Morgunblaðið - 23.05.1992, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 23.05.1992, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAI 1992 elst, maður hennar var Þorvaldur Helgason; Aðalheiður dvaldi lengst af í Kaupmannahöfn og dó þar, ógift og barnlaus; Ingunn átti Ág- úst Jónsson, bónda á Hofi. Theo- dóra, sem var yngst, giftist Stein- grími Ingvarssyni frá Sólheimum í Svínavatnshreppi. Foreldrar henn- ar ólu einnig upp tvo fóstursyni,. Björn Kristjánsson, síðast bifreið- arstjóra í Reykjavík, og Guðmund Jónasson, bónda að Ási í Vatnsdal. Báðir höfðu misst feður sína í æsku og heimili þeirra voru báglega stödd. Hallgrímur Hallgrímsson, faðir Theodóru, var einn af merkustu bændum landsins á öndverðri þess- ari öld. „Athafnamaður mikill, harðgerr og kappsfullur," segir í íslenskum æviskrám Páls Eggerts Ólasonar. Hann bjó í fyrstu á nokkrum bæjum í sýslunni, leigu- liði við kröpp kjör. Með sparnaði og eljusemi tókst honum að festa kaup á Snæringsstöðum í Svína- dal, sem þótti lítil jörð og fremur rýr (kaupverð var 2 þús. krónur). Svo er að sjá sem þar hafi þeim hjónum farnast ótrúlega vel þrátt fyrir mikla ómegð. A Snærings- stöðum bættist þeim Theodóra í barnahópinn. Það er einhvern tíma árs 1903, að Hallgrímur ríður í hlað á höfð- ingjasetrinu Hvammi í Vatnsdal. Þar bjó þá Benedikt Blöndal, sem tekið hafði við þessari miklu jörð eftir föður sinn, Björn Blöndal sýsl- umann. Þegar í stofu var komið og þeir Benedikt og Hallgrímur tóku tal saman, kom fljótlega í ljós hvert erindi Hallgríms var. Hann spurði Benedikt umbúðalaust hvort hann vildi selja sér Hvamm. Bene- dikt varð hvumsa við og sagði sem svo að komið hefði til tals að selja jörðina, en það væri óðs manns æði fyrir efnalítinn mann eins og hann að ráðast í slíkt stórræði. Hallgrímur sagðist eiga orðið Snæringsstaði svo til skuldlausa. Benedikt brosti og kvað þá eign aðeins dropa í hafið. Hvað svo sem farið hefur fleira á milli þeirra urðu lyktir þær að kaupin voru gerð. Hallgrímur reyndist traustsins verður og stóð ávallt í skiium með greiðslur fyrir jörðina. Þegar aðeins stóð þriðjungur eftir, fór Hallgrím- ur fram á að fá að greiða meira á gjalddaga en honum bar sam- kvæmt samningi, til þess að létta vaxtagreiðslur af eftirstöðvunum. Benedikt hafnaði boðinu, kvaðst ekki fá hærri vexti annars staðar. Hallgrímur kom upp myndarlegu búi í Hvammi á ótrúlega skömmum tíma. Árið 1911 byggði hann .... steinhús mikið, eitt hið fyrsta í héraðinu" (ísl. æviskrár V). Stærð hússins kom í góðar þarfir því að hýsa þurfti á þriðja tug manna þegar flest var í Hvammi og eru þá börn með talin. Það var um vorið árið 1915 að ég var fyrst sendur í sveit og þá til Hallgríms í Hvammi. Foreldrar mínir fóru með mig og stóðu við stutta stund. Fljótlega eftir að þau voru farin beindist athygli mín í fyrsta sinn að Theodóru. Sigurlaug móðir hennar vatt sér að henni og sagði eitthvað á þessa leið: „Theo- dóra mín, nú verður þú að gera stráknum skó í snatri. Hann eyði- leggur alveg á sér fæturna á þess- um bannsettu „dönsku skóm“. Venjulegir leðurskór þekktust þá varla í sveitum landsins. Það var síðan árvisst tilhlökkunarefni að fara að Hvammi á sumrin þar til foreldrar mínir fluttu til Seyðis- fjarðar 1918 að nokkurt hlé varð þar á. Talið er að Hallgrímur í Hvammi hafi verið auðugastur maður Hún- vetninga áður en hann greiddi út móðurarf barna sinna. Hann lánaði mörgum fé, ekki síður þeim sem minna máttu sín eða voru í nauð. Illar tungur gáfu í skyn að hann krefðist hárra vaxta. Það var al- rangt og ómaklegt. Einnig hef ég heimildir fyrir því frá föður mínum að í sýslumannstíð hans á Blöndu- ósi hafi Hallgrímur aldrei gengið að nokkrum manni eða staðið í málaferlum. Þegar