Morgunblaðið - 26.11.1992, Blaðsíða 47
aeei aai
MORGUNBLAÐIÐ
¦a.«*>«w*n ' ITMIOí <31GAJaVíUOH(W.
IPKOl IIK FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1992
8*
47
HANDKNATTLEIKUR
Sigmundur Ó.
Steinarsson
skrifar
Krlstján Arason nálgast fyrri getu.
Lítil
skemmtun
í Firðinum
Það var lft.il skemmtun sem leik-
menn FH og Þórs veittu 260
áhorfendum í Kaplakrika í gær-
kvöldi, þar sem FH-
ingar voru sterkari,
26:24. Sigur þeirra
var miklu öruggari
en lokatölurnar
segja, en þeir höfðu ávallt góð tök
á Þórsurum.
Meistararnir náðu fljótlega fimm
marka forskoti, 9:4, en eftir það
datt botninn úr leik þeirra og féllu
þeir niður á sama plan og leikmenn
Þórs, sem voru allt annað en sann-
færandi. FH-ingar gátu leyft sér
þann munað að hvíla Alexei Trúfan
eftir nokkrar mín. og gefa Svafari
Magnússyni og Jóhanni Ágústssyni
tækifæri til að spreyta sig. í byrjun
leiksins skoruðu FH-ingar þrjú
mörk úr snöggum sóknarlotum,
sem endaði með línusendingum frá
eigin vallarhelmingi - af átta metra
færum, sem Hálfdán Þðrðarson
handsamaði og skoraði örugglega
úr. Þórsarar skoruðu aftur á móti
eitt mark af línu, undir lok leiksins.
Athygli vakti að Finnur Jóhanns-
son, fyrrum landsliðsmaður í Þór,
náði ekki að skora í leiknum. Hann
fékk aðeins eina línusendingu -
tveimur mín. fyrir leikslok, en hélt
ekki knettinum.
Það skemmtilegasta við leikinn
var að sjá að Kristján Arason nálg-
ast sinn fyrri styrkleika með hverj-
um leik. Kristján er að ná sér eftir
þrálát meiðsli í öxl, sem hafa háð
honum í nær eitt ár.
Jóhanni Inga boðið
ad taka við svissn-
eska landslidinu
JÓHANNIINGA Gunnarssyni, þjáifara Hauka, hefur verið
boðið að taka við þjálfun svissneska landsliðsins f handknatt-
leik eftir heimsmeistarakeppnina í Svíþjóð á næsta árí. Jó-
hann Ingi œtlar að ihuga málið fram í miðja næstu viku áður
en hann gefur Svisslendingum svar.
Svisslendingar hrmgdu í mig í
morgun [í gærmorgun] °S
spurðu hvort ég hefði áhuga á að
taka við svissneska landsliðinu.
Þetta kom mér talsvert á óvart
því ég hélt að maður væri gleymd-
ur og fuinn. Þetta kitlar óneitan-
lega dálítið og því tók ég mér
viku umhugsunarfrest," sagði Jó-
hahn Ingi við Morgunblaðið í gær.
Þetta er í annað sínn sem Jó-
hanni Inga er boðið að taka við
svissneska landsliðinu. Þegar
hann hætti með Kiel í Þýskalandi
árið 1986 var hann efstur á óska-
lista Svisslendinga en akvað þá
að fara frekar til þýska félagsins
TuSEM Essen. Svisslendmgar
réðu þá Þjóðverjann Arno Ehret
og hefur hann verið með liðið síð-
an, en tekur við þýska landsliðinu
eftír HM í Svíþjóð.
Svisslendingar hafa náð góðum
árangri undir hans stjórn á síð-
ustu árum þó svo skiptar skoðan-
ir séu um hversu skemmtilegan
handknattleik þeir leika. En leik-
aðferð þeirra er árangursrík og
nú hafa þeir ákveðið að byggja
upp lið með ungum leikmðnnum
og ætla sér á Olympíuleikana í
AtJanta í Bandaríkjunum 1996.
Reyn/r
Eiriksson
skrifar fré
Akureyri
Morgunblaðið/Kristinn
Magnús Slgurðsson átti góðan leík fyrir Stjörnuna. Hér er Geir Sveinsson, besti maður Vals, til varnar.
Stjarnan stöðvaði Val
Selfyssing-
ar í hrakn-
ingum
Selfyssingar lentu í hrakn-
ingum á Hellisheiði á leið-
inni til Reykjavíkur í gærkvöldi,
fyrir leikinn gegn Vfkingum í
Vík'mni. Þeir fðru saman á
þremur jeppum frá Selfossi og
festu bílana í snjóskafli upp á
heiðinni og urðu að moka sig í
gegn. Við þetta töfðust þeír um
hálfa klukkustund og komu ekki
til Reykjavíkur fyrr en hálftíma
fyrir leik. Þeir báðu Víkinga að
fresta leiknum um 15 mínútur
og það reynist auðsótt. Leikur-
inn hófst siðan kl. 20:15.
