Morgunblaðið - 03.10.1992, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1992
19
Afmæliskveðja
Björgvin Schram
stórkaupmaður
Einn þekktasti knattspyrnumaður
á fyrri hluta aldarinnar og forystu-
maður knattspyrnuhreyfingarinnar
á síðari hluta þessarar aldar verður
áttræður í dag. En það er góðvinur
minn og samheiji Björgvin Schram,
stórkaupmaður.
Björgvin ólst upp í vesturbænum
og var því sjálfgert að hann gengi
í KR á unga aldri. Foreldrar hans
voru Ellert K. Schram, skipstjóri og
Magdalena Árnadóttir. Bjuggu þau
lengi við Stýrimannastíginn, en það-
an var stutt fyrir Björgvin að sækja
á túnin fyrir ofan, en þar léku þá
drengir í vesturbænum knattspyrnu
alla daga.
Björgvin fór ungur að sækja æf-
ingar í KR og fékk þar leiðsögn hins
þekkta þjálfara félagsins, Guðmund-
ar Ólafssonar. Hann sá strax hvað
í þessum unga manni bjó og setti
hann 12 áragamlan í 3. flokk félags-
ins til keppni. Þar með var ferill
hans markaður á knattspyrnuvellin-
um, því á fáum árum vann hann sig
upp í meistaraflokk félagsins, þar
sem hann lék í samtals 12 ár eða
fram til ársins 1943.
Björgvin stundaði nám í Verslun-
arskóla íslands, en fór síðan til Lond-
on og hóf þar um tíma framhalds-
nám í verslunarfræðum. Þá var hann
komin á hátind_ knattspyrnuferils
síns hér heima. Á námstíma sínum
æfði hann eitthvað knattspyrnu með
enskum liðum. Það var strax tekið
eftir frábærri leikni hans með knött-
inn. Fljótlega var honum boðið að
gerast atvinnumaður í knattspyrnu
með frægum liðum í London. Björg-
vin lét ekki glepjast af gylliboðum
og tjáði bjóðendum að hann færi
heim að námi loknu og mundi halda
áfram að leika með sínu gamla fé-
lagi. Það var gæfuspor, sem hann
tók fyrir íslenska kanttspyrnu.
Eftir að Björgvin kom heim frá
námi vann hann fyrst um sinn hjá
hinu þekkta fyrirtæki Magnúsi Kjar-
an, en síðar stofnaði hann sitt eigið
fyrirtæki og rak það í áratugi undir
eigin nafni.
Árið 1937 kvæntist Björgvin Al-
dísi Þ. Brynjólfsdóttur. Var hún
mjög félagslega sinnuð og studdi
Björgvin ávallt i öllum hans félags-
málum og var hún um áraraðir for-
maður KR-kvenna, sem ávallt hafa
unnið mikið og gott starf fyrir félag-
ið. Eignuðust þau 5 börn, sem öll
eru löngu uppkomin og mörg þegar
þjóðkunn.
Björgvin var valinn í fyrsta lands-
lið okkar, sem fór utan til að keppa
við Færeyinga árið 1930. Það var
fyrsta utanlandsferð sem knatt-
spyrnumenn fóru héðan. Síðan var
hann ávallt valinn í úrvalslið, eins
og það hét þá, þar sem KSÍ var
ekki stofnað. En forráðamenn ISI
og KRR völdu þessi úrvalslið sem
jafngiltu landsliði.
Á árunum 1930-1940 var Björg-
vin einn af bestu og þekktustu knatt-
spyrnumönnum landsins og dáður
af áhorfendum fyrir fallegan og
prúðmannlegan leik. Þá var hann
virtur jafnt af samherjum, sem mót-
herjum.
