Morgunblaðið - 23.05.1992, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAI 1992
23
Morgunblaðið/Sverrir
Frá setningu fundar Caritas, sem haldinn var í bisupsbústaðnum
á Landakotstúni að viðstöddum forseta Islands, frú Vigdísi Finn-
bogadóttur og Markúsi Erni Antonssyni borgarstjóra.
Caritas líknarfélög- kaþólskra
á Norðurlöndum funda hér
CARITAS heita líknarfélög kaþólskra á Norðurlöndum, sem halda
sameiginlegan fund hérlendis dagana 21. til 24. maí, en undirbún-
ing fundarins hefur Caritas á Islandi annast. Þetta er í fyrsta
sinni, sem samtökin halda fund á Islandi.
Formenn Caritas Danmerkur,
Finnlands, Noregs og Svíþjóðar
sátu fundinn, en einnig William
Kenney kaþólskur biskup frá Sví-
þjóð og forseti Caritas Evrópu,
Luc Trouillard, framkvæmdastjóri
Caritas Evrópu, sem hefur aðsetur
í Brussel var einnig viðstaddur.
Á fundinum voru rædd vítt og
breitt vandamál, verkefni og
gangur málaí Caritas Evrópu og
jafnframt um heimsmálin. Síðan
verða Norðurlandamálin rædd, þ_ar
á meðal málefni, sem snerta ís-
land, en líknarmál eru mjög í
sviðsljósi eins og nú er kunnugt
segir í tilkynningu frá Caritas Is-
landi.
Caritas á íslandi var stofnað
25.2.1989 og er skráður aðili að
alþjóðasamtökum Caritas. Sam-
tökin hérlendis hafa hlotið viður-
kenningu dómsmálaráðuneytisins
sem línarfélag.
Bókín Rækt - átak til styrktar
langveikum bömum komin út
SJÓÐUR til styrktar langveikum
börnum, félagið Umhyggja og
Styrktarsjóður krabbameins-
sjúkra barna hafa sameinast um
að vekja athygli á brýnni þörf
fyrir stórbættum aðbúnaði barna
og foreldra á þeim barnadeildum
sem starfræktar eru, og fjárhags-
legum aðstæðum þeim sem skap-
ast hjá börnum og fjölskyldum
þeirra er veikindi dynja yfir, seg-
ir í fréttatilkynningu frá aðilunum.
Sunnudaginn 24. maí verður lögð
sérstök áhersla á þetta málefni en
þá fara saman umrætt átak og Periu-
vinaþáttur Bylgjunnar í Perlunni, en
Bylgjan tileinkar þennan síðasta
Perluvinaþátt sinn á vetrinum mái-
efnum langveikra barna á Islandi.
Verður fjölbreytt skemmtidagskrá í
húsinu milli kl. 14 og 16.
Markmið þessa átaks er að vekja
alþjóð, þar með talin stjórnvöld, til
umhugsunar á málefni sem varðar
alla í landinu. Ef vitnað er í orð frú
Vigdísar Finnbogadóttur forseta:
„Það er til marks um þroska þjóðfé-
lags hve vel það hlúir að börnum og
á hvern hátt það skipuleggur málefni
sem snerta bernskuna. Börn hafa
ekki bolmagn til að vera eigin mál-
svarar. Það verða hinir fullorðnu að
taka að sér og barnagóðvild finnst
mér ávallt vera höfuðkostur í fari
hvers þess manns, sem leggur sig
fram við að gera veg barna sem
bestan. Um leið vottar barnavelunn-
ari öllu mannfólki virðingu sína og
sýnir að hann lítur á lífið með augum
framtíðarinnar."
Þessi orð frú Vigdísar eru úr for-
mála sem hún ritaði í bók sem kom-
in er út og var undanfari þessa átaks.
Bókin heitir: Rækt - átak til hjálpar
langveikum börnum. Hlutverk bókar-
innar er að varpa ljósi á gildi tjáning-
ar og sköpunar fyrir sjúk börn, jafn-
framt að benda á þær aðstæður sem
langveik börn og fjölskyldur þeirra
búa við í dag, bæði félagslegar og
fjárhagslegar. Hagnaður af söiu bók-
arinnar verður nýttur í þágu lang-
veikra barna og aðstandenda þeirra,
en tilgangur útgáfunnar er ekki síður
að benda á knýjandi þörf á því að
koma á fót fullkomnum barnaspítala
hið fyrsta.
Bókin Rækt - átak til hjálpar
langveikum börnum, inniheldur bæði
myndlist sjúkra barna með skýringa-
textum myndþerapista svo og texta
eftir Sigríði Bjömsdóttur kennara og
myndþerapista, Húgó L. Þórisson
sálfræðing, Gunnar Hersvein rithöf-
und, Önnu Maríu Harðardóttur list-
meðferðarfræðing, Öldu Halldórs-
dóttur hjúkrunarfræðing og foreldr-
anna Bryndísi Torfadóttur og Ester
Sigurðardóttur. Formálar eru eftir
frú Vigdísi Finnbogadóttur forseta
íslands og Sævar Halldórsson yfir-
lækni.
Bókin verður boðin til sölu í Perl-
unni á sunnudaginn milli kl. 14 og
16, einnig í Kringlunni í næstu viku.
Hún kostar 1.500 krónur. Útgefandi
er Sjóður til styrktar langveikum
börnum og ritstjóri er Herdís Bene-
dikstdóttir.
1992
W1
1992
ESCORT/ORION
Nýr Ford á aðeins 899.000
Þú verður að koma og prófa nýju Ford Escort og Ford Orion bílana hjá Globus, þvi annars sérðu
þessa kraftmiklu þýsku gæðagripi fljúga framhjá þér, með einhvern annan undir stýri. Þetta eru
ótrúlega kraftmiklir bílar og aksturseiginleikarnir eru slikir að þú hefur tæpast kynnst öðru eins.
Nýju Ford Escort og Ford Orion eru fjölskyldubilar nútimans, rúmgóðir, vandaðir, öflugir og
sparneytnir. Og þú færð þá á aðeins frá 899 þúsund krónum með ryðvörn og skráningu.
Hefur þú ekiö Ford.....ný!ega?
Globus?
-heitnur gœða!
Lágmúla 5, sími 91- 68 15 55