hann lést árið 1927 átti dánarbúið útistandandi skuldir víða um héraðið. Guðjón 39 sonur hans var fenginn til að inn- heimta þær en gekk misjafnlega. Bæði var að efnahagur fólks fór þá sífellt versnandi uns botninum var náð á kreppuárunum og að Guðjón var mikið góðmenni og við- kvæmur, þótt hann bæri það ekki utan á sér. Hallgrímur minnkaði við sig búið eftir að hann missti konu sína 1921. Theodóra og Steingrímur giftu sig 5. júní 1920. Þau bjuggu eitt ár í Sólheimum, en fiuttu þá í Hvamm og tóku fljótlega við öðrum helm- ingi jarðarinnar. Guðjón og Rósa Níelsdóttir kona hans bjuggu á hin- um helmingnum og síðar Hallgrím- ur sonur þeirra eftir að þau fluttu að Marðarnúpi. Það var því til Theodóru og Steingríms sem ég fór aftur til sumardvalar í Hvammi, árið 1922, og seinna synir mínir hver eftir annan. Ég var látinn vaka yfir túninu og Theodóra tók jafnan til handa mér góðgæti á kvöldin til að hressa mig á ein- hvern tíma nætur. Steingrímur laumaði því hins vegar að mér svo lítið bar á að ég skyldi skreppa á bak þeim gráa. „Sá grái“ var for- láta gæðingur sem Hallgrímur átti og var aldrei hreyfður, samkvæmt skipun hans, þó að hesturinn væri stríðalinn allan veturinn. Hallgrím- ur fór jafnan fyrstur á fætur á morgnana og gáði þá til veðurs og að því hve vel væri rekið frá. Stund- um hraut króna í vasa minn í viður- kenningarskyni. Mig langar að rifja hér upp at- vik sem mér er sérstaklega minnis- stætt frá þessum árum í Vatnsdaln- um. Þá stóð ritdeilan sem hæst á milli Sigurðar Nordal og Einars H. Kvaran, sem var afi minn og mér þótti afar vænt um. Þessir tveir menn voru þá þekktastir þeirra sem alist höfðu upp í dalnum og töldu Vatnsdælingar sig full- sæmda af því framlagi til menning- arinnar. Það má segja að megnið af þjóðinni fylgdist með þessari deilu, sem stóð í hálft annað ár. Svo ritfimir voru þessir tveir menn, að lesendum fannst eftir hveija grein að sá hefði betur sem síðast hafði orðið. í Vatnsdalnum var þessu örlítið á annan veg farið. Þar réðu ættartengsl eða vinátta af- stöðu manna. Það gekk svo langt að hundinum á einum bænum var gefið nafnið Kvaran en Nordal á öðrum. Ég var eitt sinn staddur þar sem menn voru við skál í rétt- um. Allt í einu laust hundum þar saman í harkalegum áflogum. Öskraði þá sá sem á flöskunni hélt: „Þegi þú Kvaran og snautaðu burtu.“ Ég gerði mér fljótlega ljóst hvaðan nafngiftin væri runnin og var mjög miður mín í marga daga. Theodóra varð þess vör og komst að hinu sanna. Það gustaði svolítið af henni fyrst í stað, en hundarnir urðu að sætta sig við að gegna óvirðulegri nöfnum eftir þetta og þóttu setja nokkuð niður. Theodóra líktist föður sínum í mörgu. Hún var kappsfull og fork- ur dugleg og lét vel að stjórna fólki, en jafnframt hafði hún erft við- kvæmt geð móður sinnar. Stein- grímur var hæggerðari að eðlisfari en framfarasinnaður og ekki ör- grannt um að gamla manninum, tengdaföður hans, þætti hann stundum fullnýtískulegur í búskap- arháttum. En þeim Theodóru bún- aðist vel. Steingrímur var einstakt ljúfmenni og dagleg samskipti þeirra hjóna báru vott um gagn- kvæma tillitssemi, ást og virðingu. Það var Theodóru þungt áfall er Steingrímur féll frá á besta aldri eftir uppskurð á sjúkrahúsi í Reykjavík árið 1947. Theodóra hélt áfram búskap í Hvammi af höfðinglegri reisn með aðstoð barna sinna. Ingvar er þeirra elstur, nú bóndi á Eyjólfs- stöðum, kvæntur annarri heima- sætunni þar, Ingibjörgu Bjarna- dóttur, og þau eiga fjögur börn. Heiðar fluttist til Reykjavíkur og var kunnur langferðabílstjóri þar til hann gekk svo fram af sér við björgun fólks úr lífsháska á Fimm- vörðuhálsi að heilsa hans beið af varanlegt tjón. Reynir gekk að eiga Salóme Jónsdóttur frá Akri og þau bjuggu