Þegar unnið var að grasvallar-
byggingu á KR-svæðinu, var Björg-
vin einn af forvígismönnum þar í
allri sjálfboðaliðsvinnu. Safnaði m.a.
tómum skotfærakössum frá hernum
til þess að rétta af lokræsi er varð
að setja mjög þétt í völlinn vegna
mikils votlendis sem hann var
byggður á. Á þeim tíma varð að
treysta á þegnskaparvinnu félags-
manna, því peningar til fram-
kvæmda voru þá ekki til í félags-
kassanum. Björgvin vissi sem var,
að knattspyrna kæmist ekki á al-
þjóðamælikvarða hjá okkur fyrr en
við gætum æft og alið upp knatt-
spyrnumenn okkar á grasi. Hann
var minnugur þess er úrvalslið héð-
an, sem hann var liðsmaður í, fór
til Þýskalands árið 1935 og fékk
aðeins tækifæri til að æfa tvær
kvöldstundir á grasi grónum sand-
bala úti við Gróttu, en allar aðrar
æfingar og keppnir fóru fram á
malarvöllum, þar vorum við á eftir
tímanum. Úrbóta var þörf og þar
vildi Björgvin bæta úr brýnni þörf.
Erlendis þekktu þá fáir annað en
að knattspyrna væri aðeins leikin á
grasi, þegar um landsleiki væri að
ræða. Björgvin fagnaði því þeim
sigri er félag hans KR vígði fyrsta
grasvöll landsins árið 1951, enda
voru það tímamót í íslenskri knatt-
spyrnusögu, en þar hafði hann lagt
gjörva hönd að verki.
Á þessum tíma var mikil gróska
í öllum íþróttastarfi. íþróttadeildum
hafði fjölgað í öllum stærri félögun-
um. En þau voru tekin undir einni
stjórn, en nefndir skipaðar til að sjá
um stjórnun, en án fjárhagsábyrgð-
ar. KR hafði um þetta leyti 8 íþrótta-
deildir og átti stjórnin að sjá um fjár-
ráð fyrir allar deildirnar. í fram-
kvæmd gekk þetta ekki og var því
uhnið að því að breyta þessu í félag-
inu. Það mun hafa verið árið 1947,
sem nokkrir KR-ingar, þar á meðal
Björgvin unnu að breytingum á
þessu og vildu breyta lögum félags-
ins á þann veg, að hver deild aflaði
fjármuna til rekstursins, og yrði fjár-
hagslega ábyrg. Þessu máli var strax
komið í höfn og 1948 var kjörin
stjórn fyrir knattspyrnudeild KR og
var Björgvin kjörinn í þessa stjórn
og mótaði þar byijuriárstarfið sem
deildin bjó lengi að. En víðar var
leitað eftir starfskröftum Björgvins,
því um líkt leyti var unnið að stofn-
un Knattspyrnusambands íslands,
en það var annað sérsambandið, sem
stofnað var innan vébanda ÍSÍ.
Sundsamband íslands var það
fyrsta. KSÍ var stofnað 1947 og
eftir undirbúningsstörfin var Björg-
vin kjörinn gjaldkeri sambandsins.
Öll byijun er erfið og verður að
vanda vel til verka ef vel á að fara.
Þarna var því réttur maður á réttum
stað, því Björgvin hafði sýnt að hann
var dugandi fjáröflunarmaður og
kunni að gæta fengins fjár. Þessu
starfi gegndi hann í nokkur ár áð
hann var einróma kjörinn formaður
KSÍ og gegndi hann því starfi til
1969 að hann lét af þessu embætti
að eigin ósk.
Undir stjórn Björgvins jókst starf-
ið jafnt og þétt. Fyrst var unnið að
uppbyggingunni innanlands, en
knattspyrnan var ávallt yndi ungra
drengja, en hana þurfti að virkja
betur á skipulagðan hátt, svo árang-
ur næðisttil frambúðar í öllum flokk-
um og þá fyrst og fremst að tryggja
þar með gengi landsliðs okkar í
keppni við erlendar þjóðir. Tekið var
upp nánara samstarf við nágranna-
þjóðir okkar og landsleikir háðir
heima og erlendis.
Björgvin var fararstjóri í mörgum
ferðum til útlanda á þessum tíma.
