Morgunblaðið - 23.05.1992, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 23.05.1992, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAI 1992 II -1 Með morgxinkaffínu Maðurinn þinn er hér á spítal- anum eftir bílslys, en bílinn skemmdist ekkert... * Ast er... \ ' ' y 1-22 ... við sjóndeildarhringinn. TM Reg. U.S Pat Off.—all rights reserved ® 1992 Los Angeles Times Syndicate Nei, hér er engin staða Iaus nema ef væri við glugga- þvottinn? BRÉF TIL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 Vaxtalaus námslán Frá Hclga Steingrímssyni: í MORGUNBLAÐINU á þriðjudag- inn var grein eftir Steingrím Ara um námslán námsmanna. Þar er fullyrt að rúmlega helm- ingur námsmanna fái á þessu náms- ári í hendur mikla vaxtalausa fjár- muni sem þeir áttu ekki rétt á eða með öðrum orðum, þeir misnota sér skattpeninga okkar á fölskum for- sendum og svindla á kerfínu. Og þetta er fóikið sem hvað oft- ast kemst til mestra metorða í okk- ar þjóðféiagi og svo undrumst við auðmjúkir hversvegna okkur gangi ekki lífsbaráttan betur. í þokkabót er þessu fóiki að stór- um hluta alveg nákvæmlega sama hvernig það nýtir þetta illa fengna fé og skilar lélegum árangri í námi, ef það stundar nám þá yfirleitt eft- Frá GuðmundiH. Sigurðssyni: í NÆSTA mánuði leggja 12 full- trúar íslensku þjóðarinnar af stað í tíu daga ferðalag til Suður-Amer- íku, nánar tiltekið á Umhverfisráð- stefnuna í Rio de Janero í Brasilíu. Svo vill til að í síðasta mánuði dvaldi ég k_ þessum slóðum ásamt 47 öðrum Islendingum í 16 daga á vegum Heimsklúbbs Ingólfs. Áður en við lögðum upp í förina varð ég var við nokkra umfjöllun í fjölmiðlum um verð ferða til þessa heimshluta. Meðal annars kom það fram að Ingólfur Guðbrandsson teldi sig geta boðið upp á mun ódýrari fargjöld og hótelgistingu en ríkisstjórnin væri að kaupa þarna suðureftir fyrir hreinan tittlingaskít eins og blessaður um- hverfisráðherrann okkar orðaði það. Fyrir 16 daga ferð til þriggja landa Suður-Ameríku, Chile, Arg- entínu og Brasilíu, greiddum við ferðafélagarnir tæpar 200 þús. kr. á manninn. Innifalið í þessari tölu var flug og gisting ásamt morgun- verði á völdum gististöðum. Ekki sakar að geta þess að siglingafróð- ir að þessir vaxtalausu peningar eru komnir í vasann hjá þeim. Góðum vini mínum datt einu sinni í hug, þegar fallprósenta í lögfræði- deild var tii umræðu, hversvegna hveijum þeim sem lyki við grunn- skólamenntun, og hygði á frekara nám, væri ekki afhent ávísun uppá svona hálfa milljón króna og viðtak- anda sagt, nú átt þú þessa peninga og þú mátt gera við þá hvað sem þú vilt. En viljir þú fara í skóla þá verður þú að borga fyrir þig sjálfur og skilir þú góðri ástundun og árangri í samræmi við það þá erum við skattborgarar tilbúnir að fjárfesta meira í þér þjóðfélaginu öllu til góðs. Hinir sem létu þrýsting frá for- eldrum og velunnurum sem vind um eyrun þjóta og keyptu sér bíl eða sófasett fyrir milljónina hálfu geta bara stundað það sem þeim í upp- hafi var ætlað, og gera allt annað en að fara í skóla á annarra manna kostnað. HELGI STEINGRÍMSSON Jöfrabakka 18, Reykjavík. um ferðafélaga reiknaðist til að alls hefðum við ferðast um 33 þús. km. Upplýst var í íjölmiðlum að fargjald og gisting íslensku sendinefndarinnar mundi kosta um 400 þúsund krónur á manninn fyr- ir tíu daga ferð. Ég get ekki betur séð en þarna hafi enn einu sinni mistekist meðferð á fé okkar skatt- borgaranna og ekki verið leitað til réttra aðiia þegar ferðin var pönt- uð. Rúsínan í pylsuendanum er svo sú að í Ríó dvöldum við Heims- klúbbsfarar í sjö nætur á sama hóteli og ísienska sendinefndin valdi til dvalar. Ég vil óska löndum mínum til hamingju með að velja Rio-Palace hótelið sem gististað, það verðskuldar fyllilega allar stjörnurnar fimm sem það skartar. En vinsamlega pantið á réttum stað og veljið ódýrasta kostinn þegar þið leggið næst land undir fót. Okkur líður öllum svo miklu betur þegar við gerum góð kaup. Góða ferð til Rio. GUÐMUNDUR H. SIGURÐSSON Kirkjuvegi 10 Hvammstanga Hver er tilgang- urinn? Frá Kristínu Óskarsdóttur: EFTIR að hafa heyrt útvarpsfréttir í morgun og hlustað á nákvæma lýsingu af manni á Nýja-Sjálandi sem gekk berserksgang heima hjá sér og drap ættingja á báða bóga fylltist mælirinn hjá mér. Hver