Morgunblaðið - 03.10.1992, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1992
Flug til Bandaríkjanna
Flugleiðir sækja um
fargjaldalækkun
FLUGLEIðlR hafa sótt um heimild stjórnvalda til að lækka far-
gjöld í flestum lægri fargjaldaflokkum til Bandaríkjanna frá og
með gildistöku vetraráætlunár 26. október. Samkvæmt upplýsing-
um frá fyrirtækinu er lækkunin allt að 25% á ódýrustu fargjöld-
um. Algeng lækkun er á bilinu 8.400 til 16.500 kr. á farmiða báð-
ar leiðir og fer eftir viðkomustöðum.
Pétur J. Eiríkssson, fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs Flug-
leiða, segir að með lægri fargjöld-
um til Bandaríkjanna sé ætlunin
að auka ferðamannastraum vestur
og bendir hann á að fargjöld til
Bandaríkjanna frá íslandi hafi lík-
lega aldrei verið lægri. Jafnframt
segir Pétur að lækkunin sé eitt
skref í þá átt að draga úr þeim
mun sem sé á skráðum fargjöldum
milli landanna eftir því hvar þau
séu keypt.
Súper Apex fargjöld Flugleiða
með 45 daga gildistíma lækka
mest eða á milli 17 og 25%, þriggja
mánaða Apex miðar lækka um
6-19%, engin breyting verður á sex
mánaða pex miða og verð á Saga
Class miða hækkar um 4% til New
York og Baltimore en lækkar um
1,7% til Orlando ef umsókn félags-
ins verður smþykkt.
Lægsta skráða Súper Apex far-
gjald til Bandaríkjanna verður eft-
ir 26. október 35.780 kr. og hefur
verðið þá lækkað um 8.970 kr. eða
20% milli ára. Gildistími Súper
Apex miðans verður einnig
rýmkaður úr einum mánuði í einn
og hálfan. Ennfremur verður far-
þegum í helgarferðum á Súper
Apex fargjaldi gefínn kostur á
lengri dvöl og sveigjanlegri ferða-
tíma fyrir svipað verð.
Morgunblaðið/Þorkell
Skolplögninni komið fyrir
í vikunni var hafist handa við að koma fyrir skolplögn sem liggja á frá útrásarbrunnum á Eiðisgranda
500 metra út í sjó, en skurðgrafa á flotpramma hafði áður grafíð fyrir lögninni. Lögnin var dregin á stað-
inn þaðan sem hún var tilbúin á floti inni á Sundum.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 3. OKTÓBER
YFIRLIT: Skammt suður af landinu er allvíðáttumikil 990 mb lægö sem
þokast austsuðaustur og við Nýfundnaland er vaxandi lægð sem þok-
ast norður og síðan norðaustur og verður hennar farið að gæta hér við
land síðdegis á morgun.
SPÁ: Hæg breytileg átt og léttskýjað um morguninn, þykknar upp vestan-
lands þegar líður á daginn með vaxandi suð- og suðaustan átt. Sunnan-
kaidi eða stinningskaldi og fer að rigna vestanlands um kvöldið. Hlýtt íveðri.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Vestan og suðvestan átt sums staðar, strekking-
ur vestan og skúrir sunnanlands og vestan en skýjað og þurrt austan og
noröaustan til. Hlýtt í veðri.
HORFUR Á MÁNUDAG: Hæg breytileg vestlæg átt. Smáskúrir eða súld
við vesturströndina, þurrt og víða léttskýjað. Svalt og hætt við næturfrosti.
Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað
r r r * / *
r r * r
r r r r * r
Rigning Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Skýjað
Alskýjað
Skúrir Slydduél
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heilfjöðurerZvindstig.j
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Sumarfæri er á öllum helatu þjóðvegum landsins. Ekki er vitað um færð
á hálendisvegum á norðanverðu landinu. Má þar nefna Sprengisands-
veg, norðanverðan, Eyjafjarðarleiö, Skagafjarðarleið og Kverkfjallaleið.
