Morgunblaðið - 26.11.1992, Side 14

Morgunblaðið - 26.11.1992, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1992 ivu er tvöfaldu l.vinningur! Ljósmyndasýning í Ráðhúsi Reykjavíkur í tilefni af útkomu ljósmynda- bókar Sigurgeirs Sigurjónsson- ar, íslandslag, verður opnuð sýning á myndum úr bókinni í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Sigurgeir Sigurjónsson er fædd- ur í Reykjavík árið 1948. Hann stundaði ljósmyndanám á íslandi á árunum 1965-1969 og síðan fram- haldsnám við ljósmyndaskóla Christer Strömholm í Stokkhólmi 1970-1971 og í San Diego Kalifor- níu, 1980-1981. Síðan hefur Sigur- geir starfað í Reykjavík. Árið 1982 sendi hann frá sér ljósmyndabók- ina Svip-myndir og árið 1985 kom út bókin Hestar með myndum sín- um. í fréttatilkynningu segir: Með myndum sínum lýsir Sigurgeir ís- landi eins og augað nemur það. Hann velur sér ýmist að sjónarhóli þá staði sem vel sést til átta eða beinir myndavél sinni að því smáa og nálæga. Af einstöku næmi skrá- ir hann á filmu þá sýn sem blasir við. Sýningin í Ráðhúsinu opnar klukkan 17.00. Leikfélag Akureyrar Síðasta sýningarhelgi á Línu Langsokki ALLRA síðustu sýningar á barnaleikritinu Líúu langsokki eftir Astrid Lindgren eru hjá Leikfélagi Akureyrar núna um helgina. Sýning er á laugardag, 28. nóvember, og tvær sýningar á sunnudag, 29. nóvember kl. 14 og 17.30. í fréttatilkynningu segir að Lína hafi notið mikilla vinsælda fyrir norðan. Á sjötta þúsund sýningar- gestir eru skráðir á þær 25 sýning- ar sem komnar eru. Auk þeirra hefur fjöldi sýningargesta setið í kjöltu þeirra hávaxnari. Þráinn Karlsson leikstýrði sýn- ingunni fyrir Leikfélag Akureyrar. Þórarinn Eldjárn þýddi leikritið. Michael Jón Clarke stjórnaði tónlist- inni, Hallmundur Kristinsson gerði leikmynd, Anna G. Torfadóttir hannaði búninga og dýr, Lína Þor- kelsdóttir samdi dansa, Ingvar Björnsson sá um lýsingu og Hreinn Skagfjörð var sýningarstjóri. Næsta viðfangsefni Leikfélags Akureyrar verður gamanleikurinn „Segðu eitthvað, Charlie“ (The For- eigner) eftir Larry Shue sem frum- sýnt verður á þriðja í jólum. þessu ári bæði i sumarferðum Samvinnuferða- ;m ferðamet fyrri ára voru slegin. Eitt af fjöl- eyjarinnar grænu er tónlistin og því efnum við til k á Hótel Islandi, föstudaginn 27. nóvember nk. Þeir hafa skemmt luferða-Landsýnar á Wexford Inn og Igo Inn í Dublin, eins og allir arferð í Dublinarferðinni. Félagarnir í Ríó tríóinu taka á móti írskum i og leika á tónleikunum með þeim. matseðill Boðið verður að smakka á ýmsu sem minnir á bragðið af Dublin, en hér er Glæsilcgur Rjómalöguð sjávarrettasupa Heilsteikt lambafile með rosenpipai'sósu ís með hindberjasósu kynnin við samferðamenn frá Dublin og hlusta á ■||||||Í||^andsbyggðaf óik!! Hótel ísland býður sérstakt verð á LIFFEYSIDE LEIKUR EINNIG I ÁSBYRGI LAUGARDAGSKVÖLDIÐ 28. NÓV. Allar pantanir í síma 91-687111. SamvlnnufePlliP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.