Morgunblaðið - 29.11.1992, Blaðsíða 8
fc\
8
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1992
IT\ \ /^er sunnudagur 29. nóvember, 334. dagur
-L/xs.vl’ ársins 1992.ÁrdegisflóðíReykjavíkkl.
9.23 og síðdegiflóð kl. 21.53. Fjarakl. 5.02 ogkl. 17.51.
Sólarupprás í Rvik. kl. 10.40, sólarlag kl. 15.51. Sólin er í
hádegisstað í Rvík. kl. 13.16 ogtunglið er í suðri kl. 17.39.
(Almanak Háskóla íslands.)
En þeir, sem tilheyra Kristi Jesú hafa krossfest holdið
með ástríðum þess og girndum. (Gal 5,24.)
ÁRNAÐ HEILLA
(\/\ára afmæli. í dag, 29.
í/U nóvember, er níræð,
Steinunn María Pálsdóttir
Beck frá Sómastöðum,
Reyðarfirði, Karlagötu 13,
Rvík. Eiginmaður hennar var
Valdimar Bjarnason, frá Fá-
skrúðsfírði. Hann er látinn.
Hún er að heiman.
O /\ára afmæli. Á morgun,
ö vf mánudag 30. nóv., er
áttræður Felix Þorsteinsson
húsasmíðameistari, Lindar-
braut 11, Seltjarnarnesi.
Eiginkona hans er Sigurbjörg
Guðmundsdóttir. Þau taka á
móti gestum á afmælisdaginn
á heimili sínu eftir kl. 18.
Q f\ára afmæli. Á morgun,
Ow 30. þ.m. er áttræð
Guðrún M. Jónsdóttir frá
Gróf, Erluhrauni 11, Hafn-
arfirði. Hún tekur á móti
gestum í dag, sunnudag, í
félagsheimili Hauka við
Flatahraun, kl. 16-19.
fTfkára afmæli. Næstkom-
| U andi þriðjudag, 1.
desember, er sjötug Sigríður
Beinteinsdóttir, Eyjaholti
10, Garði. Maður hennar var
Einar Jóhannsson. Þau
bjuggu áður á Bakka á
Ströndum. Hún tekur á móti
gestum á heimili dóttur sinn-
ar, í Garðinum, Eyjaholti 17,
eftir kl. 16 í dag, sunnudag.
KROSSGATAN
u
9 10
3
13
HZ'lzmz
|22 23 24
LÓÐRÉTT: - 2 þannig, 3
keyra, 4 magrara, 5 varminn,
6 geislahjúp, 7 fúsk, 9 von,
10 munninum, 12 bursti, 13
ýlfraðir, 18 tölustafír, 20 flan,
21 kindum, 23 gelt, 24 burt.
LÁRÉTT: - 1 eyðslusamur,
5 voði, 8 þrætir, 9 blautar,
11 rýju, 14 flýtir, 15 broddar,
16 líkamshlutar, 17 elska, 19
kvendýr, 21 búseta ájörð, 22
ungt lamb, 25 tannstæði, 26
huldumann, 27 leðja.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: — 1 sterk, 5 sáma, 8 íraks, 9 hugga, 11 áttan,
14 ull, 15 nefjum, 16 doppu, 17 agi, 19 iðan, 21 iðja, 22
sálmanna, 25 get, 26 áma, 27 rói.
LÓÐRÉTT: - 2 tíu, 3 ríg, 4 krauma, 5 skáldi, 6 ást, 7 nóa,
9 hending, 10 giftast, 12 tapaðar, 13 nauðaði, 18 gamm,
20 ná, 21 in, 23 lá, 24 AA.
SKIPIN
REYKJAVIKURHOFN. Nú
um helgina eru væntanlegir
til hafnar tveir þýskir togar-
ar, sem taka veiðarfæri um
borð og rússneskur togari
sem kemur til löndunar.
Mánudag er Laxfoss væntan-
legur að utan. Togarinn Giss-
ur Ár landar og Ögri kemur
úr söluferð. í gær fór Kynd-
ill á ströndina og þýska eftir-
litsskipið Fridjof kom inn
aftur vegna bilunar.
H AFN ARFJ ARÐARHÖFN:
Hofsjökull er væntanlegur
af strönd í dag.
Yfirlýsing ríkisstj ómarinnar um efnahagsaðgerðir
SKATTUR Á FYRIRTÆKIMEÐ
ÞVÍ HÓFLEGASTA SEM GERIST
Kannski komist þið, skötuhjúin, „litla Gunna og litli Jón“ á verðlaunapallinn, næst. Hver veit
elskurnar mínar...?
FRÉTTIR/MANNAMÓT
/?/\ára afmæli. í dag, 29.
OU þ-m; er sextugur
Karl H. Ágústsson, Mið-
vangi 63, Hafnarfirði, fram-
kvæmdastjóri Baader-þjón-
ustunnar. Kona hans er Guð-
rún Guðmundsdóttir. Þau eru
að heiman.
/?/\ára afmæli. Sextugur
UU er á morgun mánu-
dag 30. nóv. John Earl Kort
Hill, lögreglufulltrúi,
Bjarmalandi 18, Sandgerði.
Eiginkona hans er Þórunn
Kr. Guðmundsdóttir, mynd-
menntakennari. Þau verða að
heiman afmælisdaginn.
ORÐABÓKIN
Strákur
piltur
Enda þótt ofangreind orð
tákni hið sama, hefur í
raun verið talsverður
munur á notkun þeirra og
því alls ekki sama, hvar
og hvemig þau eru notuð.
í sumar er leið heyrði ég
í útvarpinu samtal um
fegurðarsamkeppni og
undirbúning undir hana.
