Morgunblaðið - 03.10.1992, Síða 45
I
I
I
I
I
I
1
I
I
I
I
I
I
I
I
'
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1992
Vinnubrögð Pósts og síma
Frá Magnúsi H. Skarphéðinssyni:
Til umsjónarmanns Víkveija
•augardaginn 12. sept. og miðviku-
daginn 16. sept.:
I tilefni athyglisverðrar umfjöll-
unar Víkverja um símaskrárþurrð
Pósts og síma langar mig að upp-
•ýsa Víkverja og aðra landsmenn
um aðra og síst minna undarlegri
hlið á þessu ríkisfyrirtæki og við-
skiptaháttum þess.
Þannig er að vegna sérstakra
aðstæðna og starfs míns og sam-
starfsaðila og verkefna í tengslum
við það er ég handhafi fjögurra síma
sem tengdir eru inn á vinnustofu
okkar. Nú í vor sem fyrr við afhend-
*ngu símarskrárinnar sem áður tjáði
ég Pósti og síma að við þyrftum
ekki nema eina til tvær símaskrár
fyrir okkur. Og hvort ekki væri
hægt að afsala sér réttinum til
a.m.k. tveggja skráa og til tilsvar-
andi lækkun á símagjaldinu sem
næmi útsöluverði þeirra hjá fyrir-
tækinu. Mér var sem áður tjáð að
slíkt væri ekki hægt. Okkur væri
velkomið að afsala okkur skránum
en ekkert kæmi fyrir. Þá spurði ég
hvort ekki mætti láta aðra skrána
upp í götu- og númeraskrána sem
var að koma út líka á sama tíma
og starfsemi okkar þyrfti á að halda
ýmissa hentugleika vegna. Það var
líka útilokað. Og líka útilokað þó
ég byði að afsala okkur tveimur
símaskrám eins og ég vildi en eng-
in inneign myndaðist fyrir það.
Reiðufé væri eini aðgangsmáti að
götuskránni. Þetta fannst mér þess
undarlegra því að*nú gekk upplag
símaskrárinnar til þurrðar nýverið
og er verið að prenta nýtt að sögn
Ágústs Geirssonar yfírmanns hjá
símanum.
í þessu sambandi er mér spum:
Gilda engin venjuleg viðskiptalög-
mál hjá Pósti og síma gagnvart
viðskiptavinum sínum eins og hjá
öllum alvörufyrirtækjum sem þurfa
að keppa í samkeppninni úti á
markaðnum? Væri nú ekki nær að
láta af þessari þvermóðsku með
símaskrárafhendinguna og gefa
viðskiptavinum símans kost á að
afsala sér einhveiju af aukaeintök-
um skránna sem mjög algengt er
hjá fyrirtækjum með margar línur
gegn ívilnun í föstu afnotagjaldi
símareikninganna eða á færslu ann-
arrar inneignar hjá fyrirtækinu?
Það vill svo til að ég kem víða í
fyrirtæki þar sem bunkar af óupp-
rifnum símaskrám standa úti í homi
og aldrei verða notaðar eingöngu
vegna þessarra undarlegu við-
skiptahátta Pósts og síma og allur
pappírsausturinn í þær í heimi
þverrandi skóga fer beint í rusia-
körfuna án þess að hafa komið
nokkrum nokkum tímann að gagni?
Og alveg er ég sannfærður að þá
stæði ekki fyrirtækið í því núna að
prenta aukaupplag af símaskrám á
sama tíma og örugglega þúsundir
einstaka af skrám standa engum
til gagns og munu ekki verða vegna
þessara stórundarlegu vinnureglu
Pósts og síma. Spyr sá sem ekki
veit.
MAGNÚS H.
SKARPHÉÐINSSON
Grettisgötu 40b, Reykjavík.
LEIÐRÉTTING
Leikfélag
Hafnarfjardar
í Morgunblaðinu í fyrradag var
frétt frá Leikfélagi Hafnarfjarðar
um vetrarstarf félagsins, sem er
að heíjast. Þar sagði að leikritið
Hans og Gréta yrði fmmsýnt í okt-
óberbyijun, en átti að vera nóvemb-
erbyijun. Þetta leiðréttist hér með
og em hlutaðeigendur beðnir vel-
virðingar á missögninni.
Pennavinir
ítölsk 23 ára stúlka með marg-
vísleg áhugamál:
Roberta Pasini,
Via B. Cesana 3
20132 Milano,
Italy.
Átján ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist, bókalestri, kvik-
myndum o.fl,
1-3-3 Showa-cho,
Takamatsu-shi,
Kagawa,
760 Japan.
VELVAKANDI
TASKA
Svört axlartaska tapaðist
fyrir nokkru. í henni var vega-
bréf, snyrtitaska og flauels-
jakki. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 71893.
ÞRÍHJÓL
. Dino þríhjól er í óskilum á
Ásvallagötu 59.
VEL HEPPNUÐ
FERÐ
Hannes Tómasson:
Ég vil þakka fyrir vel heppn-
aða ferð til Þingvalla sem Sjálf-
stæðisflokkurinn stóð fyrir. Á
Þingvöllum var farið í skoðun-
arferð_ og kirkjan m.a. heim-
sótt. I bakaleiðinni var komið
við í Skíðaskálanum. Allir komu
ánægðir úr þessari ferð.
ÁKEYRSLA
Lýst er eftir vitnum að
ákeyrslu sem átti sér stað í
Lönguhlíð fímmtudaginn 24.
september, er svartur Daihatsu
ók aftaná rauðan Subaru justy.
Þeir sem urðu vitni að árekstr-
inum eru vinsamlegast beðnir
að hafa samband við Vigfús í
síma 677012 eða síma 685422.
MANNÚÐÁ
UNDANHALDI
Jóhannes R. Snorrason:
Ljót saga birtist á síðum
Morgunblaðsins 30. september
sl., þar sem segir frá því er
tófugrey flýði óttaslegin undan
glefsandi gini hunda gangna-
manna á Hrolleifsdal í Húna-
vatnssýslu. Þessi vesalingur
reyndi að bjarga lífí sínu með
því að stökkva út á stein í ánni,
sem rennur niður dalinn, og
húkti þar í örvæntingu meðan
geltandi hundar og froðufell-
andi þyrptust á árbakkann.
Einn gangnamanna lét sig hafa
það að vaða út í svellkalda
ána, en ekki til þess að bjarga
þessu vesalings dýri, heldur til
þess að taka ómakið af hundun-
um og fara með tófuna upp á
bakkann til þess að drepa hana
með eigin hendi.
Þetta fannst mér ljót saga
og ómannúðleg. Gangnamenn
ættu ekki að láta svona nokkuð
af sér spyijast, nóg er af ljótum
og ómannúðlegum fréttum í
gölmiðlum þótt ekki séum við
Islendingar að hælast yfír því
að drepa saklaus dýr í sjálf-
heldu.