Morgunblaðið - 23.05.1992, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.05.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1992 9 KANARIEYJAR Hvers vegna ekki Kanaríeyjar í fríinu? Þú sérð um flugið en við um gistinguna. Getum nú útvegað góða gistingu á Gran Canaria. Hafðu samband. Ef til vill er þetta valkostur sem borgar sig. Upplýsingar í síma (903428)-560895 eða 150222 (biðja á um línu 280). TANNLÆKNASTOFA Hef opnað tannlæknastofu mína í Hamraborg 7, Kópavogi (áður í eigu Hermanns Jóns Ásgeir ssonar). Viðtalsbeiðnum veitt móttaka í síma 42515. ATH.: Einnig opið á laugardögum. Ragnar Kr. Árnason, tannlæknir. Garðeigendur - sumarbústaðaeigendur Bjóðum upp á meira en 100 tegundir trjáplantna og runna á mjög hagstæðu verði. Verðdæmi: Birki í pottum á kr. 250. Fjallafura frá kr. 600. Hansarós frá kr. 410. Alaskavíðir og aspir frá kr. 79. Blátoppurkr. 190. Sérstakt úrval sígrænna plantna. Magnafsláttur - greiðslukjör. Verið velkomin. Sendum plöntulista. Trjáplöntusalan Núpum, Ölfusi, (beigt til hægri við Hveragerði), sími 98-34388 og 985-20388. KIRKJUREIÐ FÁKS verður sunnudaginn 24. maí. Farið verður frá efri Fákshúsum kl. 9.30 og neðri Fákshúsum kl. 10.30. Messan hefst kl. 11.00 í Langholtskirkju. Prestur Séra Ingólfur Guðmundsson. Predikun séra Sigurður Haukur Guðjónsson. Lárus Sveinsson verður með blásarasveit, Signý Sæmundsdóttir syngur einsöng, Gunnar Eyjólfsson og Klemens Jónsson lesa. Félagar úr kór Langholtskirkju og Fákskórnum leiða safnaðarsöng. Hægt verður að kaupa kjötsúpu eftir messu. Mætum vel. Fákur. REYKLAUS DAGUR 1. JÚNÍ Tilefnið sent þú beiðst eftir? Búðu þig undir að hætta að reykja Leiðbeiningarrit Krabbameinsfélagsins ÚT ÚR KÓFINU og EKKI FÓRN - HELDUR FRELSUN fást ókeypis á heilsugæslustöðvum um land allt, í mörgum apótekum og hjá Krabbameinsfélaginu. Reyklaus dagur - reyklaus framtíð! TÓBAKSVARNANEFND Tveir þriðju þjóðarinnar búa á svæðinu Rannveig Guðmunds- dóttir sagði í framsögu: „Það svæði sem nefnt er Landnám Ingólfs er Gullbringu- og Kjósár- sýsla, Þingvallahreppur vestan þjóðgarðs, Grafn- ingshreppur og brot af Selfosshéraði. Land- svæði þetta takmarkast af linu sem dregin er úr Hvalfjarðarbotni í þjóð- garðinn á Þingvöllum og þaðan suður Þingvalla- vatn, Úlfyótsvatn og Sog og Olfusá til sjávar. Sér- staða þessa svæðis er mjög mikil hvað varðar búsetuþróun því mikill meirihluti landsmanna, eða tveir þriðju iilutar, býr á þessu svæði. I landnámi Ingólfs eru 20 sveitarfélög og yfirgnæf- andi meirihluti íbúa býr í þéttbýli. I Landnámi Ingólfs eru 17 friðlýst svæði sem skiptast þannig eftir gerð friðlýsingar: einn þjóðgarður, fjögur frið- lönd, átta náttúruvætti og fjórir fólkvangar." Landvernd og efling gróður- lendis Rannveig sagði og: „Mikill áliugi hefur verið á því á undanförn- um árum meðal áhuga- fólks um verndun og efl- ingu gróðurs í landinu að þetta svæði verði frið- að fyrir lausagöngu bú- fjár. Hafa félögin Líf og land, Landvemd og Ar- nesingafélagið í Reykja- vík ítrekað bent almenn- ingi og stjórnmálamönib um á að brýna nauðsyn ber til þess að hefta hina geigvænlegu jarðvegs- og gróðureyðingu sem orðið hefur, og allt of viða viðgengst enn á suð- Úr plöntuuppeldi Reykjavíkurborgar í Laugardalnum. Friðun Landnáms Ingóifs fyrir lausagöngu búfjár „Alþingi ályktar að fela umhverfisráðherra að vinna að áætlun í samvinnu við viðkomandi sveitarfélög sem miði að því að koma í veg fyrir lausagöngu búfjár í „Landnámi Ingólfs". Aætlunin verði lögð fyrir Alþingi í upphafi næsta þings, 1992.