M.a. var rætt um viðbrögð
stúlknanna og hvort þær
væru ekki kvíðnar eða
taugaóstyrkar. í þessu
samtali var aldrei talað
um stúlku, heldur ailtaf
stelpur: stelpumar væm
kvíðnar, stelpunum kæmi
vel saman eða eitthvað í
þessa átt. Þá var líka
minnzt á stráka í þessu
samtali. Ég hygg, að
margir geti verið mér
sammála um það, að hér
eiga þessi nöfn tæplega
eða alls ekki við. Hér er
- stelpa -
- stúlka
um keppni að ræða, sem
hefur á sér virðuleikablæ.
Þá á að tala um stúlkur
og pilta. Minna má hér
á, að ekki datt Jóni Thor-
oddsen annað í hug en
nefna skáldsögu sína Pilt
og stúlku. Sannleikurinn
er sá, að hér er verulegur
blæmunur á. Vissulega
má tala um stráka og
stelpur, en þá er það í
ákveðnu umhverfi og oft
heldur í gamansömum
tón. Piltur og stúlka er
hátíðlegra orðalag og
bókmálskenndara en hin
orðin. Sjálfsagt er að gera
hér greinarmun á og laga
allt eftir aðstæðum hveiju
sinni. Hitt væri mjög mið-
ur, ef þessi fallegu nöfn,
piltur og stúlka, hyrfu að
mestu eða jafnve) alveg
úr almennu máli.
- JAJ.
í DAG gengur jólafastan í
garð, aðventan. Trúarlegt
föstutimabil á undan jólum.
Hefst með 4. sunnudegi fyr-
ir jóladag, þ.e. 27. nóvem-
ber til 3. desember. Nafnið
aðventa er dregið af lat-
neska orðinu adventus:
koma, þ.e. koma Krists, og
skírskotar til jólanna, sem
framundan eru. Þannig er
komist að orði í Stjörnu-
fr./rímfræði. Þessi dagur
var stofndagur Kommún-
istaflokks Islands árið
1930. Á morgun, mánudag,
er Andrésarmessa. Messa í
minningu Andrésar post-
ula, þjóðardýrlings Skota.
NÝ FRÍMERKI. í tilk. frá
Pósti & síma segir að hinn
3. desember næstkomandi
verða gefín út fjögur ný frí-
merki. Verðgildi þeirra er
krónur: 5, 10, 20, 35 krónur.
Á þeim er mynd af ísl. fálkan-
um við ýmsar aðstæður í sínu
náttúrulega umhverfí.
TRÚFÉLAG. í Lögbirtingar-
blaðinu tilk. dóms- og kirkju-
málaráðuneytið að samkv.
lögum um trúfélög hafí ráðu-
neytið viðurkennt söfnuðinn
Orð lífsins til skráningar sem
trúfélag. Jafnframt er Ás-
mundur Magnússon viður-
kenndur forstöðumaður trú-
félagsins.
HEIMILISIÐNAÐARFÉL.
ísland heldur jólafund í húsi
sínu, Laufásv. 2 í dag kl. 14.
Viðfangsefni fundarins er
gluggaskreyting og jólapoka-
gerð og verða fundarmenn
að hafa meðferðis túbulím og
skæri. Kaffiveitingar.
HRAUNBÆR 105, félags-
miðstöð aldraðra. Föstud. 4.
des. nk. er jólasöludagur í
vinnustofunni. Tekið verður
við handunnum munum nk.
miðvikudag, 2. des. Á morg-
un, mánudag kl. 14, kemur
dr. Sigurbjörn Einarsson
biskup í heimsókn.
FÉL eldri borgara. Brids
spilað í litla sal í dag kl. 13
og félagsvist í stóra sal kl.
14. Dansað í Risinu kl. 20.
Það er opið mánudag 13-17.
Lögfr. fél. til viðtals þriðju-
dag._______________________
GARÐYRKJUFÉL. íslands
heldur fræðslufund mánu-
dagskvöld kl. 20.30 á Holiday
Inn. Stanislas Bohic ræðir um
skipulag garða. Fundurinn er
öllum opinn.
AFLAGRANDI 40. Félags-
starf aldraðra. Mánudag kl.
14 spiluð félagsvist og þriðju-
dag. Fijáls spilamennska kl-
13.
GERÐUBERG, félagsstarf
aldraðra. Basar í dag kl.
14-17. Handunnir munir o.fl.
Kaffiterían opin.
STYRKTARFÉL. lamaðra
og fatlaðra, kvennadeildin.
Mánudagsfundur fellur niður.
FRÍKIRKJAN Hafnarf. Jóla-
fundur kvenfélagsins í Skút-
unni, Hólshrauni 3, kl. 20 í
kvöld.
SELJASÓKN. Kvenfél.
sóknarinnar heldur söng-
skemmtun í Seljakirkju í
kvöld kl. 20.30. Gestir: Syngj-
andi seljur og Söngf. eldri
borgara í Rvík. Kórarnir
syngja jólalögin. Upplestur
og einleikur á trompet.
JÓLABASAR kirkjunefndar
Kvenna Dómkirkjunnar er í
safnaðarheimili Dómkirkj-
unnar, gamla Iðnskólahúsinu
í Vonarstræti, í dag kl. 12
að lokinni messu. Fjölbreyttur
varningur og kökur.
VITINN Hafnarfirði, félags-
miðstöð. í dag kl. 16-18 vin-
áttukaffi unglinga og eldri
borgara. Húsið opnað kl.
15.30. Unglingamir sjá um
skemmtidagskrá og leikið á
harmonikku.
Sjá framliald á bls. 39