Morgunblaðið - 19.11.1992, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 19.11.1992, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1992 ,,/4-f hve/juhazttiréu c. ra-Puirfcjastarfinu ? " Með morgunkaffínu Ast er. ■^<r safwtffrs 6-8 ... að vinna sameiginlega úr vandamálunum TM Reg U.S Pat Off. —all nghts reserved ® 1992 Los Angeles Times Syndicate 4] 2Í1P3 // im AfN / Er nýja púströrið ekki vit- Iaust tengt...? HOGNI I1R1.KKVISI BRÉF TIL BI.AÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 Nóg var Frá Hilmari Sigurðssyni: NÓG VAR nú samt. Þessi orð lét fyrrverandi samgöngumálaráð- herra lesa upp eftir sig í útvarpi er í ljós hafði komið að Herjólfur nýi hafði ekki þá sjóhæfni sem slíku skipi ber að hafa. Með þessum orðum leynir sér víst ekki hver hugur hans hafði verið í þessu máli, venjan er að fagna slíkum áföngum sem náðst hafa en ekki að sletta svona orðum fram. Hann hefur víst líka viljað álíta að hann hafi nú afrekað mik- ið í þessu máli. Viðvörun skipa- tæknis, sem hafði gott vit á þess- um hlutum, um að skipið yrði vara- samt og myndi skorta sjóhæfni, létu þeir sem vind um eyru þjóta. Og eftir að hafa komið því í gegn með aðstoð úrtöluradda að gera breytingu frá upphaflegri teikn- ingu skipsins með breytingu og öðrum breytingum, þannig að það var búið að missa sjóhæfni sína og orðið varasamt, var hafín dýr líkansprófun á því með það fyrir augum að ná sem mestum hraða í sléttum sjó, og um leið með meiri olíueyðslu en með þeirri lengd sem því bar að hafa. Manni finnst ekki hægt að réttlæta svona lagað, því sjóhæfni og öryggi skal ávallt sitja í fyrirrúmi, ekki síst er um farþegaskip er að ræða. Af hverju skyldi þessi dragbíts- háttur hafa verið viðhafður í þessu máli. Vestmannaeyjar eru einhver stæsta verstöð landsins og þar búa um fímm þúsund manns. I fram- haldi af miklum samgöngubótum á landi méð bundnu slitlagi á veg- um og lagningu brúa yfír ár og vötn og einnig gangagerðum, var gerð samþykkt um að gera um- bætur til samræmis kröfum tímans og mikils bílaflota og auk- ins ferðamannastraums til Eyja. Skyldi það því verða fullkomin fólks- og bílfeija. Kom það í hlut fyrrverandi ríkisstjórnar að vinna að því verki. Hvers vegna skyldi hún hafa reynt að tefja og flækja þetta mál hvað mest hún mátti í stað þess að vinna af alhug? Ég vil bera þetta saman við gangagerðina fyrir vestan. Þing- maður þeirra reis upp og krafðist þess að gangagerð þar skyldi haf- in og haldið áfram, hlaupið var til og farið vestur og verkið sett í nú samt gang af fullum krafti. Við höfum átt og eigum ágætis mann í þessu framfara- og réttlætismáli okkar og raunar allra landsmanna, Árna Johnsen, sem hruggaði ónotalega við þeim með góðum greinum og öðru slíku. Ég var með í siglingu Heijólfs í siglingu hans kringum landið en hreppti fremur slæmt veður með- fram suðurströndinni (skáhallt á móti) svo að skipinu seinkaði um 12 klukkustundir eri það sýndi sig að þar höfðum við hinum hæfustu skipstjórnarmönnum á að skipa. Það þurfti mikla aðgæslu við skip- ið að draga úr ferð þess en skipi með fulla sjóhæfni hefði ekki munað mikið um þetta. Það var slæmt að fá svona reynslu og aug- lýsingu eins og skipið er vel úr garði gert, verk skipasmíðastöðv- arinnar að öllu leyti til fyrirmynd- ar og allar tímasetningar stóðust. HILMAR SIGURÐSSON Boðaslóð 21, Vestmannaeyjum SÓLARLAG Víkverji skrifar IDagskránni, sem gefin er út á Selfossi, er að finna sérstakan dálk, sem þeir austanmenn kalla Nöldrið. Nýlega var þar vikið að ljósabúnaði stórra langferðabif- reiða og segir svo m.a. í Dag- skránni: „Þegar þú mætir stórum flutningabíl í myrkri er það eins og að mæta jólatré. Flutningabílar eru ekki bara með þessi venjulegu ljós, heldur eru þeir skreyttir með ljósum á þaki og litlum ljósum hér og þar á bílnum sem venjulegur bíll fengi aldrei að skreyta sig með. Þessi glysgirni flutningabíl- stjóra nær þó ekki til afturenda flutningabílanna. Þar grúfir myrkrið yfir og oft þegar maður dregur þá uppi er það eins og að aka fram á stórt bjarg á veginum. Það hlýtur að vera óskynsamlegt að hrúga öllum ljósabúnaði flutn- ingabílsins að framan í stað þess að dreifa honum skynsamlega milli fram- og afturenda bílsins," segir í Dagskránni. xxx Flateyri hefur nokkuð verið í fréttunum að undanfömu og iðulega á heldur neikvæðan hátt. í viðtali við Vestfírska fréttablaðið á ísafirði lýsir Jónmundur Kjart- ansson, yfírlögregluþjónn á ísafírði, því vandamáli sem við er að etja á staðnum og segir svo meðal annars í símtali við Vest- fírska: „Ég held að mjög slæmt sé að safna saman svona ólíku fólki í verbúðir, eftirlitslausu. Það mætti t.d. hugsa sér það að at- vinnurekendur rækju þessar ver- búðir á menningarlegan hátt og það yrði húsvörður í hverri verbúð. Þegar við komum í þessar verbúð- ir á nóttunni er enginn maður með rænu. Menn eru öldauðir tvist og bast og þeir fáu sem eru vakandi eru ekki viðræðuhæfir. Svona er ástandið oft þegar við komum þarna að. Auðvitað vill maður staðnum vel og að þetta fari að lagast. Skilaboð okkar til atvinnurekendanna eru þau að þeir athugi allt í sínu búi og fylg- ist miklu betur með þessum ver- búðum ef þeir ætla að halda rekstri þeirra áfram, sem getur verið nauðsynlegt til að fá vinnukraft. Þeir setji t.d. vaktir í verbúðirnar um helgar og athugi hvort þetta ástand geti ekki skánað eitthvað og losi sig þá við „óæskilega ein- staklinga“, sem margsinnis eru staðnir að því að vera þarna ruglaðir og vitlausir," segir yfirlög- regluþjónninn m.a. í þessu athygl- isverða og afdráttarlausa samtali við Vestfírska.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.