Kjalvegur og Fjallabaksleiðir, nyrðri og syðri, eru snjólausar og sama er
að segja um Lakaveg.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91 -631500 og
í grænni línu 99-6315. Vegagerðín.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Wti veður
Akureyri 10 skýjað
Reykjavfk 10 rigning
Bergen 13 skýjað
Helalnkl 5 akýjað
Kaupmannahöfn 13 skýjað
Narssarssueq 4 léttskýjað
Nuuk 4 iéttskýjað
Oaló 11 léttskýjað
Stokkhólmur 10 hólfskýjað
Þórahöfn 10 súld
Algarve 20 léttskýjað
Amsterdam 15 skýjað
Barcefona 22 þokumóða
Berlín 15 háHskýjað
Chicago ð léttskýjað
Feneyfar 21 skýjað
Frankfurt 15 mistur
Glasgow 12 rignlng
Hamborg 14 alskýjað
London 1B skýjað
Los Angeles 17 léttskýjað
Lúxemborg 13 skýjað
Madrid 24 mistur
Malaga 25 hálfskýjað
Mallorca 26 skýjað
Montreal 12 Skýjað
NewYork 12 heiðskírt
Orlando vantar
Peria 17 skýjað
Madeira 23 hálfskýjað
Róm 25 háHskýjað
Vín 17 háHskýjað
Washington 8 heiðskírt
Winnipeg 0 heiðskfrt
Heimild: Veðurstofa islands '
(Byggt á veðurspá kt. 16.16 igær)
íDAG kl. 12.00
50-60 lúsatilfelli
á hverjum vetri
- segir Skúli Johnsen, héraðslæknir
sambandi benti hann á að heimilis-
aðstæður margra barna hefðu
hefðu ekki farið batnandi með
árunum.
----♦--------
Skjálftahrina
á Suðurlandi
Á ÞRIÐJA tug skjálfta höfðu
mælst um miðjan dag í gær á
Suðuriandi, en jarðskjálfta-
hrina hófst á þessum slóðum sl.
fimmtudagskvöld. Upptök
skjálftanna voru í Hellisheiði
og Skálafelli.
Sterkastir urðu jarðskjálftarnir
upp úr kl. 2 aðfaranótt föstudags-
ins og mældist sá stærsti 2,6 stig
á Richterkvarða.
Upp úr hádegi í gær mældust
nokkrir litlir skjálftar skammt suð-
ur af Ingólfsfjalli. Að sögn Ragn-
ars Stefánssonar jarðeðlisfræð-
ings er þessi jarðskjálftahrina ekki
til vitnis um óvenjulega virkni á
þessum svæðum.
Karen Agnete Þór-
arinsson látin
KAREN Agnete Þórarinsson,
listmálari, andaðist á elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund 1.
október sl., 88 ára að aldri.
Karen fæddist 28. desember
árið 1903 í Kaupmannahöfn. Hún
stundaði nám í Rannove’s Tegne-
skole, Carla Collsmann’s Maler-
skoler og Akademiet for de skönne
Kunster í Kaupmannahöfn en það-
an brautskráðist hún árið 1929.
Sama ár kom Karen til íslands.
Hún var búsett í Ásbyrgi í N.-Þing-
eyjarsýslu til ársins 1938 en eftir
það í Reykjavík.
Karen hefur starfað sem listmál-
ari og tekið þátt í fjölmörgum sýn-
ingum, samsýningum og einkasýn-
ingum, bæði hérlendis og erlendis.
Eiginmaður Karenar var Sveinn
Þórarinsson listmálari. Hann lést
árið 1977. Karen Agnete Þórarinsson
SKÚLI Johnsen, héraðslæknir í
Reykjavík, segir að 50-60 lúsa-
tilfelli komi upp í grunnskólum
landsins á hveijum vetri. Hann
segir að þegar lúsatilfelli komi
upp í bekk sé eðlilegt að beina
því til foreldra að allir í fjöl-
skyldunni séu þvegnir með lúsa-
sjampói.
Skúli lagði áherslu á að ef lús
fyndist í bekkjardeild væri ekki
nóg að allir í bekknum væru
kembdir með lúsakambi. Eðlileg
framvinda væri að bömin væru
skoðuð og send heim með beiðni
um að allir í fjölskyldunni yrðu
þvegnir með sérstöku lúsasjampói.
Réði það niðurlögum bæði nita og
lúsa og ætti ein meðferð að duga.
Aðspurður sagði Skúli að síðast-
liðin 12-14 ár hefði lús að jafnaði
komið fram í 6-8 grunnskólum á
hverju hausti. Um er að ræða
50-60 tilfelli í grunnskólum lands-
ins á hveijum vetri. Skúli sagði
að hér væri kannski ekki um stór-
mál að ræða en vekti alltaf at-
hygli þar sem fólk tengdi lús við
sóðaskap enda kæmi hún upp
vegna skorts á hreinlæti. í því