Morgunblaðið - 03.10.1992, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1992
flggMflfl
„ég haeJcko- þig um !oþúsund"
Hæ, þú! Börn mega ekki sitja
í framsæti.
BRÉF ITL BLAÐSINS
Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222
Við ferðumst
um heiminn
Frá Jóhanni Jakobssyni:
Servas-samtökin eru alþjóðleg
samtök fólks sem vilja styðja að
auknum skilningi milli einstakl-
inga og þjóða, styrkja tengsl og
vinna gegn hleypidómum og van-
þekkingu. Servas eru borin uppi
af fjölda einstaklinga, sem með
opnum huga leitast við að hjálpa
og miðla upplýsingum til erlendra
gesta er að garði ber.
Servas-félagar bjóða aðstoð og
fyrirgreiðslu, þar á meðal gistingu
á eigin heimilum, ef aðstaða er til
þess. Þessi fyrirgreiðsla er að jafn-
aði gagnkvæm. Servas-félagi lið-
sinnir með því að mæta fólkinu,
ræða við það og veita því upplýs-
ingar og þannig auðvelda því að
kynnast menningu þjóðarinnar og
umhverfinu sem við hrærumst í.
Viðkomandi öðlast um leið kynni
af menningu og viðhorfum gests-
ins. Kynnin og ánægjan verða
gagnkvæm.
Servas-félagar eru skráðir hjá
samtökunum í viðkomandi landi.
Þetta býður upp á mikla möguleika
fyrir ferðafólk til að kynnast öðr-
um vítt um heimsbyggðina, en
Servas starfar í flestum löndum
heims. Servas hefir ráðgefandi
stöðu og viðurkenningu sem al-
þjóðlegur félagsskapur hjá Félags-
málaráði Sameinuðu þjóðanna
(UN Economic and Social Couns-
i».. .
A Islandi eru nú starfandi fjórir
félagar, tveir á Reykjavíkursvæð-
inu og tveir norðanlands. Við vilj-
um vekja athygli á þessu starfí.
Starfíð laðar að, veitir ánægju,
skapar kynni, leiðir til vináttu-
tengsla og það virkar gagn-
kvæmt. Þeir sem láta í té aðstoð
geta notið aðstoðar fyrri gistivina
og annarra félaga samtakanna
vítt um veröldina.
JÓHANN JAKOBSSON,
Stekkjarhvammi 74, Hafnarfirði.
Atvinnu-
leysi á Suð-
urnesjum
Frá Rannveigv Tryggvadóttur:
Fjögur til sex hundruð manns
munu nú atvinnulaus á Suðurnesj-
um. í vikunni var svo 45 manns
sagt upp störfum hjá Skipasmíðá-
stöð Njarðvíkur. Frá þessu var
greint í sjónvarpsfréttum 30. sept-
ember og jafnframt greint frá því
að í heilt ár hefðu forsvarsmenn
bandarískra fyrirtækja beðið eftir
svari íslenskra stjómvalda við því,
hvort þeim munu heimilt að setja
lítt eða ekki mengandi iðnfyrirtæki
á stofn á væntanlegu fríhafnar-
svæði í Keflavík. Áður hafði ég
heyrt það, einnig í sjónvarpsfrétt-
um, að heimamenn séu mjög
áhugasamir um að samningar tak-
ist við þessi fyrirtæki og bentu
þeir sérstaklega á ónotað iðnaðar-
húsnæði á staðnum, þar sem allri
starfsemi hefur verið hætt.
Hvað veldur seinaganginum í
svo brýnu máli?
RANNVEIG TRYGGVADÓTTIR,
Bjarmalandi 7, Reykjavík.
HEILRÆÐI
Það er gaman að gramsa í handtöskum - í þeim leynast
oft miklar hættur!
RAUÐI
KROSS
ÍSLANDS
HÖGNI HREKKVÍSI
„HANN VELTIR HENWI &CK1 EF
HONUAI LÍICAR /HATseolLUMN.
___________________________________
Víkveiji skrifar
Um 6 til 7 prósent íslendinga
eru haldnir ofnæmi. Þeir hafa
ofnæmi fyrir frjókornum og ryki
margir hveijir. Þetta er sjúkdómur,
sem herjar hvað harðast yfir há-
sumarið, þegar loftið fyllist af fijó-
komum. Þá lýður þessu fólki, sem
haldið er þessum sjúkdómi yfirleitt
illa og það verður að taka lyf til
þess að hafast við.
Eins og áður sagði er ryk einnig
mikill ofnæmisvaldur og þegar ljóst
er að svo hátt hlutfall fólks er hald-
ið þessum sjúkdómi, er óskiljanlegt,
að skólayfirvöld skuli teppaleggja
skóla. Einn slíkur er t.d. Fossvogs-
skóli og þegar teppi verða gömul,
fyllast þau af ryki. Það er því aug-
ljóst að þeir nemendur, sem haldnir
eru ofnæmi, hljóta að finna fyrir
þessu í skólanum og þyrfti í raun
að kanna, hvort árangur ofnæmis-
sjúkra barna í slíkum skólum er
lakari en annarra.
Raunvísindastofnun Háskólans
hefur hins vegar hafíð frjómælingar
í lofti yfir sumarmánuðina og er
það vel, svo að menn geti áttað sig
á því hvenær fijómagn er í hámarki.
xxx
Islandsbanki hefur ákveðið að
árlega verði einn dagur í bank-
anum reyklaus og var það dagurinn
í fyrradag, hinn 1. október. Tak-
markið er að bankinn verðu algjör-
lega reyklaus um aldamótin eða
árið 2000. í bankanum hefur staðið
yfir sérstakt átak til þess að draga
úr reykingum starfsfólks og hefur
það haft þau áhrif að reykingafólki
meðal starfsfólks hefur fækkað um
3 til 5% frá því er átakið hófst.
Hinn 1. október var sérstaklega
valinn með tilliti til þess að í alman-
aki íslandsbanka stendur einmitt
við daginn 1. október: „Að anda
að sér fersku lofti er lífsnauðsyn
og hluti af heilbrigðu líferni. Með
því að hætta reykingum bætum við
heilsuna, umhverfið verður hreinna
og andrúmsloftið betra. Njótum öll
reyklauss lífs, innan dyra sem ut-
an.“
xxx
Fjárskortur ríkisins er alltaf jafn
mikill og ríkiskassinn tómur.
Þetta er viðvarandi vandi, sem eng-
inn fjármálaráðherra hefur getað
leyst. Víkveiji var á dögunum að
fletta fréttabréfí Starfsmannafé-
lags ríkisstofnana og rakst þar á
viðtal við mann, sem hefur ráð
undir rifi hveiju. Hann heitir Jó-
hannes Jóhannesson og er rann-
sóknarfulltrúi hjá Rannsóknardeild
Ríkisskattstjóra. Fyrirsögnin á við-
talinu er: „Get bent Friðrik á það
hvar peningarnir eru“. í viðtalinu
segir, að eitt af því sem Jóhannes
sinni í sambandi við vinnu sína sé
að skoða skattskil fyrirtækja. Síðan
segir hann: „Það eru nógir peningar
til í þjóðfélaginu, og ég get alveg
bent Friðrik á hvert hann ætti að
sækja þá.“
Þá höfum við það, nú þurfa að-
eins Friðrik og Jóhannes að ná sam-
an.