í góðu sambýli við Theod- óru í Hvammi í nokkurn tíma áður en þau tóku alveg við búinu. Reyn- ir var mannkostamaður sem lést langt um aldur fram árið 1989. Þau eignuðust tvær dætur. Sigur- laug, sem er yngst systkinanna, er gift Hauki Pálssyni mjólkur- fræðingi og ostameistara á Sauðár- króki. Þau eiga tvö börn. Þegar Theodóra fluttist til Reykjavíkur 1962, réðist hún um haustið ráðskona til Halldórs Jóns- sonar frá Arngerðareyri. Þau áttu vel skap saman því Theodóra kunni að meta glettni Halldórs og frá- sagnargáfu. Hún annaðist um hann í nokkur ár. Eftir það bjó hún ein í leiguhúsnæði þar til hún vegna heilsubrests fluttist á Héraðshælið á Blönduósi 1984. Það orð hefur farið af Austur- Húnvetningum að þeir væru stór- bokkar og sætu ekki ávallt á sárs höfði heima í héraði. Þess virðist ekki gæta eftir að þeir eru fluttir á mölina. Theodóra hafði bundið tryggð við sveitunga sína og hélt góðu sambandi við þá hér fyrir sunnan. Einkum var kært með henni og Stefaníu frænku hennar Eðvarðsdóttur frá Helgavatni, sem sýndi henni mikla ræktarsemi. Jafnframt eignaðist hún fjölmarga nýja vini sem löðuðust að henni vegna glaðværðar hennar og heil- steyptrar skapgerðar. Theodóra var sköruleg kona og fijálsmannleg í fasi og ekki fór hjá því að eftir henni væri tekið á mannamótum, einkum er hún klæddist íslenska búningnum, sem hún bar einstak- lega vel. Við hjónin erum þakklát fyrir að hafa átt vináttu Theodóru, sem stofnað var til með sumardvöl minni í Hvammi fyrir nærri 80 árum og ég og fjölskylda mín hafa notið æ síðan. Nú, þegar lífssól Theodóru er hnigin til viðar, óska ég þess að í nýrri tilvist, sem hún trúði að tæki við, njóti hún þess að hrífast jafnmikið og þegar hún sat við norðurgluggann í Hvammi og horfði hugfangin á miðnætur- sólina lýsa upp dalinn sinn. Sigurður Arnalds. Mig langar að kveðja með nokkr- um orðum aldraða heiðurskonu, Theodóru Hallgrímsdóttur frá Hvammi í Vatnsdal, sem í dag er til moldar borin frá Undirfells- kirkju. Hún lést á Blönduósi 13. þessa mánaðar. Ævin var orðin býsna löng og að hvíldinni komið, hún varð 96 ára gömul síðastliðið haust. Nú í vor eru rétt 40 ár liðin síð- an fundum okkar bar fyrst saman, en vorið 1952 kom ég í fyrsta skipti í Hvamm, aðeins fimm ára gamall, til sumardvalar hjá Theodóru. Theo- dóra var þá ekkja og bjó myndar- búi í Hvammi með aðstoð fjögurra barna sinna. Eiginmaður hennar, Steingrímur Ingvarsson, en undir- ritaður ber nafn hans, lést fyrir aldur fram árið 1947. Vinskapur ijölskyldna okkar stóð á gömlum merg. Faðir minn, Sigurður, hafði verið í sveit í Hvammi, og síðan eldri bræður nn'nir, Jón og Ragnar. Þarna var mér tekið opnum örmum, og Theodóra varð mér eins og önn- ur móðir fyrstu árin í sveitinni, meðan hún bjó í Hvammi. Heimili Theodóru í Hvammi var sérlega myndarlegt, og vel var fylgst með framförum í búskapar- háttum. Hún var skörungur, sem allir báru mikla virðingu fyrir, hafði talsvert skap en var um leið hrein- skiptin, en fyrst og fremst var hún félagslynd, gestrisin og' glaðlynd. Ég minnist þess einnig hye grunnt var á viðkvæma strengi. Á skilnað- arstundu á haustin í sveitinni, og löngu síðar þegar framundan voru langar fjai"vistir í öðrum löndum, klökknaði hún og mátti ekki mæla, tár voru í hvörmum, og umhyggju og hlýju stafaði frá þessari konu, sem annars var svo æðrulaus. Á tyllidögum klæddist Theodóra betri fötum þess tíma, peysufötun- um, og ég man hve mikil reisn var yfir henni við slík tækifæri. Betri stofan á heimilinu var mjög vel búin og yfirleitt ekki notuð nema við gestakomur og hátíðleg tæki- færi, en þaðan mátti þó stundum heyra í húsfreyjunni þegar tóm gafst frá miklum önnum. Þá spilaði hún á orgelið sér til upplyftingar og raulaði undir. í