Morgunblaðið - 03.10.1992, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1992
31
Minning
Vilhjálmur Hrólfs-
son, Hólmavík
Fæddur 27. maí 1960
Dáinn 16. september 1992
Ég var rétt sestur við eldhúsborð-
ið heima á Hrófbergi er móðir mín
sagði mér að það hefði verið hörmu-
legt umferðarslys á leiðinni uppá
Hellisheiði og að Villi Hrólfs væri
dáinn og kona hans og börnin hefðu
slasast. Mig setti hljóðan og hjartað
í mér hamaðist að segja, þetta hlýt-
ur að vera einhver vitleysa, þetta
getur ekki verið. Að taka svona
ungan og hraustan mann frá okk-
ur, sem á svo mikið eftir að gera.
Ég kynntist Villa mjög snemma
sem miklum fjörkálfí og alltaf var
hann jafn hress. Ég minnist þess
þegar ég kom árið 1984 með
Hammond-orgelið mitt hingað
norður á Hólmavík, fyrsti maðurinn
sem ég hitti var hann Villi og hann
vildi endilega að ég kæmi heim í
kjallarann heima hjá pabba hans
sem ég og gerði með orgelið. Svo
bættust í hópinn Valdimar og
Magnús Bragasynir og fleiri og það
var meiningin að reyna að æfa
nokkur lög og flytja þau á páskun-
um, sem og varð, en það skal tekið
fram að þegar æfingar stóðu sem
hæst þá var kústurinn settur nokkr-
um sinnum í gólfið ofanfrá, væntan-
lega vegna hávaða.
Hann Villi var mikill áhugamaður
um allan veiðiskap. Við fórum mar-
goft saman á ijúpnaveiðar nú síð-
ari ár, ef einhver hafði áhuga á
ijúpnaveiði þá var það Villi.
Það var farið uppá Steingríms-
fjarðarheiði, Þorskafjarðarheiði,
Trékyllisheiði, Steinadalsheiði og
víðar en veiðin var upp og ofan eins
og gengur. En hugur Villa var allt-
af við Steingrímsfjörðinn. Hesta-
maður og tamningamaður var Villi
góður og í allmörg ár var Villi á
sjónum og nú síðari misseri á frysti-
togaranum Hólmadrangi ST 70.
Það myndi taka margar blaðsíður
að skrifa um hann Villa en ég reyni
að stikla á stóru og minnast þess
tíma sem við Villi vorum saman en
þetta er afskaplega fátæklegt sem
ég færi hér á blað. Það er mikið
meira en sárt þegar ungir og
hraustir menn í blóma lífsins eru
teknir burtu á fögrum haustdegi.
Ég votta eiginkonu og bömunum
hans Villa samúð mína og ég bið
góðan guð að styrkja þau á sorgar-
stund og alla aðra ættingja.
Jón Halldórsson,
Hrófbergi.
Mig langar til að minnast ást-
kærs mágs míns, Vilhjálms Jakobs
Hrólfssonar, Villa, sem lést af slys-
förum 16. september sl.
Ég kynntist Villa fyrst fyrir
u.þ.b. sex árum en þá voru hann
og systir mín nýtrúlofuð. Síðan þá
má segja að ég hafi meira og minna
búið hjá þeim í góðu yfirlæti. í
fyrrasumar fluttu þau til Þorláks-
hafnar og hafði fjölskyldan stækkað
því þá voru þau orðin fjögur. Þar
sem ég var oft hjá þeim var ég
farin að líta á þau sem fjölskyldu
mína því þau gáfu mér það sem ég
hafði ekki fengið annars staðar en
það var ást og umhyggja.
Það er mjög sárt að sjá á eftir
jafn yndislegum manni og Villa því
hann hafði svo margt til að bera.
Villi var sá lífsglaðasti maður sem
ég hef nokkurn tímann kynnst,
hann var alltaf að gantast og vildi
gera gott úr öllu. Hann virtist alltaf
geta fundið broslegu hliðarnar á
öllu, sama hversu alvarlegt málið
var. Hann var traustur og góður
maður sem mundi alltaf eftir vinum
sínum og var einstaklega hjálpsam-
ur því hann vildi alltaf hjálpa þeim
sem á þurftu að halda.