Skaust upp að hlið Vals með 16 stig þegar keppnin er hálfnuð
STJÖRNUMENN stöðvuðu sigurgöngu Valsmanna íÁsgarði í
gærkvöldi er þeir sigruöu 21:18 íspennandi leik þar sem ekkert
var gef ið eftir. Valsmenn höfðu yf irhöndina lengst af en undir
lokin tókst heimamönnum að mjaka sér f ramúr og sigra. Bæði
lið eru því með 16 stig þegar deildin er hálfnuð ásamt FH.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Það var greinilega mikið í húfi
fyrir bæði lið, að minnsta kosti
vona ég það því þá hafa liðin gilda
ástæðu fyrir hve
leikurinn var slakur
til að byrja með.
Leikmenn gerðu sig
seka um mörg mis-
tök, en þó brá fyrir skemmtilegum
köflum. í síðari hálfleik var meiri
spenna og betri handknattleikur
leikinn.
Valsmenn höfðu undirtökin allt
þar til rúmar fímm mínútur voru
eftir þá komst Stjarnan yfír og með
baráttu, skynsamlegum íeik og góð-
ir markvörslu Gunnars Erlingsson-
ar tókst þeim að verða fyrsta liðið
til að sigra Val í vetur.
„Við ræddum um að reyna að
halda í við þá fram í miðjan síaðri
hálfleikinn og gefa síðan allt í lok-
in. Eftir að strákarnir fengu trúnna
á að þeað væri hægt að sigra Vals-
menn fóru þeir að leika betur. Ef
við leikum svipað í síðari umferð-
inni ættum við að ná 2.-3. sæti.
Við eigum erfiðan leik á laugardag-
inn við Selfyssinga og þá kemur í
Ijós hvort liðiði getur leikið tvo erf-
iða leiki í röð," sagði Gunnar Ein-
arsson þjálfari Stjörnunnar.
Stjörnumenn komu með breyttu
hugarfari til síðari hálfleiks, enda
voru þeir þremur mörkum undir.
Eftir slakan varnarleik í fyrri hálf-
leik tóku þeir sig saman í andlitinu
og Gunnar fór að verja og þá var
það komið. Valsmenn náðu sér aldr-
ei á strik í sókninni en voru hins
vegar lengst af í Iagi í vörninni.
Lokamínúturnar voru spennandi.
Stjarnan komst 19:17 yfir en misstu
Einar útaf í 2 mínútur. Valsmenn
skutu en vörnin varði skotið og
heimamenn fóru í sókn sem mis-
tókst og gestirnir skorður, 19:18,
þegar tvær mínútur voru eftir. Pat-
rekur misti boltann í sókninni en
vann hann aftur í vörninni og síðan
gerðu þeir tvö síðustu mörkin.
Magnús og Skúli voru bestir í
liði Stjörnunnar auk Gunnars í
markinu. Patrekur var einnig sterk-
ur og lék þá Magnús og Skúla oft
laglega uppi. Hjá Val var Geir
sterkur en aðrir léku undir getu.
Alrtí
jámum
Þetta var mjög erfitt. Bæði lió
spila mjög áþekkan hand-
knattleik og leikurinn gat farið
hvernig sem var eifr ~
við vorum sterkari á
lokasprettinum,"
sagði Erlingur
Kristjánsson, fyrir-
liði KA, eftir að lið hans hafði lagt
Hauka að velli, 24:23, í æsispenn-
andi og jöfnum leik á Akureyri í
gærkvöldi. Pétur Bjarnason tryggði
KA bæði stigin, þegar hann fór
innúr vinstra horni og skoraði 14
sekúndum fyrir leikslok.
Leikurinn var í járnum allan tím-
ann, en firnasterkur varnarleikur
KA síðustu mínúturnar skóp sigur-
inn. Haukar komust hvergi, KA
náði að jafna, komast yfir og
tryggja sér sigur með yfirvegaðri _
síðustu sókn.
Harkan sat í fyrirrúmi hjá báðum
liðum, varnirnar voru sterkar og
sóknarleikurinn ágætur. Hjá KA
var Óskar Elvar Óskaarsson bestur
og einnig átti Alfreð Gíslason góða
spretti. Petr Baumruk var bestur
hjá Haukum og Halldór Ingólfsson
átti einnig góðan leik.
Vömln gleymdist
HK lagaði markatöluna og
krækti sér í tvö dýrmæt stig
með því að vinna Fram 34:26 í
Höllinni í gærkvöldi,
en staða heima-
manna er allt annað
en glæsileg. Þetta
var sóknarleikur í
orðsins fyllstu merkingu, varnar-
leikur sást varla, en markvarsla
Magnúsar hjá HK gerði gæfumun-
inn.
Jafhræði var með liðunum þar
til 10 mínútur voru liðnar af seinni
hálfleik, en þá skildu leiðir. HK
gerði fimm mörk í röð án þess að
Fram næði að svara fyrir sig og
eftirleikurinn var auðveldur.
Ekkert hefur gengið hjá Fram í
vetur og hafa margir sagt að um
sé að kenna fjarveru Gunnars Andr-
éssonar, sem er meiddur. „Staðan
hefur ekkert með fjarveru Gunnars
að gera," sagði Atli Hilmarsson,
þjálfari Fram, um árangur liðsins.
„Við sigrum ekki á meðan enginn
er varnarleikurinn, en það eru 22
stig. eftir í pottinum og strákarnir
vérða hreinlega að taka sig saman
í andlitinu."
Stéinþór
Guðbjartsson
skrifar
1t