Hvammi var margt í heimili og í mörgu að snúast, líklega var ekki á það bætandi að sjá einnig um fimm ára snáða að sunnan. Ekki var þó að sjá að munaði mikið um einn strákling og Theodóra skrúbb- aði hann með sonardætrum sínum í bala á eldhúsgólfinu, allir fengu sinn skammt af stríðni og mikið var hlegið. Stráklingurinn varð svo smám saman að einhveiju gagni, fyrst við kúareksturinn og síðan heyskap og önnur sumarstörf. Sonur Theodóru, Reynir, og kona hans, Salóme Jónsdóttir frá Akri, tóku við búinu nokkrum árum síð- ar, og ég varð sumarmaður þeirra. Theodóra dvaldist um sinn áfram í Hvammi, en árið 1962, þegar hún var 67 ára, fluttist hún til Reykja- víkur og réðst þar til Halldórs Jóns- sonar frá Arngerðareyri við Djúp. Hann bjó við Rauðarárstíg, og þar átti Theodóra allmörg mjög góð ár sem ráðskona, því afar vel fór á með þeim Halldóri. Heimsóknir á Rauðarárstíginn voru skemmtileg- ar, þar ríkti glaðværð og gott and- rúmsloft, og á góðum stundum sett- ist Theodóra við orgelið og tók lag- ið. Síðar bjó Theodóra í nokkur ár í Eskihlíð, en árið 1984, á áttug- asta og níunda aldursárinu, flutti hún aftur norður í Húnavatnssýslu, á Héraðshælið á Blönduósi. Með fjölskyldum okkar voru náin tengsl eftir að Theodóra flutti suð- ur. Hún var eins og ein af fjölskyld- unni í jólaboðunum hjá foreldrum mínum og við önnur tækifæri, þeg- ar íjölskyldan kom saman. Og þeg- ar börnin mín voru skírð voru ekki vandræði með forsöngvara. Theodóra eignaðist fjögur börn, Ingvar bónda á Eyjólfsstöðum, Heiðar bílstjóra í Reykjavík, Reyni bónda í Hvammi og Sigurlaugu húsmóður á Sauðárkróki. Reynir, húsbóndi minn i Hvammi og vinur, lést árið 1989. Það var gömlu kon- unni mikill harmur, hún átti þess síst von að lifa yngsta son sinn. Margra ára sumardvö! í sveit hjá góðu fólki var ómetanlegur hluti af uppvexti og uppeldi ungs manns, sem lengi er búið að. Fyrir það og áframhaldandi vináttu á fullorðins árum minnist ég Theodóru Hall- grímsdóttur með þakklæti og virð- ingu. Siguróur Steingrímur Arnalds. Fleiri minningargreinar um Theodóru Hallgrímsdóttur bíða birtingar og birtast næstu daga. t Eiginkona mín og móðir okkar, HÓLMFRÍÐUR SIGHVATSDÓTTIR frá Ragnheiðarstöðum, lést í Landspítalanum 21. maí. Kjartan Guðmundsson, Guðmundur Kjartansson, Sighvatur Kjartansson. t Útför systur minnar, GUIMNÞÓRU BJÖRNSDÓTTUR, áðurtil heimilis á Selvogsgötu 17, Hafnarfirði, sem andaðist að Sólvangi í Hafnarfirði 18. þ.m., fer fram frá kirkju Hvítasunnusafnaðarins í Reykjavík mánudaginn 25. maí nk. kl. 13.30. Kristin Björnsdóttir. t Ástkær eiginkona mín, amma og langamma, LILI HJÖRDI'S AUÐUNSSON, Tunguvegi 6, Hafnarfirði, lést föstudaginn 22. maí sl. Útför verður auglýst síðar. Þorsteinn Auðunsson, Þorsteinn Auðunn Pétursson, Ingunn St. Einarsdóttir, Hjálmar Þ. Pétursson, Lovísa Þórðardóttir, Róbert Einar Pétursson, Mikael Árni Bergmann Þorsteinsson. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ANTON S. ÓLASON frá Hauganesi, Árskógsströnd, lést að kvöldi 21. mai í Fjórðungssjúkrahúsinu á (safirði. ' Jarðarförin verður auglýst síðar. Selma Antonsdóttir, Halldór Antonsson, Anna Marfa Antonsdóttir, Óli Vernharður Antonsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. t Ástkær eiginkona mín , móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, JÓHANNA SVAVA INGVARSDÓTTIR, Strembugötu 4, verður jarðsungin frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, ídag, laugar- daginn 23. maí, kl. 14.00. Ögmundur Sigurðsson, Sigurður Þór Ögmundsson, Ingibjörg Ólafsdóttir, Ingvi Björgvin Ógmundsson, Hafdís Danfelsdóttir, Oddný Ögmundsdóttir, Halldór B. Árnason, Guðbjörg Ögmundsdóttir, Þórir Tello, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.