Ég mun aldrei gleyma síðasta
kvöldinu sem Villi fékk að eyða í
faðmi fjölskyldunnar. Við vorum
þarna öll fimm ásamt yngstu systur
minni, Gunnu, sem bjó hjá þeim í
sumar. Ég, Villi og Gunna tókum
að okkur uppvaskið og hafði .ég
aldrei skemmt mér eins vel og þá,
því það var gantast, hlegið og fram-
tíðin blasti björt við okkur öllum.
Þegar ég fór að sofa leið mér mjög
vel því ég fann hve hamingjusöm
þau voru og hve smitandi hamingj-
an var. Mig grunaði aldrei að svona
gæti farið því þetta er mjög órétt-
látt og í mínum huga mun ég alltaf
geyma minninguna um Villa.
Elsku Angelia mín, Halldór, Fjóla
og allir þeir sem eiga um sárt að
binda, Guð gefí ykkur styrk og
huggun.
Ó, minning, minning.
Líkt og ómur íjarlægra söngva
líkt og ilmur deyjandi blóma
berast orð þín að hlustandi
eyrum mínum.
Eins og lifandi verut-
birtast litir og hljómar
hinna liðnu daga
sem hurfu sinn dularfulla veg
ót í dimmbláan fjarskann
og komu aldrei aftur.
(Steinn Steinarr)
Nada Geirlaug.
.
Þetta er Bergþóra Halldórsdótt-
ir. Hún og vinkonur hennar sem
heita Erna Sif Óskarsdóttir og
Rún Gunnarsdóttir söfnuðu rúm-
lega 3.100 kr. til H(jálparstofnun-
ar kirkjunnar.
. Morgunblaðið/Margrét Þóra
Vinkonurnar Kolbrún Hauksdóttir og Sandra Björk Bjarkadóttir sem
eiga heima í Kristnesi í Eyjafjarðarsveit héldu hlutaveltu fyrir
skömmu og söfnuðu þannig 1.729 krónum sem þær gáfu Styrktar-
sjóði Kristnesspítala. Peningarnar verða notaðir til tækjakaupa.
Þessar ungu dömur heita Ragnheiður Ósk Jensdóttir og Soffía Sig-
urðardóttir. Þær söfnuðu á hlutaveltu 1.120 kr. til styrktar Hjálpar-
stofnun Rauða krossins.
AUGLYSINGAR
llliiiIÍM
HUSNÆÐIIBOÐI
Parhús með bílskúr
Til sölu vandað 190 fm parhús í vesturbæ
Kópavogs. 4-5 svefnherbergi, stofa, arin-
stofa og stórt vinnuherbergi á jarðhæð.
Makaskipti á 3ja-4ra herbergja íbúð koma
til greina.
Ársalir, fasteignasala, sími 624333.
Opið í dag frá kl. 10-16.
Stangaveiðimenn
Flugukastkennslan hefst næstkomandi
sunnudag kl. 10.20 í Laugardalshöllinni.
Við leggjum til stangir.
Kennt verður 4., 11., 18. og 25. október og
8. nóvember.
KKR og kastnefndirnar.
Söngfólk athugið
Ámesingakórinn í Reykjavík getur bætt við
sig söngfólki í allar raddir. Ef þig langar að
syngja og vera í góðum félagsskap, þá sláðu
á þráðinn til Sigurðar Bragasonar í síma
46867 eða Rúnars í síma 44619.
FÉIAGSLÍF
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma f kvöld pg
annaö kvöld meö Jens Garnfeldt.
Allir hjartanlega velkomnir.
VEGURINN
P Kristiö samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Samkoma kl. 21.00 fyrir ungt
fólk á öllum aldri. Mikill söngur,
gleði og prédikun orðsins.
Prédikari veröur Benedikt
Jóhannsson.
Allir velkomnir.
„Öll veröldin fagni fyrir
Drottnil... Komið fyrir auglit
hans meö fagnaöarsöngl".
HIMIÍJStt
Vegna mikillar aðsóknar á byrj-
endanámskeið höfum við bætt
við morgunnámskeiði í jóga.
Kennt verður á þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 8.30-10.00.
