Morgunblaðið - 03.10.1992, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1992
Hálfsystkin
á Tjörninni
Ekki er annað að sjá en þessi hvíta
aliönd kunni vel við sig á Tjörninni
enda er hún líklega í,fylgd þriggja
hálfbræðra sinna. Ólafur K. Niels-
en, fuglafræðingur, segir að sagan
segi að gárungar nokkrir hafí kom-
ið tveimur aliöndum Stefnis bónda
í Laugardal fyrir á Tjörninni árið
1990. Um var að ræða mæðgur,
brúna móður og hvíta dóttur sem
hér sést, og átti sú fyrmefnda þrjá
unga með stokkandarsteggi í fyrra.
Allt voru það steggir. Að sögn
Ólafs eru aliendurnar komnar út
af stokköndunum og því blandast
þær þeim auðveldlega. Aliendurnar
eru þó stærri og í þeim koma fram
ýmis litaafbrigði.
^ .....................^
c &*****'*• • '
1
■«r-- •ZiitiSi**
£ .,',0
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
12 manns sagt upp
hjá Samskipum
SAMSKIP hf. hafa sagt upp 12 manns, eða sem samsvarar einni
áhöfn, en að sögn Ómars Hl. Jóhannssonar forstjóra Samskipa
er þetta gert vegna þess að tilboð hefur borist í skip fyrirtækis-
ins sem verið hafa á sölulista. Hann segir að þarna sé um ákveðna
varrúðarráðstöfun að ræða, og verði ekki af sölunni verði starfs-
mennimir endurráðnir.
Eins og greint hefur verið frá
hyggst Samskip hf. fækka skipum
sem aðallega hafa verið í stórflutn-
ingum og flutningum milli er-
lendra hafna, en þar er fyrst og
fremst um tvö skip að ræða. „Þessi
skip eru á sölulista og þó svo að
ekki hafí verið gerður sölusamn-
ingur hafa komið tilboð í þessi
skip og af þeim sökum höfum við
sagt upp með eðlilegum fyrirvara
einni áhöfn. Ef ekki verður af söl-
unni koma þessar uppsagnir eðli-
lega ekki til framkvæmda," sagði
Ómar.
127 millj.
gjaldþrot
Snælax hf.
RUMAR níu milljónir fengust
greiddar upp í 136 milljóna kröf-
ur í þrotabú Snælax hf. í Grund-
arfirði. Skiptum er nú lokið, en
fyrirtækið var tekið til gjald-
þrotaskipta í lok desember árið
1989.
Snælax rak laxeldi í sjókvíum í
Grundarfirði og voru helstu eignir
búsins mannvirki tengd rekstrinum
og fiskur í kvíum. Kröfur í búið
námu samtals rúmum 136 milljón-
um króna. Þar af voru forgangs-
kröfur tæplega 4,3 milljónir og
fengust rúmlega 129 þúsund krón-
ur greiddar upp í þær, eða um 3%,
miðað við að útistandandi viðskipta-
krafa náist inn. Upp í veðkröfur
greiddust 9,3 milljónir, en veðkröfur
féllu að öðru leyti til hóps almennra
krafna og greiddist ekkert upp í
þær.
♦ ♦ ♦
Húsavík
Uppsagnir
hjá Prýði
Húsavík.
SAUMASTOFAN Prýði á Húsa-
vík hefur sagt upp flestu starfs-
fólki sínu, sem eru 12 konur, en
þær hafa 3 til 6 mánaða uppsagn-
arfrest.
Guðmundur Hákonarson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, sagði
að þetta hafí ekki verið gert vegna
fjárhagsörðugleika hjá fyrirtækinu
heldur vegna óvissu um verkefni
framundan. Hann sagði að upp-
sagnimar væru fyrst og fremst til
að fyrirbyggja það að vera með
fólk á launum ef verkefni skyldu
þijóta sem að hann vonaði að ekki
yrði.
- Fréttaritari.
----♦■■♦■■♦--
Þokkaleg
gæsaveiði
Bfldudal.
ÞOKKALEG gæsaveiði hefur ver-
ið í Vestur-Barðastrandarsýslu í
haust. Ekki fer stór hópur skot-
veiðimanna á gæsaveiðar en á
Bíldudal hafa þijár skyttur fengið
vel á annað hundrað gæsir í haust.
Aðallega eru það grágæsir sem
verið er að veiða en nokkrar heiða-
gæsir hafa fallið og ein blesgæs, svo
vitað sé. Þetta þykir ágætisveiði í
þessum landshluta. Síðustu vikur
hafa gæsirnar haldið sig í beijalönd-
unum, enda orðnar hvekktar á að
vera á túnunum þar sem engan frið
er að fá. Senn líður að suðurferð
gæsanna og þá hverfa þær af svæð-
inu og ijúpnaveiðitímabilið hefst.
R. Schmidt
Lágmúla 8. Sími 38820