Morgunblaðið - 03.12.1992, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992
11
Leikhús í tösku
Ur töskunni spretta
Grýla og jólasveinar
„LÖNGU áður skrifaði ég söguna „Björt og jólasveinafjölskyld-
an“, en spurði svo sjálfa mig; af hverju fer ég ekki af stað með
söguna og leik öll hlutverkin sjálf? Síðan ætlaði ég að sýna í tíu
skipti fyrir jólin 1989, en mikil eftirspurn kom mér á óvart. Ef
engin verkefni liggja fyrir, þá skapar maður þau sjálfur,“ segir
Þórdís Arnljótsdóttir leikkona sem er búin að sýna söguna um
Grýlu og jólasveinana 120 sinnum.
Morgunblaðið/Emilía
Krakkarnir sýnast ekki mjög hræddir við Grýlu gönilu.
Þórdís annar ekki öllum pönt-
unum nú fyrir jólin. Hún er að
leggja af stað í leikskólana, suma
í fjórða skiptið síðan 1989, „en
auðvitað eru komin önnur börn í
leikskóladeildimar, Sýningin til-
heyrir jólaundirbúningi eða kynn-
ingu á jólunum í gamla daga“.
Þórdís segist líka skemmta á litlu
jólunum. En leiktíminn er stutt-
ur, aðeins frá 3.-22. desember.
Töluverðan kjark þarf til að
pakka „leikhúsi" ofan í gamla
tösku, arka af stað, standa einn
á sviði í 40 mínútur fyrir framan
gagnrýnustu, en um leið þakklát-
ustu, áhorfendurna — börn á leik-
skólaaldri og í fyrstu bekkjum
grunnskóla.
„Það eru algjör forréttindi að
fá að leika fyrir þennan hóp. Þau
segja manni strax ef þeim mislík-
ar eitthvað, láta líka ánægju sína
óspart í ljós — eru alveg ofsalega
skemmtileg." Þórdís segir samt
ekkert smámál að vera með ein-
leik svona lengi, að strax sé aug-
ljóst hvort börnin kunni að hlusta
á sögur eða hvort þau horfi mest
á sjónvarp, „Það er viss kúnst
að hafa vissa lengd, til að halda
athygli barnanna.
— Segðu okkur út á hvað leik-
sýningin gengur?
„Ég hef alltaf verið svo hrifin
af öllu þjóðlegu. Hef safnað sam-
an efni úr gömlum bókum. Upp
úr því spannst sagan um Björtu,
sem týnist í jólaösinni og er bjarg-
að af gamalli konu. Sú gamla
segir henni frá jólunum í gamla
daga, fer með þulur og kvæði um
Grýlu og jólasveinana — og klæð-
ir sig í gervi þeirra."
Og Þórdís pakkar Grýlu — og
jólasveinafötu, ásamt ýmsu for-
vitnilegu — í töskuna og breytist
í Grýlu og íslenska jólasveina fyr-
ir augliti barnanna. „Ég verð að
setja upp Grýlunefið fyrir framan
þau, annars verða þau svo
hrædd,“ Grýla er býsna ógnvekj-
andi ennþá, ekkert síður en fyrr
á öldum.
Askur, skyr, laufabrauð, jafn-
vel „alvöru“ bjúga leynast í tösk-
unni. „Þeim fínnst svo skemmti-
legt að ég sé með eitthvað til að
borða.“ í leiknum koma upp orð
og athafnir, sem börn eiga erfitt
með að skilja. Og spurningar
dynja á Þórdísi:
Af hveiju er askurinn með lok?
Hvaða „tutlu“ krækti Ketkrókur
sér í? Og almennur misskilning-
ur, þegar kemur að vísuorðinu
„gafst hún upp á rólunum" —
Grýla hlýtur að hafa verið úti að
róla sér! „Líka er gaman að út-
skýra fyrir.þeim hvernig krakkar
áður fyrr léku sér með lambslegg
í búleik.
Fóstrur í leikskólum leggja
mikið upp úr þessu þjóðlega. Þær
vinna mikið með íslenska ull og
lesa með krökkunum Jólasveina-
kvæði Jóhannesar úr Kötlum,
sem ég byggi á. Ekki er síst mikil-
vægt nú að halda á lofti þessu
gamla, þjóðlega,“ segir Þórdís.
„Börn verða að þekkja íslensku
jólasveinana, skrýtnu, hrekkjóttu
karlana í sauðagærunum — ekki
bara rauðklædda jólasveininn
sem hlær og gefur gjafir. Þau
verða að fá mótvægi gegn sölu-
og auglýsingajólum nútlmans."
Og Þórdís segist láta sig
dreyma um að búa til eitthvað
annað þjóðlegt og menningarlegt
fyrir börn, sem bundið er öðrum
árstíma, til dæmis vorinu. „Mig
langar til að hafa tíma til að setj-
ast niður og grúska í því.“
O.SV.B.
