Morgunblaðið - 26.11.1992, Blaðsíða 4
seer ammavoK .3S auoAavTMMii amAjmuoaou
—MORGfUNBLAÐIÐ PIMMTUDAGUR-í!6:-N0VEMBERr Í992-
Skýrsla ákæruvaldsins í Flórída
Tálbeitan varaði Mend-
ingana við lögbrotinu
frá Atla Steurarssyni Flórída.
TALBEITAN sem tollgæslan í Flórida notaði í máh' íslendinganna
tveggja sem sakaðir eru um ólöglegan innflutning á hormónalyfjum
til Bandaríkjanna aðvaraði fslendingana ítrekað við ólögmæti aðgerða
þeirra. Þetta kemur m.a. fram í skýrslu ákæruvaldsins í málinu. Tál-
beitan, sem hefur dulnefnið CI-1 f skýrslunni, benti öðrum Islending-
anna á ólögmæti innflutnings lyfjanna bæði í símtölum og á fundum
þeirra sl. sumar er innflutningurinn var undirbúinn og viðskiptasam-
banda vegna hans aflað f Bandaríkjunum. . .
Um samskipti CI-1 og íslending- tjáir annar íslendinganna CI-1 að
anna í skýrslunni segir að verulegur
skriður hafi verið kominn á málið í
lok september sl. er annar íslending-
urinn tjáði CI-1 í símtali, hinn 26.
september, að hann væri í sambandi
við kaupendur hormónalyfjaí Los
Angeles, Miami og Virginu. íslend-
ingurinn lét þess getið að kaupandinn
í Los Angeles væri reiðubúinn að
kaupa hormónalyf fyrir 1-2 milljónir
dollara í desember og fyrir eina millj-
ón dollara á mánuði eftir þann tíma
er hann hefði komið fyrstu sending-
unni f verð.
í öðru símtali, hinn 1. október,
VEÐUR
hann sé kominn í samband við dreif-
ingaraðila í Evrópu sem sé reiðubú-
inn að senda hormónalyf á fölskum
pappírum til Bandaríkjanna og að
hann geti sent lyf fyrir 10 milljónir
dollara á mánuði. Hinsvegar fari
hann fram á mjög hátt verð fyrir
varninginn.
Eins og kunnugt er af fréttum um
málið fluttu íslendingarnir fyrstu
sendinguna af hormónalyfjum til
Bandaríkjanna frá Indlandi og kom
sú sending til Orlando í byrjun nóv-
ember. íslendingunum hafði þátekist
að útvega kaupendur að henni í St.
Petersburg. í sendingunni var að
fmna 44.000 einingar af anabolic
steriods og 35.000 einingar af neura-
bol stanozolo auk ýmissa annarra
hormónalyfja í mun minna magni.
í skýrslunni er að finna frásögn
af því er íslendingarnir hittu kaup-
endurna frá St. Petersburg, tvo
Bandaríkjamenn, Miller og Crowell,
á skrifstofu CI-1 í Orlando. Auk
þessara fjögurra og CI-1 var önnur
tálbeita frá alríkislögreglunni við-
stödd á fundinum.
Á þessum fundi féllust íslending-
arnir á að afhenda Bandaríkjamönn-
unum sendinguna án þess að fá
greiðslu fyrir. Miller og Crowell hlóðu
henni í sendiferðabíl sem þeir voru
á og voru síðan handteknir af toll-
gæslumönnum er þeir ætluðu að yfir-
gefa staðinn samhliða því sem toll-
gæslumenn réðust inn á skrifstofu
CI-1 og handtóku íslendingana.
VEÐURHORFUR I DAG, 26 NOVEMBER
YFIRUT: Yfir norðausturlandi er víðáttumikið 950 rnb djúp lægð sem
mun þokast horðvestur og síðar suðvestur ög grynnast.
SPÁ: Suðvestan kaldí eða stinníngskaldi með éljagangi sunnanlands og
vestan en léttir til norðaustaniands. Hiti nálægt frostirnarki og fer heldur
kóinandi.
VEBURHOREUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg suðvestlæg eða breytileg átt. Dálítil él á
vfð og dreif um landið, þó einkum vestanlands. Híti um og undir frost-
marki.
HORFUR Á LAUGARDAG: Vaxandi suðaustanátt með snjókomu og sfð-
an slyddu um sunnan- og vestanvert landið en Ifklega þurrt á Norð- og
Norðausturlandi. Hfýnandi í bíli.
Nýlr veðurfregnatímar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 890600.
