Morgunblaðið - 23.05.1992, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1992
19
til Kruger Park, sem er þjóðgarður
í Austur-Transvaal, við landamæri
Mosambík. Garðurinn nær frá Lim-
popo-á að Crocodile River og nær
yfir 21 þús. ferkm. svæði, álíka og
1/5 hluti af íslandi. Garðurinn heit-
ir eftir Paul Kruger, sem var for-
seti Transvaal og mikill náttúru-
verndarsinni. Þarna er bushweld
gróður (lágvaxinn runnaskógur) og
þar una dýrin sér best, þar er mjög
þurrt. Þarna sáum við fjölda dýra
í sínu eðlilega umhverfi. Við ókum
eftir merktum stígum og máttum
ekki fara út úr bílnum, því maður-
inn er aðskotadýr í landi dýranna.
Best er að skoða dýralífið í birtingu
og að kvöldi því þá koma þau til
vatnsbólanna að svala þorstanum,
um miðjan daginn í mesta hitanum
liggja flest í skugga. Við sáum
fjölda dýra, m.a. fjölda antilóputeg-
unda, vatnabukka, svín, nashyrn-
inga, buffalóa, zebra, gíraffa og að
lokum ókum við fram á ljón. Þau
lágu þama rétt við veginn í rökkr-
inu og virtu okkur ekki viðlits. Það
var stórkostleg sjón, rétt eins óg
klippt út úr mynd.
Þarna lentum við í ýmsum ævin-
týrum, en fíllinn er mér minnisstæð-
astur. Við sáum reyndar fleiri, en
þessi var einn á ferð. Það eru gaml-
ir fílakarlar sem fara einförum og
þeir eru skapstyggir. Fíllinn var
ekki í alveg góðu myndafæri, hann
var bak við acasiutré. Það þótti
ómögulegt, svo að menn gerðu að-
eins vart við sig. Það var eins og
við manninn mælt, fíllinn belgdi upp
eyrun, reisti sig upp og tók sprett-
inn í áttina til okkar. Menn náðu
frábærum myndum og við ókum
áfram, en fíllinn hvarf á bak við
tré. Það er sagt að fílar ráðist ekki
á bíla, heldur ógni bara, en eftir
að hafa séð kraftinn og hraðann á
þessu stóra og þunglamalega flykki
og þessar risa skögultennur, þá hef
ég engan áhuga .á að-sannreyna
það.
Gististaðurinn okkar á meðan við
vorum í Kruger Park var sérstak-
ur. Hótel Karos Lodge, mjög fal-
legt, byggt á stólpum, allt bygging-
arefni úr náttúrunni. Borðin voru
trékistur og stólarnir úr bambus.
Þar var grillað við varðeld um
kvöldið og þar bragðaði ég krókódíl-
akjöt ásamt ýmsu fleiru.
Höfundur er ritari í Búðardnl
urnýja glugga og útidyr. Á næsta
sumri er á áætlun að lagfæra hana
að innan.
Framgangur þessa verks er al-
farið kominn undir þeim fjármunum
sem auðið verður að afla. Leitað
hefur verið til opinberra fram-
kvæmdasjóða og láta þeir vonandi
nokkuð í té, en allt að einu ljóst
að talsvert vantar á að til dugi að
halda fram áætluninni. Því fylgir
með þessu skrifi hvatning til allra
þeirra sem eru af því bergi brotnir
sem girðir sveitir Eyrarkirkju að
þeir minnist uppruna síns og ætt-
menna og geri þessari merku, öldnu
kirkju sóma að við megum enn
hafa þá ánægju að sjá hana sitja í
grængresinu búna til hátíðar fyrir
okkur að njóta sem þangað fýsir.
Á nafni Eyrarkirkju í Seyðisfirði
er Gullbók í Melaútibúi Búnaðar-
bankans nr. 227346 sem leggja
má inn á framlög til framkvæmd-
anna og skora ég velunnara hennar
að bregðast skjótt við svo fram-
kvæmdafólkið fái séð hvern stuðn-
ing verk þess hefur.
Höfundur er prestur.
Ljós ó kerrur
og tengi ó bíla
Viðgerðir á
ÍHONDA
vélum og rafstöðvum.
iSORKA
vélaverkstæði,
Eldshöfða 18, s. 674199/985-20533.
