Morgunblaðið - 03.10.1992, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1992
Sophia Hansen heldur upp á 10 ára
afmæli dóttur sinnar í dag
Mannréttindaráð-
herrann í málið
SOPHIA Hansen átti í gær viðræður við unga konu, lögfræðing
mannréttindaráðherra Tyrklands og fulltrúa í lögfræðingafélagi
Istanbúl. Konan sagði Sophiu að í bígerð væri herferð embættisins
og lögfræðinga með það að markmiði að mannréttindi hennar yrðu
ekki fótum troðin og hún fengi uppreisn æru. Samkvæmt, dómsúr-
skurði á Sophia að hitta dætur sínar í dag, á afmælisdegi yngri
dóttur sinnar.
Sophia sagði að hún hefði alltaf
haldið upp á afmæli dætra sinna
þó þær væru víðsfærri, keypt kökur
og pakkað inn gjöfum. Hún sagði
að það myndi hún einnig gera á 10
ára afmælisdegi Rúnu, yngri dóttur
sinnar, enda þótt hún væri ekki
bjartsýn á að hitta systumar í dag.
Leitað verður að stúlkunum í Istan-
búl en sjálf telur Sophia líklegt að
þær dvelji með föður sínum í austur-
hluta Tyrklands.
Sophia mun ekki halda upp á
afmæli Rúnu ein því með henni í
Istanbúl eru systkini hennar og
tyrkneskur lögfræðingur. Ennfrem-
ur mun blaðamaður frá tyrkneska
vikublaðinu KIM fylgjast með því
hvernig dagurinn líður. Annað viku-
blað birti viðtal við Sophiu á fimmtu-
dag. Á sunnudag verður sýndur
klukkustundar langur þáttur um
fotræðismálið á sjónvarpstöðinni
Channel 6 í Istanbúl. í þættinum
er m.a. efni sem tekið var á íslandi
í sumar.
. Eftir því sem umræðan í Tyrk-
landi eykst rísa fleiri upp til að
styðja Sophiu að hennar sögn en á
meðal þeirra er mannréttindafélag
stúdenta sem hefur haft samband
við hana vegna málsins. Flest blöð
hafa skrifað um málið og eru þau
yfirleitt með hlutlausa umfjöllun.
Rússar fresta 1,5 millj-
Slíkt verður þó ekki sagt um blöð
ofsatrúarmanna sem styðja Halim
Al, fyrrum eiginmann Sophiu, og
birta myndir af honum í fylgd dætra
sinna og háttsettra embættismanna.
í fréttunum segir m.a. „Borgar-
stjórinn í Malatya gerir allt sem
hann getur til að hjálpa Aysegul
[Rúnu] og Vesile [Dagbjört] - Allir
Tyrkir standi nú á fætur,“ og „Borg-
arstjórinn í Sivas Temel Karamolla-
oglundan reynir allt til að hjálpa
Aysegul og Vesile - Stúlkurnar
okkar eiga að vera í Tyrklandi.“
Birst hefur myild af stúlkunum með
forseta Tyrklands og segir þar:
„Konan mín á eldri systur sem
breytti henni í þessa manneskju sem
hún nú er,“ og áfram er haft eftir
Halim A1 „Læt frekar lífið en að
láta eiginkonu mína fá börnin.“
Sophia segir að fyrri tilvitnunin
hafi verið túlkuð á þann máta að
systir hennar hafi spillt múhameðs-
trú hennar en raunverulega tók
Sophia aldrei upp þau trúarbrögð.
Morgunblaðið/Þorkell
Mikil hrifning í Óperunni í gærkvöldi
Óperan Lucia di Lammermoor eftir Donizetti var frumflutt í gærkvöldi í íslenzku óperunni við mikla hrifn-
ingu áheyrenda. Jón Ásgeirsson tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins sagði eftir sýninguna: „Diva“ kvölds-
ins var Sigrún Hjálmtýsdóttir í hlutverki Luciu og var söngur hennar og leikur stórglæsilegur. Tito Beltr-
an söng hlutverk elskhugans Edgardos og er þar á ferðinni stórefnilegur tenórsöngvari. Bergþór Pálsson
söng hlutverk Enricos, bróður Luciu, og var leikur hans ekki síðri en söngurinn. Aðrir voru góðir, svo og
kórinn og hljómsveitin undir stjóm Robins Stabletons."
Magnús Ver
hefur enn-
arða kr. síldarsamningi
þá forystu
MAGNÚS Ver Magnússon hefur
enn forystu í keppninni um titilinn
Sterkasti maður heims, eftir tvo
daga af þremur. Hann hefur 42
stig en næstur er Suður-Afríku-
búinn Gerrit Badenhorst með 38
og hálft stig. Bretinn Jamie Ree-
ves er þriðji með 38 stig og Hol-
lendingurinn Parre hefur 37.
Parre sigraði í Þórshamarskasti
en það fólst í því að kasta 27 kílóa
þungu lóði aftur fyrir sig yfír rá.
Magnús Ver varð í fimmta sæti í
þeirri grein, en hann sigíaði hins
vegar í jafnhöttun í gærmorgun.
Keppni lýkur í dag með þremur
greinum. Kl. 8.45 verður keppt í að
halda þungri öxi fyrir framan sig
við Höfða, kl. 11.30 reyna keppend-
ur að draga 14 tonna Fokker-flug-
vél á Reykjavíkurflugvelli og síðasta
greinin verður á Þingvöllum kl. 15
þar sem þeir eiga að hlaupa með
Húsafellshelluna.
skipum ýmissa landa, aðallega við
Kanada og Skotland. Þessi síld sé
síðan þídd upp og söltuð í Póllandi.
