Morgunblaðið - 23.05.1992, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1992
49
Eina leiðin til lífsins
Frá Bjarna Valdimarssyni:
MJÖG hægt eru menn að átta sig á
því að eina leiðin til lífsins, er að
umhverfisvæða allt þjóðfélagið, en
ekki einstaka þýðingarminni þætti
þess. Það gafst vel í Vesturheimi
fyrrum.
Nú á sauðkindin ekki marga tals-
menn, en þeim mun fleiri andstæð-
inga. Bændur hafa verið stórtækast-
ir í að koma óorði á blessaða kindina
með úreltum umhverfiseyðandi bú-
skaparháttum. Hnítar hafa verið
metnir, en ekki gróðurlendi. Allt of
mikil ríkisafskipti, „dauð hönd“, hafa
rústað blómlegum atvinnuvegi,
verðlagshöft hafa leitt til markaðs-
hruns á besta kjöti í heimi.
Kynbætur eru oftar en ekki ríkis-
iaunuð úrkynjun. Þær koma ekki í
staðinn fyrir góða haga. Inúkarnir á
Grænlandi munu hafa vinninginn,
svo lengi sem þeir hafa ekki of margt
fé í sumarhögum.
Ef sauðkindin veldur náttúru-
spjöllum er manninum um að kenna,
ekki henni. A veturna verður hún
að fá fullt fóður. Venjulegt beitiland
á að vera afgirt, jarðvegur þéttgró-
inn, án rofsára. „Vissu fleiri en þögðu
þó,“ Þjóðveijar setja mylkar ær í
ullarhaft, rápi þær um of, til þess
að þær geldist ekki. Sauðfé og hross
láta tijágróður í friði á meðan lauf
eru græn, sé búféð vel fram gengið
og ekki skortir salt og önnur stein-
efni. Þetta má sjá víða í fjarlægðar-
mörkum frá bæjum og hefur sannast
við rannsóknir á fæðuvali. Hófleg
sumarbeit minnkar sinumyndun og
eldhættu.
Sauðkindin er framúrskarandi
landgræðsluskepna, vilji menn fá
varanlega vindþolna grasrót, án
himinhrópandi kostnaðar. Yfirleitt
eru rofsár og foksvæði í byggð lítil
að flatarmálj. Ég hef séð uppblástur
heflast þar sem sláttuþyrla fló gras-
rót, þess vegna þarf alltaf að fylgj-
ast með.
Ráðið er að gefa sauðfénu grænt
síðsumarshey í böggum bundnum
með hampgami í landið sem græða
á upp, hvenær sem unnt er vegna
vinds. Ögn af tilbúnum áburði bindur
ryk og græðir enn meir. Sé landið
friðað frá vori til hausts grær það
upp mjög hratt. Hús þurfa að vera
nærri. Nota má færanlegar skemur,
fyrir fé og fóður. Ódýrt og auðvelt
væri að gera Eldfell að „grænum
gíg“-
Islendingar standa vel að vígi að
nýta náttúruna á endumýjanlegan
hátt. En vandamálið er gamalt, for-
gangsfólk með sérþarfir og mengun
hugarfarsins.
Síðbúinn eftirmáli: Lúpínurætur
eru dýrmæti, sem undir engum
kringumstæðum mega fara forgörð-
um. Þær á að taka upp á vorin og
grafa niður í leirflög, mela og önnur
holklakasvæði, sem, illgjörlegt er að
græða upp á annan hátt. Sú lúpína
blómstrar sama vor. Fræ lúpínu er
þroskað um verslunarmannahelgi.
Ég hef aldrei séð alaskalúpínu í
blóma síðsumars, ekki einu sinni
neðan við Skaftafell í ágústmánuði.
BJARNI VALDIMARSSON
Reykjavíkurvegi 22,
Hafnarfirði.
