Morgunblaðið - 28.11.1992, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER* 1992
Hjörleifur Guttormsson segir persónulegar ástæður hafa
þrýst á ritun afsökunarbréfsins
Hlóðum Ulbricht of-
lofi svo úr yrði háð
Breytti engu um raunverulega afstöðu okkar
HJÖRLEIFUR Guttormsson, þingmaður Alþýðubandalagsins, segir
kannast í aðalatriðum við þá frásögn, sem birtist í Morgunblaðinu
í gær af viðskiptum hans við miðstjórn austur-þýzka kommúnista-
flokksins (SED) árið 1962. Þá ritaði Hjörleifur, ásamt Franz Gísla-
syni, flokknum afsökunarbréf og dró úr gagnrýni á þjóðfélagskerfi
sósialismans og Walter Ulbricht, leiðtoga flokksins, sem sett hafði
verið fram í skýrslum Sósíalistafélags íslendinga austantjalds (SÍA).
Skýrslurnar voru birtar í Morgunblaðinu vorið 1962. Upplýsingar
um afsökunarbréf Ujörleifs birtast í bók Árna Snævarr og Vals
Ingimundarsonar, Liðsmenn Moskvu. Hjörleifur segir persónulegar
ástæður hafa þrýst á að hann ritaði afsökunarbréfið.
„Eins og þarna kemur fram
höfðu þeir hjá miðstjóminni fengið
þýðingu af frásögn Morgunblaðsins
[af SIArskýrslunum]. Það var eink-
um fyrsta frásögnin, af bréfí okkar
til Einars Olgeirssonar frá árslok-
um 1957, sem málið gekk út á,“
segir Hjörleifur. „Við stóðum að
því fímm námsmenn, sem þá vorum
í Austur-Þýzkalandi. Við vissum
auðvitað strax og skýrslurnar byij-
uðu að birtast í Morgunblaðinu að
einhver viðbrögð kæmu frá yfír-
völdunum og þau urðu nokkuð
óblíð.
Ég gerði jafnvel ráð fyrir því að
námsmönnum, sem voru í landinu,
flestir fyrir fyrir milligöngu Sósíal-
istaflokksins [á íslandi], yrði vísað
úr landi. Margt af þessu fólki var
nýkomið til náms og þekkti lítið til
þessara skrifa, sem voru nokkurra
ára gömul. Því ákvað ég strax að
taka allt á mig, sem væri frá þess-
um tíma, ef á reyndi. Spjótin beind-
ust einnig að Franz vegna þess að
hans var getið í sambandi við þetta
bréf. Hann var nýkominn er það
var samið og var viðstaddur samn-
ingu þess, en ekki höfundur.
Mig minnir að við höfum verið
beðnir að koma á fund miðstjómar
SED í Berlín. Ég held það hafí
verið í aðalstöðvum flokksins. Þar
las þessi frú Sager, sem vitnað er
til, okkur pistilinn. Ég man ekki
nákvæmlega hvernig hún lagði
málið fyrir, en það kom ótvírætt
fram að þetta mál gæti haft alvar-
legar afleiðingar fyrir stöðu ís-
lenzku námsmannanna í landinu
og samskiptin við Sósíalistaflokk-
inn.
Við vorum tveir á þessum fundi,
ég og Franz og við voram krafðir
um skriflega afstöðu til þessa um-
rædda bréfs og til Austur-Þýzka-
lands. Þeir vora greinilega við-
kvæmastir fyrir þessari gagnrýni
okkar á kerfíð, svo ekki sé talað
um að hallmæla flokksformannin-
um Ulbricht, sem einnig var ein-
hvers konar forseti ríkisins. Það
sem ég les í tilvitnuðum skrifum
okkar um Ulbricht hljómar nánast
sem háð, enda held ég að við höfum
valið þann kost að nota aðferð
Snorra, að hlaða hann oflofi, svo
úr yrði háð. Við létum þá heyra
það, sem þeir vildu, um karlinn,
og þannig held ég nú að þau efni-
stök séu tilkomin. Þetta var eins
konar huggunarbréf til þeirra og
breytti auðvitað engu um raunvera-
lega afstöðu okkar til málanna.
Eftir að þetta bréf var sent man
ég ekki eftir að meira hafí gerzt í
málinu; heldur var það látið kyrrt
liggja.
Mín persónulega aðstaða þetta
sumar var var sú að ég var að vinna
í lokaritgerð minni í líffræðinni.
