Morgunblaðið - 03.12.1992, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUÍ>AGÚR 3. DESEMBEIl 1992
2_________________________
Marel sækir
á mið kjúkl-
ingaiðnaðar
MAREL hf. hefur samið við
bandaríska fyrirtækið Johnson
Food Equipment um markaðs-
setningu og sölu á nýjum búnaði
fyrirtækisins, svonefndum form-
flokkara, fyrir kjúklingaiðnað.
Johnson er með stærstu mark-
aðshlutdeild tækjaframleiðenda
í kjúklingaiðnaðinum í Banda-
ríkjunum. I ljósi væntanlegra
aukinna umsvifa hefur verið
ákveðið að auka hlutafé Marels
um 10 milljónir króna upp í 110
milljónir.
Marel er nú almenningshlutafé-
lag skráð á Verðbréfaþingi íslands.
Hið nýja hlutafé á að selja á geng-
inu 2,5 og í fyrstu verður það ein-
ungis boðið núverandi hluthöfum.
Gert er ráð fyrir að hagnaður
Marels hf. verði 22 milljónir króna
á þessu ári og að hann verði svipað-
ur árið 1993. Til samanburðar má
geta þess að hagnaður fyrirtækisins
á sl. ári var 34 milljónir króna.
Sjá umfjöllun í viðskiptablaði
6-7C.
Rjúpan á 800 kr.
Eins og
íjúpan sé
gullslegin
- segirstarfs-
maður Fjarðar-
kaupa
Kjöt-
vinnslumenn
sem Morg-
unblaðið
ræddi við
voru á einu
máli um að
ijúpnaveiði-
menn færu
fram á of
hátt verð fyrir rjúpuna í skjóli
þess að lítið framboð væri af
henni. Fjarðarkaup í Hafnar-
firði hafa ákveðið að kaupa
ekki rjúpu á því verði sem
nú er sett upp, eða 800 kr.
fyrir stykkið.
„Þeir hafa verið að bjóða okk-
ur ijúpu en maður veltir því
fyrir sér hvort hún sé gullsleg-
in,“ sagði Guðjón Sveinsson í
kjötdeild Fjarðarkaupa. Hann
sagði að samkvæmt þessu yrði
smásöluverð 1.200-1.400 kr.
stykkið þegar búið væri að
ieggja á virðisaukaskatt og ef
gert væri ráð fyrir einhveijum
hagnaði af sölunni. Hann sagði
að Fjarðarkaup hefðu greitt 450
kr. í fyrra fyrir stykkið og smá-
söluverð hefði verið 700 kr.
í dag
Hvað um morðingja Kambans?
Leifur Sveinsson skrifar danska
dómsmálaráðherranum 25
Svikararnir í Sovétríkjunum
Fyrrverandi KGB-foringi minnist
„gömlu góðu daganna “ 26
Ábendingar um mólfar__________
Bréf til blaðsins frá Auðuni Braga
Sveinssyni 50
Leiðari_______________________
Valkostir í heilbrigðiskerfmu 28
Nýtt sex hæða bílastæðahús fyrir 271 bíl opnað við Hverfisgötu
Bangsi tók
við fyrsta
miðanum
Stór bangsi, tákn Laugavegs-
samtakanna, tók á móti Mark-
úsi Erni Antonssyni, borgar-
stjóra, þegar renndi inn í Trað-
arkot, nýtt bílageymsluhús
gegnt Þjóðleikhúsinu, á Ford-
bifreið árgerð 1930 í gær.
Erindi Markúsar var að opna
bílageymsluhúsið með form-
legum hætti en búast má við
að margir kjósi að geyma bíla
sína þar í jólaörtröðinni því
ekkert gjald verður tekið í jóla-
mánuðinum. Traðarkot er 6
hæða hús, þar af eru 2 kjallar-
ar neðanjarðar, og eru þar
bílastæði 'fyrir 271 bíl á 12
Morgunblaðið/Ámi Sæberg pölluni.
