Morgunblaðið - 23.05.1992, Blaðsíða 10
10
Akranes
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1992
Vignir Jóhannsson
sýnir olíumálverk
Vignir Jóhannsson, myndlistarmaður, opnaði í gær sýningu á rúm-
lega 50 myndum á sal Tónlistarskóla Akraness, en nú er langt um
liðið síðan Vignir hélt sýningu í þessum heimabæ sínum. Flestar
myndanna á sýningunni eru lítil olíumálverk sem hafa verið unnin
á síðustu mánuðum.
ið núna en ég hef gert áður, þann-
ig að ég vinn margar myndir í einu.
Eg nota þynnri lög af málningu
og þau þurfa að þorna áður en
hægt er að halda áfram. Ef ég
ynni bara með eina mynd í einu,
tæki mig óratíma að koma henni
frá mér. Ég hef ekki þolinmæði í
slíkt.“
Undanfarin fimm ár hefur Vign-
ir eingöngu lifað af list sinni og í
nokkur ár þar á undan amð mestu
leyti með ígtripavinnu. Það verður
að teljast nokkurt afrek að hafa
náð þeim sessi á ekki lengri tíma,
þar sem samkeppni í listinni er
ekki síður hörð vestahafs en ann-
ars staðar.
í ritinu „Singular vision" sem
gefíð er út af Museum of New
Mexico er hans til dæmis getið sem
eins fremsta skúlptúrlistamanns
þess ríkis. hann er þar í hópi
margra kunnra bandarískra lista-
manna og reyndar sá eini sem
ekki er bandarískur ríkisborgari.
Það segir kannski meira en mörg
orð um þann sess sem Vignir hef-
ur náð að skapa sér. Vignir hélt
tvær einkasýningar á verkum sín-
um á síðasta ári og hefur á þessu
ári tekið þátt í nokkrum samsýn-
ingum.
Um samkeppni og samanburð
segir Vignir: „Vissulega er sam-
keppnin í listinni hörð í Bandaríkj-
unum, rétt eins og annars staðar.
Persónulega finnst mér hinsvegar
dálítið mikið um það núna að lista-
menn sveigi sig að kröfum markað-
arins, vinni verk sem þeir vita fyrir-
fram að gangi út, fremur en að
þeir séu að vinna listinni sjálfri til
framdráttar. Auðvitað eru þeir til
líka sem hugsa fyrst og fremst um
listina, en þeir eru færri en hinir.“
Vignir vakti fyrst á sér athygli
fyrir afburða snjallar teikningar
Á Akranesi - húsbréf
Til sölu 4ra-5 herb. íbúð í tvíbýli á góðum stað í neðri
bænum. Hús og íbúð í góðu standi m.a. nýlegt þak,
gluggar, rafmagn o.fl. íbúðinni fylgir 25 fm geymslu-
skúr. Áhv. ca 1,3 millj. Verð 4,9 millj. Kjörin fyrir húsbréf.
Nánari upplýsingar í síma 91-677424.
: :
21150-21371 \ LÁRUS Þ. VALDIMARSS0N framkvæmdastjóri / KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggiltur fasteignasali
Til sýnis og sölu meöal annarra eigna:
Með 40 ára húsnláni kr. 5,0 millj.
Ný ib. 3ja-4ra herb. í Grafarvogi næstum fullg. Sérþvhús. Frág. sam-
eign. Góður bílsk. Eignaskipti mögul. Tilboö óskast.
Úrvalsíbúð öll eins og ný
3ja herb. íb. tæpir 70 fm nettó á 1. hæð v/Hraunbæ. Sérinng. Nýjar
innr. og tæki af bestu gerð. Mjög góð sameign.
í Vogunum - hagkvæm skipti
Einbhús vel byggt og vel með farið ein hæð 165 fm auk bílsk. 5 svefn-
herb., 2 stofur m.m. Skrúðgarður. Eignaskipti mögui.
Skammt frá Fossvogsskóla
mjög góð 5 herb. íb. 120 fm á 2. hæð. 4 svefnherb., sólsvalir. Sér-
þvhús. Fráb. staður. Bilsk. fylgir.
Einbhús í Suðurbænum í Hafnarf.
Steinhús ein hæð 130 fm auk bílsk. 36 fm. Nýendurbyggt og stækk-
að. Ræktuð lóð 630 fm. Mjög gott verð. Eignaskipti mögul.
