Morgunblaðið - 03.12.1992, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 03.12.1992, Qupperneq 13
SCei MQRffiKiíBLA'ÐIÐJ1992 Sí 13 Frá afmælistónleikum Kórs Keflavíkurkirkju á sunnudaginn. Morgunblaðið/Björn Blöndal Keflavíkurkirkja Vel heppnaðir afmælistónleikar Keflavík. KÓR kirlgunnar í Keflavík er 50 ára um þessar mundir og af þessu tilefni hélt kórinn uppá afmælið með tónleikum í Keflavíkurkirkju á sunnudaginn. Fyrst flutti kórinn klassíska messu í G-dúr eftir W.A. Mozart við hátíðarguðsþjónustu og síðar um daginn hélt kór- inn svo afmælistónleika þar sem á efnisskrá voru ýmis lög sem kórinn hefur sungið á undanförnum árum. Fjórir einsöngvarar komu fram með kórnum við þetta tækifæri, María Guðmundsdóttir, Margrét Hreggviðsdóttir, Sverrir Guð- mundsson og Steinn Erlingsson. Stjórnandi var Einar Örn Einars- son organisti í Keflavík. Einnig komu fram hljóðfæraleikararnir Hrönn Geirlaugsdóttir, Wilma Yo- ung, Kjartan Már Kjartansson, Oliver Kentish og Vilberg Viggós- son. „Afmælistónleikamir tókust ákaflega vel og við erum í sjöunda himni með hvemig til tókst,“ sagði Einar Örn Einarsson organisti og stjórnandi kórsins í samtali við Morgunblaðið. Einar Örn sagði að kórstarfið væri mjög öflugt og hann hefði þijú síðustu haust farið í æfingabúðir. Næstu verkefni kórsins sagði Einar Örn vera að- ventutónleika í Keflavíkurkirkju 13. og 20. desember. - BB Tíu fegnrstu Grimms-ævintýri haldið áfram í myndlistinni, en við því höfum við engin svör, því þetta er horfið tímaskeið, „passé“. Menn verða fórnardýr tímanna á margan hátt og þannig er það sem þótti djarft og ögrandi í eina tíð, eins og t.d. kvenlíkamar og brjóstaberar gellur, sem daglegt brauð, er fáir taka eftir í dag. Þannig hefur margt íjarska lítil áhrif á okkur, sem ögraði fólki fyrir 30 árum er Lebel gerði mynd- ir sínar. Þannig verður sú ofgnótt af brjóstum, sem við sjáum í mynd- um Lebels næsta vandræðaleg í jafn stórum skömmtum. Þessar myndir koma raunar upp um rithöfundinn og heimspeking- inn að baki, því þær eru að segja sögu á afar hversdagslegan hátt, en eru samt eins konar bæn til lífs og grómagna. Lebel hefur skrifað um aðskildasta efni, svo sem stjómmál, listir, listaheimspeki, hugmyndafræði og að auki gefið út ljóðabækur. Og eftir langt hlé er hann farinn að vinna að myndlist aftur, en deilir um leið tíma sínum til marg- víslegra athafna. Á sýningunni eru aðallega myndverk, sem Lebel gerði fyrir og eftir 1960 og. hér kemur m.a. fram rík tilhneiging til að vinna í samklippum og blandaðri tækni. Þetta gerði Erró einnig á svipuðum tíma og víst er að báðir höfðu þeir sitthvað fullgilt að gefa hvor öðrum á þessu mótunarskeiði. Þessi sýning á erindi til okkar, því að hún segir frá ýmsu sem var í geijun á mikilvægu tímaskeiði í evrópskri myndlist sem skarar ís- Ienska list að nokkru. er um neina allsheijarúttekt að ræða, eins og hann tekur fram í formála. Um myndirnar sjálfar er það að segja, að margar þeirra eru prýðis fallegar. Hér verður þess ekki freistað að gefa einstökum myndum einkunnir. Þær eru allar teknar af einum manni, og verður því svipmót þeirra mjög með sama hætti og myndirnar einhæfari en ef fleiri hefðu unnið að verkinu. Þetta er að sjálfsögðu bæði kostur þeirra og annmarki. Eins og vænta má í jafn stóru safni eru myndirn- ar nokkuð misjafnar. Ég fæ ekki betur séð, en að höfundurinn herði fullmikið á litaandstæðum og gefi myndum sínum þannig helst til þungan og dimman svip. Sums staðar, þar sem ég þekki til, sýn- ist mér að völ hafi verið á betra sjónsviði þegar myndin var tekin til að mynda við Áldeyjarfoss, og ugglaust var ekki alltaf kostur bestur bestu birtu og aðstæðna. Það er full ástæða til að óska höfundi og útgefanda til hamingju með fallega og fróðlega myndabók af nokkrum dýrlegustu listaverk- um íslenskrar náttúru. Og lesand- anum mætti hún vekja forvitni og áhuga á að kynnast landinu nánar. Bókmenntir Sigurður Haukur Guðjónsson Þýðing: Þorsteinn Thorarensen. Myndir: Anastasía Arkípóva. Prentun: Á Spáni. Útgefandi: Fjölvaútgáfan. Það á við um bæði fegurð og list að erfitt er að fanga í orð. Það finn ég er ég sit með þessa bók í höndum. Fjársjóðir sem fylgt hafa kynslóðum, glatt unga og aldna, lyft þeim frá amstri daganna í töfraheim draumsins, eru réttir fram. Perlur slípaðar af þeirri sagnahefð, sem á það tungutak er rýfur múra staða