Námskeiðið hefst í byrjun okt.
Jógastöðin Heimsljós,
Skeifunni 19, 2. hæð,
sími679181 (kl. 17-19).
fnmhjólp
Opið hús
í dag kl. 14.00-17.00 er opið
hús í Þrfbúðum, félagsmiðstöð
Samhjálpar, Hverfisgötu 42.
Lítið inn og rabbið um daginn
og veginn. Heitt kaffi á könn-
unni ásamt meðlæti að hætti
Dorkas-kvenna. Við tökum lag-
ið kl. 15.30. Takiö með ykkur
gesti. Allir velkomnir á meðan
húsrúm leyfir.
Samhjálp.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Ræðumaður Bob Willhite.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar framundan:
Sunnudagur:
Brauðsbrotning kl. 11.00.
Ræðumaður Bob Willhite.
Barnagæsla. Almenn samkoma
kl. 16.30. Ræðumaður Bob Will-
hite. Barnagæsla. Sunnudaga-
skóli byrjar kl. 16.30.
Miðvikudagur:
Bibliulestur kl. 20.30.
Föstudagur:
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Laugardagur:
Dagur fyrir þig kl. 14.00.
Bob Willhite kennir. Kvöldverð-
ur. Almenn samkoma kl. 20.30.
Ræðumaður Bob Willhite.
UTIVIST
Hallveigarstig l • simi 614330
Dagsferðir sunnud. 4. okt.
kl. 10.30Hrómundartindur -
Hoffmannsflöt.
Kl. 13.00 Reykjadalur
Klambragil - Grændalur.
Friskandi göngur um ferska nátt-
úru Grafnings. Gengið um gljúf-
ur, tinda og dali, litast um við
eldstöö, ölkeldur og heitar laug-
ar.
Brottför i ferðirnar frá BS( bens-
ínsölu. Verð kr. 1200/1400. Frítt
fyrir börn 15 ára og yngri ( fylgd
með fullorðnum. Komum endur-
nærð úr Útivistarferð.
Útivist.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533 ,
Sunnudagsferðir 4. okt.
1. Kl. 8.00: Þórsmörk, haustlit-
ir. Stansað 3-4 klst. í Þórsmörk-
inni. Síðasta haustlitaferðin.
Verð 2.500 kr. (hálft gjald fyrir
7-15 ára).
2. Kl. 10.30 Kálfstindar -
Kálfsgil. Skemmtileg fjallganga
á móbergshrygginn Kálfstinda
austan Þingvalla.
3. Kl. 13.00 Þingvellir, haustlit-
ir - Laugarvatnshellar. Fyrst er
gengið að Þórhallastöðum og i
Olkofradal og til baka um Skóg-
arkotsveg í Vatnsvík. Síðan ekið
i Gjábakkahraun 'og að Laugar-
vatnshellum og þeir skoðaðir.
Missið ekki af haustlitadýrðinni
á Þingvöllum. Tilvalin fjölskyldu-
ferð. Brottför frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin (stans-
að við Mörkina 6).
Kynningarafsláttur fyrir nýja
sem eldri félaga er veittur á
nokkrum af styttri ferðunum á
næstunni, þ.á m. ferðum 2 og
3, sem hér eru kynntar á verði
kr. 1.200,- fyrír utanfélaga og
kr. 900,- fyrir félagsmenn
Ferðafélagsins. Munið félags-
skirteini. Tilefnið er 65 ára af-
mæli Fi 1. nóvember. Gerist
félagar. Hægt er að skrá sig í
ferðunum og á skrifstofunni,
Mörkinni 6. (Opið alla virka
daga frá kl. 09-17). Innifalin i
árgjaldi kr. 3.000 er hin glæsi-
lega árbók um svæðið milli
Eyjafjarðar og Skjálfanda.
Munið fyrsta myndakvöld vetr-
arins miðvikudagskvöldið 7.
október kl. 20.30. Efni: Sýndar
litskyggnur og myndband frá
gönguleiðinni frá Snæfelli i
Lónsöræfi og Lónsöræfum.
Góðar kaffiveitingar. Fjölmenn-
ið, félagar sem aðrir!
Ferðafélag islands.