Konan mín var nýbyrjuð á kandí-
datsári og við voram á lokasprettin-
um í náminu. Auðvitað var okkur
heldur óljúft að hlaupa frá þessu
öllu, auk þess sem allt var í full-
kominni óvissu um ferðaleyfí fyrir
konu mína á þeim tíma. Það reyndi
raunar á það árið eftir, þá reyndu
þeir að kyrrsetja okkúr og neituðu
henni um vegabréfsáritun. En það
tókst að knýja fram fararleyfí og
ég held að ég hafí leitað til Éinars
Olgeirssonar um að þrýsta á það.
Minna mætti á að á þessum tíma
var ekkert stjómmálasamband á
milli íslands og Austur-Þýzka-
lands.“
Hjörleifur segir aðspurður að
tvennt hafi einkum valdið því að
þeir Franz rituðu bréfíð, ótti við
að afleiðingar birtingar SÍA-
skýrslnanna bitnuðu á samstúdent-
um þeirra, og að þau hjónin yrðu
kyrrsett. „Þetta var það, sem mað-
ur hafði á bak við eyrað, þótt mér
væri reyndar skapi næst að bjóða
þeim byrginn," segir hann. Hjör-
leifur segir aukinheldur að SÍA-
menn hafí ekki verið í uppáhaldi
hjá forystu Sósíalistaflokksins á
þessum tíma og þeir hafí því verið
í þröngri stöðu. „Eins og þetta bar
að og eins og viðbrögðin vora innan
Sósíalistaflokksins var ekki boðið
upp á að nein umræða færi fram
um málefni Austur-Evrópuríkj-
anna,“ segir Hjörleifur.
Hjörleifur segist hafa farið frá
Austur-Þýzkalandi árið 1963 og
ekki komið þar síðan utan einu
sinni, er hann hafí haft viðkomu í
ríkinu á leið annað. „Ég sótti iildr-
ei um vegabréfsáritun og kom aldr-
ei austur fyrir jámtjald eftir þetta
fyrr en ég fór til Eistlands fyrir
fáum áram. Svo var ég að stymp-
ast í því hér að stappa í menn stál-
inu að halda við samþykktir Al-
þýðubandalagsins frá 1968 [um
slit tengsla við austur-evrópska
kommúnistaflokka]. Mínir félagar
þekkja hvernig sú afstaða var.“
Styrkur til Dagsbrúnar frá Sovétmönnum
Var aldrei neitt leyndarmál
- segir Guðmundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar
GUÐMUNDUR J. Guðmundsson formaður verkalýðsfélagsins Dags-
brúnar segir að styrkur sá sem Dagsbrún fékk frá Sovétmönnum
árið 1952 og nam 5.000 pundum hafi aldrei verið neitt leyndarmál.
„Þetta var aðalfréttin í blöðunum þegar styrkurinn kom og félags-
fundur Dagsbrúnar samþykkti sérstaka þakklætisályktun til Sovét-
manna fyrir þetta rausnarlega framlag þeirra í verkfallsbaráttunni
1952,“ segir Guðmundur.
í máli Guðmundar J. Guðmunds-
sonar kemur fram að verkfallið
1952 hafí staðið í nokkrar vikur
og þessi styrkur frá Sovétmönnum
hafí borist Dagsbrún í lok verkfalls-
ins. „Þessu var slegið upp sem fyór-
dálka frétt í Morgunblaðinu og
fímm dálka frétt í Þjóðviljanum ef
mig misminnir ekki,“ segir Guð-
mundur. „Hluti af þessum styrk var
notaður til að létta róðurinn undir
illa stöddum verkfallsmönnum og
hluti hans rann síðan í nýstofnaðan
sjúkrasjóð Dagsbrúnar." Eins og
kemur fram í frétt Morgunblaðsins
í gærdag er upplýsingar um þennan
styrk Sovétmanna að fínna í óútko-
minni bók AB sem ber heitið „Liðs-
menn Mosku", og byggir á bókum
frá miðstjóm sovéskra kommúnista.
Guðmundur segir að honum fínnist
skondið að höfundar bókarinnar
hafí þurft að leita í gögnum komm-
únista að þessum upplýsingum þeg-
ar þær hafí ætíð iegið fyrir hérlend-
is frá þessum tíma.
Bindindisdagiir fjölskyldunnar í dag
Hvað vilt þú gera?
Andvirði einnar bjórkippu rennur í
söfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar
BINDINDISDAGUR Qöl-
skyldunnar er í dag, laugar-
dag, annað árið í röð. Til hans
efna Stórstúka íslands, Ung-
mennafélag íslands og Hjálp-
arstofnun kirkjunnar. í fyrra
gaf bindindisdagurinn góða
raun, Iögreglan þurfti til
dæmis aðeins að hafa afskipti
af ölvuðu fólki í örfá skipti
og óvenju litið var um líkams-
meiðingar og slys. Sigurður
B. Stefánsson stórstúkufélagi
segir að nú sé lögð áhersla á
framtíð fjölskyldunnar og
menn og konur spurðir: Hvað
ætlar þú að gera?
