudiakov er vel þekktur í heimalandi sínu, Bandaríkjunum, fyrir flutning kammertónlistar og hefur leikið inn á ijölda hljómplatna með hinum ýmsu kammerhópum. Hann hefur komið fram víða í Evr- ópu og austurlöndum nær og fjær. Hann kemur sérstaklega ti! Islands til þess að taka þátt í þessum tónleik- um á leið sinni heim úr tónleikaferð um Þýskaland. Roland Hartwell og Graham Tagg hafa báðir starfað með Sinfón- íuhljómsveit íslands í vetur. Á efnisskrá tónleikanna verður sónata fyrir tvö selló og píanó eftir G.F. Handel, Strengjakvintett nr. 1 í C-dúr eftir L. Boccerini, fluttur í fyrsta sinn á Islandi í nýfundinni frumútgáfu sinni, og að lokum strengjasextett op. 18 í B-dúr eftir J. Brahms. Þess má geta að tónleikar þessir verða ekki endurteknir á Reykjavík- ursvæðinu. -----» ♦ ♦ Fyrirlestur um samskipti við sjúklinga MÁLSTOFA í hjúkrunarfræði efn- ir til fyrirlestrar um Samskipti við sjúklinga með skert hugarstarf sem Margrét Gústafsdóttir hjúkr- unarfræðingur flytur. Málstofan verður haldin mánudag- inn 25. maí 1992 kl. 12.15 í setu- stofu á 1. hæð í Eirbergi, Eiríksgötu 34. Málstofan er öllum opin. Norðurlönd í Evr- ópu breytinganna JAAKKO Ilioniemi, formaður vinnuhóps fulltrúa forsætisráð- herra Norðurlanda um endurmat á norrænu samstarfi flutur erindi mánudaginn 25. inaí nk. á sameig- inlcgum síðdegisfundi Samtaka um vestræna samvinnu og Varð- bergs í Átthagasal -Hótels Sögu. Salurinn verður opnaður kl. 17.15 og erindið hefst kl. 17.30. Mikil umræða hefur átt sér stað á Norðurlöndunum á undanförnum misserum um hlutverk og framtíð norræns samstarfs með hliðsjón af þeim öru og byltingarkenndu breyt- ingum sem eru að eiga sér stað í álfunni allri. Sovétríkin eru hrunin og Austur-Evrópa er laus við múra kommúnismans. Efnahagsbandalag Evrópu færir nú út kvíamar og EES-samningur EFTA og EB hefur verið undirritaður. Varsjárbandalag- ið er horfið á spjöld sögunnar og eftir er að marka nýja framtíðar- stefnu um hlutverk Atlantshafsband- alagsins. Öll þessi mál snerta tilveru og framtíð íslensku þjóðarinnar. Ræðumaður dagsins, Jaakko Ilion- iemi, formaður nefndarinnar, er nú formaður Ráðs atvinnulífsins (EVA) í Finnlandi. Hann er mjög kunnur maður í finnsku þjóðlífi og hefur m.a verið sendiherra Finnlands í Bandaríkjunum og Sviss. Á náms- árum sínum var hann virkur í félags- málum stúdenta. Ilioniemi hefur tek- Jaakko Ilioniemi ið þátt í störfum SÞ og samningum um öryggismál Evrópu fyrir Finn- land. Jaakko Ilioniemi hefur undan- farin ár ritað greinar í Morgunblaðið um stjómmálaþróunina í Finnlandi. Hann mun flytja erindi sitt á ensku og nefnist það „Nordic Countries in Europe og Change“. Þeim sem sitja í vinnuhópi fulltrúa forsætisráðherra á Norðurlöndum um endurmat á norrænu samstarfi er boðið á fundinn. Matthías Á. Mathiesen, fyrrv. utanríkisráðherra, situr í nefndinni fyrir íslands hönd og mun hann kynna ræðumanninn. (Fréttatilkynning) Glæsileg húsgagnasýning um helgina frá hinu þekkta ítalska fyrirtæki Vegna hagstæára samninga bjóðum viá 20% kynningarafslátt. Opið laugardag kl. 10-17 Opið sunnudag kl. 13-17. Borgartúni 29 sími 620640. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.