Morgunblaðið - 26.11.1992, Blaðsíða 48
flfotgmiÞIafrtfe
EIMSKIP
VIÐGREIÐUMÞÉRLEIÐ
MORGUNBLADID, ÁBALSTRÆTI 6, 101 REYKIAVtK
Slm 691100, SlUBKÉF 691181, PÓSTHÓLF ÍSSB / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI S5
FIMMTUDAGUR 26. NOVEMBER 1992
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Niðurskurður á búvörusamningi
Sækjum rétt okkar
fyrir dómstólunum
verði skorið niður
- segir formaður Stéttarsambands bænda
HAUKUR Halldórsson formaður Stéttarsambands bænda segir að
ekkert hafi verið rætt við bændur um niðurskurð á greiðslum rikisins
samkvæmt búvörusamningi. Hann trúi því varla að þær verði skertar
um 250 ínilljónir eins og sagt er frá í Morgunblaðinu í gær að sam-
komulag hafi orðið um í ríkisstjóruinni. Segir Haukur að ef þetta
verði raunin muni Stéttarsambandið sækja rétt sinn með því að fara
í mál við landbúnaðar- og fjármálaráðherra.
Haukur sagði að það væru mikil
vonbrigði ef farið yrði í niðurskurð
á greiðslum samkvæmt búvöru-
samningi, ekki síst í ljósi þess að
forsætisráðherra hefði sagt í síðustu
viku að ódrengilegt væri að höggva
aftur í sama knérunn. Sagðist hann
ekki trúa því að forsætisráðherra
væri sá ódrengur að standa ekki við
þessa yfirlýsingu.
Fram kom í frétt Morgunblaðsins
að einkum væri rætt um að minnka
niðurgreiðslur vegna ullar eða
geymslugjöld. Haukur sagði sama
hvort gert væri, það þýddi brot á
búvörusamningi.
-jb Varðandi ullina sagði hann að við
verðlagningu í haust hefðu fulltrúar
bænda og neytenda fengið þær upp-
lýsingar frá fulltrúum ríkisvaldsins
Útgefnum
barnabók-
um fjölgar
Bókaútgefendur segja að
útgáfa barnabóka hafi aukist
mjög fyrir þessi jól samanbor-
ið við sl. ár en þá var einnig
nokkur aukning. Arni Einars-
son hjá Máli og menningu seg-
ir að sér virðist sem aukningin
sé allt að 50% frá fyrra ári.
í bókatíðindum sem koma út
nú fyrir jólin eru um 110 kynn-
ingar á barnabókum og þar af
eru 44 á íslenskum barnabókum,
að sögn Vilborgar Harðardóttur,
framkvæmdastjóra Félags ís-
lenskra bókaútgefenda. Barna-
bækurnar eru um fjórðungur af
öllum titlunum í bókatíðindum.
Sjá umfjöllun í viðskipta-
blaði, bls. 4C.
að 250 milljónir kr. væru ætlaðar í
þennan lið í fjárlagafrumvarpi. Hafi
kjötið verið verðlagt með hliðsjón
af því og nú væri of seint að breyta
kjötverðinu. Ef þessi greiðsla yrði
lækkuð væri það ekki einungis brot
á búvörusamningi heldur einnig á
verðlagsgrundvelli með þeim afleið-
ingum að bændur næðu ekki þeim
tekjum sem gengið hefði verið út frá.
Haukur sagði að skerðing á
vaxta- og geymslugjaldi kæmi fram
á heildsölustigi og væri hægt að
setja hana út í verðlagið. En það
væri í ósamræmi við þá hagræðing-
arkröfu sem gerð hefði verið og verð-
lækkun búvara. Við samninga um
það hefði það verið gert að skilyrði
að ríkið stæði við sitt.
Loks vildi Haukur vekja athygli á
því að í athugun sem Ríkisendur-
skoðun gerði fyrir Egil Jónsson, for-
mann landbúnaðarnefndar Alþingis,
kæmi fram það álit að í fjárlaga-
frumvarpið vantaði 250-300 milljón-
ir kr. til að hægt væri að standa við
gildandi búvörusamning. „Það væri
nær að draga eitthvað af þessu til
baka en bæta við," sagði Haukur.
Morgunblaðið/Rúnar Þ6r
Benedikt Davíðsson forsetiASI
BENEDIKT Davíðsson, fyrrverandi formaður
Sambands byggingarmanna, bar sigurorð af Pétri
Sigurðssyni, formanni Alþýðusambands Vest-
fjarða, í formannskjöri á þingi Alþýðusambands
Islands í gær. Benedikt fékk um 61% atkvæða en
Pétur 37%. Fyrsti varaforseti ASÍ var kjörin Ingi-
björg R. Guðmundsdóttir, formaður Landssam-
bands verzlunarmanna, sem atti kappi við Birnu
Þórðardóttur og fékk um 60% atkvæða. Hervar
Gunnarsson, formaður Verkalýðsfélags Akraness,
var kosinn annar varaforseti. Benedikt Davíðsson
- sagði eftir forsetakjörið að hann myndi leggja til
að haldið yrði svipaðri stefnu og ASÍ hefði fylgt
undanfarin ár. Stærstu verkefnin væru hinar alvar-
legu horfur í atvinnumálunum og staða atvinnulífs-
ins almennt. Hann sagði að með efnahagsaðgerð-
um sínum hefðu stjórnvöld að minnsta kosti kallað
fram ákveðin þáttaskil „ef ekki hafnað samstarfi
við okkur." Á myndinni sjást Benedikt og Ásmund-
ur Stefánsson, fráfarandi forseti ASI, takast í
hendur að formannskjörinu loknu.