„Jafnt og stöðugt framboð er á
síld frá helstu keppinautum okkar,
aðallega frá Noregi og Danmörku,
og því hefur reynst erfítt að fá
kaupendur á Norðurlöndunum til
að ganga endanlega frá pöntunum
fyrir komandi vertíð. Vonir standa
þó til að flestir kaupenda muni fljót-
lega staðfesta fyrstu pantanir sínar
en reikna má með að endanleg
heildarsala til hvers lands verði
ekki ljós fyrr en langt verður liðið
á vertíðina. Miðað við óbreytt sölu-
verð frá fyrra ári verður þó að
ætla að heildarsölumagn til Norður-
landanna muni minnka frá fyrra
ári en þá var það um 75.000 tunn-
ur,“ segir Einar Benediktsson.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fundað í álversdeilunni um helgina
Samninganefndir deiluaðila í álverinu í Straumsvík hittust á fundi hjá
ríkissáttasemjara í gærmorgun. Ákveðið var að boða til annars fundar
fyiir hádegi í dag, en trúnaðarmannaráð starfsmanna í álverinu í Straums-
vík hefur verið boðað saman til fundar að morgni mánudags vegna fyrir-
hugaðrar boðunar yfirvinnu- og útflutningsbanns. Á myndinni eru frá
vinstri Geir Gunnarsson, aðstoðarríkissáttasemjari, Guðlaugur Þorvalds-
son, ríkissáttasemjari og Sigurður T. Sigurðsson, formaður verkamannafé-
lagsins Hlífar í Hafnarfirði.
Litlar líkur á söltun fyrir Póllandsmarkað í vetur
i dag
Sameining sveitarfélaga
Formaður sveitarfélaganefndar
segir frá viðfangsefnum
nefndarinnar 16
Kosningabaráttan i Banda-
rikjunum______________________
Framboð Perot gæti tekið
óánægjufylgi frá Clinton eða Suð-
urríkjaatkvæði frá Bush 22
EKKI er útlit fyrir að síld verði söltuð hér fyrir Rússlandsmarkað
í vetur, aðallega vegna gífurlegrar gengisfellingar rússnesku rúbl-
unnar, einkum síðustu vikurnar, að sögn Einars Benediktssonar fram-
kvæmdastjóra Síldarútvegsnefndar. I samkomulagi rússneska ríkis-
fyrirtækisins Rosvneshtorg og Síldarútvegsnefndar frá 4. desember
sl. var gert ráð fyrir sölu á samtals 30.000 tonnum (286.000 tunnum)
af saltsíld til Rússlands fyrir 28 milljónir dollara (um 1,5 milljarða
króna á núvirði) vertíðirnar 1991-1992 og 1992-1993 en m.a. vegna
óvenju óhagstæðrar veðráttu voru einungis söltuð um 500 tonn (um
4.800 tunnur) upp í samninginn í fyrravetur.
„Rosvnesh-torg hefur tilkynnt
okkur að vegna efnahagsástandsins
í Rússiandi neyðist fyrirtækið til
að fresta framkvæmd síldarsamn-
ingsins," segir Einar Benediktsson,
sem er nýkominn frá Moskvu.
„Rosvneshtorg bendir á að frá því
að síldarsamningurinn var undirrit-
aður hafí opinbert viðskiptagengi
níblunnar fallið úr um 50 í um 300
rúblur fyrir hvern dollar, sem þýðir
um 500% hækkun á gengi dollars
gagnvart rúblu og útlit sé fyrir frek-
ara fall á næstu mánuðum. Þessi
staðreynd geri viðskiptin nánast
óframkvæmanleg og muni væntan-
lega stöðva að miklu leyti innflutn-
ing vara til Rússlands, þar til efna-
hagsástandið hefur lagast en Jap-
anar spá því að dollarinn verði kom-
inn í 500-600 rúblur um áramótin."
Einar segir að undanfarnar vikur
hafí Síldarútvegsnefnd rætt við
kaupendur í helstu markaðslöndum
fyrir saltaða síld og í viðræðunum
hafí komið fram að mjög mikið
framboð sé á síld á öllum síldar-
mörkuðum, enda gangi síldveiðar
vel á öllum helstu veiðisvæðum og
mun meira sé veitt en hægt sé að
koma í vinnslu til manneldis. Fersk-
síldarverð hafí því farið lækkandi
og mikill þrýstingur sé á verðlækk-
anir á síldarafurðum.
í viðræðum við pólska síldarinn-
flytjendur hafí komið fram að vegna
erfiðs efnahagsástands þar í landi
séu litlar líkur á að takast muni
að selja saltaða síld til Póllands i
vetur en saltað var í 12.000 tunnur
fyrir þann markað á síðustu vertíð.
Það geri stöðuna enn erfíðari en
áður að Pólverjum standi nú til
boða mjög ódýr síld úr rússneskum
verksmiðjuskipum, sem kaupi
ferska síld yfír borðstokk úr veiði-
800 milljónir fyrir uö leika
körfubolta
„Magic Johnson hefur gert samn-
ing við LA Lakers í vetur 47
Leiðari ______________________
„Sænska kerfið“ í vanda 24
Lesbók
► Nýjar kenningar um líf risa-
eðlanna - Bragi Asgeirsson skrif-
ar um leiftur japanskra daga.
-Mannanafnasaga: Úlfur Kristinn
Heiðimann.
Menning/listir
► í lifrófi óperunnar - Einingar
margbreytileikans - Kaldalóns-
tríóið - Fjölbreytt starfsár Sinfón-
íuhljómsveitar íslands - Menn-
ing/Listir í næstu viku