Góðar eignir í Vesturborginni
Skammt frá Hótel Sögu 3ja herb. íb. mikið endurn. á 3. hæð. Risherb.
fylgir. Góð geymsla í kj.
Skammt frá KR-heimilinu 3ja herb. íb. á 1. hæð í 10 ára blokk. Park-
et. Sólsvalir. Góð geymsla í kj.
Endaraðhús í Seljahverfi
Steinhús á þremur hæðum um 240 fm v/Brekkusel á útsýnisstað.
Séríb. má gera á 1. hæð. Góður bílsk. Ýmiss kónar eignaskipti mögul.
• • •
Opið í dag kl. 10-16.
Fjöldi fjársterkra kaupenda.
Margs konar eignaskipti.
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
AIMENNA
FASTEIGNASALAW
„Það hefur oft verið fundið að
því við mig í gegnum tíðina, hvað
ég mála stórar myndir og að það
sé ekki nokkur leið að koma þess-
um verkum fyrir í heimahúsum,“
segir Vignir. „Að vissu leyti er
þessi sýning því tilraunastarfsemi
af minni hálfu. Ég hef ekki áður
verið með svona litlar myndir.
Olíverkin eru afstrakt og það
má segja að í þeim sé ákveðið
þema. Þær eru auðvitað ekki eins
en það er viss þráður sem gengur
í gegnum þær allar. Einþrykks-
myndirnar eru undir yfirskriftinn-
i„Akranesóður“ og tengjast allar
Akranesi á einhvem hátt. Ég beiti
dálítið annarri aðferð við málverk-
Borgarráð:
Hverfafélög
fá styrk til
hreinsunar
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að veita 500 þúsund króna auka-
fjárveitingu til hverfafélaga og
íbúasamtaka í borginni vegna
hreinsunarátaka.
Vegna hreinsunar- og fegrunar-
daga í flestum hverfum borgarinn-
ar, sem íbúasamtök og hverfafélög
ásamt foreldrasamtökum standa
fyrir, er farið fram á aukafjárveit-
ingu. í erindinu kemur fram að
vorhreingemingunum ljúki oft
með grillveislum og leikjum barna
og fullorðinna og er stuðningur
borgarinnar miðaður við þátttöku
í kynningum og auglýsingum,
grillveislum, leiktækjum og hljóð-
kerfi.
Mikilvægt að GATT-
samningarnir nái til
landbúnaðarafurða
- sagði viðskiptaráðherra á fundi OECD
JÓN Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra, sagði í ræðu á ráð-
herrafundi OECD í París fyrr í vikunni að mikilvægt væri að lækk-
un tolla og viðskiptahindrana innan GATT næði til landbúnaðaraf-
urða ekki síður en til annarrar vöru og þjónustu. Einnig yrði nýr
GATT-samningur að ná til viðskipta með sjávarafurðir þannig að
tollar á þeim lækkuðu og takmarkanir á viðskiptum yrðu afnumdar.
Vignir Jóhannsson
og svo grafíkmyndir. Síðan færði
hann sig yfir í olíumálverk og síð-
an tóku skúlptúrverk við. Þótt
áherslan hafi verið mest á skúlpt-
úrinn á seinustu ámm, hefur hann
ekki lagt aðra tækni á hilluna. „En
ég er alveg hættur að fjöldafram-
leiða grafíkmyndir,“ segir hann.
„Það verkar svo heftandi á sköpun-
argáfuna að vera alltaf að vinna
með sömu myndina, kannski vikum
saman.“
Sýning Vignis á Akranesi verður
opin um helgar frá klukkan L4.00
til 18.00 og virka daga frá klukkan
17.00 til 21.00. Henni lýkur 31.
Árlegur ráðherrafundur OECD,
Efnahags- og framfarastofnunar-
innar, var haldinn í París dagana
18. og 19. maí og sótti Jón Sigurðs-
son fundinn af hálfu íslands. I frétt-
atilkynningu frá viðskiptaráðuneyt-
inu segir að umræður á fundinum
hafí einkum snúist um þrennt; efna-
hagsástandið í iðnríkjunum, al-
þjóðaefnahagskerfíð og stöðu
OECD í breyttum heimi.
