Morgunblaðið - 23.05.1992, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAI 1992
41
Morgunblaðið/Albert Kemp
TIMAMOT
50 ára fermingar
börn hittast
SKIPULAG
OG
í GARDINUM
Stanislas Bohíc, garða-
hönnuður veitir ókeypis
ráðgjöf hjá okkur um
helgina laugardag og
sunnudag kl. 14-18.
Verið velkomin.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 68 90 70
Fermingarsystkini frá 10. maí
1942 komu saman á Pá-
skrúðsfirði 10. maí síðastliðinn og
héldu upp á 50 ára fermingaraf-
mæli í Fáskrúðsfjarðarkirkju.
Kvöldið áður höfðu þau hitst á
Hótel Skálavík. Þar flutti Óðinn
G. Þórarinsson frumsamið lag í
tilefni samkomunnar. Fermingar-
börnin voru 24 en þijú eru nú lát-
in. Tólf komu saman á Fáskrúðs-
firði nú. Þau eru, fremri röð frá
vinstri: Erla Björgvinsdóttir, Guð-
rún Jónsdóttir, Sigurbjörg Berg-
kvistsdóttir, Aðalbjörn Úlfarsson,
Valdís Halldórsdóttir, Kristín Sig-
björnsdóttir og Sigurbjörg Vil-
hjálmsdóttir. Aftari röð f.v.:
Hreinn Þorvaldsson, Hörður G.
Valdimarsson, Ármann Jóhanns-
son, Albert Stefánsson, Sveinn R.
Eiðsson og Már Elísson.
Albert
VANSKÖPUN
Ferfætt barn með nokkra batavon
Hjónin Ghairun og Ebrahim Railoun eignuðust
mjög fatlað barn í Höfðaborg fyrir nokkru. Fötl-
unin var af afar sjaldgæfri gerð og læknar sögðu
þeim að eitt barn af hveijum milljarði barna fæddist
með viðlíka fötlun. Abdul litli Aziz Railoun fæddist
nefnilega með tvo neðri hluta líkamans og hann
hefur vakið heimsathygli.
I fyrstu voru foreldrarnir harmi slegnir og reyndu
að halda tilvist barnsins leyndri, en fljótt flaug fiski-
saga og er vansköpunin var á allra vörum og í ljós
kom hve heimsbyggðin fann til með fjölskyldunni
ungu, gengu þau fram fyrir skjöldu og ættingjar og
vinir fóru að nýta meðbyrinn til að afla peninga fyr-
ir mörgum og dýrum aðgerðum sem Abdul litli þarf
að gangast undir. Læknarnir telja nefnilega að barn-
ið eigi helmingslíkur á því að lifa lengur en í mesta
lagi árið á enda. Og til þess að það verði, sé nauðsyn-
legt að ganga eins langt og nútíma skurðlækninga-
tækni leyfir, í að breyta Abdul. Barnið lifði fyrstu
aðgerðina af og hún var með þeim erfiðari, en þá
var lokað fyrir líkamsstarfsemi „aukahlutans“ þann-
ig að Abdul dugar ein bleyja í einu en ekki tvær.
Bjartsýni fer vaxandi með hveijum deginum sem
líður hjá Railounfjölskyldunni og þau segja hjónin
að Abdul sé yndislegt barn þrátt fyrir fötlun sína.
Yfírleitt sé hann síbrosandi og hjalandi. Ekki er það
þó einhlýtt, því hann sé einnig skapmikill. Hann er
farinn að freista þess að skríða, en gengur illa, því
fjórir fætur gera lítið annað en flækjast hver fyrir
öðrum og í stað þess að skriða áfram eða í v^rsta
falli aftur á bak, skríður Abdul í krappa hringi. Það
mislíkar honum gífurlega og hann lætur vita með
þrumuraust mikilli...
Það er komið að því að skipta um bleyju.
Foreldrarnir segjast nú hafa varpað biturð fyrir
róða og líta á reynslu sína sem guðs vilja. Þetta sé
prófraun sem hlutverk þeirra sé að standast.
• Sérsmíðum glugga eftir þínum óskum.
• Gerum föst verðtilboð í alla smíði.
• Yfirborðsmeðhöndlun - 400 litir.
• Góðir greiðsluskilmálar.
• Smíðum einnig sólstofur.
Áratuga reynsla í glugga- og hurðasmíði.
við Reykjanesbraut í Hafnarfirði - Símar 54444 og 654444
SKOGRÆKTAFtFELAG
FEYKJAVIKUFt
Fossvogsbletti 1, fyrir neban Borgarspítalann,
sími 641770, beinn sími söludeildar 641777.
Þessa helgi bjóðum við greniplöntur 40-50 sm. háar á 250 kr.
Verð áður kr. 550. Tilboðið gildir fyrir sérmerktar plöntur meðan birgðir endast.
Söludeildin er opin um helgina frá kl. 9-17.