Morgunblaðið - 19.11.1992, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1992
5
Utboð á kvóta Hagræðingarsj óðs
Formaður LÍÚ sat hjá
við afgreiðslu málsins
Telur að aflaheimildimar muni ekki seljast
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra út-
vegsmanna, lagði til á fundi í
stjórn Hagræðingarsjóðs á
þriðjudag að frestað yrði að
bjóða út ríflega 3.300 þorskí-
gildistonnum eða 30% af kvóta
sjóðsins. Ekki var fallist á það
og sat Kristján hjá við af-
greiðslu málsins. Kristján segir
að stjórn sjóðsins hafi samþykkt
fyrir hálfum mánuði að bjóða
30% af kvótaeign sjóðsins til
sölu en breytt fyrri samþykkt á
fundinum á þriðjudag af ótta
við að kvótinn seldist ekki og
ákveðið að hafa aðeins raun-
verulega til sölu 15% af afla-
heimildum sjóðsins. Að sögn
Svavars Ármannssonar, aðstoð-
arframkvæmdastjóra Fiskveiða-
sjóðs, sem fer með málefni Hag-
ræðingarsjóðs, felst í ákvörðun
stjórnarinnar að sjóðurinn
skuldindur sig til að taka tilboð-
um hæstbjóðenda í helminginn
af því magni af hverri tegund
sem boðin eru út eða 15% af
heildareign sjóðsins en að öðru
leyti sé réttur áskilinn til að
taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Kristján sagðist telja að ekki
væri réttur tími til að bjóða þetta
magn til sölu núna á meðan allt
væri í ólestri varðandi boðaðar
jöfnunaraðgerðir vegna kvóta-
skerðingarinnar. Því hafi hann tal-
ið skynsamlegast að fresta útboð-
inu. Sem stjórnarmaður í Fisk-
veiðasjóði beri hann ábyrgð á að
kvóti sem boðinn er til sölu seljist
fyrir hæsta mögulegt verð en hann
telji að aflaheimildirnar muni ekki
seljast.
Aðspurður hvort ástæða hjásetu
hans þegar tekin væri ákvörðun
um uppboð á veiðiheimildum sjóðs-
ins byggðist á afstöðu hans til físk-
veiðistefnunnar svaraði Kristján
að það hefði ekkert með þetta að
gera. Hann sæti í stjóm sjóðsins
og sjóðsstjórn væri falið sam-
kvæmt lögum að selja aflaheimild-
irnar.
Stjórn Fiskveiðasjóðs annast
stjórn Hagræðingarsjóðs sam-
kvæmt lögum og sitja því sömu
menn í stjórnum beggja sjóðanna
og annast Fiskveiðasjóður dagleg-
an rekstur Hagræðingarsjóðs.
Utboð ríkisvíxla
Meðalávöxt-
un hækkar
úr 9,3 í 9,4%
MEÐALÁVÖXTUN hækkaði lít-
illega í öðru útboði þriggja mán-
aða ríkisvíxla sem fram fór í
gær. Meðalávöxtun tekinna til-
boða var nú 9,41% en var 9,29%
í fyrsta útboðinu sem fram fór
4. þessa mánaðar.
Alls bárust 34 gild tilboð í ríkis-
víxla að fjárhæð 2.258 milljónir kr.
Ríkissjóður tók tilboðum frá 23
aðilum samtals að fjárhæð 1.206
milijónir kr. en í útboðsskilmálum
skuldbatt ríkissjóður sig til að taka
tilboðum á bilinu 500 til 2.000 millj-
ónir kr. Meðalávöxtun tekinna til-
boða var 9,41% sem svarar til 8,89%
forvaxta, samkvæmt frétt frá Lána-
sýslu ríkisins.
Ávöxtun tilboða í útboðinu var á
bilinu 9,08 til 9,53%, en í fyrra
útboðinu var breytileikinn meiri eða
á bilinu 8,75 til 9,81%.
Útboð Hagræðingarsjóðs verður
auglýst á morgun og tekur það til
1.626 tonna af þorski, 515 tonna
af ýsu, 757 tonna af ufsa, 1.078
tonna af karfa, 281 tonns af grá-
lúðu og 127 tonna af skarkola.
Miðað er við slægðan fisk með
haus nema karfi reiknast óslægð-
ur. Einungis skipseiganda er heim-
ilt að bjóða í aflamark sjóðsins og
verður að tilgreina það skip sem
framselja á aflamarkið til. Sé’til-
boði tekið verður að staðgreiða til-
boðsfjárhæð. Hefur skipseigandi
allan ráðstöfunarrétt á kvótanum
á sama hátt og gildir um það afla-
mark sem skip hans hefur fyrir.
Tilboðsfrestur rennur út 30. nóv-
ember.
Sterk á
svellinu
Skautasvellið í
Laugardal nýtur
mikilla vinsælda
meðal borg-
arbúa. Þessi
stúlka lék listir
sínar á svellinu
þegar ljósmynd-
ari Morgun-
blaðsins átti leið
um- Laugardal-
inn í gær.
Morgunblaðið/Gunnar Blöndal
SH'iijUkur á brauO/d pönnu^ °9 ‘ bakstunnn-
Smjom
Smjörvi
verður alltafofan d
...hvort sem það er rúnstykki,
rúgbrauð, harðfiskur, soðin ýsa,
kex eða ofnbakaðir réttir.
Símjúkur SMJÖRVI
til að fullkomna bragðið.
AUK k9d22-687