í fréttatilkynningunni kemur
fram að í umræðum á fundinum
hafi Jón Sigurðsson bent á að þótt
spáð væri efnahagsbata í nánustu
framtíð gæti þar brugðið til beggja
vona og efnahagsástand í helstu
iðnríkjum takmarkaði svigrúm
stjórnvalda til örvandi aðgerða. Þá
hafi viðskiptaráðherra vikið að at-
vinnumálum og sagt að langvarandi
atvinnuleysi fæli í sér ranglæti sem
á endanum hlyti að spilla samheldni
í þjóðfélaginu. Af þessum sökum
væri mikilvægt að auka hagvöxt. Á
íslandi hefði nú tekist að koma
verðbólgunni verulega niður fyrir
meðaltal OECD og uppsveifla í al-
þjóðae|nahagsmálum myndi því
gera íslendingum kleift að hefja
nýtt framfaraskeið á grundvelli
stöðugleika.
í umræðum um aiþjóðaefnahags-
kerfíð kom fram, samkvæmt frétta-
tilkynningunni, eindreginn vilji allra
til að Úrúgvæ-samningalotu GATT-
viðræðnanna lyki sem fyrst. Jón
Sigurðsson hafí lýst þeirri skoðun
sinni að mikilvægt væri að lækkun
tolla og viðskiptahindrana innan
GATT næði til landbúnaðarafurða
og að nýr samningur þyrfti einnig
að ná til viðskipta með sjávarafurð-
ir. Þjóðir heims tengdust hver ann-
arri æ sterkari efnahagsböndum og
það krefðist alþjóðlegra reglna svo
að eðlileg og sanngjörn samkeppni
ríkti á heimsmarkaði. Þetta hafi
verið haft að leiðarljósi við stofnun
Evrópska efnahagssvæðisins.
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 641. þáttur
Bernharð Haraldsson skóla-
meistari sendir mér, sem stundum
fyrr, gott bréf og leitar álits um-
sjónarmanns um fjögur atriði: 1)
Hann hefur heyrt í auglýsingum
í útvarpinu (fyrst í júlí 1990) orð-
ið „uppítökubíll" og skildi ekki
umsvifalaust hvað það merkti.
(Umsjónarmanni hefði helst dottið
í hug gamall „rúntur“ og ,,húkk“.)
Litlu síðar heyrði Bernharð orðið
„uppítökuverð“ (þá hefðu illar
grunsemdir læðst að umsjónar-
manni). En loksins tókum við
Bernharð Haraldsson að skilja
hvað átt væri við með þessum
vafasömu orðum. Bréfritari segir
orðrétt: „Fyrir tæpu ári var fjöl-
skyldubíllinn á heimilinu end-
urnýjaður og keypt bifreið sömu
gerðar. Gamla bílinn tók umboðið
fyrir umsamið verð og greiddi ég
mismuninn í peningum. Líklega
hef ég þá selt „uppítökubíl" fyrir
„uppítökuverð“.
2) Næst var „forfallasæti“.
Þetta heyrði B.H. um páskana í
auglýsingu frá ferðaskrifstofu.
Þær hafa sumar að vísu „forfall-
ast“, en við höldum að þetta
óheppilega orð sé haft um sæti
sem losna í flugvéi, þegar ein-
hver, sem ætlaði með, hefur for-
fallast á síðustu stundu.
3) Við B.H. erum fullkomlega
á einu máli um að varanlegur
sé miklu betra en „viðvarandi“.
Við höldum að síðara orðið sé
dönskusletta.
4) B.H. las í fyrirsögn á íþrótta-
síðu þessa blaðs: „Hæst launuð-
ustu knattspyrnumenn í Evrópu“
og spyr hvort ekki sé neitt athuga-
vert við þetta. Jú, heldur en ekki.
Þarna er tvöföld stigbreyting.
Ruud Gullit er einn hinn hæst
launaði knattspyrnumaður í Evr-
ópu (og þótt víðar væri leitað).
Að svo mæltu þakkar umsjón-
armaður B.H. fyrir bréfið og um-
hyggju hans fyrir móðurmálinu.