Ein er sú ferð er honum mun vera
einna minnisstæðust, en það var
árið 1959 er landslið okkar var við
það að velta stórveldinu danska frá
því að taka þátt í Ólympíúleikunum
í Róm 1960. Ólympíunefnd íslands
hafði tilkynnt þátttöku okkar í sam-
ráði og samkvæmt ósk KSÍ í undan-
keppni Ólympíuleikana. Við vorum
m.a. í riðli með Dönum og áttum
að keppa við þá í Idrætsparken í
Kaupmannahöfn, KSÍ hafði þá af-
bragðs knattspyrnuliði á að skipa
og mætti með alla sína bestu menn
til leiks. Mikil spenna var fyrir þenn-
an leik, því Danir vissu um góðan
árangur okkar í riðlinum, en töldu
að þeir væru vissir með sigur. Um
20-30 þúsund manns mættu til leiks-
ins. En það er skemmst frá að segja,
að okkar ágæta lið hélt Dönum í
spennitreyju allan leikinn. Þegar um
15 mínútur voru liðnar á leikinn
skoruðum við mark og héldum því
einu marki yfir, þar til nokkrar mín-
útur voru til leiksloka, að Dönum
tókst að skora jöfnunarmarkið. Út
á þetta mark tókst þeim að komast
til Rómar en við sátum eftir. En til
marks um styrkleika landsliðsins
skal þess getið, að Danir urðu nr. 2
á Ólympíuleikunum. Þetta sýnir að
knattspyrna var komin í háan gæða-
flokk á alþjóðavettvangi á þessum
tíma.
Þau ár sem Björgvin var í stjórn
KSÍ átti hann einnig sæti í Ólympíu-
nefnd Islands. Þar lagði hann gjörva
hönd að verki og studdi starfsemi
nefndarinnar með ráðum og dáð.
Hvenær sem ieitað var til hans um
íjárframlög, lagði hann fram sinn
skerf svo nefndin gæti leyst sín fjár-
hagsmál með sæmd.
Meðan að Björgvin rak innflutn-
ingsfyrirtæki sitt studdi hann ríku-
lega við bakið á íþróttahreyfingunni
fjárhagslega. Hann þekkti það af
eigin reynd, að ávallt vantaði fjár-
muni til framkvæmda. Það var því
stöðugt leitað til hans með margs-
konar stuðning, eins og happdrættis-
miða, auglýsingar í félagsblöð og
margt fleira. Fáir fóru þar bónleiðir
til búðar.
En það er ekki aðeins að Björgvin
hefur látið til sín taka á íþróttasvið-
inu, hann hefur víðar komið við sögu
í félagsmálum fyrir land og þjóð.
Hann hefur gegnt margskonar trún-
aðarstörfum fyrir stórkaupmenn.
Hann var kosinn í stjórn Stórkaup-
mannafélags íslands 1954 og sat
þar í fjögur ár. Árið 1967 var hann
svo kosinn formaður þessara sam-
taka, og átti þá einnig sæti í Verslun-
arráði Islands, gegndi hann þessum
báðum trúnaðarstörfum til ársins
1972. Um tíma var hann varafor-
maður Verslunarráðsins.
Þá hafði hann nokkur afskipti af
borgarmálum og var varaborgarfull-
trúi í borgarstjórn árin 1966-1970.
Þar hafði hann m.a. mikil afskipti
af íþróttamálum, sem hefur verið
mjög stór þáttur borgarmála undan-
farin ár.
Fyrir öll þau miklu félagsstörf,
sem Björgvin hefur innt af hendi
fyrir íþróttahreyfinguna og þjóðina,
hefur hann verið sæmdur mörgum
heiðursmerkjum heima og erlendis,
svo og riddarakrossi fálkaorðunnar.
Að lokum sendi ég Björgvini mín-
ar bestu afmælisóskir og þakka alla
þá vináttu og samvinnu á íþróttavöll-
unum, og í íþróttastarfinu, en þar
hefur aldrei borið skugga á. Björg-
vin er skapfastur maður, sem ávallt
getur rætt við vini sína af einurð
og festu, sem allir meta, enda flytur
hann mái sitt af lipurð og yfirvegað
hveiju sinni, það meta allir og þakka.
Gísli Halldórsson.
Eftir því sem mennirnir eldast
snýst hjól tímans hraðar. í dag er
að því komið að Björgvin föðurbróð-
ir minn fyllir áttunda áratuginn.
Mér finnst það að sönnu ótrúlegt
að svo mörg skuli árin vera orðin
að baki, svo léttur er hann í fasi
þegar við hittumst á Vesturgötunni
eða öðrum fornum slóðum í Vestur-
bænum.