Athugasemd
Morgunblaðinu hefur borist eft-
irfarandi frá Halldóri Sigurðs-
syni, Atlantsflugi hf.:
„í ljósi þess sem ranglega var
eftir mér haft á bls. 2 í Morgunblað-
inu í gær, bið ég vinsamlegast um
að eftirfarandi leiðrétting verði birt
á sainbærilegum stað í blaðinu:
í frétt Morgunblaðsins sl. mið-
vikudag um samkomulag milli
Atlantsflugs og Flugferða-Sól-
arflugs að hefja aftur samstarf, er
ranglega eftir mér haft að Sólarflug
hafi sett tryggingu fyrir stórum
skuldum við Atlantsflug. Þessi orð
féllu aldrei í samtali blaðsins við
mig sl. þriðjudag enda eru þau ekki
sannleikanum samkvæmt.
Sannleikurinn er sá að ekki er
um að ræða neina skuld Sólarflugs
við fyrirtæki mitt. Þau ágreinings-
mál um uppgjör frá fyrra ári, sem
voru milli okkar um lendingargjöld
og eldsneytiskostnað, eru frágengin
og til lykta leidd.
Aðspurður gat ég þess hins veg-
ar við blaðamann Morgunblaðsins
að Flugferðir- Sólarflug hefði sett
fullnægjandi tryggingu fyrir samn-
ingi okkar um leiguflug nú í sum-
ar. Harma ég þessa rangtúlkun
orða minna.“
HEILRÆÐI
Foreldrar!
Ekkert barn á reið-
hjóli ætti að vera án
hjálms.
Ef óhapp hendir er
hjálmur höfuðatriði.
Minnist þess að börn
yngri en 7 ára mega
aðeins hjóla á lóðum,
afgirtum svæðum
eða gangstígum.
Hið mikla samband
Frá Atla Hraunfjörð:
RITGERÐARSAFNIÐ, Hið mikla
samband, sem birtist 1919, í Nýal,
sem þýðir nýtíðindi, setur höfundur
dr. Helgi Pjeturs fram kenningu
um samband lífsins í alheimi. Hvert
einasta ódeili hefur áhrif á allan
heiminn og vitnar í vísindamanninn
Faraday. Þetta þýðir í mæltu máli
að fjarlægðir og hraði úti í geimnum
á milli hnatta, eru ekki til. Það sem
þú hugsar hér á jörð, er samstund-
is á ystu mörkum, ef við notum
samlíkingu. Lífríki jarðar, menn,
dýr og gróður, eru alltaf í beinu
sambandi við sér skylt aflsvæði,
hvar í heimi sem er. Hið mikla sam-
band segir okkur frá eðlissambandi
lífsins í alheimi. Maðurinn er mikill
örlagavaldur og hefur með fram-
ferði sínu, skaðað lífríki jarðarinn-
ar, sem aldrei verður bætt. Maður-
inn hefur fram á þennan dag að
mestu hlustað á forkólfa helstefn-
unnar, eins og lesa má úr sögu jarð-
ar. Með þeirri þekkingu sem fram
Aths. ritstj:
kemur i Nýal, getur maðurinn farið
að stilla sig inn á leiðtoga lífsstefn-
unnar, stefnu sífellt jákvæðari verð-
andi, leið ástar og kærleika.
Til þess að nálgast lífstefnuna,
þurfum við að hugsa upp á nýtt,
eins og t.d. stilla viðtæki sitt (heil-
ann) inn á göfugri hugsanir og til-
einka sér kristna siðfræði. Vita
Skaltu, um leið og þú breytir hugs-
un og framkomu, opnar þú fyrir
aðstreymi lífsorku og viti frá lengra
komnum íbúum annarra hnatta.
Mottóið, viljir þú breyta heimin-
um, byijaðu þá á sjálfum þér, er
enn í fullu gildi og ennfremur máls-
hátturinn, guð hjálpar þeim sem
hjálpar sér sjálfur. Þú hjálpar eng-
um með því að gera verkin fyrir
hann, hver og einn verður að eiga
frumkvæðið. Hvað með þig, eigum
við, ég og þú, að koma á lífstefnu
hér á jörð, eða eigum við að segja
guðsríki?