Níu mánaða uppgjör Flugleiða sýnir að rekstur ársins verði í járnum
Hagnaður 246 mílljónir
þrátt fyrir verri afkomu
Hagnaður Olíufélagsins 190 milljónir
HAGNAÐUR af rekstri Flugleiða nam rúmlega 246 miRjónum króna
fyrstu níu mánuði ársins. A sama tíma í fyrra var hagnaðurinn 494
milljónir á sama verðlagi þannig að afkoman hefur versnað um 247
miiyónir króna milli ára. Að sögn Sigurðar Helgasonar, forstjóra
Flugleiða, benda þessar tölur ásamt spám um flutninga og gengisfor-
sendur næstu vikur til þess að rekstur félagsins standi í járnum um
næstu áramót. Afkoman fyrstu níu mánuðina er nokkru betri en
endurskoðuð rekstraráætlun frá síðasta sumri gerði ráð fyrir og
sagði Sigurður að svo virtist sem afkoman í október yrði einnig
betri en áætlun gerði ráð fyrir.
Helstu ástæður fyrir lakari af-
komu í rekstri Flugleiða fyrstu níu
mánuði ársins samanborið við
sama tímabil í fyrra má rekja til
þess að tekjur félagsins drógust
saman um 6,6% að raungildi á
sama tíma og kostnaður lækkaði
aðeins um 2,7% að raungildi. Far-
þegatekjur sem vega þyngst í tekj-
um Flugleiða lækkuðu um 7% að
raungildi á milli ára. Ennfremur
var gengi dollars lágt í lok septem-
ber og hafði það neikvæð áhrif á
afkomuna.
Farþegum Flugleiða í milli-
landaflugi íjölgaði um tæp 6% á
milli ára. í innanlandsfluginu nam
fjölgunin um 2% en 13% samdrátt-
ur varð í leiguflugi. í heild fjölgaði
farþegum Flugleiða um 3,5% milli
ára. Sigurður Helgason sagði í
samtali við Morgunblaðið að á
móti þeirri fjölgun kæmi sú stað-
reynd að fargjöld hafi lækkað í
öllum helstu markaðslöndum fé-
lagsins. Hann nefndi sem dæmi
þróunina á íslandi, en farþegum
Flugleiða héðan fjölgaði um 15%
fyrstu níu mánuði ársins. Meðal-
verð þeirra farmiða sem keyptir
eru hér á landi lækkaði hins vegar
um 13% á sama tímabili og tekjur
Flugleiða á íslandi hækkuðu því
aðeins um tæplega hálft prósent.
Hagnaður af rekstri Olíufélags-
ins hf. fyrstu níu mánuði ársins
nam 190 milljónum króna skv.
óendurskoðuðu uppgjöri 30. sept-
ember sl. sem birtist í útboðslýs-
ingu félagsins vegna útboðs á nýju
hlutafé að nafnvirði 50 milljónir.
Um er að ræða aukningu frá fyrra
ári þegar heildarhagnaður ársins
nam um 170 milljónum. Fyrstu níu
mánuði þessa árs var hagnaður
fyrir reiknaðan tekju- og eigna-
skatt rúmlega 308 milljónir.
Heildareignir Olíufélagsins í lok
september námu 6,9 milljörðum
króna. Eigið fé var 3,8 milljarðar
og eiginfjárhlutfall því 56%. Eftir
kaup félagsins á hlutabréfum
Sambandsins lækkaði eiginfjár-
hlutfallið í 45%, en hlutafjárútboð-
ið er liður í fjármögnun þeirra
kaupa.
Sjá nánar viðskiptablað, 1C.
Ný reglugerð
um bensíngjald
Fjármálaráðuneytið gaf í gær út nýja regiugerð um hækkun bens-
íngjalds sem tók gildi í gær, 2. desember. Um leið var ógilt reglu-
gerð sem gefin var út 30. nóvember og kvað á um hækkun bensín-
gjalds um 1,50 krónur frá og með 1. desember.
