Morgunblaðið - 08.10.1992, Blaðsíða 40
140
j MOmra^MSœOTMMTUIMBmifanQKTÖBEK ]&*)2
oman
Saltkjöt og baunir...
í dag.
Heimilismatur í hádeginu alla daga.
HÖT£L U/W
Rouðorórsfíg 18 - Sími 623350
fclk f
fréttum
ITALIA
Pavarottí málar
A
Italska stórsöngvaranum Luciano Pavarotti er fleira
til lista lagt en að syngja. Eins og margoft hefur
fram komið, er Pavarotti einkar laginn í eldhúsinu og
ferðast ekki án þess að hafa eigin heimatilbúna tómats-
ósu í farteskinu. En söngvarinn á sér fleiri hliðar, því
hann er liðtækur málari.
Pavarotti hefur málað í fimmtán ár og er nú svo
komið að hann grípur í pensilinn hveija stund sem hann
á aflögu. Fyrsta sýningin á verkum hans var haldin
fyrir ellefu árum í New York og í sumar hélt hann
sýningu i Kaupmannahöfn. Myndir hans eru í glaðlegum
litum, líflegar og bera þess vitni hversu mikill lífsnautna-
maður Pavarotti er og kemur víst fæstum á óvart sem
fylgst hafa með vaxtarlagi söngvarans gegnum tíðina.
Pavarotti rígmontinn við eitt verka
sinna.
Matur og drykkur eru ær og kýr Pava-
rottis, hvort heldur er til neyslu eða til
að mála.
NAMSKEIÐ
Ken tadagar
d
Hótel Loftleiðum
9.-18. október
Keníski $nillingurinn
Eamon Muílan reiðir fram
rétti á sælkcrakvöldum í
Blómasal. Með honum í för
verða inttft
3ir dansarar
sem sýna dansa ög færa gesti
nær kenísku andrúmslofti.
Að kenfskum sið fá
konurnar litla gjöf til
minningar um kvöldið.
Borðapantanir í síma
91-22321
FLUGLEIÐIR
imir fi a\ mnmin «11
Þegar kenískur matarilmur liggur í loftinu.
mmm
, .
______
Skátar héldu Gilwell-námskeið
Gilwell-námskeið var haldið á
Úlfljótsvatni vikuna 22. til 30.
ágúst sl. Gilwell-námskeið er al-
þjóðlegt námskeið og æðsta for-
ingjaþjálfun sem skátaforingi getur
hlotið.
Gilwell-námskeið hafa verið
haldin hér á landi nær óslitið síðan
1959 og árlega frá 1989. Hug-
myndin að þjálfuninni kom frá
stofnanda skátahreyfíngarinnar
Lord Baden-Powell. Hann hugsaði
sér að árangursríkt væri að safna
saman foringjum til lengri útilegu
og tengja saman foringjafræði og
upplifun í skátastarfí.
Þátttakendur voru 20 víðs vegar
að af landinu á aldrinum 18 til 31
árs. í heila viku voru þeir að störf-
um sem óbreyttir skátar, byggðu
tjaldbúðir, rifjuðu upp undirstöðu
skátafræðanna og gengu á fjöll.
Kvöldvökur voru haldnar á hverju
kvöldi og meðal góðra gesta var
menntamálaráðherra, Ólafur G.
Einarsson, og gamlir Gilwell-skát-
ar. Námskeiðið gekk mjög vel og
voru allir þátttakendur sammála
um að þetta hefði verið lærdómsríkt
og hvetjandi fyrir áframhaldandi
starf.
Stjómandi námskeiðsins var
Björgvin Magnússon og hafði hann
gott lið leiðbeinenda sértil aðstoðar.
(Fréttatílkynning)