“ Þannig hljóðar þingsálykt- unartillaga flutt af Rannveigu Guðmundsdóttur (A-Rn) og sjö öðrum þingmönnum úr öllum þingflokkum. vesturhorni landsins. Landvemd hélt sérstaka ráðstefnu árið 1984 um landnýtingu og landnotk- un á svæðinu, náttúm- vemdai’þing ályktaði um málið á sl. hausti og sendi frá sér áskomn til Al- þingis og félagasamtök skipuð áhugamönnum um verndun og eflingu gróðurs í landinu hafa bundizt samtökum um að vinna að framgangi þess að Landnám Ingólfs verði friðað fyi-ir lausa- göngu búfjar." Ekki verið að banna búfjár- hald Valgerður Sverrisdótt- ir (F-Ne), sagði í umræð- unni: „Eg geri mér grein fyrir þvi að hér er um mjög viðkvæmt mál að ræða sem snertir vissu- lega lífsafkomu fólks og í þessu tilfelli bænda þó svo að hér sé ekki verið að tala um það að banna búfjárhald, heldur að banna lausagöngu. En þar sem hér er ekki ver- ið að tala um valdboð frá Alþingi heldur verið að leggja til samstarf eða samvinnu við viðkomandi sveitarfélög sem eigi að hafa það að markmiði að koma í veg fyrir lausa- göngu, þá finnst mér málið vera miklu betra. Eg sem sagt legg áherzlu á að þarna verði um sam- vinnu að ræða enda hef- ur það komið fram í máli flutningsmanns að það er einmitt það sem hún er að tala um líka. Einmitt þarf að vera samvinna og samstarf hvað snertir kostnað því það gefur augaleið að það að viðkomandi bænd- ur þurfi að færa sitt sauðfé inn í beitarhólf eða girðingar kostar pen- inga. Mér er kunnugt um það að hér er ekki um mörg stórbýli að ræða heldur miklu frekar um smæi-ri bú og þeim hefur verið að fækka þannig að e.t.v. má segja sem svo að eftir einhern ákveðinn tíma séu líkur á því að búfjárhald á þessu svæði verði orðið miklu minna. Eg er ekki að segja að það leggist af en alla vega er þróunin í þá átt.“ Fordæmi úr Eyjafjarðarsveit Jöhannes Geir Sigur- geirsson (F-Ne) benti á það í máli sínu að á rúm- um áratug hefði sauðfé í landinu fækkað um tæp- lega helming (úr yfir 900.000 niður fyrir 500.000). Sauðfjáreign landsmanna þurfi ekki að standa í vegi fyrir því að menn nái víðtækri samstöðu um gróður- vernd og endurheimt gróðurlands. „Ég vil einnig benda á það,“ sagði hann, „að á þessum málimi hefur víða verið tekið. Ég get upplýst það hér að í minni heima- sveit, Eyjafjarðarsveit, sem í dag er langfjöl- mennasti sveitahreppur landsins, er lausaganga búfjár á stofnbrautum og þjóðvegum bönnuð.“ Geir sagði efnislega að rangt væri að ræða um bændur sem vandamál þegar gróðurvernd ætti í hlut, lykillinn að far- sælli lausn væri samráð og samstaða við bændur, sem hefðu lifibrauð af hefðbmidum búskap, og vitnaði í því sambandi til ræðu dr. Björns Sigur- bjömssonar, eins af framkvæmdastjórum FAO, á Húsavíkurráð- stefnu um gróðurvemd. Tillagan fékk mun meiri umræðu en hér er rakið en varð ekki út- rædd. ÞAÐ ER UM HELGINA sem er opið hús hjá okkur í Innval laugardag kl. 11-16 og sunnudag kl. 13-16 PROFIL einingareldhús -15% verðlækkun til 15. maí. PROFIL innréttingaeiningar eru á lægra verði en þú átt að venjast, og það er ekkert slakað á kröfum um gæði. BIGA sérsmíðaðar gæðainnréttingar í eldhús og á bað. 600 litir og óteljandi valkostir. Ekkert eldhús er eins og baðinn- réttingarnar tjölbreyttar og óveiyulegar. ÍSLANDSSTIGINN frá sænsku stigaverksmiðjunni Trátrappor ab hefur slegið í gegn á íslandi. Hagastætt verð og fjölbreytt úrval. Hver stigi er framleiddur eftir teikningu. 125 íslandsstigar hafa nú selst. LUXLINE nýja fataskápaiínan okkar er einstök. Ailir skápar eru sér- smíðaðir. Hurðir eru á nýjum hjólabrautum og eru sniðnar eftir þínum málum. Margvíslegt útlit m.a. speglar. -t%LL SERVERSLUN MEÐINNRETTINGAR OG STIGA NYBYLAVEGI 12, SIMI 44011

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.