0
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað
/ r r * r * * * *
r r * r * *
r r r r * r * * *
Rigning Slydda Snjókoma
€__J> C__J
Skýjað Alskýjað
V § Ý
Skúrír Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vintiörin sýnlr vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
V Súld
=s Þoka
rtig..
FÆRÐA VEGUM: 00.17.30.9-0
Á Hellisheiði, í Þrengstum og á Mosfellsheiði er skafrenningur og hálka.
Fært er á þessum vegúm og í nágrenni Reyiqavíkur og til Suðumesja. Fært
er um Suðurland og með suðurströndinni til Austfjarða. Fært er um Borgar-
fjörð, á Snæfellsnesi er ófært um Fróðárheiði, Kerlingarskarð og í Mikla-
hoitshreppi. Fært er um Heydal og norðanvert Srtæfellsnes til Óíafsvíkur og
í Dali, verið að moka vestur f Reykhólasveit Brattabrekka er ófær. Allar
heiðar á Vestfjöroum eru ófærar og beðið með mokstur á þeim heiðum sem
áætlað var að moka. Frá ísafirði er verið að moka til Boiungarvíkur og Súða-
vfkur. Ófært er um Hoftavörðuheioi, þar er blindbyiur og ekkert ferðaveður,
annars er fært til Holmavíkur, Siglufjarðar, Akureyrar og þaðan til CHafsfjarð-
ar. Skafrenningur og hálka er á heiðum og annesjum norðanlands. Frá
Akureyrí er fært austur um Þingeyjarsýslur, til GrenMkur, Húsavlkur og með
ströndinni til Vopnafjaroar. Fært í Mývatnssveft. Austanlands eru vegir yfir-
leftt færir, beðið er átekta með mokstur á Fjarðarheiði. Mikil hálka er á
vegum víða um land, aðallega á heíðum og fjallvegum.
Upplýsingar um færð eru veittar hjé Vegaeftirlití í síma 91-631500 og
ígrænnílínu 99-6315. Vegagerðín.
* "ú
> i /
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kf.12.Mi 'gær að í$l. tfma
hiti voður
Akureyri 2 rigningð
Reykjavík 0 slydda
Bergen 7 rigning
Helainki +1 snjökoma
Kaupmannahöfn S rigning
Narssarssuaq +10 iéttskýjaö
Nuuk +10 léttskýjað
08IÓ 0 slydda
Stokkhólmur 4 alskýjað
Þórshöfn 7 skýjað
Algarve 16 þokumóða
Amsterdam 11 skur
Barcelonð 16 þokumóða
Berlín 8 rígning
Chlcago 6 aiskýjað
Feneyjar 7 þokumóða
Frankfurt 8 sktir
Giasgow 8 úrkoma
Hamborg 10 skúr
London 10 rigning
LosAngeles 12 léttskýjað
Lúxemborg 10 lóttskýjað
Madrid 11 mistur
Malaga 18 heiðskírt
Mallorca 21 léttskýjað
MontreaT 4 rigning
NewYork vantar
Ortando 22 þokumóða
Patfc 13 skýjað
Madeira 22 léttskýja*
ftóm 20 skýjað
Vfn 6 alskýjað
Washington 11 þokumóða
Winnipeg +4 alskýjað
Landssöfnunin kynnt. Jóhannes Tómasson blaða- og fræðslufull-
tríii, Hanna Pálsdóttir úr stjórn Hjálparstofnunarinnar og Jónas
Þórisson framkvæmdasfjóri.
Hjálparstofnun kirkjunnar
Treyst á stuðning
almennings í söfnun
TVEIR viðburðir marka upphaf árlegrar landssöfnunar HjáMpar-
stofnunar kirkjimnar, Brauð handa hungruðum heimi, um næstu
helgi. Annað er formleg þátttaka Hjálparstofnunarinnar í bindindis-
degi fjölskyldunnar á laugardag. Eru menn hvattir til að gefa and-
virði einnar bjórkippu til verkefna stofnunarinnar. Hitt er sameigin-
leg aðventusamkoma Breiðholtssafnaðar og Hjálparstofnunarinnar
í Breiðholtskirkju næstkomandi sunnudag kl. 16. Verið er að dreifa,
fréttabréfi, baukum og gíróseðlum í tengslum við landssöfnunina,
en leitað er eftir stuðningi við áframhaldandi verkefni Hjálparst ofn-
unarinnar, m.a. þróunarverkefni á Indlandi og í Kenýa, til að afla
fjár í neyðarsjóð og innanlandsverkefni. Um 150% aukning hefur
orðið á innanlandsbeiðnum frá einstaklingum milli tveggja síðustu
ára.