Magnús Pétursson ráðuneytis- til að hækka verð á bensíni 1. des-
stjóri fjármálaráðuneytis sagði við
Morgunblaðið, að olíufélögin hefðu
átt að fá upphaflegu reglugerðina
í hendur að kvöldi 30. nóvember.
Hins vegar hefði það ekki verið
nægilegur fyrirvari fyrir olíufélögin
ember og því hefði verið ákveðið
að hafa þennan háttinn á að þessu
sinni. Að óbreyttu hefðu olíufélögin
orðið að taka á sig bensíngjalds-
hækkunina í einn dag, þann 1. des-
ember.
Dagskrá
► Heimildamynd um Elísabetu
II — Melrose Place arftaki Bev-
erly Hills 90210 — Lestur úr jóla-
bókum — Myndbandalistinn —
Spennumyndin Á mannaveiðum
JHorounUlnbiti
vrosHPnjaviNNuiiF
——---------------—-------------L
LJU—IJL.J.. j. liMTwun 'I
lllhor.) OiiuféUgsins liður t
i fjármögnun SlS-hrvfnnna ~ • * %
HAGKVÆMASTI *
KOSTURINN M
l'EGAR
ALLS ERGÆTT.
Viðskipti/Atvinnulíf
► Útboð Olíufélagsins - Rífandi
sala KEA-bréfa - H|jómplötu-
rnarkaður í járnum - Marel á
kjúklingamarkað - Stormur í
kaffibolla
Nafnvextir ríkis-
víxla hækka um 2%
Raunvaxtalækkun miðað við verðbólgxispá
í útboði á þriggja mánaða ríkisvíxlum í gær hækkaði ávöxtunar-
krafa þeirra um 2% frá síðasta úboði. Forstöðumaður Þjónustumið-
stöðvar ríkisverðbréfa segir að þrátt fyrir að nafnvextir hafi hækk-
að um 2% sé í raun um raunvaxtalækkun að ræða ef miðað sé við
verðbólguspá Seðlabankans fynr næstu þijá mánuði.
í útboðinu bárust 34 gild tilboð
í ríkisvíxla, samtals að fjárhæð
2.769 milljónir króna en tilboðum
var tekið frá 8 aðilum í samtals 950
milljónir króna. Meðalávöxtun sam-
þykktra tilboða var 11,38%, sem
svarar til 10,64% forvaxta. Lægsta
ávöxtun vár 10,95% en hæsta
11,51%. í síðasta tilboði ríkisvíxla,
sem var 18. nóvember, var meðal-
ávöxtun 9,41% og í útboði 4. nóvem-
ber var meðalávöxtun 9,29%.
Ávöxtunin hefur því hækkað um
rúm 2% síðasta mánuð.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins áttu menn í fjármála-
ráðunejdinu von á vaxtahækkun í
útboðinu, en þessi hækkun var þó
heldur meiri en búist var við. En
Pétur Kristjánsson forstöðumaður
Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa
sagði við Morgunblaðið, að vaxta-
hækkunin kæmi í kjölfar efnahags-
ráðstafana sem leiddu til tímabund-
innar hækkunar verðbólgu, og þótt
um væri að ræða 2% nafnvaxta-
hækkun miðað við síðasta útboð
hefði Seðlabankinn spáð tæplega
6% verðbólgu á næstu þremur mán-
uðum. Því mætti álykta að um raun-
vaxtalækkun væri að ræða.
Þegar Pétur var spurður hvers
vegna ekki hefði verið tekið fleiri
tilboðum, úr því að álykta mætti að
í þeim fælist raunvaxtalækkun,
svaraði hann að þar sem um tíma-
bundna sveiflu væri að ræða vildi
fjármálaráðuneytið ekki fara með
nafnvextina hærra en þetta.