Minningarnar frá liðnum árum
koma fram í hugann og þær fyrstu
eru frá árunum fyrir stríð þegar
alltaf var sólskin og enginn fáraðist
yfir þjóðarbúskapnum. Það var ekki
amalegt fyrir ungan snáða norður
í landi að eiga frænda sunnan fjalla
sem þá þegar var orðinn fræknast-
ur knattspyrnumanna landsins og
allir strákar dáðust að. í okkar
huga átti hann mestan þáttinn í því
að gera KR að merkilegasta knatt-
spyrnufélagi landsins og það hefur
ekkert breyst, þótt árin hafi liðið
og á ýmsu gengið síðan. Og ekki
þótti þeim eldri bræðrunum, föður
mínum og Karli, sem báðir höfðu
verið meistaraflokksmenn í KR
amalegt að fylgjast með snilldarleg-
um upphlaupum yngsta bróðurins
á gamla Melavellinum.
Nokkru seinna kynntist ég síðan
þeim Dídí og Björgvin þegar ég var
um skeið í fóstri hjá afa mínum,
Ellert skipstjóra og Magdalenu á
Stýrimannastígnum. Dídí hafði þá
nýlega komið sem bjartur sólar-
geisli inn í líf Björgvins. Brúðkaup-
ið var haldið vorið 1937 og í meir
en hálfa öld var sól þeirra beggja
í hádegisstað. Hluti af þeirri ham-
ingju voru börnin sjö og heimilis-
bragurinn í Sörlaskjóli verður öllum
ógleymanlegur sem þangað komu.
í íþróttum fékk Björgvin fljótt
orð á sig fyrir einstaka prúð-
mennsku þótt oft væri hart sótt og
varist. Hann var vinsæll og virtur
jafnt af samheijum sem andstæð-
ingum. Þeir mannkostir hafa fylgt
honum alla tíð. Samfara miklum
dugnaði, ljúfmennsku og samvisku-
semi urðu þeir til þess að hann var
fljótt valinn til forystu í íþróttum,
bæði innan KR og síðan í Knatt-
spyrnusambandi Islands þar sem
hann gegndi formennsku um langt
árabil. Þessir sömu kostir hafa án
efa valdið miklu um velgengni hans
í viðskiptalífinu, ekki síst eftir að
hann stofnaði sitt eigið fyrirtækið
1953. Þar fór maður sem allir vissu
að unnt var að treysta og ekki vildi
vamm sitt vita. Snemma var hann
kjörinn til forystu í samtökum ís-
lenskra stórkaupmanna og gegndi
þar trúnaðarstörfum um langt
skeið.
Ég hefi fáum mönnum kynnst á
lífsleiðinni sem eru jafn miklir höfð-
ingjar í sjón og raun sem Björgvin
frændi minn. Háttvísi og ljúf-
mennska hafa ætíð verið hans að-
alsmerki og aldrei hef ég heyrt
hann segja hnjóðsyrði um nokkurn
mann. Svo jákvæður lífsstíll er ekki
öllum gefrnn og því er það gæfa
að eiga vináttu slíkra manna.
Nú hefur sól brugðið sumri í lífi
frænda míns þar sem Dídí er horfin
til annarra heim. En eftir eru börn-
in og allir vinirnir sem í dag fagna
með honum þegar átta áratugir eru
að baki. Megi næstu árin verða
honum jafn góð og þau sem gengin
eru.
Gunnar G. Schram.
frá kl. ÍO,00 til kl. 16 °°
Bílanaust mun hafa opiö fyrsta laugardag hvers mánaðar
frá kl. 10,00 til ló,00
Aöra laugardaga verður opiö frá kl. 10,00 til 13,00
Laugardagstilboð:
Cannon bílamottur 20% afsláttur
Rafgeymir 70 amper kr. 4.929 - ( áöur 6.799 - )
Hleðslutœki 12V 10 amper kr. 4.597 - ( áður 5.408 - )
Eigum einnig mikiö úrval af haustvörum
fyrir bifreiöaeigandur s. s. frostlög. ísvara.
snjósköfur. bílaperur. rafkerti, kertaþrceði,
þokuljós, Ijóskastara. vinnuljós, dráttartóg,
startkapla og ótalmargt fleira.
inaust
Borgarúnl 26
Síml: 91 - 62 22 62