er tilgangurinn með svona fréttum? Er þetta virkilega mál sem kemur mér og öðrum hlustendum við? Persónulega finnst mér nógu mikið af vandamálum hér heima fyrir til að velta sér upp úr ef það er það sem fréttamenn vilja gera. Mér finnst hreinlega að tími sé kominn til að þeir fari alvarlega að hug- leiða hvað hægt er að bjóða fólki að sjá og heyra. Dag eftir dag fáum við að sjá fréttir af sundurskotnu fólki og heyra safaríkar lýsingar á því hvernig það kvaldist áður en það dó. Ég held að flestir sem fylgjast með fréttum séu það vel gefnir að ef sagt er frá því að svo og svo margir hafi látist þá skilji þeir meininguna á bak við það, það þarf ekki að sýna þeim eða lýsa því að smáatriðum hvernig þetta fólk fór að því að deyja. Ég vil að fréttamenn sýni áhorfendum sjón- varps þá kurteisi að vara þá við sérstaklega ógeðfelldum fréttum, ekki síst vegna þess að á þeim tíma sem fréttir eru sýndar eru börnin á heimilunum oftast á ferli og þau gera greinarmun á fréttum og bíó- myndum. Ég er ekki tilbúin til að láta bjóða mér upp á þennan hryll- ing dag eftir dag og ég er viss um að fleiri eru orðnir þreyttir á blóð- ugum fréttum utan úr heimi. Ég hef mikinn áhuga á að heyra í öðru fólki og komast að því hvort að fleiri eru að hugsa það sama og ég. Þannig að ef þið eruð þarna úti, foreldrar og aðrir, hafið þá endilega samband og við gætum reynt að breyta þessu í sameiningu. KRISTÍN ÓSKARSDÓTTIR Gyðufelli 8, Reykjavík. Góða ferð til Ríó HÖGNI HREKKVlSI Víkverji skrifar Kunningi Víkveija kom að máli við hann og gagnrýndi ríkis- útvarpið fyrir að þýða aðeins til hálfs heiti „Eurovision". Nú væru þulir famir að tala um „Evróvisi- on“, þ.e.a.s. fyrri hluti orðsins væri færður i átt til nafnsins Evrópa. Hann stakk upp á því að þessi sam- tök evrópskra sjónvarpsstöðva yrðu einfaldlega þýdd með orðinu Evr- ópusýn. Að minnsta kosti er það snöggtum skárra en þessi útlenda sletta. xxx Flestir líta á heimili sitt sem griðastað, þar sem hægt er að njóta lífsins og hvíla sig eftir strangan vinnudag. Sumir fá ekki notið slíkrar sælu vegna þess að nágrannar telja sig eiga rétt á að ijúfa svefnfriðinn hvenær sem er. Kunningjakona Víkveija býr við slíka ánauð og mætir oft lítt eða ekkert sofin í vinnu á morgnana, vegna þess að nágrannakona henn- ar er mikil óreglumanneskja. Enn verra er að tólf ára drengur á heim- ilinu getur oft ekki sofið nema fáar stundir á nóttu og er því úrvinda þegar hann fer í skóla. Það hefur lítt stoðað að tala blessaða konuna til og ekki breyta heimsóknir lög- reglunnar miklu. Nú ber ekki að skilja þetta svo að lögreglan hafi ekki reynt að liðsinna í hvívetna, en hún fær bara ekki við mikið ráðið. Þegar kvartað er undan há- vaða og Iátum getur hún lítið annað gert en tala við viðkomandi og biðja þá að virða rétt nágrannanna til nætursvefns. Stundum tekur fólkið sönsum, stundum ekki. Kunningja- kona Víkveija er að gefast upp og þrautalendingin verður sú að safna saman skýrslum lögreglunnar um heimsóknir til óreglukonunnar, í þeirri von að hægt verði að vísa henni úr íbúðinni. Sumum kann að þykja mjög harkalegt að freista þess að fá fólk borið út úr eigin íbúðum. Það virðist hins vegar eina ráð þeirra sem verða að búa við slíkt böl, sem er gróf árás á frið- helgi heimilisins. Betur væri ef önn- ur ráð fyndust. að var vel til fundið hjá ríkis- sjónvarpinu að sýna heimild- armyndina um kuldavarnir, „í köld- um sjó“, að kvöldi 1. maí. Ekki fer milli mála, hversu mikilvægt er fyr- ir íslendinga, ekki sízt sjómennina, að öðlast fræðslu um rétt viðbrögð við ofkælingu. Líf getur verið undir því komið. Sjónvarpið á því þakkir skildar fyrir framtakið og ástæða er til að athuga endursýningu myndarinnar i sumar, t.d. á sjó- mannadaginn, því sá tími fer í hönd, sem Islendingar sigla einna mest á vötnum og ám landsins, að ekki sé talað um sjóinn. xxx íkveija finnst hann í vaxandi mæli heyra menn segja „frá A til Z“ þegar þeir vilja spanna allt í máli sínu og skjóta engu undan. Þetta er auðvitað á enska vísu kveð- ið, en á eftir Z koma stafirnir Þ, Æ og O í okkar stafrófi. Á íslensku segjum við auðvitað að í pistlum sínum fjalli Víkveiji um allt milli himins og jarðar, allt frá A til Ö.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.