Morgunblaðið - 23.05.1992, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 23.05.1992, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR LAUGARDAGUR 23. MAI 1992 Vftum varia hvar við stöndum - segirSigurðurJónsson, FYRSTA deild íslandsmótsins íknattspyrnu, Samskipadeild- in, hefst í dag með þremur leikjum; Þór, sem spáð er neðsta sæti deildarinnar fær Fram íheimsókn, en Frömur- um er spáð efsta sætinu, ÍBV og Valur mætast í Eyjum og KR-ingar taka á móti Skaga- mönnum, en nýliðunum er spáð öðru sæti deildarinnar strax á fyrsta ári. Fyrstu um- ferðinni lýkur svo á morgun með leikjum Vfkings og KA í Stjörnugróf og FH og Breiða- bliks í Hafnarfirði. fyrirliði Skagamanna, en nýliðunum erspáð öðru sæti deildarinnar raað vekur vissulega athygii að nýliðum ÍA skuli vera spáð öðru sæti deildarinnar, en þó ef til vill enga furðu. Liðið er skipað góðum leikmönnum; góðri blöndu ungra stráka með reynslumikla leikmenn inn á milli. Og Sigurður Jónsson ætti að verða liðinu gífurlegur styrk- ur. En hann er ekki sérlega hrifinn af spánni. „Við höfum æft vel í vet- ur og komum til leiks í góðu líkam- legu ástandi. Við höfum verið að spila í Litlu bikarkeppninni, yfírleitt gegn liðum úr 2. deild, þannig að við vitum varla alveg hvemig við stöndum," sagði Sigurður við Morg- unblaðið, en taldi nefnda spá út í hött. „Við erum með ungt lið og nýkomnir upp úr 2. deild. Og það er varla hægt að hugsa sér erfiðari byrjun; KR úti í fýrsta leik, síðan Val úti og Fram heima — það getur mikið oltið á því hvernig við byijum. Mótið er bara 18 leikir, þannig að þessir þrír skipta mjög miklu máli.“ Ágætiega undirbúnir Fram er spáð Íslandsmeistaratitl- inum. Pétur Ormslev, þjálfari, sagði mótið leggjast vel í sig. „Við erum ágætlega búnir undir átökin. Að visu Atli Helgason, fyrirliði Víkings, og félagar hans hefja titilvörnina á morgun er þeir fá KA-menn í heimsókn. Atli skýtur hér að marki Stjörnunnar, og gerir eitt glæsilegasta mark íslandsmótsins í fyrra. Stjaman féll í 2. deild, en fjórir leikmanna liðsins á myndinni eru enn í 1. deildinni: Sveinbjörn Hákonarson er kominn til Þórs, Ingólfur Ingólfsson og Valdimar Kristófersson fóru í Fram og Bjarni Jónsson í KA. eru sumir okkar sem ekki hafa getað verið með í mörgum leikjum vegna meiðsla. Fyrsti leikurinn þar sem allir vom heilir var í úrslitum Reykja- víkurmótsins gegn KR. Við erum með mjög sterkan hóp góðra leikmanna og það er því Ijóst að einhveijir fá það hlutskipti að sitja á bekknum. Ég hef að vísu þann möguleika að geta skipt um leikmenn milli leikja og það getur allt eins farið svo að maður reyni það,“ sagði Pétur. Um leikinn gegn Þór í dag sagði Pétur: „Þórsarar hafa alltaf verið okkur erfíðir í gegnum tíðina, sér- SUMAR Sumir kalla það vorkomuna, ekki síður en þann viðburð er lóan lætur í sér heyra fyrsta sinni á ári hveiju. Aðrir telja sjálft sumarið komið, hvernig svo sem viðrar. Þó menn þurfi að kappklæðast til að njóta þess þegar „boltinn" byrjar að rúlla telst það sum- arbyrjun í margra augum þegar fyrsta spyrna Islandsmóts- ins er framkvæmd. Hvorki fyrr né síðar. Þúsundir; leikmenn, forystumenn, dómar- ar (bæði útlærðir og sjálfmennt- aðir, á áhorfendapöllunum), stuðningsmenn liðanna og aðrir sem hlut eiga að múli mæta til leiks. Ahangendur liðanna eru margvíslegir og styðja liðin hver á sinn hátt. Eg þekki einn — fyrrum forystumann hjá einu. 1. deildarliðanna — sem fer ekki oft á völlinn, einfaldlega vegna þess að taugamar leyfa það varla. Síminn er frekar notaður til að kanna stöðuna, og ef vel gengur hjá hans mönnum iná stundum sjá hann á hjóli í grennd við heimavöli liðsins, laumast til að kíkja á leikinn... Já, það er hægt að njóta þessar- ar fögru íþróttar á margvíslegan hátt. Baráttan er