ATLI HRAUNFJÖRÐ,
Kársnesbraut 82a, Kópavogi.
Að gefnu tilefni telur Morgun-
blaðið sig tilneytt að rekja fyrri frétt-
ir blaðsins af deilum Atlantsflugs
og Flugferða-Sólarflugs, þar sem
athugasemd Halldórs Sigurðssonar
verður að skoðast í Ijósi þeirra.
í frétt Morgunblaðsins af deilum
þessara aðila hinn 28. apríl sl. er
haft eftir Halldóri Sigurðssyni, fram-
kvæmdastjóra Atlantsflugs, að stað-
ið hafl á greiðslum frá Flugferðum-
Sólarflugi inn á samninga fyrir sum-
arið. Daginn eftir birtist athugasemd
frá Halldóri Sigurðssyni þar sem
segir: „Það er ranglega haft eftir
undirrituðum að Flugferðir-Sólar-
flug hafi ekki staðið við greiðsluleg-
ar skuldbindingar varðandi samn-
inga um flug sumarið 1992.“
í frétt í Morgunblaðinu 3. maí
segir Halldór Sigurðsson hins vegar
að ekki hafí verið um annað að ræða
en rifta samningunum við Flugferð-
ir-Sólarflug þegar útséð var að
greiðslur bærust ekki samkvæmt
samningi. Tveim dögum síðar árétt-
ar Halldór þetta brot á samningum
frekar: „Hins vegar má nefna að
Guðni átti að borga okkur 10% af
samningum við undirskrift, 10%
þijátíu dögum fyrir flug og síðan
80% sjö dögum fyrir flug og ekkert
af þessu stóðst." í sömu frétt er
jafnframt haft eftir honum: „Stað-
reyndin er sú að Sólarflug skuldaði
okkur 34 milljónir króna er við rift-
um samningi okkar við ferðaskrif-
stofuna."
í frétt Morgunblaðsins daginn
eftir, 6. maí, segir Guðni Þórðarson
hjá Flugferðum-Sólarflugi: „Mér
þykir sérkennilegt að framkvæmda-
stjóri Atlantsflugs skuli nú halda því
fram að Flugferðir-Sólarflug skuldi
fyrirtæki hans 34 milljónir, því þessi
sami framkvæmdastjóri fékk birta
athugasemd í Morgunblaðinu 29.
apríl, þar sem hann segir að það
hafí verið ranglega eftir honum haft
að fyrirtæki mitt hafi ekki staðið
við greiðslulegar skuldbindingar
varðandi samninga um flug fyrir
sumarið 1992.“
í athugasemd Halldórs Sigurðs-
sonar hér að ofan heldur hann því
fram að hann hafi aldrei látið nein
orð falla þess efnis í samtali blaðsins
við sig sl. þriðjudag að Sólarflug
hafí sett tryggingu fyrir stórum
skuldum við Atlantsflug, enda séu
þau ekki sannleikanum samkvæm.
Aðspurður hafi hann hins vegar
getið þess að Flugferðir-Sólarflug
hafi sett fullnægjandi tryggingu fyr-
ir samningi aðilanna um leiguflug
nú í sumar.
í samtali við Halldór Sigurðsson
vegna fréttarinnar sl. þriðjudag um
sættir fyrirtækjanna spurði blaða-
maður hann beinlínis að því hvað
orðið hefði um framangreinda 34
milljóna króna skuld Sólarflugs við
Atlantsflug og svar Halldórs við
spurningunni var unnið af segul-
bandi. Ef staðreyndir málsins hafa
ekki komist rétt til skila stafar það
af misskilningi Halldórs við spurn-
ingu blaðamanns eða mismæli en
er ekki mistúlkun Morgunblaðsins.
Það er í sjálfu sér ánægjulegt að
Atlantsflug og Flugferðir-Sólarflug
skuli hafa náð sáttum í erfiðu deilu-
máli en Morgunblaðið getur ekki
sætt sig við að það sé hluti af sam-
komulagi um slíkar sættir að gera
fréttaflutning þess tortryggilegan.