★
Þá er komið að kvenkynsorðum
i-stofna, sjá næstsíðasta þátt. Við
munum að þessi orð enda á ir
bæði í nefnifalli og þolfalli fieir-
tölu. I þessum hópi eru öll þau
orð sem enda á un, an og fjöldi
annarra. Beygingin er ekki flókin,
en nokkur þessara orða enda
stundum, og stundum ekki, á u í
þágufalli eintölu. En sjáum þetta
nú af dæmum:
1) þökk — þökk — þökk —
þakkar; þakkir — þakkir —
þökkum — þakka. 2) verslun —
verslun — verslun — verslunar;
verslanir — verslanir — verslun-
um — verslana. 3) jörð — jörð
— jörð(u) — jarðar; jarðir —
jarðir — jörðum — jarða.
Eins og þökk beygist aragrúi
orða, dæmi: ást, brún, búð, dáð,
drótt (=fólk), dyg(g)ð, eirð,
frétt, glóð, hlíð, húð, krás, leið,
mynd, nefnd, norn, ósk, písl,
raun, rós, sorg, sótt, tíð og und
(=sár).
Eins og verslun til dæma: bil-
un, borgun, köllun, líðan, rækt-
un, skemmtun, þvingun. Sem sjá
má eru þau mynduð af veikum
sögnum eftir fyrsta flokki, og
fylgir þeim mikil kjóra nýyrða,
eins og hlustun og kostun.
Eins og jörð beygjast meðal
annarra: borg, fold, grund,
hjörð, hurð, mold, röst, sál,
stund, þjóð, öld og önd.
Þetta eru sem sagt i-stofnar,
og stundum verður i-hljóðvarp
og stundum ekki, og því verða til
tvímyndir, eins og sjón — sýn,
gátt — gætt og sátt — sætt.
Endurtekið skal frá kafla um
iö-stofna að brúður, unnur og
vættur (=vera) fara í eintölu sem
iö-stofnar, en í fleirtölu sem i-
stofnar, dæmi: vættur — vætti
— vætti — vættar; vættir —
vættir — vættum — vætta.
Að síðustu skai þess getið, að
orðið alin er talsvert óreglulegt:
alin — alin — alin — álnar; áln-
ir — álnir — álnum — álna.
★
Senn er klukkan orðin átta,
er því mái að klæða sig.
Svona er að fara seint að hátta,
sofa lystir ennþá mig.
Gæti eg samt á fætur farið,
fengi eg kaffi og brennivín.
Hæ! á dyrnar hægt er barið,
eg held það rætist óskin mín.
Viljið þið nú ekki segja mér
eftir hvern þetta er? Þessu fylgir
kveðja til Marðar Árnasonar, með
vísun til lokakaflans í hinni
skemmtilegu bók hans, Málkrók-
ar.
★
„Hún [Steinvör á Sandhaugum]
signdi sig og mælti: „Þetta er
ófæra; eða hvað gerir þú þá af
meyjunni?“ „Sjá mun eg ráð til
þess,“ segir hann [Grettir] og
greip þær upp báðar og setti ina
yngri í kné móður sinnar og bar
þær svó á vinstra armlegg sér,
en hafði lausa ina hægri hönd og
óð svó út á vaðið. Eigi þorðu þær
að æpa, svó vóru þær hræddar,
en áin skall þegar upp á brjósti
honum. Þá rak að honum jaka
mikinn, en hann skaut við hendi
þeiri, er laus var og hratt frá sér.
Gerði þá svó djúpt, að strauminn
braut á öxlinni; óð hann sterkliga,
þar til kom að bakkanum öðrum
megin, og fleygir þeim á land.“
(Grettis saga, 64. kafli.)
★
Stefán M. Halldórsson kvað:
Ein brosandi feima frá Fjóni
í ferðalag brá sér á Ijóni;
þá reisan var búin
í belgnum var frúin,
og brosið, það geisiaði af Ijóni!
★
Nú eru þeir farnir að borða
„hollustu“ í sjónvarpsauglýsing-
um. Hugtakið hollusta er trúlega
létt í maga og líklega til þess
ætlast. Það merkir; 1) „tryggð,
trúfesti, hlýðni“ og 2) „heilnæmi,
það að vera hoilur“. Þó tók í
hnjúkana í kynningu sjálfs ríkis-
sjónvarpsins á besta lið sem þar
er á dagskrá. Sagt var að Spaug-
stofumenn „tækju nú yfír“ í stað
þess að þeir tækju við. Ég spyr
enn: Eru engin takmörk fyrir vit-
leysunni? Er öllum bögubósum og
taðjörpum sleppt lausum um helg-
ar, jafnvel þegar það efni er kynnt
sem vitað er að nær allir horfa
og hlusta á?