jafnan hörð, og það skemmtilega við knatt- spyrnuna eins og aðrar íþróttir er að inenn geta ætíð átt von á því óvænta, eins og sannast hefur. Það þarf ekki bijálaðan mann til að spá því nú að Fram Megi þeir bestu brosa breiðast... laugardaginn 12. september verði íslandsmeistari í ár. Safa- mýrar-liðið státar af stórum hópi góðra leikmanna, en önnur lið koma einnig til álita. Skaga- mönnum er spáð góðu gengi og ekki að ósekju. Liðið lék vel í fyrra og nú hefur Sigurður Jóns- son bæst í hópinn. Komið í stað Karls Þórðarsonar, sem lagði skóna endanlega á hilluna eftir glæsilegan feril. Valur er einnig með sterkt Ijð, Víkingar hafa ekki verið sannfærandi í vor en enginn skyldi afskrifa þá og KR-ingar eru með ungt lið en gott. Og önnur lið gætu komið á óvart þó þau séu ekki hátt skrifuð ( spám. Megi þeir bestu brosa breið- ast stundarfjórðungi fyrir fjög- ur, laugardaginn 12. september. Skapti Hallgrímsáon staklega fyrir norðan. Þetta verður örugglega mikill baráttuleikur því Þórsarar eru komnir í deildina til að sanna sig. Við ætlum okkur sigur og þeir sjálfsagt líka.“ Miklar breytingar Rúnar Kristinsson, fyrirliði KR, sagði að íslandsmótið legðist vel í sig. „Það eru miklar breytingar hjá okkur frá því í fyrra. Við höfum misst leikmenn með mikla reynslu. Kjarninn í liðinu ( sumar verður úr ’69 árgangnum. Þetta gæti orðið erfítt tímabil, en pressan verður ekki eins mikil og í fyrra og það gæti hjálpað. KR-ingar vita að það er ekki búist við miklu af okkur með þetta unga lið. Við höfum æft mjög vel og komum vel undirbúnir til leiks. Sem dæmi um það segir Ragnar Margeirsson, sem er búinn að vera í þessu í mörg ár, að hann hafí aldrei æft eins mik- ið á ferlinum. Það hefur einnig geng- ið vel í æfingaieikjum og Reykjavík- urmótinu. Eg held að þetta gæti smoilið saman ef vel gengur í fyrstu leikjunum." Lýst vel á mótið „Mér lýst vel á mótið. Það er al- veg sama hvaða sæti okkur er spáð, aðalatriðið er að ná að pússa hópinn vel saman. Við erum með nýja leik- menn, þannig að það gæti tekið tíma, en okkur hefur gengið vel í vor, fyr- ir utan leikinn gegn KR í Reykjavík- urmótinu," sagði Sævar Jónsson, fyrirliði Vals. Sævar sagði liðin oft hálfgerð spumingamerki í fjórum til fimm fyrstu leikjum íslandsmótsins. „Þá er baráttan kannski meira en spilið, lið eru að þreyfa fyrir sér. En eftir þennan tíma tel ég að verði komin mynd á hvað liðin geta í raun. Menn hafa verið að spila á gervigrasi og möl — sumir ekki komið á gras siðan í september, og það tekur tíma að venjast grasinu." Ekki lakarí en í fyrra „Okkur var spáð fjórða sæti í fyrra og urðum þá meistarar. Einhverra hluta vegna höfðu menn meiri trú á okkur í fyrra en þeir hafa núna. Við verðum bara að koma enn frekar á óvart í ár,“ sagði Logi Ólafsson þjálf- ari íslandsmeistara Víkings, en meisturunum er spáð fímmta sæti nú. „Við fómm alla leið í fyrra og ég held við séum ekki með lakara lið núna, heldur betra ef eitthvað er. Við komum óhræddir til leiks og ég sé ekkert því til fyrirstöðu að við blöndum okkur í baráttuna á toppn- um. Spáin Fyrirliðar, þjálfarar og for- menn knattspyrnudeilda 1. deildarfélaganna spáðu því að röð liðanna yrði þannig í lok móts í haust: 1. Fram, 2. ÍA, 3.