Sigilrður segir að dagurinn
verði með svipuðu sniði og í
fyrra, fólk sé hvatt til að sleppa
áfengi og öðrum vímuefnum.
„Við vitum öll hve bömum og
unglingum er fjölskyldan mikil-
væg,“ segir Sigurður. „Fólk
hugsar vonandi út í hvað það
hefur fyrir þeim sem yngri eru.
Margir unglingar þekkja til að
mynda ekki áhrif bjórsins al-
mennilega og líta á hann sem
nokkurs konar svaladrykk. En í
ljós hefur komið að með bjómum
jókst áfengisneysla um tvo
þriðju hjá strákum á aldrinum
13-19 ára. Fjölmörg böm eiga
því miður um sárt að binda
vegna áfengisneyslu einhvers í
fjölskyldunni."
Hjálparstofnun kirkjunnar er
nú að byija árvissa söfnun og
segir Sigurður að fólk sé hvatt
til að gefa andvirði einnar bjór-
Sigurður B. Stefánsson er með-
al þeirra sem spyrja hvað þú
ætlir að gera í dag, á bindindis-
degi fjölskyldunnar.
kippu. Peningamir renni til
nauðstaddra í Kenýa meðal ann-
ars og vímuefnavandi sé hluti
hörmunga þar eins og víða þar
sem eymd er mikil.
Bamastúka Stórstúkunnar
býður krökkum að koma í Hall-
arsel í Mjóddinni síðdegis í dag.
Sigurður segist vilja nota tæki-
færið og minna á starf UMFÍ,
heilmargt fólk milli tólf og tutt-
ugu ára iðki íþróttir innan vé-
banda hreyfíngarinnar. Það viti
sem er að áfengi og íþróttir fari
ekki saman.
Bókin Liðsmenn Moskvu
Er algert rugl
hvað mig varðar
- segir Lúðvík Jósepsson fyrram ráðherra
LÚÐVÍK Jósepsson fyrrum ráðherra Alþýðubandalagsins segir
að þær upplýsingar sem fram komi í bókinni „Liðsmenn Moskvu"
og snúa að honum séu algert rugl. í bókinni segir að ekkert lát
hafí orðið á hressingar- og dvalarferðum leiðtoga Alþýðubanda-
lagsins til Sovétríkjanna eftir að öUum tengslum flokksins við
Kommúnistaflokkinn í Sovétríkjum var slitið 1968.
Lúðvík Jósepsson segir að hann
hafí verið ráðherra í ríkisstjóm
árin 1971 til 1974 og sem slíkur
hafi hann nokkram sinnum þurft
að ferðast til Moskvu. „En þessar
ferðir mínar þangað vora ein-
göngu í tengslum við starf mitt
sem ráðherra að undirskrifa samn-
inga og ganga frá viðskiptum.
Annað sem gefíð er í skyn í bók-
inni er algert rugl,“ segir Lúðvík.
í máli Lúðvíks kemur fram um
tengsl Alþýðubandalagsins við
sovéska sendiráðið að þau hafi
verið í svipuðu formi og allra ann-
ara flokka á íslandi. „Við þurftum
oft að hafa samband við sendiráð-
ið vegna þeirra miklu viðskipta
sem voru á milli landanna á þess-
um tíma eins og talsmenn annara
flokka hérlendis,“ segir Lúðvík.
S|»o
- o
0 O toogisl AMBRAIBM fyrtrtæWnu?
~ AMBHA i mfcl vttaUpt ttt I8M
AMBRA MofeaðMBM fyifetrtdð
AMBHA *r tanMdd af dðttufyrirtMM »M
AMBRA m (MllngnM fyrtr IBMI Evrtpu
EIGNAST ÞU OKEYPIS
TÖLVU UM JÓLIN?
□
^wNýherjitBhúsa?
SkMtahUð24
Takir þú þátt í spumingarleik Nýherja gefst þér kostur á að eignast AMBRA
tölvu í jólagjöf. Það sem þú þarft að gera er að fara í Kringluna,
finna Nýherjabásinn og svara nokkrum einföldum spurningum. Dregið verður
úr réttum lausnum á Bylgjunni FM 98.9 laugardaginn 12. desember næstkomandi.
Sláðu til og taktu þátt - þú gætir eignast ókeypis tölvu um jólin!
NÝHERJI
SKAFTAHLÍÐ 24 - SlMI 69 77 00
Alltaf skrefi á undan