Á blaðamannafundi vegna
söfnunarinnar kom fram að þó
tvær safnanir hefðu farið fram
í ár treysti Hjálparstofnunin á
stuðning almennings um þessi jól
eins og áður. Fyrri söfnunin á
árinu fór fram í janúar og var
þá, eins og mörgum er í fersku
minni, safnað fatnaði handa
Kúrdum. Hjálparstofnunin stóð
að þeirri söfnun í samstarfi við
Slysavarnafélagið og söfnuðust
um 250 tonn af fatnaði. Um
mánaðamótin ágúst og sept-
ember var svo ýtt úr vör söfnun-
inni „Hjálpum þeim" í samstarfi
við Rauða kross íslands. Stærsti
liðurinn var neyðarhjálp til S6-
malíu og íbúa á Balkanskaga.
Fulltrúar Hjálparstofnunar-
innar lögðu áherslu á að þó neyð-
araðstoð væri mikilvæg væri
ekki síður þörf á að sinna þróun-
arverkefnum. Slík verkefni hafa
farið fram á vegum stofnunar-
innar bæði í Kenýa og á Ind-
landi: Má í því sambandi nefna
að íslendingar eru svokallaðir
fósturforeldrar rúmlega 200
barna í Indlandi. Fólkið leggur
til 1.000 kr. á mánuði en Hjálpar-
stofnunin er ábyrgðaraðili og
hefur reist bæði skóla og sjúkra-
hús fyrir börnin um 400 km fyr-
ir norðan borgina Madras í Aust-
ur-Indlandi. Mikilvægt er að
stöðugt fjármagn renni til verk-
efna af þessu tagi, en jólasöfnun-
in er helsta tekjulind Hjálp-
arstofnunarinnar. Þá eru fastir
styrktaraðilar um 1.000 og
greiða reglulega fjárframlög til
verkefna stofnunarinhar. Er það
undir gefendunum komið hversu
fjárframlag þeirra er hátt.
Minntu fulltrúar Hjálparstofn-
unarinnar á í þessu sambandi
að margt smátt gerði eitt stórt.
Ragnar Jónsson skrif-
stofustj. ÁTVRIátínn
RAGNAR Jónsson fyrrverandi
skrifstofustjóri Afengis- og tób-
aksverslunar ríkisins, er látinn,
77 ára að aldri.
Ragnar fæddist 24. ágúst 1915, í
Bjóluhjáleigu í Djúpárhreppi, Rang-
árvallasýslu. Foreldrar hans voru Jón
Jónsson bóndi þar og síðar í Þjóðólfs-
haga og Hrafntóftum og kona hans
Anna Guðmundsdóttir. Ragnar #
brautskráðist frá Verzlunarskóla ís- '
lands árið 1936 og stundaði síðan
framhaldsnám í Þýzkalandi á árun-
um 1938 til 1939. Hann var við verzl-
unarstörf hjá Kaupfélaginu Þór á
Hellu árið 1936 til 1938 og við skrif-
stofustörf í Reykjavík árið 1939 til
1942.
Hann var fulltrúi hjá Kaupfélaginu
Þór frá 1942 til 1950 og fram-
kvæmdastjóri Verzlunarfélags V-
Skaftfellinga í Vík frá stofnun árið
1951 til 1961. Ragnar varð skrif-
stofustjóri Áfengis- og tóbaksverzl-
unar ríkisins árið 1961 til áramóta
1985 en þá tók hann við stöðu for-
stjóra um nokkurra mánaða skeið.
Ragnar átti sæti á Alþingi sem
landskjörinn varaþingmaður á árun-
um 1963 til 1968, og var varaþing-
maður fyrir Suðurland á árunum
1964 til 1969. Hann var og lands-
kjörinn þingmaður árið 1967. Átti
Ragnar sæti í milliþinganefnd í sam-
göngumálum á árunum 1956 til 1958
og var endurskoðandi Landsbanka
íslands frá árinu 1963.
Ragnar átti sæti í stjórn Verzlun-
arsambandsins hf. frá árið 1957, var
formaður Sjálfstæðisfélags V-
Skaftafellssýslu um skeið og í stjórn
FUS Heimdallar í Reykjavík á árun-
um 1941 til 1942.
Eftirlifandi kona Ragnars er Krist-
ín Einarsdóttir og varð þeim hjónum
fjögurra barna auðið.