Sinfóníuhljómsveit íslands
Mahler-tónar í Háskólabíói
Á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands í Háskólabíói
fimmtudagskvöldið 3. desember
verður 5. sinfónía eftir Gustav
Mahler leikin. Stjórnandi tónleik-
anna verður Petri Sakari, aðal-
hljómsveiterstjóri SÍ. Sinfónían er
eitt tónverka á efnisskrá, enda
tekur hún um 75 mínútur í flutn-
ingi.
Árið 1904 var 5. sinfónía Mahlers
frumflutt undir stjórn tónskáldsins í
Köln í Þýskalandi. Viðtökur áheyr-
enda voru nánast fjandsamlegar.
Einnig er sagt að hljóðfæraleikarar
sem léku verkið hafi verið lítt hrifnir
af því og höfundi þess, enda átti
Mahler oft í útistöðum við hljóðfæra-
leikara.
í fréttatilkynningu segir, að óhætt
sé að segja að viðhorf til verksins
hafi breyst, sem telja má eitt af stór-
verkum tónbókmennta 20. aldar.
Petri Sakari, aðalhljómsveitar-
stjóri SÍ.
Fimmtu sinfóníu Mahlers hefur
stundum verið líkt við Eroicu Beet-
hovens, og víst má finna samsvörun
þrátt fyrir ólíka framsetningu,
dýpstu örvæntingu og allttil fullkom-
innar sælu niá finna í báðum þessum
verkum.
Sinfónían er í þremur hlutum, sem
skiptast í 5 þætti. Þannig mynda
fyrstu tveir þættir fyrsta hluta. í
öðrum hluta er 3. þáttur verksins,
en þriðja hluta skipa 4. og 5. þáttur.
Þriðji hluti sinfóníunnar hefst á hin-
um undurfagra adagietto-þætti. Sá
þáttur er kannski þekktastur fyrir
að hafa verið notaður á áhrifamikinn
hátt í kvikmynd Luigi Visconti,
„Dauðinn í Feneyjum".
Mahler skrifaði tónverk sín yfir-
leitt fyrir mjög stóra hljómsveit og
þess má geta að á tónleikunum 3.
desember verður sinfóníuhljómsveit-
in stækkuð og telur þá tæplega 90
hljóðfæraleikara.
Óperusmiðjan í Langholtskirkju
Amahl og næturgestirnir
ÞESSA dagana standa yfir æfing-
ar hjá Óperusmiðjunni á óperunni
Amahl og næturgestirnir. Öperan,
sem samin er af tónskáldinu Gian
Carlo Menotti, verður frumsýnd í
Langholtskirkju 5. desember kl.
17.00.
Amahl og næturgestimir hefur þá
sérstöðu að vera fyrsta óperan sem
samin er gagngert fyrir sjónvarp.
Hún er samin að beiðni NBC sjón-
varpsstöðvarinnar í New York og var
frumflutt 24. desember 1951. Síðan
hefur hún verið flutt á hveiju ári
víða um heim og er talin mest flutta
ópera 20. aldar.
Ítaisk-bandaríska tónskáldið Gian
Carlo Menotti er fæddur 19111 borg-
inni Cadegliano við Lugano vatn á
Ítalíu. Faðir hans var vel stæður
kaupsýslumaður og móðir hans hafði
tónlistarhæfileika. Þegar Menotti
innritaðist í Tónlistarskólann í
Mílanó áðeins 13 ára, hafði hann
þegar samið óperur. Árið 1928 hóf
hann nám við Curtis-tónlistarskólann
í Philadelphíu í Bandaríkjunum og
kennari hans þar var Rosario Scal-
ero. Meðal skólafélaga og vina Me-
nottis var meðal annars bandaríska
tónskáldið Samuel Barber. Af fræg-
ustu óperum Menottis, auk Amahls
og næturgestanna, eru Miðillinn og
Konsúllinn.
Amahl og næturgestirnir var fyrst
uppfært hér á íslandi 1963 af Musica
Nova. Flytjendur þá voru Sigurður
Rúnar Jónsson, Svala Nielsen, Frið-
björn Jónsson, Hjálmar Kjartansson
og Vilhelm Halldórsson ásamt kór
og hljómsveit. Leikstjóri var Gunnar
Hansen og hljómsveitarstjóri Magn-
ús Blöndal Jóhannsson, en Magnús
hafði séð frumsýningu óperunnar í
New York. Þetta mun að öllum lík-
indum hafa verið fyrsta uppfærsla
utan Bandaríkjanna.
Óperan var tekin upp fyrir Ríkis-
sjónvarpið 1968, flytjendur voru þeir
sömu, að undanskildu hlutverki
Amahls, sem þá var í höndum Ólafs
Flosasonar. Leikstjóri þá var Gísli
Alfreðsson. Kór og hljómsveit var
skipað sama fólki og hljómsveitar-
stjóra. Síðan hefur óperan ekki verið
flutt hérlendis svo vitað sé fyrr en
fyrir nokkrum árum norður á Aðal-
dal undir stjórn Róberts Faulkner. í
hlutverki móður í þeirri uppfærslu
var Margrét Bóasdóttir.