Nokkur minnisatriði um einkavæðingu áfengissölu
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi minnisatriði Áfengis-
varnaráðs og er tilefni þeirra til-
lögur um einkavæðingu áfengis-
sölu:
1. Áfengi er eina vímuefnið sem
lögum samkvæmt er heimilt að neyta
hér á landi. Önnur slík efni eru bönn-
uð, einkum af heilsufarslegum, fé-
lagslegum og efnahagslegum ástæð-
um. Því liggur í augum uppi að hafa
verður stjórn á dreifingu þess og
meðferð eftir því sem kostur er.
2. Grundvallaratriði norrænnar
áfengismálastefnu er að takmarka
einkagróða af sölu og annarri dreif-
ingu áfengis.
3. Kaupsýslumenn ýmsir,
áfengisveitingamenn og ýmiss konar
braskarar aðrir vilja hirða gróðann
af áfengissölunni en taka ekki meiri
þátt í grífurlegum kostnaði þjóðfé-
lagsins vegna áfengistjóns en aðrir
skattborgarar — jafnvel minni.
4. Hvergi á Norðurlöndum er
drykkja jafnmikil og í Danmörku og
á Grænlandi. í þeim löndum er ekki
áfengiseinkasala.
5. Addiction Research Foundation
(ARF) í Tórontó í Kanada er virtasta
rannsóknastofnun heims í vímuefna-
málum. Hún leggur eindregið til að
los varðandi sölu og aðra dreifingu
áfengis verði ekki aukið.
6. Hvergi er jafnauðvelt sem í
Bandaríkjunum að rannsaka muninn
á afleiðingum mismunandi skipulags
á áfengisdreifingu þar eð sum ríkin
búa við svokallað frelsi í sölu áfeng-
is en önnur hafa einkasölukerfi líkt
og Norðurlönd, önnur en Danmörk.
7. í aldaríjórðung hafa vísinda-
menn vestra fylgst með breytingum
á áfengissölu í 48 ríkjum. Niðurstað-
an er:
a) Ríkiseinkasala dregur úr
neyslu. Einkahagsmunir í sam-
bandi við dreifingu áfengis valda
því hins vegar að meira er gert
til að hvetja til drykkju en ella.
Hvort tveggja stafar af því að
opinberir aðilar verða að greiða
það tjón sem áfengisneyslan veld-
ur. Þar hafa einkaaðilar engar
skyldur.
b) Fjöldi dreifingarstaða hefur
áhrif á neysluna.
c) Því lægri sem lögaldur til
áfengiskaupa er þeim mun yngri
byija unglingar eða börn að neyta
þessa vímuefnis.
d) Verðlagning hefur áhrif á
neysluna.
8. í tveimur ríkjum vestra, þar
sem er einkasala, Iowa og Vestur-
Virginíu, var gerð tilraun með að
leyfa sölu veikra vína og bjórs í
ákveðnum matvörubúðum. Það var
ekki einungis að vín- og bjórdrykkja
ykist heldur og heildarneysla áfeng-
is. I Vestur-Virginíu jókst víndrykkja
um 48% og í Iowa um 93%.
9. Norðurlandamenn, Finnar,
Norðmenn, Svíar og íslendingar,
hafa látið bóka í viðræðum um Evr-
ópska efnahagssvæðið að þeir áskilji
sér rétt til að halda einkasölu á
áfengi, þar komi til heilbrigðissjón-
armið og velferð þjóðanna.
10. Kaupmenn væru ekki ginn-
keyptir fyrir að flytja inn og selja
áfengi ef þeir ættu þar ekki gróða-
von. Og þegar um áfengissölu er að
ræða gjalda skattborgarar reikning-
inn.
A F K Ö S T OG T Æ K N I Á H E I M S M ft I I K V A R Ð t
LAUGARDAGUR kl. 13 - 18
í Hekluhúsinu Laugavegi 172
SUNNUDAGUR kl. 13 - 18
í malarnámu JVJ við Bláfjallaveg Krýsuvikurmegin
KOMID, SKODID 06 PRÓFID
UM HELGINA
Sýnum um helgina 325 beltagröfu
sem er sú fyrsta af nýrri kynslóð frá CATERPILLAR
Vinnuþungi: ca. 28 tonn — Aflvél: 168 hestöfl -- Skóflustærö: 1400 lítrar