-4. KR og Valur, 5. Víking- ur, 6. Breiðablik, 7. ÍBV, 8. FH, 9. KA og 10. Þór. Mér lýst vel á sumarið og á von á að keppnin verði spennandi og skemmtileg. Okkur sé spáð fimmta sæti en rétt er að hafa í huga að þegar leikurinn hefst standa allir jafnt að vígi,“ sagði Logi. Stefnum hærra en í fyrra „Við stefnum að sjálfsögðu að því að gera betur en í fyrrasumar, en þá urðum við í fímmta sæti, við hljót- um að hafa metnað til þess,“ segir Vignir Baldursson þjálfari Breiða- bliks, en þetta er fyrsta árið hans sem þjálfari liðs (1. deild. Blikum var spáð sjötta sæti. „Við misstum þijá leikmenn frá síðasta keppnistímabili og höfum fengið þrjá nýja auk þess sem tveir leikmenn, sem voru meiddir lengst af í fyrra, verða með núna þannig að við höfum eiginlega fengið fímm nýja frá því í fyrra. Ég á von á að deildin verði góð og jöfn og ég trúi að fleiri lið verði í baráttunni, bæði á toppi deildarinn- ar og botni. Við stefnun að sjálf- sögðu á efri hlutann," sagði Vignir. Hófiega bjartsýnn „Keppnistímabilið leggst bara nokkuð vel í mig, en ég er þó hóf- lega bjartsýnn. Markmiðið hjá okkur er að vera í efri hluta deildarinnar,“ sagði Sigurlás Þorleifsson þjálfari Vestmanneyinga. „Við höfum misst þrjá leikmenn og einn er meiddur sem stendur og óvíst að Ingi Sigurðsson geti leikið með í fyrsta leik. En við höfum feng- ið fleiri menn en við misstum og munar þar ef til vill mest um Frirðik [Friðriksson] í markinu og að Ómar [Jóhannsson] er kominn heim aftur, sagði Sigurlás. Um fyrsta leik ÍBV, gegn Val, i Eyjum sagði Sigurlás að leikir lið- anna undanfarin ár hefðu oftast ver- ið jafnir og skemmtilegir og endað með sigri annars liðsins. „Það verður sjaldan jafntefli þegar liðin leika saman og það hefur meira að segja loðað við að það lið sem vinnur fyrri leikinn vinni einnig síðari leikinn. Það eru því sex stig í pottinum á morgun [í dag] ef þetta gengur eftir," sagði Sigurlás. Verður mjög erfitt „Okkur hefur ekki gengið sérstak- lega vel í vor, þannig að ég á vorf á að þetta verði mjög erfítt hjá okkur í sumar,“ sagði Ölafur Kristjánsson, fyrirliði FH við Morgunblaðið. „Það hafa orðið mannabreytingar hjá okk- ur, fímm menn farnir og sex nýir komnir og það tekur tíma að púsla þessu saman. Ólafur sagði spána eins og hann bjóst við. „Samkvæmt henni lenduni við í sama sæti og í fyrra [8. sæti], en ætlum okkur auðvitað að gera betur. Við tökum hvem leik fyrir sig og teljum svo stigin í haust.“ Hann sagðist gera ráð fyrir mjög jafnri keppni, „og ef allir hjá okkur leggj- ast á eitt og gera sitt besta þá er ég viss um að við eigum eftir að hnekkja þessari spá — og þá meinj^. ég að við förum upp á við.“ KA-liðið betra en undanfarin ár Gunnar Gíslason, þjálfari og leik- maður KA, segir að liðið sé betra en mörg undanfarin ár. „Það kom mér á óvart er ég tók við, hversu mikið er til af efnilegum leikmönnum hjá félaginu. Við höfum æft mjög vel frá áramótum og ég held að liðið sé að komast í toppæfingu," sagði þjáflarinn. „Ætli ég spili ekki ( vörn- inni til að byija með og það er mögu- leiki að ég skelli mér á miðjuna líka en framar fer ég ekki,“ sagði Gunnar. „Það er virkilega gaman að mæta meisturunum í fyrsta leik. Ég veit að það er erfítt að byija mótið sem meistari. Við ætlum því að ganga á"*- lagið og gera okkar besta og fá þau þijú stig sem stefnt er að. En þeir ætla sér örugglega að byija eins og þeir enduðu í fyrra. Þetta verður því hörkuleikur." Markmiðið að halda sér uppi Þór frá Akureyri leikur nú í 1. deild eftir eins árs veru í 2. deild. „Við erum bjartsýnir á sumarið. Undirbúningurinn hefur verið nokk- uð góður enda verið góð tíð fyrir norðan í allan vetur. Það eru allir heilir hjá okkur og við getum stillt upp okkar sterkasta liði í fyrsta leik. Okkar markmið er að halda okkur í deildinni og síðan sjáum við til hvað setur,“ sagði JúlíusTryggvason, leik- maður Þórs. „Ég held að það sé bara gott að byija á Fram. Ég er sannfærður um að þetta verður hörkuleikur. Við ætlum okkur öll þijú stigin. Heima- völlurinn er alltaf sterkur og við verð- um að ná í sem flest stig heima.“ KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 1. deild — Samskipadeildin — hefst með þremur leikjum í dag og umferðinni lýkur á morgun:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.