og stunda, verða ekki eign eins eða fárra, heldur allra. Hver á sér ekki mynd sinnar Rauðhettu, Mjallhvítar, Þyrnirósar eða sinn stígvélaða kött? Nefni þó aðeins fá af ævintýr- unum 10, sem hér eru sögð. Svar- ið mun vera: Fár meðal þeirra er kunna á bók. Því er ekki furða, að þessi skrautútgáfa er gerð í samvinnu við aðra þjóð (Verlag J.F. Schreiber, Esslingen). Enda er í engu til sparað. Myndir Anastasíu eru snilld sem aðeins fáum er gefið að töfra fram. Öguð kunnátta, ásamt hrifnæmri lotning fyrir efni ævintýranna, lyfta myndunum á síðum bókarinn- ar, töfra fram líf, svo að þær bæði tala og anga. Ekki aðeins bókar- prýði, heldur meðal gersema henn- ar. Hinar eru ævintýrin sjálf, meitl- uð og snjöll. Um þau þarf engin orð, þið þekkið þau öll. Þýðing Þorsteins er sönn og lif- andi. Orðgnótt hans er slík, að hann leikur sér að máli, hreinlega gleymir sér á stundum, seilist til orða sem eru í slíkri fjarlægð við mál nú, að ég er efins, að allir geti fylgt. Víst þykist ég vita, að á þennan hátt vilji hann undirstrika að ævintýrin eru engum tíma háð. En þá er á það að líta, að þau hætta að vera það, ef barn skilur ekki og finnur ekki svar hjá mömmu og pabba. Gleymum ekki að afi og amma eru í geymsluköss- um á stofnunum við grafarbarm. Undantekningar valda þessum vangaveltum, en af því að málið er fallegt, sparibúið, þá þori ég að varpa þeim fram til umhugsunar. Þorsteinn fer ekki alltaf troðnar slóðir í stafsetningu, skrifar stund- um í einu orði þar sem aðrir nota tvö, t.d. hinsvegar og einsog; nú eða vöbblur í stað vöflur (46); ojm- ingjann í stað aumingjann (13). En hann heldur takti, og þetta á jú hver við sjálfan sig. Þorsteinn Thorarensen Hins vegar eru villur: Á bls. 11 leikur tölvan sér að orðinu dyrnar; auðævi (28); vimpilinn (35); liðin (77) og ókkup (82). Texti er z- laus, svo að tízkuvörur (62) ættu að fljóta hér með. Prentun er mjög góð, og til frá- gangs í engu sparað. Skrautútgáfa sem allir, er að unnu, mega vera stoltir af. Þessa bók verður gaman að rétta fram sem gjöf. Nýjar bækur ■ Þjóðfélagið - Helgi- spjall heitir nýútkomin bók eftir Matthías Johannessen. í kynningu útgefanda segir: „Víða er kveðið fast að orði í þessari bók og skoðunum hvergi leynt. Það fer þó aldrei á milli mála að hér heldur skáld á penna og „skáld eru höfundar allrar rýni“ eins og Snorri Sturluson sagði forðum. Hvort sem það eru skoðanir heimspekings, skálds eða atburðir líðandi stundar sem verða Matthíasi Johannessen uppspretta vangaveltna er víst að enginn sem ann skynsamri og agaðri hugsun getur látið þessa bók fram hjá sér fara.“ Útgefandi er Iðunn. Bók- in er prentuð í Prentsmiðj- unni Odda hf. Verð 2.980 krónur. ■ Maístjarnan og fleiri lög heitir bók sem í eru lög eft- ir Jón Ásgeirsson við ljóð Halldórs Laxness. Bókin hefur að geyma safn laga Jóns Ásgeirssonar tón- skálds við Ijóð Halldórs Lax- ness. Þessi alkunnu lög Jóns hafa hrifið þjóðina og eru hvarvetna sungin á góðri stund. Nú geta unnendur þeirra í fyrsta sinn fundið þau á einum stað í útsetningu fyr- ir söngrödd og píanó. í bókinni eru þessi lög: Maístjarnan, Vorvísa, Sigurð- ur Breiðfjörð, Hjá lygnri móðu, Þótt form þín hjúpi graflín, Barnagæla frá Nýa Islandi, Haldiðún Gróa hafí skó, Þú kysstir mína hönd og Vor hinsti dagur er hniginn. Útgefandi er Vaka- Helgafell. Gunnar Baldurs- son hannaði kápu á bókina Maístjarnan og fleiri lög en Magnús Hjörleifsson Ijós- myndaði. Bókin er prentuð í Steinholti hf. og bundin í Félagsbókbandinu Bókfelli. Verð 1.230 krónur. Matthías Johannessen Þú svalar lestrarþörf dagsins á síöum Moggans! y .. ♦ ♦ 4--- Stúdentaleikhúsið Aukasýning’ á Kríton STÚDENTALEIKHÚSIÐ verð- ur með aukasýningu á samræð- unni KRÍTON eftir Platón laug- ardaginn 5. desember kl. 20.30 á Galdraloftinu, Hafnarstræti 9. í fréttatilkynningu segir að góð aðsókn hafi verið að frumsýningu verksins, svo margir hafí þurft frá að hverfa. Þeim aðilum gefist því annað tækifæri til að beija verkið augum. Ólafur Páll Jónsson heim- spekinemi leggur út af efni verks- ins í upphafi sýningar. Með aðal- hlutverk fara Stefán Gunnarsson sem Sókrates og Kári Gíslason sem Kríton. Leikstjóri er Þorgeir Tryggvason. GANON AUKASÝNING föstudaginn 4. desember kl. 20 ALLRA SÍÐASTA SINN 50% AFSLATTUR SÍMI 680680 REYKJAVÍKUR • borgarleikhúsið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.