Óperan fjallar um ævintýri ungs
drengs um betra líf. Hann dreymir
kraftaverk sem á að leysa hann úr
fjötrum raunveruleikans, en ekki er
allt sem sýnist þegar upp er staðið.
Þátttakendur í uppfærslu Óperu-
smiðjunnar verða sem hér segir:
Amahl, Jóhann Ari Lárusson og
Hjörtur Þorbjörnsson; Móðirin, Jó-
hanna Linnet; Kasper, Guðlaugur
Victorsson; Melchior, Ragnar Dav-
íðsson; Balthasar, Stefán Arngríms-
son; Þræll, Sigurður Sævarsson; Kór
Óperusmiðjunnar og íslenski Dans-
flokkurinn. Leikstjóri er Hávar Sig-
uijónsson. Helga Stefánsdóttir sér
um leikmynd og búninga. Magnús
Blöndal Jóhannsson er hljómsveitar-
stjóri.
Sýningardagar eru sem hér segir:
Frumsýning 5. desember kl. 17.00.
Aðrar sýningar verða 6. desember
kl. 17.00; 12. desember kl. 17.00;
13. desember kl. 20.00. Miðaverð kr.
750 fyrir börn, kr. 1.000 fyrir full-
orðna.
v Við bjóðum uppá4
þroskandi efni fyrir1
► meðvitaða einstaklinga 4
Bækur og snældur sem voru kynntar á Krabbameinsráðstefnu
í Norræna húsinu í nóvember nú aftur fáanlegar: ■
□ STYRK DIT IMMUNFORSVAR - snælda. "
Snældur og bækur frá Louise L. Hay:
□ CANCER - snælda
□ FEELING FINE AFFIRMATIONS - snælda
□ HJÁLPAÐU SJÁLFUM ÞÉR - bók
□ HEART THOUGHTS-bók
□ THE POWER IS WITHIN YOU - bók
□ POWER THOUGHTS - staðfestingarspjöld
I
I
Bækur og snældur frá Bernie S. Siegel:
□ A POSITIVE NEW YOU - snælda
□ MEDITATIONS FOR ENHANCING YOUR
IMMUNE SYSTEM - snælda
□ MEDITATIONS FOR FINDING THE KEY
TO GOOD HEALTH - snælda
□ KÆRLEIKUR, LÆKNING, KRAFTAVERK
□ FRIÐUR, KÆRLEIKUR, LÆKNING
TÍMARITIN:
□ NEW AGE JOURNAL
□ YOGA JOURNAL
□ CHANGES
□ BODY, MIND, SPIRIT
□ GANGLERI
□ HEILSUHRINGURINN
□ SHAMAN'S DRUM
I
►
ENSKAR URVALSBÆKUR M.A: BÆKUR WHITE EAGLE - OMRAAM
MICHAEL AIVANHOV - CARLOS CASTANEDA - LYNN ANDREWS - ■
LOUISE L. HAY - CRIS GRISCOM - DAN MILLMAN - SANAYA ROMAN
- SAI BABA - JOSÉ STEVENS - MELODY BEATTIE - JOHN BRAD- a
SHAW - CHARLES L. WHITFIELD - YOGI AMRIT DESAI (GURUDEV) ^
- MARY SUMMER RAIN - BROOKE MEDICINE EAGLE
| MARGAR GERÐIR AF REYKELSISSTÖNGUM OG STAUTUM (CONES)
I
►
I
►
I
►
FRÁ BLUE PEARL- LOVING LIFE - MOTHER'S FRAGRANCE -HERBAL-
VEDIC OG NATIVE SCENTS. EINNIG REYKELSISDUFT OG STATÍVTIL
AÐ BRENNA REYKELSI í
ALDREI MEIRA ÚRVAL AF TAROT SPILUM OG ÖÐRUM SPÁSPILUM
□ KRISTALAR OG ORKUSTEINAR I MIKLU ÚRVALI - SLÍPAÐIR
- ÓSLÍPAÐIR
□ SKARTGRIPIR UNNIR ÚR ORKUSTEINUM OG KRISTÖLUM
□ EGGLAGA ORKUSTEINAR OG KRISTALSKÚLUR
□ PENDÚLAR ÚR KRISTÖLUM OG SLÍPUÐUM ORKUSTEINUM
□ POKAR MEÐ BLÖNDUÐUM ORKUSTEINUM - HAGSTÆTT VERÐ
□ KÆRLEIKSRÚNIR - 5 f POKA RISTAR Á RÓSAKVARS
□ VELGENGNISRÚNIR - 5 I POKA RISTAR Á AVENTURÍN
□ JÁ/NEI RÚN RIST Á AMETYST
□ SILKIPOKAR, LEÐURPOKAR, HEKLAÐIR POKAR FYRIR STEINANA
□ PLAST- OG TRÉSTATÍV FYRIR ORKUSTEINA
I
I
Við veitum
persónulega þjónustu
Greiðslukorta-
og póstkröfuþjónusta
beuRJÍip
Laugavegi 66, *
símar 623336 & 626265.
I