Sjá fréttir á bls. 20-21.
Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ hafnar samkomiilaginu um Þróunarsjóð
Verður ekki hrint í fram-
kvæmd með neinum friði
„LÍÚ HAFNAR algjörlega því
samkonuilagi sem tekist hefur á
milli stjórnarflokkanna og í tví-
hðfða nefndinni um fjárhagslega
endurskipulagningu í sjávarút-
vegi af tveimur ástæðum: Það
liggur ekki fyrir að það sé tíl-
greind upphæð um hvað við eigum
að greiða árið 1996, eins og mér
hafði verið sagt að lægi fyrir. Og
Hlutafé í Járnblendinu
lækkað um 1.400 milljónir
FULLTRÚAR eigenda Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga
ákváðu í fyrradag að færa hlutafé fyrirtækisins niður um 1.400
milljónir og veita heimild til aukningar þess. Þannig er nafnverð
bréfa í Járnblendinu nú 600 miUjónir króna og stíóraendur þess
hafa lagt tíl að 560 miujónir verði lagðar í reksturínn tíl að fleyta
honum gegnum erfiðleika næstu missera. Ríkissljórnin veitir í vik-
unni 50 miUjónum króna tíl verksmiðjunnar og þðrf er öðru eins í
næsta mánuði.
Fulltrúar íslenskra stjórnvalda hittu
á þriðjudag menn frá Elkem í Nor-
egi og Sumitomo í Japan. Þessi
fyrirtæki eiga 30% og 15% hlut í
Járnblendiverksmiðjunni á móti
55% ríkisins. Offramboð kísiljárns
og lágt verð á heimsmarkaði hefur
valdið miklum erfiðleikum hjá fyrir-
tækinu að undanförnu og í haust
var gerð neyðaráætlun um hvernig
halda mætti rekstrinum áfram við
óbreyttar aðstæður í tvö ár. Fyrsti
liður hennar hefur þegar komið til
framkvæmda með uppsögnum 40
starfsmanna. Afskriftir og síðan
aukning hlutafjár hefur verið til
umræðu og endanlegur botn ekki
fengist í málið. Samið hefur verið
um afslátt við ýmsa viðskiptaaðila,
viðræður standa yfir við Landsvirkj-
un en orkuverð er veigamikill þátt-
ur í rekstri verksmiðjunnar. Form-
legar viðræður við banka um tilslak-
anir lána hafa ekki farið fram þar
sem ákvörðun eigenda um hlutafé
liggur ekki fyrir.
Sjá einnig Af innlendum vett-
vangi, bls. 18.
í ððru lagi, þá hðfnum við því að
Atvinnutryggingasjóður og Hluta-
fjársjóður verði settir á okkur,"
sagði Kristján Ragnarsson for-
maður Landssambands fslenskra
útvegsmanna í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
„Það er nú ekki mikið sem ber á
miíli í þessu efni og mér finnst það
ekki vera meira en svo, að það ætti
ekki að þurfa að ráða úrslitum,"
sagði Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra í samtali við Morgun-
blaðið. Hann sagði að ágreiningsefn-
ið væri ekki upphæð þess gjalds sem
rætt hefði verið um að sjávarútvegur-
inn greiddi í framtíðinni. „Aðalatriðlð
í mínum huga er að það er samkomu-
lag um að festa í sessi grundvallarat-
riði núverandi fiskveiðistjórnunar-
kerfis; Að breyta gjaldtöku sem í dag
fer fram með sölu á veiðileyfum og
rennur í ríkissjóð, yfir í fasta gjald-
töku sem fer inn í sjóð sem sjávarút-
vegurinn nýtur sjálfur. Þegar þetta
er metið í heild, þá er þetta tvímæla-
laust til hagsbóta fyrir sjávarútveg-
inn að mínum dómi," sagði Þorsteinn.
„Atvinnutryggingasjóður á úti-
standandi lán upp á rúma sjö millj-
arða. Hvernig ætla menn að fá vitn-
eskju um það hversu mikið af því
mun falla á þennan nýja sjóð í fram-
tíðinni og við eigum að gangast í
ábyrgð fyrir, í stað ríkissjóðs?" spurði
Kristján í samtali við Morgunblaðið.
„Þetta verður aldrei framkvæmt
með okkar samkomulagi, eða í sátt
við okkur. Auðvitað er valdið stjórn-
málamannanna, enginn dregur það
í efa. En þessu verður ekki hrint í
framkvæmd með neinum friði. Þær
kvaðir sem forsætisráðherra er að
tala um að leggja á okkur, ætlum
við ekki að láta leggja á okkur með
góðu," sagði Kristján Ragnarsson.
Kristján sagði að forsætisráðherra
hefði í ræðu sinni á Alþingi í fyrra-
kvöld látið liggja að því að verið
væri að láta sjávarútveginum í té
verðmæti með stofnun Þróunarsjóðs-
ins: „Þau verðmæti eru mikið minni
en engin. í þeim felst kvöð um að
greiða annarra skuldir, og því höfn-
um við alfarið," sagði Kristján. Hann
sagðist ganga út frá því sem gefnu
að þetta yrði niðurstaða stjórnar
LÍÚ, en hann hefði enn ekki haft
aðstöðu til þess að bera afstöðu sína
undir stjórnina. Hann hefði þó heyrt
í býsna mörgum útvegsmönnum og
þeir væru allir sama sinnis og hann.
Sjá einnig Af innlendum vett-
vangi á miðopnu.