Morgunblaðið - 26.11.1992, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGI'U 26. NÖVEMBER 19Ö2
M
Umhverfisslys
eftir Sigríði
Friðriksdóttur
Varðandi byggingu verslunar-
miðstöðvar og hótels í miðbæ Hafn-
arfjarðar lét bæjarstjóri Hafnar-
íjarðar hafa eftir sér í blaðagrein
fyrir skömmu að „stærð hússins
hefur legið ljós fyrir öllum sem
hafa haft nennu eða getu til að
kynna sér málið“. Þetta er ekki alls
kostar rétt.
Kynning á aðalskipulagi Hafnar-
fjarðarbæjar fór fram á sínum tíma
og var líkan byggt af miðbæjar-
skipulaginu. Hins vegar hefur hin
fyrirhugaða verslunarmiðstöð tekið
stöðugum breytingum, í stóru og
smáu, frá hinu upphaflegu líkani.
Þetta líkan var geymt í nokkur ár
í Flensborgarskóla og þar sem ég
er kennari þar, þá sá ég líkanið
daglega og líkaði nokkuð vel. Þar
virtist vera gert ráð fyrir bygging-
um, sem mynda áttu hring, upp á
„Vilja Hafnfirðingar að
nýr verslunarkjarni
taki mið af nokkrum
ljótustu húsum
bæjarins?“
3-4 hæðir og í miðju þeirra var
útitorg.
Einnig var haldin sýning og borg-
arafundur í Hafnarborg fyrir rúmu
ári að tilhlutan bæjaryfirvalda. Átti
þá m.a. að gefa mönnum kost á
að fjalla um fyrirhugað miðbæjar-
skipulag. Fundurinn þróaðist hins
vegar þannig að rædd voru önnur
brýn verkefni, sem m.a. snerust um
umferð í Setbergshverfi. Miðbæjar-
skipulagið fékk því enga umíjöllun
á þessum fundi. Auk þessa var
uppbygging miðbæjarins aðeins
fjarlægur draumur þá og náði alls
ekki að vera í brennidepli.
Af framansögðu má sjá hversu
í Hafnarfirði!
fjarri lagi það er að ætlast til þess
að hinn almenni borgari í Hafnar-
firði hefði tök á því að fylgjast með
framvindu mála um skipulag Hafn-
arfjarðarbæjar nema með stöðugum
ferðum upp á bæjarskrifstofumar.
Það var ekki fyrr en 12. nóvember
sl. að teikningar voru aðgengilegar
fyrir mig og aðra bæjarbúa þegar
eitt af bæjarblöðum Hafnarfjarðar
birti útlitsteikningu sem sýndi
væntanleg hlutföll og stærð versl-
unarmiðstöðvarinnar.
Samkvæmt þeim teikningum sem
þá birtust, blasti við stórhýsi og að
mínu áliti yrðu það hörmuleg mis-
tök ef af byggingu þess yrði. Um
er að ræða 9.000 fermetra stórhýsi
allt upp í 8 hæðir eða 30 metra há
bygging. Húsið er þunglamalegt,
sneytt öllum léttleika, virkar kalt
og fráhrindandi. Auk þess virðist,
ef af byggingu þessa húss yrði,
ekkert tillit tekið til hinnar fallegu
menningarmiðstöðvar Hafnarfjarð-
ar þar sem Hafnarborg er. Hvað
Sigríður Friðriksdóttir
þá að tekið sé tillit til litlu fallegu
húsanna í kvosinni fyrir ofan
miðbæinn.
Reyndar verð ég að viðurkenna
að við Strandgötuna í Hafnarfirði
eru nokkur ljót og þunglamaleg hús
sem hefðu betur ekki risið. Nýr
verslunarkjarni ætti þó ekki að
þurfa að taka mið af nokkrum ljót-
ustu húsum bæjarins.
Þá má velta því fyrir sér hvort
þörf sé á öllu þessu skrifstofuhús-
næði og hvort nauðsynlegt sé að
hafa fyrirhugað hótel svona stórt,
eða 60 herbergi, en sú umræða er
þó ekki þungamiðjan í þessu máli.
Fyrirhugað hús er að mínu mati
sneytt öllum metnaði. Ætla má að
arkitektinum sem teiknaði húsið
hafi verið sniðinn svo þröngur
stakkur að útkoman gat ekki orðið
annað en hreint umhverfisslys.
Ég fagna því að fá verslunar-
kjarna og hótel sem fyrst í miðbæ
Hafnaríjarðar. Hið æskilega hefði
verið að hafa nýja samkeppni um
þetta svæði en líklega er það orðið
of seint. Hins vegar er ekki of seint
að hægja örlítið á ferðinni og hanna
á nýjan leik minna hús þar sem
metnaður er lagður í útlit hússins
miðað við umhverfið.
Það er jákvætt að enn séu til
dugmiklir og drífandi menn eins og
þeir virðast vera sem að þessu húsi
standa en ég bið þá endilega að
láta kappið ekki vera forsjánni yfir-
sterkari. Ég vona að þeir vilji bæjar-
félaginu sínu það vel að þeir leggi
meiri metnaði í útlit byggingarinnar
og dragi að sama skapi úr stærð
hennar til þess að hún falli betur
að því umhverfi sem fyrir hendi er.
Áð lokum vil ég hvetja bæjarbúa
að tjá sig um þetta mikilvæga mál
sem varðar alla Hafnfirðinga um
ókomin ár. Enn er ekki búið að
taka fyrstu skóflustunguna. Ég var
því miður ekki nógu gömul að ég
hefði getað stöðvað byggingu á
Dverg á sínum tíma en nú get ég
látið heyra í mér og um leið hvet
ég aðra sem eru mér sammála að
gera eitthvað í málinu.
Höfundur er kennari í Flensborg
í Hafnarfirði.
MINNINGAR 2 er önnur í röSinni af pessum nugljúfu
plötum þar sem margir af okkar bestu söngvurum
syngja þekkt lög í rómantíska kanntinum.
Tilgangurinn meS útgáfu plötunnar er söfnun í
hjálparsjóð Rauðakross íslands.
Söngvarar á pessari hugljúfu plötu eru:
Erna Gunnarsdóttir,
María Björk Sverrisdóttir,
Sigrióur Beinteinsdóttir,
Bergþór Pálsson og
Eyjólfur Kristjánsson.
MINNINGAR 2 er fáanleg á geislaplötu,
kassettu og einnig gömlu góðu vínylplötunni.
HuWk
SMIÐJAN
KRINGLUNNISIMI: 600930
STÓRVERSLUN LAUGAVEGI26 SÍMI: 600926
LAUGAVEGI96 SÍMI: 600934
EÐISTORGISÍMI: 612160
PÓSTKRÖFUSÍMI: 680685 (SÍMSVARI)